Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn AÐ EIGA KÆRUSTU BREYTIR ÖLLU, GRETTIR! ÞAÐ BREYTIR BRAGÐINU AF HLUTUM OG LYKTINNI AF ÞEIM ÉG HELD AÐ ÉG ÞURFI AÐ SKIPTA OFTAR UM SOKKA HÉÐAN Í FRÁ ÞAÐ KOM EITTHVAÐ GOTT KOM ÚT ÚR ÞESSU FRÚ RÓSA! AF HVERJU SEGIR ÞÚ ÞETTA? EKKI SEGJA SVONA HLUTI, FRÚ RÓSA... AF HVERJU GERIR ÞÚ ÞETTA? ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI MIKIÐ LENGUR MAMMA! ÉG OG PABBI ERUM AÐ FARA AÐ VEIÐA, VILTU EKKI KOMA MEÐ OKKUR? NEI, EKKI AÐ RÆÐA ÞAÐ. ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÉG VIL SJÁ Á ÞESSUM TÍMA DAGS ER SLÍMUGUR FISKUR AÐ SPRIKLA MEÐ ÖNGUL Í KJAFTINUM ÞAÐ EINA SEM MIG LANGAR Í NÚNA ER DAGBLAÐ OG GÓÐUR KAFFIBOLLI HVERS VEGNA ERUM VIÐ ÞÁ HÉRNA? ÞÚ GETUR SPURT VILLIMANNINN ÉG ÆTLA AÐ KENNA ÞÉR AÐ VEIÐA Á MAÐK HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ GETA RÁÐIST Á KASTALANN ÞINN Á MEÐAN ALLT ÞETTA FÓLK ER GANGANDI UM? FYRIRGEFÐU! HÚSIÐ MITT ER BARA SVO STÓRT AÐ ÉG VERÐ AÐ VERA MEÐ SKOÐUNARFERÐIR TIL ÞESS AÐ BORGA SKATTANA MÍNA NEI, EINN ÞEIRRA ER LEP- PUR... SÍÐAN ERU HINIR NIKÓTÍN- PLÁSTUR OG MEGRUNAR- PLÁSTUR MÉR ÞYKIR ÞAÐ HRÆÐILEGT AÐ DODDI OG LINDA SÉU AÐ FARA AÐ SKILJA ÉG VAR VEISLU- STJÓRI Í BRÚKAUPINU ÞEIRRA OG NÚNA EIGA ÞAU KRAKKA... ÞETTA ER HRÆÐILEGT ÉG SKIL BARA EKKI HVAÐ HÚN ER AÐ HUGSA HÚN ER AÐ HUGSA?!? MÁNUDAGSMORGUN Í STÓRBORGINNI... FYRSTI DAGURINN SEM STARFSMAÐUR HJÁ BLAÐINU... GOTT GETA LOKSINS UNNIÐ FRÁ 9 - 5 EN ÞAÐ ER BARA EITT VANDAMÁL... PARKER, ÉG VAR AÐ BÚAST VIÐ ÞÉR FYRR! ...OG ÞAÐ ER HANN Reyksíminn – ráðgjöf í reyk-bindindi 800 60 30 er op-inn alla virka daga frá kl.17 til 19. Guðrún Árný Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur er verkefnisstjóri Reyksímans ásamt Dagbjörtu Bjarnadóttur hjúkr- unarfræðingi: „Margir nota tækifær- ið um áramót og setja sér ný mark- mið, stuðla að bættri heilsu og hætta að reykja,“ segir Guðrún Árný. „Reyksíminn býður upp á upplýs- ingar og stuðning við þá sem vilja hætta að nota tóbak, og hefur þessi þjónusta sannað sig frá því Reyksím- inn hóf fyrst starfsemi árið 2000.“ Ráðgjöf í reykbindindi 800 60 30 byggir á sænskri fyrirmynd: „Sér- þjálfaðir hjúkrunarfræðingar eru við símann og veita persónulega ráðgjöf, hvatningu og stuðning þeim sem hringja í leit að aðstoð,“ segir Guðrún Árný. „Sérþekking starfsmanna Reyksímans skiptir sköpum við ár- angursríka meðferð, en þeir skoða meðal annars hvernig gengið hefur í fyrri skipti þegar reynt hefur verið að hætta tóbaksnotkun, hversu mikið er reykt og hvenær, s.s. hvort reykt er meira á morgnana eða kvöldin, eða undir álagi.“ Út frá þeim upplýsingum sem fulltrúar Reyksímans afla aðstoða þeir við að finna hentugustu leiðina til að segja skilið við tóbakið: „Það er mjög einstaklingsbundið hvað hentar best hverju sinni. Sumir vilja nota nikótínlyf, og aðrir nikótínlaus lyf. Svo eru aðrir sem vilja hætta tóbaks- neyslu án allra lyfja, og veitir ráðgjafi Reyksímans leiðsögn í samræmi við það,“ segir Guðrún Árný. „En fyrst og fremst snýst tóbaksmeðferð um að byggja upp rétt hugarfar. Við leit- umst við að hjálpa þeim sem til okkar leita að finna virkilega löngun til að hætta að nota tóbak, skerpa á ástæð- um þess af hverju fólk vill hætta, og ekki síður af hverju það notar tóbak. Við bjóðum einnig upp á þá þjónustu að veita eftirfylgni, þar sem við fylgj- um fólki eftir í allt að eitt ár, og hringjum reglulega til að veita bæði aðhald og stuðning.