Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þeir sem voru viðstaddir undirritunsamnings um stóraukin framlög tilHáskóla Íslands næstu fimm árinmuna vart eftir jafn tilfinninga- þrunginni stund innan veggja hans. Virðulegir prófessorar tóku upp vasaklútinn og deildar- forsetar viknuðu. Skýringarinnar er ef til vill að leita í eins konar spennufalli. Einn viðmælenda Morgunblaðsins sagði að Kristín Ingólfsdóttir rektor hefði lagt mikla áherslu á stefnumótun innan Háskólans á undanförnum misserum, en úrtöluraddir hefðu heyrst, því margir hefðu ekki haft trú á að sú vinna myndi skila miklu. Kristínu hefði þó tekist að ná upp góðum liðs- anda og þegar menn hefðu allt í einu séð árang- urinn, í stórauknum framlögum til kennslu og rannsókna, hefði þeim verið öllum lokið. Sælan er allsráðandi innan Háskólans. „Stórkostlegur samningur“, „tímamótasamn- ingur“ og „bylting“ eru þau orð sem menn nota. Menntamálaráðherra hefur „unnið af þekk- ingu“ og viðmælendur telja samninginn mik- ilvægan fyrir allt háskólasamfélagið, ekki bara Háskóla Íslands. Raunhæft markmið Mikla athygli vakti í byrjun síðasta árs þegar Kristín Ingólfsdóttir rektor sagði að Háskólinn ætti að stefna að því að komast í hóp hundrað bestu háskóla heims og margir efuðust um að það væri hægt. „Sú yfirlýsing kallaði á almenna umræðu um háskólamenntun og núna sjá menn að þetta er raunhæft markmið,“ segir Kristín. „Sjö ríkisreknir háskólar á Norðurlöndunum eru í hópi hundrað bestu. Hvers vegna ætti Há- skóli Íslands ekki að komast í þann hóp? Ég er afar þakklát menntamálaráðherra og ríkis- stjórninni fyrir afdráttarlausan stuðning við Háskóla Íslands, því hann gerir okkur kleift að hrinda áætlunum okkar í framkvæmd. Eftir fimm ár ættum við að vera komin vel á veg með að ná þessu langtímamarkmiði okkar.“ Kristín segir samninginn árangurstengdan og nefnir helstu dæmi. „Háskólinn á að fimm- falda fjölda útskrifaðra doktorsnema, tvöfalda birtingu vísindagreina, auka starf á lands- byggðinni, bæta fjarkennslu, bæta aðbúnað nemenda og auka tækjakost. Þá má nefna að nú liggur fyrir lagafrumvarp um sameiningu Há- skólans og Kennaraháskólans. Verði það sam- þykkt mun Háskólinn starfa að sameiningunni eftir þeim áherslum sem fram komu í skýrslu menntamálaráðuneytisins sl. haust.“ Rektor Háskóla Íslands segir skólann skuld- bundinn til að gera árlega grein fyrir hvernig miðar í starfinu og muni koma upp árangurs- kerfi. Hún segir aðspurð að efla þurfi stoðþjón- ustu innan Háskólans, en sérstök nefnd sjái um framkvæmd stefnu skólans. Við skipan hennar hafi ekki verið leitað langt yfir skammt, enda búi Háskólinn að fjölda sérfræðinga, til dæmis á sviði stefnumótunar og fjármála. „Stefnan okkar er ekkert skúffuplagg. Við höfum lagt mikla vinnu í hana og ætlum að hrinda henni í framkvæmd. Ég er mjög bjartsýn á að mark- mið okkar náist. Þessi stuðningur, sem felst í samningnum, er heillaskref fyrir Háskólann og við munum vinna að því að þetta verði jafn- framt heillaskref fyrir samfélagið allt.“ Þótt samningurinn við menntamálaráðu- neytið tryggi Háskólanum langþráð fjármagn mun skólinn þurfa að sækja áfram í sjálfsaflafé. „Við munum sækja fé í samkeppnissjóði, bæði innlenda og erlenda. Jafnframt mun Háskólinn leita eftir stuðningi frá atvinnulífinu.