Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 25
stráka. Í dag eru þetta tæplega 300
fermetrar en voru rúmlega 230 fer-
metrar áður. Það segir þó ekki nema
hálfa söguna því bílskúrinn var svo
ótrúlega stór hluti af húsinu.“
Hálfgerð umferðarmiðstöð
Þegar Sigrún er innt eftir því
hvort hún eigi sér uppáhaldsstað í
húsinu er hún ekki lengi að svara.
„Yfirleitt kem ég heim um þrjúleytið
og klára þá frekar vinnudaginn
heima enda finnst mér ágætt að
skipta deginum þannig upp og vera
svolítið heima,“ segir hún. „Þá sest
ég alltaf við borðstofuborðið með
fartölvuna mína og kaffibollann enda
er það hálfgerð umferðarmiðstöð
hér í húsinu. Þar læra krakkarnir og
fá sér í gogginn milli íþróttaæfinga
ásamt vinum sínum enda vita þau að
það er einhver heima sem getur gef-
ið þeim eitthvað að borða.“
Það var Helga Benediktsdóttir
arkitekt sem hannaði breytingarnar
á húsinu sem Sigrún segist vera
ákaflega ánægð með. „Húsið er
miklu bjartara og skemmtilegra en
áður enda var mikið um dökkan við í
innréttingum og parketi. Núna nýt-
ur útsýnið sín mun betur enda erum
við búin að opna alls staðar og taka
niður veggi þar sem það var mögu-
legt. Hins vegar eru svona fram-
kvæmdir ekki beinlínis áhugamál
hjá okkur og ég á því von á að þetta
sé nú loksins búið.“
Nýtt Bæði baðherbergin voru tekin í gegn. Eldhúsið „Það er mikill áhugi á
eldamennsku hérna, sérstaklega hjá
Agli sem fékk að ráða hvernig eld-
húsið yrði. Helga teiknaði innrétt-
inguna sem við fengum fyrirtækið
Ísvirki í Kópavogi til að smíða.“
Undir bílskúrnum Billjardborðið, sem einnig er þythokkíborð, var jólagjöf
fjölskyldunnar í ár. Sigurður, 10 ára (t.h.), og vinur hans Hafsteinn spila.
ben@mbl.is
Stofan Teppið er sennilega frá stríðsárunum og kemur frá tengdafor-
eldrum Sigrúnar eins og fleiri munir á heimilinu.
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 25
Andrúmsloftið er allt annað,“segir Valgarður Finnboga-son, yfirbarþjónn á veit-
ingastaðnum SALT sem er á Rad-
isson SAS 1919 en barinn þar hefur
verið reyklaus frá því 1.desember
sl. ,,Íslensk lög um reykbann á veit-
ingastöðum taka reyndar ekki gildi
fyrr en 1. júlí en það var ákveðið að
innleiða það fyrr hér á Radisson
SAS enda er reykleysið í samræmi
við stefnu hótelkeðjunnar. Þetta er
þróunin í flestum löndum, ekki bara
á Norðurlöndunum. Það er stefnan
að hafa allt hótelið reyklaust, bæði
fyrir starfsfólk og gesti, en við bjóð-
um samt enn upp á reykherbergi.“
Hvernig hefur fólk tekið því að
mega ekki reykja á barnum?
,,Það er allur gangur á því. Þeir
sem ekki reykja eru vitaskuld mjög
ánægðir og koma frekar á barinn
en áður. Þeir njóta þess nú betur að
vera á barnum. En ætli við höfum
ekki misst um 70% af þeim við-
skiptavinum sem reykja. Auðvitað
eru þeir dálítið pirraðir á að þurfa
allt í einu að fara út að reykja og
taka það stundum út á barþjón-
unum en við reynum að vera skiln-
ingsríkir. Um 30% láta reykbannið
ekkert á sig fá og halda áfram að
sækja barinn eins og venjulega.“
Aldrei liðið betur í vinnunni
Valgarður segir vinnuaðstæður
barþjóna allt aðrar síðan barinn
varð reyklaus. „Okkur hefur aldrei
áður liðið svona vel í vinnunni. And-
rúmsloftið er betra fyrir okkur bar-
þjónana en hér á SALT-veitinga-
staðnum erum við allir reyklausir.
Ég er ekki frá því þjónustulundin sé
léttari. Það gott að þurfa ekki leng-
ur að anda að sér reyknum og anga
af tóbakslykt. Nú líður okkur bara
vel eftir vaktir.“
Eru barþjónar almennt farnir að
telja niður þar til lög um reykbann
tekur gildi á vinnustöðum þeirra?
„Ég held að margir séu farnir að
hlakka til, ætli það verði ekki dálítil
fagnaðarlæti, sérstaklega hjá þeim
sem ekki reykja.“
Morgunblaðið/Golli
Léttari lund á
reyklausum bar
Barinn á veitingastaðnum SALT
er þegar orðinn reyklaus
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni