Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 37
MESSUR Á MORGUN
Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika 2007:
„Jafnvel daufa lætur hann heyra og mállausa mæla“
Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika verður haldin dagana 14. - 21. janúar 2007.
Bænavikan er haldin árlega um þetta leyti og er þá beðið fyrir einingu kristins
fólks um heim allan.
Haldnar verða bænastundir og samkomur víða á höfuðborgarsvæðinu og á Ak-
ureyri, þar sem trúfélög sameinast um helgihald.
Allir eru velkomnir á samverustundir bænavikunnar.
Dagskrá bænaviku í Reykjavík og á Akureyri:
Sunnudagur 14. janúar:
Kl. 11.00 Útvarpsmessa í Grafarvogskirkju með þátttöku allra trúfélaganna.
Kl. 20.00 Samkoma hjá Íslensku Kristskirkjunni, Fossaleyni 14, Reykjavík.
Mánudagur 15. janúar:
Kl. 20.00 Bænastund í Hvítasunnukirkjunni, Skarðshlíð 20, Akureyri.
Þriðjudagur 16. janúar:
Kl. 12.00 Bænastund í Veginum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Kl. 18.00 Bænastund hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni,
Sólvallagötu 10, Reykjavík.
Kl. 20.00 Bænastund í umsjá Aðventista í Sunnuhlíð í félagsheimili
KFUM og KFUK, Akureyri.
Miðvikudagur 17. janúar:
Kl. 12.00 Bænastund í Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykjavík.
Kl. 20.00 Samkoma hjá Kaþólsku kirkjunni á Jófríðarstöðum, Hafnarfirði.
Kl. 12.00 Bænastund á Hjálpræðishernum, Hvannavöllum 10, Akureyri.
Fimmtudagur 18. janúar:
Kl. 12.00 Bænastund í Hallgrímskirkju, Reykjavík.
Kl. 18.30 Bænastund í Kristskirkju, Landakoti, Reykjavík.
Kl. 20.00 Samkoma á Hjálpræðishernum, Kirkjustræti 2, Reykjavík.
Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrirbænastund í Akureyrarkirkju,
Eyrarlandsvegi, Akureyri.
Kl. 20.00 Sameiginleg samkoma með þátttöku trúfélaga á Akureyri
í Glerárkirkju, Bugðusíðu, Akureyri.
Föstudagur 19. janúar:
Kl 12.00 Bænastund í Veginum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Kl. 20.00 Samkoma í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti.
Kl. 20.00 Aftansöngur í Kaþólsku kirkjunni, Péturskirkju,
Hrafnagilsstræti 2, Akureyri.
Laugardagur 20. janúar:
Kl. 20.00 Sameiginleg samkoma safnaðanna í Fíladelfíu,
Hátúni 2, Reykjavík.
Sunnudagur 21. janúar:
Bænaviku lýkur í guðsþjónustum safnaðanna.
Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga
Kirkja Aðventista, Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn,
Íslenska Kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan.
ÁSKIRKJA: | Sunnudagaskólinn hefst á ný
kl. 11 í umsjá sóknarprests og leiðtoganna
Elíasar og Hildar Bjargar.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisopi í safnaðar-
heimilinu að athöfn lokinni. Sóknarprestur.
BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa sunnu-
dag kl. 11. Fjölbreytt samvera í tali og tón-
um. Stund fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur,
organisti Guðmundur Sigurðsson. Mola-
sopi eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa, sr. Bára
Friðriksdóttir prédikar. Dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu meðan á messu stend-
ur. Eftir messu er fundur í safnaðafélaginu.
Bjarki Sveinbjörnsson flytur erindi sem
nefnist Íslensk tónmenning í Vesturheimi.
Þ. Sveinbjörnsson tónskáld.
GRENSÁSKIRKJA: | Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og ung-
linga í kirkjustarfinu. Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Samskot í Líknarsjóð. Mola-
sopi á eftir messu.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: |
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar
og þjónar fyrir altari, ásamt messuþjónum.