“ Styrkir allt háskólasamfélagið „Þessi samningur tryggir vonandi betra nám og almennt meiri gæði starfs innan Háskóla Ís- lands,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. „Ég hef þá trú að þessi samningur styrki allt háskólasamfélagið.“ Einkareknir háskólar hafa löngum haldið því fram að rannsóknarfé sé best komið í sam- keppnissjóðum og skólarnir keppi um úthlut- anir úr þeim. Aðspurð hvers vegna sú leið hafi ekki verið farin, í stað þess að beina háum fjár- munum beint til Háskóla Íslands, minnir Þor- gerður Katrín á að háskólastigið allt hafi verið eflt verulega á síðustu árum. „Við gerðum tíma- mótasamning við Háskólann í Reykjavík um sameiningu við Tækniháskólann. Þessi samn- ingur breytir engu um að við munum halda áfram að efla samkeppnissjóðina. Við höfum tvöfaldað framlag í þá sjóði. Næsta tímabil Vís- inda- og tækniráðs, 2008–2011, er nú til skoð- unar og að sjálfsögðu verður farið vel yfir þessa þætti. Þótt við eflum Háskóla Íslands erum við ekki að draga úr á öðrum sviðum. Við viljum hafa einn öflugan, alhliða háskóla, sem gætir menningararfsins, þar á meðal íslenskunnar, en stendur jafnframt sterkur á sviði heilbrigð- isvísinda, svo nokkuð sé nefnt. Sterkari Háskóli Íslands þýðir sterkara háskólasamfélag.“ Mikilvæg breyting „Þessi samningur boðar gífurlega mikilvæga breytingu,“ segir Hörður Filippusson, deildar- forseti raunvísindadeildar. „Hjá raunvísinda- deild þarf að bæta mjög aðstöðu til verk- kennslu og efla kennsluna á framhaldsstigi. Við erum nú þegar með 140 nemendur á meistara- stigi. Árið 2002 varði fyrsti doktorinn ritgerð sína við deildina, en núna höfum við útskrifað 17 og sá 18. bætist við í febrúar. Undanfarið höfum við því útskrifað 3–4 doktora á ári, en þeim á eftir að fjölga verulega, enda eru núna um 60 nemendur skráðir í doktorsnámið. Það stefnir því í að við útskrifum um 15 doktora á ári.“ Eitt af því sem tilgreint er í samningi menntamálaráðuneytisins og HÍ er að Háskól- inn endurskoði skora- og deildaskiptingu, með það að markmiði að styrkja stjórnkerfi hans. Hörður segir að nefnd á vegum háskólaráðs hafi kannað ýmsa möguleika í því efni, m.a. stækkun deilda. Innan Háskólans hafi vantað stuðning við stjórnkerfi hans og efla þurfi bæði gæðamat og vinnumat. „Háskólinn hefur sett upp ýmis slík kerfi undanfarin ár og gæðastjóri starfar á skrifstofu rektors. Við ætlum okkur að efla það enn frekar, til að gera starfsemina betri og skilvirkari.“ HÍ sameiningartákn Oddný G. Sverrisdóttir, deildarforseti hug- vísindadeildar, segir samninginn tímamóta- samning. Næstu skref hugvísindadeildar verði að efla meistara- og doktorsnám. „Við þurfum að huga að mannaráðningum og efla þær grein- ar sem standa okkur næst. Í samningnum er sérstaklega kveðið á um kennslu og rannsóknir í greinum sem hafa sérstaka þýðingu fyrir ís- lenska þjóðmenningu, þar á meðal íslenskuna. Háskólinn hefur ekki haft nægilegt fé til bóka- kaupa, en nú rætist mjög úr og bættur bóka- kostur skapar að sjálfsögðu forsendur fyrir enn frekari rannsóknum.