Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 18
Pakistan griða-
staður al-Qaeda?
Íslamabad. AP, AFP. | Stjórnvöld í
Pakistan sögðu í gær að ekkert
væri hæft í ásökun Bandaríkja-
manna um að landið væri orðið
griðastaður fyrir leiðtoga hryðju-
verkanetsins al-Qaeda.
Pakistanska utanríkisráðuneytið
krafðist þess að bandarískar leyni-
þjónustustofnanir veittu Pakistön-
um upplýsingar um fylgsni Osama
bin Ladens og fleiri leiðtoga al-
Qaeda.
John Negroponte, fráfarandi yf-
irmaður leyniþjónustustofnana
Bandaríkjanna, sagði þegar hann
kom fyrir nefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings í fyrradag að leið-
togar al-Qaeda hefðu fundið
„öruggt fylgsni“ í Pakistan og væru
farnir að styrkja
tengsl sín við
öfgahópa í Mið-
Austurlöndum,
Norður-Afríku
og Evrópu.
Talsmaður ut-
anríkisráðuneytis
Pakistans sagði
að ummæli
Negroponte
væru „röng“ og engin þjóð hefði
gert meira í baráttunni við al-
Qaeda en Pakistan.
Talið er að leiðtogar al-Qaeda séu
í felum í ógreiðfæru fjallahéraði í
Pakistan þar sem hvorki pakist-
anskar né bandarískar hersveitir
hafa náð til þeirra.
John Negroponte
Cebu. AP, AFP. | Áform um að gera
ASEAN, Samtök Suðaustur-
Asíuríkja, að fríverslunarsvæði
og einum stórum markaði að
hætti Evrópusambandsins verða
helsta umræðuefni leiðtoga sam-
takanna á fundi þeirra sem hefst
í dag í borginni Cebu á Filipps-
eyjum.
Leiðtogar aðildarlanda samtak-
anna hafa samþykkt að semja
stofnskrá ríkjasambands sem á að
líkjast Evrópusambandinu og
stofna fríverslunarsvæði ekki síð-
ar en árið 2015, samkvæmt drög-
um að lokayfirlýsingu leiðtoga-
fundarins. Gert hafði verið ráð
fyrir því að komið yrði á fríversl-
unarsvæði í Suðaustur-Asíu árið
2020 en ákveðið var að flýta því
um fimm ár.
Í drögunum segir að stefnt sé
að því að ASEAN-ríkin verði að
einum markaði með lagalega
bindandi reglum og „frjálsu flæði
vöru, þjónustu, fjárfestinga og
fjármagns“.
Íbúar aðildarlandanna eru um
einn sjötti af íbúum alls heimsins.
Leiðtogar Kína og Japans sitja
einnig fund ASEAN og vona að
löndin tvö verði hluti af fríversl-
unarsvæðinu þegar fram líða
stundir.
Margir ásteytingarsteinar
Í drögunum að lokayfirlýsingu,
sem birt verður eftir að fund-
inum lýkur á morgun, er einnig
fjallað um ráðstafanir til að
vernda réttindi farandverka-
manna.
Embættismenn, sem und-
irbjuggu leiðtogafundinn, vildu
ekki svara því hvenær stefnt væri
að því að samningaviðræðum um
stofnskrána lyki. Ýmis ágrein-
ingsmál gætu tafið viðræðurnar,
meðal annars umdeild tillaga um
að heimila löndum ASEAN að
refsa öðrum aðildarlöndum. Litið
er á slíka heimild sem leið til að
hafa áhrif á herforingjastjórnina
í Myanmar sem hefur sætt harðri
gagnrýni fyrir brot á mannrétt-
indum.
Stefnt að fríverslunarsvæði
!
!"#$%&'"!()*
#+,#$-%,.!#$%,
/ $ ! .
. .
) % &
) ,"
&
")*"0
$
1
&
2 .
33 %
%
2
"#$%&$ '& () '&*+) %&-#!-)
)$!
,-./
(
4
001 )2 % 4133 )45
5
&34,66.7)24
% " 6 7 #
8 &9) )
/ $
' % 9.
) 3
:.9
6
-
33 +
;
"2
) %
2;
*)
)
(<+)2
)
)
63,0
)$!&
")*"0
)2 +
(
!$(
( - &;%
%
& ! . %
=>7
) )2=
2 & %
)
' $3 ;
0$ ,'9 '&+
+9)
& "2
(
( ) =(
/
!;
.<$& (
2
9
!
+
?
9 < - ;
=#>
%
2% & ;)
( : 033 Búist er við, að á næstu 20 árum
muni allt að 300 milljónir manna
flytjast úr sveitum landsins og setj-
ast að í borgum.
„Í Kína horfumst við í augu við
mestu mannflutninga í sögunni,“
segir í skýrslunni en búist er við, að
eftir 2033 muni fólkinu heldur taka
að fækka.
