Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 24
lifun 24 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ S tórir gluggar í stofunni sem vísa út að sjónum gefa fyrirheit um frábært útsýni, þegar veður leyf- ir. Þennan dag er kári í miklum ham svo fjöllin eru í hvarfi og sjórinn með grárra móti. Engu að síður er gaman að fylgjast með hvítu fjúkinu fyrir utan. Í fjarska glittir í birtu, einhvers staðar í miðju kófinu. „Útsýnið er auðvitað flottasta málverkið hérna því það er alltaf eitthvað nýtt sem ber fyrir augu,“ segir húsmóðirin Sigrún þegar við göngum inn í stofuna. Hún hefur samanburðinn því veggirnir eru þaktir verkum eftir þekkta íslenska listmálara, m.a. Kjarval sem málaði á sínum tíma portrett af ömmu Sig- rúnar og fjölskyldu hennar. Þar við hliðina er stór landslagsmynd eftir Tolla sem rataði í híbýli þeirra hjóna eftir þónokkrum krókaleiðum. „Ég sá hana á sýningu og heillaðist al- gerlega af litunum í henni. Eftir það var ég alltaf annað slagið að hugsa um þessa mynd en komst að því seinna að Tolli væri búinn að láta hana eitthvert. Einhverju sinni vor- um við á Hótel Flúðum og þar blasti myndin við þegar maður gekk inn. Ég varð upprifin og benti Agli á að þarna væri myndin sem ég væri búin að tala svo mikið um. Nokkru seinna fórum við aftur á Flúðir í sum- arbústað og þá tók Egill mig með í bíltúr á hótelið þar sem hann gaf mér myndina. Þá hafði hann í milli- tíðinni samið um kaupin, þremur ár- um eftir að ég sá hana fyrst.“ Þau Sigrún og Egill starfa bæði við fyrirtæki sitt, Egilsson/Office 1, auk þess sem hún á sæti í bæj- arstjórn Seltjarnarness. Tólf ár eru síðan þau fluttu inn í húsið. „Við gerðum ekkert nema að mála áður en við fluttum inn, auk þess sem við tókum niður vegginn milli borðstof- unnar og stofunnar. Hann gerði það að verkum að það sást ekki út að sjó úr borðstofunni,“ útskýrir hún. „Í kringum árið 2001 þurftum við að klæða húsið vegna steypuskemmda og þar með fór boltinn að rúlla. Hús- ið sjálft var í raun ekki svo stórt en hins vegar fylgdi með því risastór bílskúr sem við ákváðum að taka undir íbúðarhús og þar eru nú tvö stór herbergi. Og af því að við vorum byrjuð fjölguðum við gluggunum í borðstofunni. Áður var líka lokað á milli eldhússins og borðstofunnar svo það var ekki hægt að komast beint úr borðstofunni út á pallinn og því vildum við breyta. Það varð síðan til þess að við tókum eldhúsið líka í gegn enda einhvern veginn allt kom- ið af stað hvort eð var. Það er svolít- ið erfitt að hætta þegar maður byrj- ar.“ Grafið út úr bílskúrssökklinum Þá voru bæði baðherbergin í hús- inu tekin í gegn og þar sem bílskúr- inn fór undir herbergi fólst hluti af framkvæmdunum í því að byggja nýjan bílskúr framan við húsið. Lokahnykkurinn var svo að grafa út úr sökklinum á bílskúrnum til að koma fyrir geymslum og tómstunda- herbergi, sem tekið var í notkun rétt fyrir jól. „Húsið var eiginlega bara tveggja manna hús þegar við keyptum það því það voru fá herbergi,“ heldur Sigrún áfram. „Það hentaði okkur ágætlega á sínum tíma enda vorum við barnlaus. Hins vegar fjölgaði hratt í kotinu og núna eigum þrjú börn, 4 ára stelpu, og 7 og 10 ára Morgunblaðið/Golli Hreindýrið „Rúdolf er nýtilkominn og er tímabundinn gestur,“ segir Sigrún og hlær. „Bóndinn skaut hann sjálfur og birtist með hann uppstoppaðan á Þorláksmessu. Hann fékk að setja hann upp með því skilyrði að við fengjum að hengja jólaskraut á hornin á honum. Kannski maður þurfi að byggja sumarbústað til að losna við kvikindið? Annars fer hann bara vel yfir arninum.“ Erfitt að hætta þegar maður byrjar Uppáhaldsstaðurinn Borðstofuborðið er hálfgerð umferðarmiðstöð. Á bak við Ragnheiði Helgu, fjögurra ára, sést í listaverk sem börnin hafa málað í skóla og leikskóla en efsta myndin er reyndar eftir Lísbetu Sveinsdóttur listmálara. „Egill fékk hana í afmælisgjöf en hinar standast alveg samanburðinn,“ segir móðirin stolt. Við sjávarsíðuna á Sel- tjarnarnesi stendur rúm- lega 30 ára gamalt ein- býlishús sem hjónin Sigrún Edda Jónsdóttir og Egill Þór Sigurðsson hafa gerbreytt á síðustu fimm árum. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir heimsótti Sigrúnu í hríð- inni á dögunum. Vinnuherbergið Jón Lárus, sjö ára, unir sér vel í tölvunni við vegg sem er prýddur fjölskyldumyndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.