Hópur úr Mótettukór syngur. Organisti Hörð-
ur Áskelsson. Umsjón barnastarfs Magnea
Sverrisdóttir, djákni. Kaffisopi eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA. Messa kl. 11. Barnastarf
á sama tíma í umsjá Guðrúnar Erlu Arn-
mundardóttur og Þóru Marteinsdóttur. Létt-
ur hádegisverður að messu lokinni. Organ-
isti Douglas Brotchie. Prestur sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
Landspítali – háskólasjúkrahús: Landakot
| Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ingileif Malm-
berg, organisti Birgir Ás Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarins-
son. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara
börnin í safnaðarheimilið með Rut, Stein-
unni og Aroni. Kaffisopi og spjall eftir mess-
una.
LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 11 messa og
sunnudagaskóli. Kl. 20 kvöldmessa. Lif-
andi tónlist leikin frá kl. 19.40. Kór kirkj-
unnar leiðir sönginn. Hjón úr hverfinu gefa
vitnisburð og svara spurningunni hvernig
haldið þið fjölskyldunni saman? Sr. Hildur
Eir Bolladóttir prédikar og þjónar ásamt
Auði Pálsdóttur meðhjálpara.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðar-
söng. Organisti Reynir Jónasson. Sr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Toshiki Toma. Börnin byrja í
messunni en fara síðan í safnaðarheimilið.
Kaffisopi eftir messu á Torginu.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl. 11.
Öll fermingarbörn mæti til kirkju. Eftir mess-
una er fermingarfræðsla og mun gestur frá
tollgæslunni í Reykjavík ræða um skað-
semi vímuefna. Kammerkór Seltjarnarnes-
kirkju leiðir sálmasöng og messusvör. Org-
anisti Pavel Manasek. Sr. Arna
Grétarsdóttir.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Þema dagsins er „köllun-
in“ þar sem við lítum á köllun sérhvers okk-
ar. Tónlistina leiða Anna Sigga og Carl
Möller, en Ása Björk prédikar og þjónar fyrir
altari. Fermingarbörn aðstoða. Að venju
gefum við andabrauð að lokinni guðsþjón-
ustunni. Sjáumst heil á nýju ári!
ÁRBÆJARKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Rebbi refur og Gulla gæs mæta
á staðinn. Kaffi og djús á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11.
Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organ-
isti Bjarni Jónatansson. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í umsjá Elínar, Jóhanns,
Karenar og Lindu. Hressing eftir messuna í
safnaðarheimili.
DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju, B-hópur.
Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma.
Súpa í safnaðarsal eftir messu. Kvöld-
messa með hljómsveit æskulýðsfélags
Digraneskirkju kl 20. www.digraneskirkja.is
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Svavar Stefánsson
þjónar ásamt starfsfólki barnastarfs kirkj-
unnar. Barna- og unglingakór Fella- og Hóla
leiðir safnaðarsöng undir stjórn Lenku Má-
téovu og Þórdísar Þórhallsdóttur.
GRAFARVOGSKIRKJA: | Samkirkjuleg
guðsþjónusta kl. 11. Fulltrúar frá þjóðkirkj-
unni, hvítasunnukirkjunni, aðventkirkjunni,
Veginum, Óháða söfnuðinum, Íslensku
Kristskirkjunni, Hjálpræðishernum og kaþ-
ólsku kirkjunni taka þátt í athöfninni. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Prestur séra Vigfús
Þór Árnason. Umsjón: Hjörtur og Rúna.
GRAFARVOGSKIRKJA – Borgarholtsskóli:
| Barnaguðsþjónusta kl. 11. Prestur séra
Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Gunnar,
Guðrún María, Díana og Dagný. Undirleik-
ari: Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Börn
borin til skírnar. Félagar úr kór kirkjunnar
syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti
Smári Ólason. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18 og Opið hús á fimmtudag
kl. 12. www.hjallakirkja.is
KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Karl V. Matthíasson predikar. Félagar úr
kór Kópavogskirkju leiða safnaðarsöng
undir stjórn Sigrúnar Steingrímsdóttur org-
anista. Hressing að lokinni guðsþjónustu.
Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30. Umsjón
Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Kyrrð-
arstund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Þorvald-
ur Halldórsson tónlistarmaður annast tón-
listina. Sr. Bryndís Malla Elísdóttir þjónar.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, saga, ný mynd! Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Kirkju-
kórinn leiðir söng. Organisti Jón Bjarnason.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Fjölbreytt
barnastarf kl. 10.45, með leikjum, söngv-
um og fræðslu. Kl. 11 fræðsla fyrir full-
orðna i umsjá Friðriks Schram. Samkoma
kl. 20 í alþjóðlegri bænaviku. Eiður Einars-
son tekur til máls. Helga Magnúsdóttir
syngur einsöng. Örn Leó Guðmundsson
predikar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: | Samkoma sunnu-
dag kl. 20. Umsjón: Harold Reinholdtsen.
Heimilasamband fyrir konur mánudag kl.
15. Opið hús daglega kl. 16–18 nema
mánudaga.
Fatabúðin í Garðastræti 6 er opin alla virka
daga kl. 13–18.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Almenn samkoma
sunnudaginn 12. nóvember kl. 14. Hreimur
Garðarsson prédikar. Lofgjörð og fyrirbæn-
ir. Barnagæsla á meðan á samkomu stend-
ur og kaffisala eftir samkomu. Allir vel-
komnir.
KFUM og KFUK: | Samkoma kl. 20. „Einn
með Guði“. Sr. Guðni Már Harðarson,
skólaprestur, talar. Söngur og fyrirbæn. Allir
velkomnir.
FÍLADELFÍA: | English service at 12.30. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Ræðum. Ólafur
Zóphoníasson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir
lofgjörð. Aldursskipt barnakirkja fyrir 1–12
ára. Eftir samkomu verður kökubasar til
styrktar MCI-biblíuskóla, tekið við kökum
fyrir samkomu. Allir velkomnir. Bein útsend-
ing á Lindinni.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónakirkjan: | Sakramentis-
samkoma verður haldin kl. 11.15 á Ása-
braut 2, Garðabæ. Allir velkomnir. Barna-
félags-, unglingafélags- og fullorðinsbekkir í
sunnudagaskóla eru í beinu framhaldi.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Alla laugardaga:
Barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl.
18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnud: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnud: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl.
18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan í Reykjavík, Ingólfsstræti
19. Hvíldardagsskóli kl. 11 og guðsþjón-
usta kl. 12. Eric Guðmundsson prédikar.
Safnaðarheimili aðventista í Hafnarfirði,
Lofsalurinn, Hólshrauni 3. Samkoma hefst
kl. 11. Björgvin Snorrason prédikar. Sér-
stök kvöldmáltíðarathöfn.
Safnaðarheimili aðventista á Suðurnesj-
um, Blikabraut 2, Reykjanesbæ. Hvíldar-
dagsskólinn hefst kl. 11 og guðþjónustan
kl. 12. Jóhann Þorvaldsson prédikar.
Safnaðarheimili aðventista, Árnesi, Eyra-
vegi 67, Selfossi. Hvíldardagsskóli kl. 10
og guðsþjónusta kl. 10.45. Gavin Anthony
prédikar.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum, Breka-
stíg 17. Biblíufræðsla kl. 10.30.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Fyrsta barnaguðsþjón-
ustan eftir ármót. Mikill söngur og gleði.
Messa kl. 14 með altarisgöngu. Kór Landa-
kirkju. Organisti Guðmundur H. Guðjóns-
son. Sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur,
þjónar fyrir altari og prédikar. Kaffisopi eftir
messu í Safnaðarheimilinu.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Lágafellskirkju leiðir söng undir stjórn
Jónasar Þóris organista. Prestur sr. Ragn-
heiður Jónsdóttir. Barnastarf í kirkjunni kl.