Áætlað er, að Kínverjar yfir sex-
tugt, sem nú eru 143 milljónir, verði
orðnir 430 milljónir 2040 og ekki
veldur það minni áhyggjum, að kon-
um hefur fækkað hlutfallslega. Horf-
ur eru á, að um 2020 muni um 30
milljónir karlmanna á giftingaraldri
ekkert kvonfang geta fundið og er
þessi staða einn af fylgifiskum þeirr-
ar stefnu, að hjón eignist aðeins eitt
barn. Eftir að farið var að kyngreina
fóstur verða drengir fremur fyrir
valinu en stúlkur þar sem litið er á þá
sem skjól í ellinni.
Peking. AFP. | Íbúar Kína verða orðnir
1,5 milljarðar árið 2033 og ljóst, að
það mun reyna mjög á félagslegan
stöðugleika í
landinu, á um-
hverfið, efna-
hagslífið og á að-
gang landsmanna
að sameiginleg-
um auðlindum.
Kemur þetta
fram í nýrri
skýrslu frá kín-
verskum stjórn-
völdum en þar
segir, að því miður hafi slaknað á því
aðhaldi, sem áður var með fjöl-
skyldustærð. Nú er fólk á vinnufær-
um aldri, á bilinu 16 til 64 ára, 860
milljónir en verður 1,01 milljarður
2016. Fyrir stjórnvöld verður það
ekki lítið verk að útvega atvinnu,
menntun og félagslega þjónustu.
Fólksfjölgunin reynir
á innviði samfélagsins
Nýburi 200 millj.
á næstu 27 árum.
18 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÁÆTLUN George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna, um að fjölga í banda-
ríska herliðinu í Írak virðist njóta lít-
ils stuðnings á þingi. Kom það ber-
lega í ljós þegar Robert Gates,
nýskipaður varnarmálaráðherra,
kom fyrir hermálanefnd fulltrúa-
deildarinnar og Condoleezza Rice
utanríkisráðherra fyrir hermála-
nefnd öldungadeildarinnar. Raunar
var farið mjög mildum höndum um
Gates en annað var uppi á tening-
unum með Rice.
Til þess var tekið hvað framkoma
Gates var ólík fyrirrennara hans,
Donald Rumsfelds, en hann gat ver-
ið mjög afundinn og hryssingslegur,
jafnvel ókurteis, í tilsvörum. Það átti
ekki við um Gates, sem bar lof á her-
málanefndina og flutti sitt mál skýrt
og skilmerkilega. „Við getum öll
hrósað happi með skipan þína,“ sagði
Ike Skelton, formaður nefndarinnar.
„Þakka þér fyrir að koma á okkar
fund.“ Undir þetta tóku aðrir nefnd-
armenn.
„Hörmuleg mistök“
Þegar Rice kom fyrir hermála-
nefnd öldungadeildarinnar var hins
vegar engin miskunn hjá Magnúsi.
„Brjálæðislegt rugl,“ sagði Chris
Dodd um áætlun Bush og Joe Biden
kallaði hana „hörmuleg mistök“.
Repúblikaninn Chuck Hagel sagði
áætlunina „mesta utanríkismála-
klúður“ frá því á dögum Víetnam-
stríðsins. Hagel, sem mun líklega
sækjast eftir því að verða forsetaefni
repúblikana 2008, hefur verið
andsnúinn stefnu Bush í Írak í nokk-
urn tíma en öldungadeildarþingmað-
urinn Bill Nelson hefur stutt hana.
Fram að þessu en ekki lengur.
„Mér hefur ekki verið sagður
sannleikurinn,“ sagði hann. „Hann
hefur verið falinn fyrir mér hvað eft-
ir annað.“
Þrátt fyrir orrahríðina hélt Rice
ró sinni en Joe Biden sagði að fundi
loknum, að nefndin, sem er skipuð 21
manni, hefði með örfáum undantekn-
ingum lýst andúð og áhyggjum af
Íraksáætlun Bush forseta. Ekki er
þó búist við, að þingið muni beinlínis
koma í veg fyrir hana.
Hörð gagnrýni
á áætlun Bush
Lýst sem „rugli“, „mistökum“ og
„klúðri“ á fundi hermálanefndar
Orrahríð Condoleezza Rice er hún
kom fyrir hermálanefndina.
AFGANAR fylgjast með hundum
eigast við í Kabúl, höfuðborg Afg-
anistans. Hundaat er ævaforn
íþrótt í Afganistan en var bannað í
stjórnartíð talibana eins og margt
annað, svo sem kvikmyndir og tón-
list. Hundaat var hins vegar vakið
aftur til lífsins eftir að stjórn talib-
ana var steypt af stóli og nýtur mik-
illa vinsælda. Allt að 10.000 manns
hafa fylgst með bardögunum.
Hundaat er haldið á hverjum
föstudegi í Kabúl á haustin og vet-
urna. Eigendur hundanna segja að
hundaat sé bannað á öðrum árstím-
um vegna þess að mikill hiti auki
hættuna á því að hundarnir verði
fyrir alvarlegum meiðslum.
AP
Hundaat vinsælt í Kabúl