“ Oddný segir mikilvægt að Háskólinn sé sam- einingartákn. „Samningurinn tryggir til dæmis að við getum aukið fjarkennslu og náð þannig til fólks um allt land. Hér búa aðeins um 300 þúsund manns og ég er sannfærð um að styrk- ing Háskóla Íslands styrkir háskólasamfélagið allt. Þar nægir að benda á bókakostinn, ef Há- skólinn hefur burði til að kaupa fræðibækur hljóta allir að njóta góðs af. Eftir sem áður munu háskólarnir hér á landi starfa saman á mörgum sviðum.“ Stórt skref í þágu HÍ Stefán B. Sigurðsson, forseti læknadeildar, segir samninginn enn betri en hann hafi búist við. „Kristín Ingólfsdóttir rektor og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafa náð frábærum árangri með þessum samn- ingi. Allt í einu var stigið stórt skref í þágu Há- skólans og þessi samningur hefur mjög mikla þýðingu fyrir læknadeildina. Hún hefur lengi verið sterkasta rannsóknarvígi Háskólans og útskrifað 4–5 doktora á ári. Núna eru um 60–70 nemendur við meistaranám í deildinni og um 30 í doktorsnámi. Ég vona að við náum fljótlega því markmiði að útskrifa 10 doktora á ári.“ Sigurður bendir á að samningurinn hafi ekki aðeins bein áhrif á nám og starf innan Háskól- ans, heldur einnig innan heilbrigðiskerfisins. „Háskólinn er í miklu samstarfi við Landspít- ala – háskólasjúkrahús. Starfið er samofið, þótt um tvær stofnanir sé að ræða, og fjöldi starfs- manna starfar á báðum stöðum. Aukið fé til kennslu og rannsókna skilar sér þannig beint í aukinni þekkingu á sjúkrahúsinu.“ Sigurður segir læknadeild stefna að því að efla þau rannsóknarsvið, þar sem hún stendur þegar framarlega. Þar komi t.d. krabbameins- rannsóknir og hjartalækningar strax upp í hug- ann. „Ef við styrkjum enn frekar þau svið þar sem við erum sterkust fyrir, þá getum við náð því markmiði okkar að komast í hóp 100 bestu háskóla heims.“ Aðdragandi samnings vandaður Ólafur Þ. Harðarson er forseti fjölmennustu deldar HÍ, félagsvísindadeildar. Hann segir út- tektir hafa sýnt að Háskólinn hafi gert margt ótrúlega gott, þrátt fyrir þröngan fjárhag. „Við fáum nú tækifæri til að standa jafnfætis bestu skólum Skandinavíu á 100 ára afmælinu 2011. Aðdragandi samningsins var mjög vandaður. Innan Háskólans hefur verið unnið að stefnu- mótun, bæði heildarstefnu skólans og einstakra deilda. Sú vinna hefur sýnt okkur fram á að grunnurinn er góður, en við þurfum að vinna mjög vel ef við eigum að ná metnaðarfullum markmiðum okkar.“ Ólafur segir að þrátt fyrir stóraukið framlag ríkisins þurfi skólinn að auka sértekjur sínar um 1½ milljarð á ári til að ná markmiðum um framúrskarandi kennslu, rannsóknir og stoð- þjónustu. „Það fé þarf m.a. að koma úr rann- sóknarsjóðum. Þetta er raunhæft markmið, en kostar mikla vinnu.“ Fyrir félagsvísindadeild mun bættur hagur koma fram í einstaklingsmiðaðra og betra námi. „Við höfum þurft að hafa mjög fjölmenna fyrirlestra, en í nútímalegum háskólum eru færri fyrirlestrar, en fleiri dæmatímar og um- ræðuhópar. Bestu háskólar leggja líka áherslu á símat, þ.e. verkefnavinnu sem dreifist yfir önnina, í stað skriflegra lokaprófa. Í deildinni hefur hlutfall kennara og nemenda verið 1 á móti 50, en í HÍ í heild er þetta hlutfall 1:21. Við verðum að bæta þetta.