Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ANNASAMT verður á Alþingi næstu tvo mánuði enda bíða 106 frumvörp og 67 þingsályktunartillögur af- greiðslu. Þrjátíu frumvörpum hefur þegar verið vísað til nefndar en önnur bíða fyrstu umræðu. Fyrsta málið sem alþingismenn takast á um er þriðja og síðasta umræða um stjórn- arfrumvarp þess efnis að Rík- isútvarpið (RÚV) verði gert að hluta- félagi. Ætla má að umræður verði fjörlegar enda er stjórnarandstaðan andvíg frumvarpinu. Össur Skarphéðinsson, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, segir þetta fyrsta skrefið í að selja Rík- isútvarpið og Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir frumvarpið stórskaðlegt fyrir RÚV. „Þetta er orðin stagbætt töt- raflík og frumvarpið er alveg jafn- umdeilt og það hefur verið frá fyrstu tíð,“ segir Ögmundur. „Búið að segja flest sem þarf“ Hjálmar Árnason, þingflokks- formaður Framsóknar, telur þó að RÚV-frumvarpið ætti ekki að taka langan tíma enda sé búið að segja um það flest sem segja þarf. „En eflaust taka menn til máls í upphlaup- stilgangi,“ segir Hjálmar og bætir við að þingið muni einkennast af upp- hlaupum, eins og oft vill verða í að- draganda kosninga. Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að afgreiðslu RÚV-frum- varpsins verði frestað svo tóm gefist til að skoða gögn frá ESA, eftirlits- nefnd EFTA, en þar sem meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er samstígur má ætla að frumvarpið verði fljótlega að lögum. Formenn stjórnarandstöðuflokk- anna lýstu því yfir á haustdögum að þeir hygðust stilla saman strengi sína í allan vetur. „Samstaða stjórnarand- stöðunnar hefur gengið algjörlega eftir á þinginu. Við höfum sameinast um burðarmál og velferðarmálin eru kjarninn í okkar samstarfi,“ segir Össur. „Fari svo að ríkisstjórnin tapi meirihluta í kosningunum í vor munu þessir þrír flokkar tala saman fyrst áður en þeir ræða við aðra flokka um myndun ríkisstjórnar,“ áréttar hann. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokks, segir aft- ur á móti engin skýr merki um sam- stöðu hjá stjórnarandstöðunni. „Þau eru oft með tvö og jafnvel þrjú minni- hlutaálit í málum og svo eru skýr skil milli skoðana flokkanna varðandi ým- is mál,“ segir Arnbjörg og tekur ut- anríkismál og innflytjendamál sem dæmi. Hjálmar Árnason er á sömu skoðun og segir samstarf stjórn- arandstöðunnar eingöngu vera í orði en ekki á borði, enda sé þetta sund- urleitur hópur. Samvinna Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks hefur einnig verið milli tannanna á fólki og heyrst hafa radd- ir um þreytu í stjórnarsamstarfinu. Arnbjörg og Hjálmar vísa því bæði á bug og segja þessar raddir ekki munu hafa áhrif á samstarf flokkanna á endaspretti kjörtímabilsins. „Við ljúkum kjörtímabilinu en svo koma kosningar og að vanda ganga allir flokkar óbundnir til kosninga,“ segir Hjálmar. Heildarlög um Vatnajök- ulsþjóðgarð bíða fyrstu umræðu en Arnbjörg segir jákvæðar raddir heyrast um þetta frumvarp. „Ég held að þarna verði ekki mjög andstæð sjónarmið þótt þetta sé auðvitað stór- mál enda um stórt landsvæði að ræða,“ segir Arnbjörg og bætir við að það geti verið ómögulegt að spá fyrir um hvaða mál veki miklar umræður, ekki síst í aðdraganda kosninga. Innflytjendamál á dagskrá Stefnumótun varðandi stöðu inn- flytjenda á vinnumarkaði er á loka- sprettinum en um er að ræða sam- vinnu stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðshreyfinga. „Mér sýnist þingheimur nokkurn veginn vera á sömu línu varðandi þetta,“ segir Hjálmar en útilokar þó ekki að til orðaskipta komi vegna málefna inn- flytjenda. Magnús Þór Hafsteinsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, segist eiga von á frumvarpi frá félagsmálaráðherra um atvinnumál innflytjenda. „Ég vænti þess að það gefi verkalýðsfélögum möguleika á að hafa betra og skilvirk- ara eftirlit svo ekki sé verið að brjóta á þessu fólki. Þá verður vonandi unn- ið að mjög svo tímabærum úrbótum hvað varðar réttindi og skyldur laun- þega og atvinnurekenda,“ segir Magnús sem á von á líflegu þingi og þá ekki síst átökum um samgöngu- mál, enda ný samgönguáætlun í bí- gerð. Stjórnarandstaðan vonast eftir að koma sínum málum á dagskrá