13. Umsjón Hreiðar Örn og Jónas Þórir.
Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðuefni: Á ég að gæta bróður
míns? Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Org-
anisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kór kirkj-
unnar leiðir söng. Kaffi eftir stundina í safn-
aðarheimilinu. Sunnudagaskóli fer fram á
sama tíma í safnaðarheimili og Hvaleyrar-
skóla.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13
fyrir eldri borgara í Víðistaðasókn, Garða-
sókn og Bessastaðasókn. Prestar: Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir og sr. Friðrik J. Hjartar.
Kaffiveitingar og dagskrá á eftir í boði Víði-
staðakirkju. Fram koma: Gaflarakórinn og
Sigurður Skagfjörð.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín,
Hera og Örn. Kvöldvaka kl. 20. Prestar kirkj-
unnar, Einar og Sigríður Kristín, ræða um
hlutverk prestsins og hvernig það hefur
breyst í tímans rás. Hljómsveit og kór kirkj-
unnar leiðir sönginn.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Kór Vídalínskirkju syngur. Org-
anisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Friðrik J.
Hjartar og Nanna Guðrún djákni þjóna.
Minnt er á kirkjuheimsókn eldri borgara úr
Garðaprestakalli í Víðistaðakirkju kl. 13.
Rúta fer kl. 12.30 frá Vídalínskirkju og kl.
12.40 frá Hleinum.
BESSASTAÐAKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í umsjón Grétu Konráðs-
dóttur djákna og starfsfólks sunnudaga-
skólans. Sex ára börn sérstaklega boðin.
Hjördís Ólafsdóttir leikskólastjóri mun af-
henda þeim bókargjöf frá söfnuðinum.
Bjartur Logi leikur á orgelið. Kaffi og djús í
Náttúruleikskólanum Krakkakoti á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Kirkjudagur Málfundafélagsins Faxa og
Rótarýklúbbsins Keilis. Prestur sr. Skúli S.
Ólafsson. Kirkjukór Keflavíkurkirkju syngur,
organisti er Hákon Leifsson. Kirkjukaffi að
lokinni messu. Fjölmennum til messu á
sunnudaginn kemur.
AKUREYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organ-
isti: Eyþór Ingi Jónsson. Súpa og brauð eftir
guðsþjónustu. Sunnudagaskóli kl. 11. –
Kvöldmessa kl. 20.30. Sr. Svavar A. Jóns-
son. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur.
Stjórnandi: Eyþór Ingi Jónsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Sunnu-
daginn 14. jan. kl. 11 sunnudagsskóli, kl.
17 almenn samkoma. Erlingur Níelsson tal-
ar. Allir velkomnir.
EGILSSTAÐAKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14 í umsjá sr. Jóhönnu I. Sig-
marsdóttur prófasts. 15. jan. (mánud.)
Kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa sunnu-
dag 14. janúar kl. 11. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Mæður
fermingarbarna, Árný Bjarnadóttir og Hildur
Júlía Lúðvíksdóttir, lesa ritningarlestra.
Fermingarbörn og foreldrar hvött til að
koma. Sunnudagaskóli kl. 11.15 í Safnað-
arheimili. Kirkjuskóli þriðjudag í Félagsmið-
stöðinni. Æskulýðsfundur fimmtudag kl.
19. Gunnar Björnsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: | Mánudagur 15.
janúar: Fermingarfræðslan hefst að nýju kl.
15.30. Fíkniefni – Nei, takk. Forvarnafulltrúi
Tollstjóra og leitarhundurinn Skuggi heim-
sækja fermingarbörnin. Alfa-námskeið kl.
19. Skráning opin. Sóknarprestur.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Saurbæjarkirkja í Eyjafirði.
systkina, lést 29. október sl., en með
Mundu er síðasta systkinið farið.