“ Ólafur segir einnig mikilvægt fyrir háskól- ann að bæta doktorsnám. „Í góðum háskólum eru doktorsnemar nánast í fullu starfi, bæði við eigin rannsóknir og við kennslu. Efling dokt- orsnáms eflir bæði rannsóknir og bætir kennslu og að auki er kennurum nauðsynlegt að hafa doktorsnema.“ Háskólamenn telja byr í seglin geta fleytt HÍ í hóp hinna bestu Samningur menntamálaráðu- neytisins og Háskóla Íslands um eflingu kennslu og rannsókna boðar nýja og betri tíð, að mati háskólamanna. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við rektor, deildarforseta og ráðherra. Morgunblaðið/Kristinn Gleði Kátir háskólamenn við undirritun samnings menntamálaráðuneytisins og Háskólans. Í HNOTSKURN »Háskólamenn telja samninginn mik-ilvægan fyrir allt háskólasamfé- lagið, ekki bara Háskóla Íslands. »Læknadeildin hefur verið sterkastarannsóknarvígi Háskólans. Aukið fé til kennslu og rannsókna skilar sér beint í aukinni þekkingu á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. »Samningurinn gefur HÍ tækifæri tilað standa jafnfætis bestu skólum Skandinavíu á 100 ára afmæli skólans 2011. rsv@mbl.is REKTORAR þriggja háskóla sem Morgunblaðið leitaði til samgleðjast allir Háskóla Íslands vegna samn- ings þess sem gerður hefur verið við menntamálaráðuneytið. Búið sé að marka stefnu sem vonandi eigi eftir að efla allt háskólasamfélagið. „Ég samgleðst Háskóla Íslands yfir að hafa fengið þennan samning en fyrst og fremst fagna ég því að ríkið skuli leggja þetta mikið fé til rannsókna og sýna það í verki að ætlunin sé að byggja upp vísinda- og þekkingarsamfélag,“ segir Svafa Grönfeldt, sem tekur við starfi rekt- ors Háskólans í Reykjavík eftir helgi. „Hins vegar hefði ég kosið að eitthvað af þessari upphæð hefði far- ið í samkeppnissjóði, þar sem allir bestu vísindamenn landsins gætu sótt um, hvaðan sem þeir koma.“ Svafa segir að tilkoma HR og sú samkeppni sem skólanum fylgdi hafi haft jákvæð áhrif á háskólalífið í landinu. „En það er ekki nóg að það sé samkeppni um kennslu heldur verður að vera samkeppni um rann- sóknir líka.“ Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há- skólans á Akureyri, segir nauðsyn- legt fyrir háskólamenntun í landinu að HÍ sé sterkur skóli. „Ég lít fyrst og fremst á [samninginn] sem hvatn- ingu til alls háskólasamfélagsins til að gera betur.“ Hann segist ekki taka samn- ingnum þannig að verið sé að gera upp á milli háskóla. „Þarna er sett fram ákveðin stefnumörkun um styrkingu háskólastarfsins í landinu og Háskóli Íslands sem leiðandi skóli fær þarna fyrsta leik. Síðan verða aðrir háskólar að sanna sig og ég er viss um að þeirra starf eflist líka.“ Bryndís Hlöðversdóttir, starfandi rektor Háskólans á Bifröst, segist telja samninginn til marks um það að til standi að auka framlag til allra há- skólanna. „Við gerum ráð fyrir að aðrir háskólar muni finna fyrir sömu viðleitni,“ segir Bryndís. „Við á Bif- röst erum í sókn og viljum áfram efla okkar starf, ekki síst á sviði rann- sókna. Við lítum því á þetta jákvæð- um augum.“ Háskóli Íslands fær fyrsta leik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.