Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 21
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Unnið er að und-
irbúningi þess að markaðssetja söfn,
sýningar og ýmsa ferðamannastaði á
Reykjanesi sameiginlega undir heit-
inu Blái demanturinn. Byrjað verður
á fyrstu útgáfu í sumar. Vísar heitið
til ferðamannahrings þar sem vík-
ingaskipið Íslendingur og Víkinga-
heimar eru áfangastaður, ásamt
Bláa lóninu og sýningunni Orkuverið
Jörð í Reykjanesvirkjun og fleiri
stöðum. Jafnframt er unnið að því að
tengja sem flesta aðila í ferðaþjón-
ustu og verslun þessu verkefni.
Farið var yfir stöðuna við undir-
búning uppbyggingar sýningarhalds
í tengslum við víkingaskipið Íslend-
ing í svonefndum Víkingaheimum í
Reykjanesbæ á ráðstefnu í vikunni.
Sýningarhús boðið út í apríl
Miklar moldarmanir hafa verið
gerðar í kringum fyrirhugaða Vík-
ingaheima á Njarðvíkurfitjum og yf-
ir stendur lokahönnun sýningarhúss.
Víkingaskipið verður uppistaðan í
sýningunni ásamt víkingasýningu
sem byggist á stórri sýningu Smit-
hsonian-stofnunarinnar sem sett var
upp í Washington á árinu 2000. Sýn-
ingin verður aðlöguð nýjum aðstæð-
um. Lögð verður áhersla á mikilvægi
siglinga á víkingaöld og gerð grein
fyrir landnámi Reykjaness. Hægt
verður að ganga um borð í Íslending
og skoða skipið. Fram kom hjá
Steinþóri Jónssyni verkefnisstjóra
að fyrirhugað er að bjóða byggingu
hússins út í apríl næstkomandi og
opna sýninguna í júní á næsta ári.
Þá er verið að undirbúa lifandi vík-
ingagarð á svæðinu. Fram kom hjá
Ásmundi Friðrikssyni verkefnis-
stjóra að lögð verði áhersla á fróðleik
og skemmtun. Meðal annars verður
settur upp þingstaður, sjávarþorp,
eldsmiðja og ýmis leiktæki, auk þess
sem íslensk húsdýr verði á svæðinu.
Ætlunin er að fólk verði ávallt við
vinnu á staðnum, meðal annars við
framleiðslu minjagripa.
Hrint í framkvæmd
Í nokkur ár hefur verið unnið að
þróun hugmyndar um samtengingu
ferðaþjónustu á Reykjanesi með
nokkrum sterkum seglum undir
heitinu Blái demanturinn. Íslending-
ur ehf. hefur nú tekið yfir þá und-
irbúningsvinnu af frumkvöðlunum
og Steinþór Jónsson segir að hún sé
komin á framkvæmdastig. Jafnframt
hefur fyrirtækið tekið að sér umsjón
með Brú milli heimsálfa. Ætlunin er
að byrja í sumar að selja Reykjanes-
miða sem veitir aðgang að mörgum
ferðamannastöðum og afslátt af ým-
iskonar þjónustu og vörum í versl-
unum. Tilgangurinn er, að sögn
Steinþórs, að vekja athygli ferða-
fólks á þessu svæði, fá það til að
koma við og skoða meira. Með þessu
móti segir hann að einhverjar tekjur
fáist strax sem sé mikilvægt fyrir
þetta mikla verkefni.
Byrjað verður að selja ferðir
um „Bláa demantinn“ í sumar
Naust Íslendings
og Víkingaheimar
opnaðir vorið 2008
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kynning Elisabet Ward Hightower undirbýr víkingasýninguna en hún
vann við uppsetningu sýningar Smithsonian. Steinþór Jónsson fylgist með.
Naust Sýningarhúsið á Njarðvíkurfitjum er nefnt Naust Íslendings.
Sandgerði | Félagsþjónusta Sand-
gerðisbæjar hefur tekið að sér fé-
lagsþjónustu í Garði og Vogum.
Samningur þess efnis og um sam-
eiginlega barnaverndarnefnd fyrir
sveitarfélögin þrjú var undirrit-
aður í vikunni. Bæjarstjórarnir þrír
gengu frá samningnum, Róbert
Ragnarsson í Vogum, Sigurður Val-
ur Ásbjarnarson í Sandgerði og
Oddný Harðardóttir í Garði.
Sameiginleg
félagsþjónusta
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Grindavík | Bæjarstjórn Grindavík-
ur hefur ákveðið að lækka álagn-
ingarhlutfall lóðarleigu og frá-
veitugjalds, til að vega á móti 15%
hækkun fasteignamats á íbúðir.
Á bæjarstjórnarfundi í vikunni
lögðu fulltrúar minnihlutans,
Framsóknarflokksins og Frjáls-
lynda flokksins, til að álagning fast-
eignaskatts, lóðarleigu og holræsa-
gjalds yrði lækkuð um 13% til að
vega á móti hækkunum fast-
eignamats. Tillagan var felld með
atkvæðum meirihlutans, Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingarinnar.
Í staðinn var samþykkt tillaga
meirihlutans um lækkun lóðarleigu
úr 1,6% af fasteignamati lóðar í 1%
og lækkun fráveitugjalds íbúða úr
0,17% í 0,15%.
Gjöld lækkuð
í Grindavík