“ Að sögn Guðrúnar Árnýar hefur stór hluti þeirra sem hringja til Reyk- símans reynt ýmis önnur ráð áður: „En það er mikilvægt að gefast ekki upp þótt ekki hafi tekist að hætta að reykja í fyrri skiptin. Það má alltaf læra af fyrri mistökum til að sjá betur hvað virkar, hvað ber að forðast, gera betur næst, og takast að hætta,“ segir Guðrún. „Aðferðir Reyksímans hafa sannað sig, en könnun sem gerð var árið 2003 sýndi að um 30% þeirra sem leituðu til okkar tókst að hætta tób- aksnotkun til langframa. Þetta þykir mjög góður árangur, því samkvæmt rannsóknum tekst aðeins 7% þeirra sem reyna að hætta án aðstoðar að ná markmiði sínu.“ Ókeypis er að hringja í Reyksím- ann. Ef hringt er utan vakttíma eða ef síminn er á tali er gefið samband við talhólf og hægt er að skilja eftir skila- boð og símanúmer. Þá hringja fulltrúar Reyksímans um leið og færi gefst. Reyksíminn – ráðgjöf í reykbind- indi er í síma 800 60 30. Einnig má fá gagnlegar upplýsingar á slóðinni www.8006030.is og senda tölvupóst á netfangið 8006030@heilthing.is. Heilsa | Ráðgjöf í reykbindindi 800 60 30 veit- ir ókeypis og persónulega aðstoð Hjálp við að hætta að reykja  Guðrún Árný Guðmundsdóttir fæddist í Reykja- vík 1966. Hún lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð 1986 og BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1996. Guðrún Árný hefur starfað hjá Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga frá árinu 1996, á skurðstofu og deildum, og er auk þess gæðastjóri Heilbrigðisstofn- unarinnar. Hún hefur verið ráðgjafi við Reyksímann frá árinu 2000. Guð- rún Árný er gift Jósep Sigurðssyni vélfræðingi og eiga þau þrjú börn. KVIKMYNDIN The Prestige er vísindaskáldsaga blönduð dramatík og spennu. Myndin gerist á 20. öld í Lundúnum og greinir frá vægðar- lausri samkeppni milli tveggja töframanna sem beita allskyns brögðum til að lokka til sín áhorf- endur. Báðir keppast þeir við að finna upp ný töfrabrögð með skelfi- legum afleiðingum. Hinn fíni töframaður Robert Angier (Jackman) er fullkominn skemmtikraftur á meðan hinn grófi „púristi“ Alfred Borden (Bale) er skapandi snillingur sem skortir glæsileikann til að koma töfra- brögðum sínum á framfæri. Angier og Borden byrja sem miklir vinir og félagar en þegar stærsta töfra- bragð þeirra fer hræðilega úrskeið- is verða þeir óvinir fyrir lífstíð og reyna að slá hvor öðrum við og koll- varpa. Samkeppnin þeirra á milli eykst þar til hún er komin út fyrir öll mörk og hefur áhrif á líf allra í kringum þá. Það er breski leikstjórinn Christ- opher Nolan sem leikstýrir The Prestige en hann hefur áður gert myndir eins og Batman Begins og Memento. Frumsýning | The Prestige Töfrar Christian Bale og Hugh Jackman fara með aðalhlutverkin. Tvennra töfra tal ERLENDIR DÓMAR: Metacritic.com 66/100 Rolling Stone 88/100 Empire 80/100 The New York Time 80/100 Variety 40/100 (allt skv. Metacritic.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.