Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 11 FRÉTTIR Laugavegi 40 - Sími 561 1690 RALPH LAUREN Útsala Útsala 50% afsláttur af öllum vörum NÝTT KORTATÍMABIL Verð er m.v. gengi 10.1 2007. Verð getur breyst án fyrirvara vegna gengisbreytinga. ÞAU drög að samkomulagi við Evr- ópusambandið um lækkun á tollum á landbúnaðarvöru gera ráð fyrir að heimilt verði að flytja inn til landsins mörg hundruð tonn af landbún- aðarvörum, m.a. umtalsvert magn af kjöti á lægri tollum en gilt hafa. Ís- land fær á móti tollfrjálsan aðgang fyrir smjör og skyr. Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið fyrr í vikunni að tekist hefði bráðabirgðasamkomulag við ESB um lækkanir á tollum með landbún- aðarvörur. Fjallað verður um sam- komulagið innan ESB í næstu viku og þá kemur í ljós hvort fyrirliggjandi drög verða samþykkt. Ekki er hægt að ganga út frá því sem vísu að sam- komulagið verði samþykkt. Ástæðan er m.a. sú að samkomulagsdrögin gera ráð fyrir að Ísland fái að flytja út tollfrjálst nokkur hundruð tonn af smjöri til ESB. Tollfrjáls aðgangur fyrir smjör og skyr Smjörútflutningur er talsvert við- kvæmt mál innan ESB. Það er hins vegar lítið mál fyrir ESB að sam- þykkja að Íslendingar fái að flytja skyr tollfrjálst til sambandsins, enda skyr nánast séríslensk vara. Það er talið geta skipt miklu máli fyrir ís- lenskan landbúnað ef ESB staðfestir fyrirliggjandi samningsdrög sem gef- ur íslenskum mjólkuriðnaði færi á að flytja út nokkur hundruð tonn af smjöri og skyri án nokkurra tolla. Ís- lendingar þurfa að flytja út 600–800 tonn af smjöri á hverju ári. Þetta smjör hefur stundum farið á markaði sem borga lágt verð eins og t.d. í Rússlandi. Mun hærra verð fæst í ríkjum ESB. Forsvarsmenn verslunarinnar eru sumir orðnir óþolinmóðir að bíða eftir útfærslu ríkisstjórnarinnar á boð- uðum tollalækkunum. Ríkisstjórnin lýsti því yfir sl. haust að tollar á inn- flutt kjöt yrðu lækkaðir „um allt að 40%“. Finnur Árnason, forstjóri Haga, sagði í Morgunblaðinu í vik- unni að þessi lækkun myndi hafa lítil áhrif vegna þess að tollarnir væru svo háir. Hann tók sem dæmi að tollur á innfluttar kjúklingabringur yrði 615 krónur á hvert kíló þó að hann yrði lækkaður um 40%. Það hefur hins vegar ekki komið fram í umræðunni að stjórnvöld von- ast eftir að geta í næstu viku kynnt verulega aukningu á svokölluðum lágmarkstollum. Það þýðir að heimilt verður að flytja inn hundruð tonna af kjöti tollfrjálst. Stjórnvöld telja að þessi innflutningur myndi hafa í för með sér umtalsvert aðhald í verð- lagningu á innlendum vörum, auk þess sem neytendur ættu kost á að kaupa verulegt magn af innfluttum kjötvörum á lægri gjöldum. Þessi breyting verður hins vegar ekki gerð nema að samningsdrögin við ESB verða samþykkt. Áhrif boðaðra tolla- lækkana verða því mun víðtækari ef drögin verða staðfest. Í dag er heimilt að flytja inn kjöt á lágmarkstollum sem nemur u.