Ég gleymi aldrei þegar ég kom
vestur í ágúst 1982, þá ófrísk af dótt-
ur minni Unni, það var kalt miðað við
árstíma, við ætluðum að sofa í tjaldi
inni í skógi ásamt öðru fólki. Munda
og Valdi máttu ekki heyra á það
minnst og urðu miklar bollalegging-
ar á milli þeirra hvernig þau gætu
fengið mig til þess að gista hjá öðru
hvoru þeirra, þannig lýstu þau vænt-
umþykju sinni. Elsku Munda mín,
síðustu skiptin sem ég hitti þig
varstu búin að missa skammtíma-
minnið en þú gast rifjað upp margt í
fortíðinni.
Þú mundir eftir pabba og spurðir
mig í þaula og þú mundir eftir Konna
mínum. Það var alltaf sérstakur
kærleikur á milli ykkar frá fyrstu
kynnum ykkar. Hún talaði líka mikið
um tengdadóttur sína, Auði, sem ég
veit að var hennar stoð þegar ellis-
mellur fór að taka völdin.
Við fjölskyldan þökkum henni
samfylgdina enda á hún sérstakan
stað í hjarta okkar.
Við vottum fjölskyldu hennar
samúð okkar.
Helga Óladóttir og fjölskylda.
Nýtt ár er gengið í garð og fallin
er frá í hárri elli, Munda Þorbergs
eins og hún var alltaf kölluð, einn af
góðu nágrönnunum á Bökkunum.
Hún bjó lengi ásamt manni sínum
Hermanni í Sundstrætinu (á Bökk-
unum), þar vorum við nágrannar og
þar býr amma enn, þær voru einnig
jafn gamlar.
Þær voru samtímis í kvenfélaginu
Hlíf og var oft fyrir Hlífarsamsætið
að kleinuilminn lagði yfir svæðið
þegar konur í kaffinefnd komu sam-
an hjá Mundu til að baka í litla eld-
húsinu hjá henni, seinna tók hún við
tertunefndinni og var þá hefðbundin
gamaldags rjómaterta búin til undir
hennar stjórn. Mörg störfin hefur
hún unnið fyrir kvenfélagið í gegn-
um tíðina og á meðan heilsan leyfði
var hún dugleg að koma á fundi.
Það voru því glæsilegar konur
sem tóku á móti heiðursskjali Kven-
félagsins þegar þær voru 75 ára,
önnur á upphlut og hin á peysuföt-
um, þær klæddust alltaf íslenska
búningnum við hátíðleg tækifæri.
Munda var einnig einn af stofn-
endum Hlífarkórsins og söng hún
með okkur á 50 ára afmæli kórsins
fyrir þremur árum.
Hún sagði alltaf að ég væri frænka
sín og til að staðfesta það var biblían
í hennar augum tekin fram til að
sanna það (Sléttuhreppsbókin). Hún
var mikill Aðalvíkingur og sagði mér
oft frá dvöl sinni og uppvaxtarárun-
um í Miðvík.
Nú ert þú búin að kveðja þetta
jarðlíf, elsku Munda, amma sendir
þér sínar bestu kveðjur af Bökkun-
um með þakklæti fyrir tryggð og
vináttu í gegnum tíðina.
Við Hlífarkonur þökkum þér sam-
fylgdina og vottum fjölskyldunni
samúð okkar.
Far þú í friði.
Kristjana Sigurðar,
Ísafirði.
SKODA Roomster verður frum-
sýndur í dag, laugardag, frá kl. 11
til 16 í Heklu, Laugavegi 172–174,
sem er með umboðið fyrir Skoda. Í
fréttatilkynningu frá umboðinu
segir að þessi nýi meðlimur Skoda-
fjölskyldunnar sé rúmgóður fjöl-
skyldubíll, hlaðinn staðalbúnaði.
Hægt verður að taka þátt í
reynsluakstursleik Skoda þar sem í
boði er ferð fyrir tvo á úrslitaleik-
inn í HM sem fram fer í Köln í
Þýskalandi sunnudaginn 4. febrúar
nk.
Skoda Rooms-
ter frumsýndur