Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 41
|laugardagur|13. 1. 2007| mbl.is
staðurstund
Málarahópurinn Gullpensillinn
opnar sýninguna Indigo í Gerð-
arsafni í dag. Þema sýning-
arinnar er indigóblár. » 43
myndlist
Kvikmyndin The Prestige er
komin í bíó en hún segir frá
tveimur töframönnum sem
berjast um bestu brögðin. » 44
bíó
Orð skulu standa er á dagská
Rásar 1 í dag, gestir eru Hall-
fríður Þórarinsdóttir og Kor-
mákur Geirharðsson. » 43
útvarp
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
skrifar um slúður og vinsældir
þess í fjölmiðlum í Af listum-
pistli dagsins. » 42
af listum
Vefsíðan Dindill virðist standa í
einhvers konar stríði við Bubba
Morthens, sem svarar fullum
hálsi. » 49
fólk
Þ
egar manni berast í sífellu fréttir af ofurlaunum for-
stjóra, himinháum starfslokasamningum (hvaða
vitleysa er það?), stigvaxandi bankagróða og fjár-
austri nýríkra spjátrunga í hreina og beina vitleysu
finnst manni þær milljónir sem vantar til að halda
blómlegri starfsemi gangandi í Tónlistarþróunarmiðstöðinni
(TÞM) hlægilega lítil upphæð. Það er nóg til af peningum, það
er ekki vandamálið, svo mikið er víst. Vandamálið er að hafa til
að bera meðvitund til að stýra þeim í skynsamlegar áttir.
Undanfarnar vikur hefur mikil umræða farið fram um starf-
semi þá sem rekin er í húsnæði Tónlistarþróunarmiðstöðv-
arinnar á Hólmaslóð 2. Þar æfa fimmtíu hljómsveitir og aðstaða
er til tónleikahalds, upptöku og margvíslegrar félagsstarfsemi.
Fjárskortur hamlar nú áframhaldandi umstangi og útlit er fyrir
að miðstöðin leggist af verði ekkert að gert.
Blaðamaður rak nef og eyru inn í miðstöðina á fimmtudags-
kvöldið og ræddi við Daníel Pollock, ráðsmann þar, og tvo unga
tónlistarmenn sem þar eiga skjól. Allt var á fullri ferð, enda eru
baráttutónleikar TÞM haldnir í dag í Hafnarhúsinu. Þeir hafa
fengið heitið Járn í járn.
Samskipti
„Það er eins og menn hafi verið að kveikja á þessu á und-
anförnum sex vikum,“ segir Daníel. „Krakkarnir sjálfir hafa
staðið sig best í því að vekja máls á þessu og þannig voru send
út 3000 mótmælatölvuskeyti.“ Daníel segir að tónleikarnir í
Hafnarhúsinu séu ætlaðir til kynningar á þeirri grósku sem er í
TÞM. Hljómsveitir verða t.a.m. með tónlist sína til sölu í sér-
stökum básum.
„Það eru ekki bara hljómsveitir að æfa hérna, það er líka
hörkumenningarlíf og -félagslíf í gangi,“ segir Daníel, kallaður
Danni. „Það eru mikil samskipti á milli hljómsveita og þær hlúa
hver að annarri.
Fólk lærir hvert af öðru og það er mikil virðing í gangi. Það
verður eitthvað jákvætt til og það er mikil virkni í gangi hérna.
Þetta er ákveðið úrræði fyrir ungt fólk og byggir það upp, alveg
eins og íþróttaiðkun. Það er auðvitað kjánalegt að menn tali
mikið um alla þá athafnasemi sem í gangi er, t.d. í kringum
Airwaves-hátíðina, og stæri sig af þeim mikla fjölda sveita sem
er í kringum hana og geri svo ekki nægilega mikið til að hlúa að
þeim.“
Þeir Logi Höskuldsson og Ármann Ingvi Ármannsson eru
meðal þeirra sem njóta tilvistar TÞM. Logi er í hljómsveitinni
Sudden Weather Change (myspace.com/suddenweatherc-
hange) og Ármann í sveitinni Who Knew? (myspace.com/
wellwhoknew), en báðar æfa þær í miðstöðinni.
„Manni finnst fáránlegt annað en að reynt sé að styðja við
þetta batterí,“ segir Ármann. „Þeir sem hér eru geta allir vott-
að um þá jákvæðu strauma sem leika um húsið. Maður finnur
fyrir skilningsleysi og staðan er slæm í Reykjavík núna. Það er
ekki bara að þetta húsnæði sé í hættu heldur er ekki einn al-
mennilegur tónleikastaður í borginni í dag. Það er fáránlegt,
sérstaklega með tilliti til þess að borgin er að stæra sig af því að
vera lifandi borg hvað tónlist varðar.“ Logi segir stemninguna í
húsinu einstaka, og t.d. hafi hlutirnir fyrst farið að rúlla hjá sér
og sínum eftir að þeir komu þangað.
„Það er góð og jákvæð stemning í mannskapnum hérna. Ef
mann vantar eitthvað er ekkert mál að fá það lánað og tónleikar
og slíkt er skipulagt hér. Hugmyndaflæðið er mikið og maður
leitar eftir uppbyggilegri gagnrýni frá hinum hljómsveitunum.
Þetta styður mann og það er einfaldlega hræðilegt til þess að
hugsa að fótunum verði kippt undan þessu.“ Já … það er auðvit-
að ekki eins svalt að halda uppi fimmtíu ungum og ástríðufullum
böndum í þrjú ár og að splæsa á ellismellina í Duran Duran fyr-
ir eina kvöldstund, sem kostar u.þ.b. það sama. Eða hvað? Tón-
leikarnir hefjast kl. 17.00 og aðgangur er ókeypis. Fram kemur
fjöldi sveita sem allar tengjast TÞM á einn eða annan hátt.
Hvað kostar rokkið?
Morgunblaðið/Ómar
Menningarleiðtoginn „Það eru ekki bara hljómsveitir að æfa hérna, það er líka hörku menningar- og félagslíf í gangi," segir
Daníel, dökkklæddur innan um englaher sinn í Tónlistarþróunarmiðstöðinni.
TÞM berst fyrir tilveruréttinum
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
www.tonaslod.is
HLJÓMSVEITIN Dr. Mister & Mr. Hand-
some var mikið í sviðsljósinu á nýliðnu ári
bæði vegna tónlistar og lífstíls. Nú er svo
komið að hljómsveitin hefur ákveðið að
hætta og heldur sína lokatónleika í kvöld á
Broadway.
„Það eru ýmsar ástæður fyrir því að við
erum að hætta en þetta var komið út í svo-
lítið mikið rugl eins og fór kannski ekki
framhjá fólki. Okkur langar líka til að gera
eitthvað nýtt og ég lít svo á að ég sé að
kveðja þessi lög og þennan lífstíl með tón-
leikunum í kvöld,“ segir Ívar Örn Kolbeins-
son sem er Dr. Mister en ásamt honum
skipa bandið, Guðni Rúnar Gunnarsson sem
er Mr. Handsome, Pétur Jökull og Egill
Tómasson.
„Þetta er búið að vera furðulegt ferðalag,
ekki allt gott og ekki allt slæmt, en manni
þykir vænt um þessa hljómsveit og við eig-
um marga aðdáendur svo okkur langaði að
halda kveðjutónleika.“
Spurður hvort erfitt sé að leggja hljóm-
sveitina niður segir Ívar það auðvitað vera
en hann sé ekki hættur að vinna í tónlist.
„Ég mun vera í tónlist svo lengi sem ég lifi
en ég mun ekki lifa mjög lengi ef ég held
áfram þeim lífstíl sem ég var í með Dr.
Mister og Mr. Handsome.“
Komið að öðrum kafla
Ívar segir margt í bígerð hjá sér og að
sköpunargyðjan hafi ekki yfirgefið hann.
„Ég skapa ennþá tónlist og vinn t.d. enn
með Agli sem var í bandinu með mér. Ég
held mig áfram við raftónlistina en stefni að
því að hafa hljóðfæraleikara með mér líka.
Ég get ekki sagt til um það hvenær von er á
einhverju frá okkur, við ætlum bara að taka
okkur þann tíma sem við þurfum í þetta.
Guðni Rúnar og Pétur Jökull koma líka til
með að halda áfram með verkefni á Íslandi.“
Á næstunni flytur Ívar erlendis og mun
vinna að tónlist sinni þar. „Ég fer út til að
einbeita mér að öðrum hlutum og til að fjar-
lægjast gamlan lífstíl. Dr. Mister & Mr.
Handsome var kafli í tónlistarferli mínum
sem er lokið og nú tekur annar kafli við,“
segir Ívar sem vill þakka öllum þeim fyrir
sem studdu hljómsveitina.
Á tónleikunum í kvöld mun Dr. Mister &
Mr. Handsome spila lög af disknum Dirty
Slutty Hooker Money sem kom út á seinasta
ári en ásamt þeim koma fram plötusnúð-
arnir Addi Exos og Dj Víkingur.
Broadway opnar kl. 23, miðaverð er 1.000
kr og aldurstakmark 20 ár.
Kveður lögin og lífsstílinn
Dr. Mister Ívar Örn segir að nú sé þessum
kafla í tónlistarferli hans lokið.
Tónlist | Lokatónleikar Dr. Mister & Mr. Handsome á Broadway í kvöld