þ.b. 5% af innanlandsneyslu. Áhugi á að flytja inn kjöt hefur aukist á undanförnum tveimur árum og þess vegna hafa inn- flytjendur verið að greiða talsvert hátt verð fyrir að fá þessa tollkvóta, en þeir hafa verið boðnir út. Verðið hækkaði mikið á síðasta ári. Ef Evrópusambandið samþykkir ekki fyrirliggjandi samningsdrög verða tollkvótarnir ekki auknir. Kvótar fyrir lágmarkstolla verða líklega auknir Morgunblaðið/Sverrir Tollar Stjórnvöld ætla að tilkynna um tollalækkanir í næstu viku. Fréttaskýring | Stjórnvöld munu í næstu viku kynna lækkun á tollum á landbúnaðarvörum. Egill Ólafsson telur að það ráðist af viðræðum við ESB hvernig út- færslan verður. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÓLJÓST er hvað það mun kosta að gera við það sem aflaga fór við byggingu 1. áfanga Skuggahverfis en þó er ljóst að heildarkostn- aður getur orðið um 100–200 milljónir króna. Þetta segir Einar I. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri 101 Skuggahverfis, sem stóð að byggingu húsanna. Hann segir að rekja megi ágallana að mestu til vinnubragða verktakans, Eyktar hf. Fjölmiðlar hafa töluvert fjallað um galla sem fram hafa komið í blokkunum í Skugga- hverfi enda munu íbúðirnar vera dýrustu íbúð- ir í fjölbýlishúsum á landinu. Í yfirlýsingu frá 101 Skuggahverfi er sérstaklega tekið fram, vegna fréttaflutnings af flísunum, að hönnun, kaup og uppsetning á þeim og uppsetning- arkerfi hafi verið í höndum Eyktar. Í samtali við Morgunblaðið bætti Einar við að byggingarstjórn hefði einnig verið í hönd- um Eyktar. Komið hefði í ljós að flísar í klæðn- ingu hefðu sumar hverjar ekki verið nægj- anlega vel festar og nokkrar flísar hefðu fokið af húsinu í vondu veðri. Brugðist hefði verið við með því að fá verktaka til að fara yfir alla klæðninguna og taka lausu flísarnar niður svo af þeim stafaði ekki hætta. Einnig hefðu komið fram brúnir ryðblettir í 20–25% af rúðum í húsinu sem Einar sagði að mætti rekja til vinnubragða Eyktar á byggingartímanum. „Það virðast hafa farið einhverjar málmflísar í rúðurnar sem skilja eftir sig ryðbletti, ann- aðhvort af leiðurum sem þeir voru að setja upp eða frá slípirokkum eða einhverju öðru slíku,“ sagði hann. Skemmdirnar hefðu engin áhrif á styrkleika glersins en væru vissulega lýti. Meðal annarra helstu galla væri að horn á svölum hefðu sigið á nokkrum stöðum þannig að vatn rynni nú fram af þeim í staðinn fyrir að renna ofan í niðurfall eins og vænst hefði verið. Þetta væri að sjálfsögðu bagalegt. Einnig hefðu myndast sprungur í steyptri plötu í bíla- kjallara og hefði vatn m.a. seytlað ofan af efri hæð kjallarans niður á þá neðri. Hann tók fram að sprungurnar hefðu ekki áhrif á styrk- leika plötunnar. Að mati 101 Skuggahverfis mætti rekja alla þessa galla til vinnubragða Eyktar. Einar sagði að vegna þessara mála hefði verið óskað eftir dómkvöddum matsmönnum til að fá úr því skorið hverjar væru ástæður þeirra vandamála sem komið hefðu upp, hvernig ætti að gera við og hvað það myndi kosta. Óljóst væri hvenær þessari vinnu myndi ljúka en það væri á hinn bóginn ljóst að kostn- aðurinn myndi ekki lenda á þeim sem keyptu íbúðirnar. Aðspurður hvernig íbúar hefðu brugðist við þessum vandamálum sagði Einar að auðvitað væri enginn ánægður með að þetta hefði komið upp og að unnið hefði verið með húsfélaginu að því að leysa úr vandanum. Framkvæmdir við 2. áfanga Skuggahverfis eru nú þegar hafnar og verða fimm íbúðarhús byggð í þeim áfanga. „Við erum búnir að semja við Íslenska aðalverktaka um að byggja 2. áfanga og við treystum vel þeirra