en Ög- mundur segir þau þingmál m.a. taka á kjarajöfnuði í þjóðfélaginu, jafnrétt- ismálum og umhverfismálum. „En mér býður í grun að meirihlutinn vilji helst ljúka þingi sem fyrst svo ráð- herrar geti tekið til við það af alvöru að klippa borða og safna á sig skraut- fjöðrum fyrir kosningar,“ segir Ög- mundur Önnur stjórnarfrumvörp sem bíða afgreiðslu og gætu leitt til líflegra umræðna í þinginu eru t.d. fjölmiðla- frumvarpið, frumvarp um nýsköp- unarsjóð og frumvarp um heildarlög um embætti landlæknis. Vorþing hefst á mánudag með umræðum um RÚV ohf. Alþingi kemur saman á mánudag að loknu jóla- fríi. Halla Gunnars- dóttir veltir því hér upp hver verða helstu málin á þessu stutta þingi sem lýkur í mars. Morgunblaðið/Kristinn Fiðringur Annasamir dagar og talsverð átök eru framundan hjá þing- mönnum á stuttu vorþingi enda kosningar á næsta leiti. Í HNOTSKURN » 106 frumvörp og 75 þings-ályktunartillögur bíða af- greiðslu Alþingis sem kemur saman á mánudag » Vorþingið stendur aðeinsí tvo mánuði að þessu sinni vegna komandi alþingiskosn- inga. » Þriðja umræða um Rík-isútvarpið ohf. verður fyrst á dagskrá en stjórn- arandstaðan hyggst beita sér gegn því frumvarpi af öllu afli. FINNUR Árna- son, forstjóri Haga, segir eðli- legt að líta á kjúk- linga- og svína- kjötsframleiðslu sem iðnaðarfram- leiðslu frekar en landbúnað. Lítill virðisauki sé fyrir samfélagið af þessari framleiðslu og það eigi að hætta henni hér á landi. Ingvi Stefánsson, formaður Svínaræktarfélag Íslands, gagn- rýndi verslunina í Morgunblaðinu í gær og sagði að á sama tíma og hún gagnrýndi landbúnaðinn og gerði kröfu um ódýrari matvæli tækist henni ekki að bjóða neytendum upp á ódýran fatnað. Föt og skór væru 63% dýrari en meðalverð í 15 ríkj- um Evrópusambandsins. Finnur sagðist ekki treysta sér til að svara fyrir alla verslun í landinu, en Hagar teldu sig vera að bjóða ódýrustu föt á Íslandi. „Ég átta mig ekki á hvernig þessi samanburður á verði fatnaðar er gerður. Varðandi alþjóðleg merki þá er þeirri verð- lagningu stýrt úti í heimi, eins og þekkt er t.d. varðandi Levi’s galla- buxur. Eigendum vörumerkja er heimilt að skipta mörkuðum upp í verðsvæði.“ Samkvæmt tölum hagstofu Evr- ópu eru brauð og kornvörur 72% dýrari á Íslandi en í 15 ríkjum ESB og ávextir og grænmeti eru 55% dýrari. „Við höfum reiknað út að þrátt fyrir að öll álagning á matvörum væri tekin út úr okkar fyrirtæki þá væri verðlag 40% dýrara en í Evr- ópu. Þetta segir okkur að verslunin skýrir ekki þennan mun,“ sagði Finnur og benti á að matvörur hefðu hækkað mun minna en neysluverðsvísitala. Iðnaður en ekki landbúnaður „Í mínum huga er svínafram- leiðsla ekkert nema iðnaður. Það er takmarkaður virðisauki fyrir þjóð- arbúið að vera með þessa starfsemi hér á landi þegar þetta er að kosta neytendur jafnmikið og það er að gera. Það er fráleitt að skattleggja alla þjóðina fyrir iðnaðarfram- leiðslu sem skilar ekki meiru en þetta. Verð á svínakjöti hefur rokið upp og hér er framleiðslu stýrt miðað við að ná sem hæsta verði. Ég tel að þessi iðnaðarframleiðsla eigi ekki að njóta innflutningsverndar.“ Finnur sagði að það sama gilti um kjúklingaframleiðsluna. Það væri iðnaðarframleiðsla. Verðmunur á innlendum og erlendum kjúklingum væri mjög mikill og þar að auki væri skortur á kjúklingakjöti á markaðinum. Hætta á framleiðslu svínakjöts Finnur Árnason Sogn féll niður í upptalningu VEGNA mistaka féll niður eitt orð í viðtali við Ólaf Ólafsson fyrrverandi landlækni í blaðinu í gær. Þannig gleymdist að telja upp Sogn í einni málsgrein viðtalsins. Beðist er vel- virðingar á þessum leiðu mistökum og málsgreinin hér endurbirt í heild sinni rétt: Í samtali við Ólaf rifjar hann upp að hann hafi m.a. haft for- göngu um stofnun Hlaðgerðarkots og Sogns á sínum tíma og aðstoðað við stofnun Krýsuvíkurheimilisins, Byrgisins og SÁÁ. „Þetta gerðist þrátt fyrir áralöng mótmæli Geð- læknafélags Íslands við stofnun Sogns, sem ætlað er geðsjúkum af- brotamönnum,“ segir Ólafur og bæt- ir við: „Á þann veg náðist að búa fjöl- mörgum útihýstum aðilum, sem margir telja skipta hundruðum og ekki fengu á pláss á spítölum okkar, skjól og meðferð.“ LEIÐRÉTT ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.