gæðakerf- um. Verkfræðistofa sér um eftirlit. Ég tel reyndar ekki að það hafi skort á eftirlit með 1. áfanga. Það sem brást var að verktakinn sinnti ekki þeim athugasemdum sem eftirlitið gerði og hvarf frá verkinu án þess að ljúka því,“ sagði Einar. Þess vegna hefði þurft að fá aðra verktaka til að ljúka ýmsum frágangi. | 36 Viðgerð gæti kostað 100–200 milljónir Lausar Nokkrar flísar í klæðningunni duttu af og fleiri voru teknar niður í öryggisskyni. Morgunblaðið/G.Rúnar Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is MARGIR hafa sýnt Barónsstíg 47, húsinu sem áður hýsti Heilsuvernd- arstöðina, áhuga, en húsið var aug- lýst til sölu eða leigu hjá Fasteigna- markaðinum síðastliðinn sunnudag. Eitt kauptilboð hefur þegar borist í eignina. Jón Guðmundsson, fasteignasali hjá Fasteignamarkaðinum, segir að margir hafi skoðað húsið í vikunni. Ýmist aðilar hafi sýnt áhuga á að kaupa eða leigja húsið, en til greina kemur að leigja það í 2–3 hlutum. Þá fylgir húsinu 1.500 fm byggingar- réttur á lóðinni sem snýr að Domus Medica. Ýmis áform um nýtingu Jón segir fyrirspyrjendur um eignina hafa margskonar áform um nýtingu hennar. Sumir leiti að hús- næði fyrir starfsemi sem tengist heilbrigðisþjónustu. Einnig hefur komið til tals að nýta húsnæðið undir hjúkrunarheimili. Jón segir nokkuð um það að læknar hafi haft samband við sig og lýst þeirri skoðun sinni, að synd væri ef annað en heilbrigðisstarfsemi færi í húsið sem gegnt hefur því hlutverki í hálfa öld. Jón bendir hins vegar á að þó að húsnæðið sé sniðið að þörfum heilsugæslu geti það vel hentað und- ir hvers konar skrifstofu- eða þjón- ustustarfsemi. Húsið er laust til afhendingar nú þegar og segir Jón seljendur tilbúna að koma til móts við leigjendur varð- andi endurbætur sé þess óskað. Hús- ið er samtals rúmlega 4.600 fm að stærð og er byggt á árunum 1949 til 1955. Það er hannað af arkitektunum Einari Sveinssyni og Gunnari H. Ólafssyni og er eitt þekktasta kenni- leiti í borginni. Heilsuverndarstöðin var fyrsta sérhannaða heilsugæslubyggingin hér á landi. Mar-hús ehf. keypti hús- næðið af ríki og borg og fékk það af- hent í ágúst á síðasta ári. Miðstöð mæðraverndar, sem áður var til húsa í Heilsuverndarstöðinni, var flutt upp í Mjódd nýverið. Var mikil óánægja meðal starfsmanna með flutninginn. Áhugi á Heilsuverndarstöðinni Morgunblaðið/Ómar Óráðin framtíð Ýmsir hafa sýnt Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg áhuga en húsið er til sölu eða leigu. Húsið er hannað fyrir heilbrigðisstarfsemi. STJÓRNVÖLD seldu húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg til einkaaðila fyrir nokkru. Áður hafði Landspít- alinn óskað eftir að fá það á leigu. Við þeim óskum var ekki orðið. Í gær ályktaði almennur læknaráðsfundur LSH um hús- næðisvanda sjúkrahússins sem valdi óhagkvæmni í rekstri, komi í veg fyrir nauðsynlega þróun þjónustunnar næstu árin og komi niður á sjúklingum og starfsmönnum. Skorað er á heil- brigðisráðuneytið að láta þegar í stað fara fram athugun á því hvort létta megi á húsnæð- isvandanum með því að tiltekin starfsemi á vegum LSH fái inni í húsnæði Heilsuverndarstöðv- arinnar við Barónsstíg. Læknar vilja húsið fyrir LSH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.