Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 22
Stoltir rækt-
endur Guðjón
og Sigríður
Helga bjóða
fyrst manna
Íslendingum
upp á
lýkópen-
tómata.
Útsýnið er flottasta
málverkið í einu
húsi á Seltjarnar-
nesinu. » 24
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þ
etta byrjaði allt þegar ég fór á ráðstefnu úti
í Hollandi og komst í tæri við þetta sérstaka af-
brigði tómata hjá þarlendum manni. Ég varð
mjög forvitinn um þetta en garðyrkjustöð þessa
manns var þá sú eina í Evrópu sem ræktaði
lýkópen-tómata. En núna eru stöðvarnar orðnar tvær, eftir
að við á Melum bættumst í hópinn,“ segir Guðjón Birgisson,
en hann og kona hans, Sigríður Helga Karlsdóttir, eiga og
reka garðyrkjustöðina Mela á Flúðum. Þau sendu nýlega
frá sér til neytenda sína fyrstu sendingu af svokölluðum
lýkópen-tómötum.
Vörn gegn krabbameini
Þau segja að í öllum tómötum sé lýkópen en í þessum sé
það þrefalt meira en í venjulegum tómötum. Þetta afbrigði
er markaðssett sem markfæði (Functional Foods) vegna
þess hve auðugt það er af lýkópeni en að lágmarki eru 9 mg
af því í hverjum 100 g. Þetta mikla magn lýkópens hefur
fengist með náttúrulegum kynbótum tómata. Lýkópen er í
flokki karótínóíða og gefur tómötum rauða litinn og er öfl-
ugt andoxunarefni. Sú tilgáta hefur verið sett fram á síð-
ustu árum að lýkópen veiti vörn gegn hjartasjúkdómum og
krabbameini í blöðruhálskirtli og meltingarvegi. Nokkrar
faraldsfræðilegar rannsóknir styðja þá tilgátu. Sýnt hefur
verið fram á að lýkópen hamlar vexti krabbameinsfruma í
ræktun á rannsóknarstofu.
Guðjón og Sigríður Helga segja að það hafi verið mikið
föndur og heilmikil vinna á bak við þetta allt saman. „En
það er mjög gaman að taka með þessu nýtt skref í íslenskri
garðyrkju og geta boðið upp á svona heilsusamlega vöru,
því eftirspurnin eftir hollum mat er alltaf að aukast,“ segir
Guðjón sem er mikill frumkvöðull; sumir vilja meina að
hann eigi stærstan þátt í því að nú fást tómatar allt árið um
kring á Íslandi. Áhugi hans hefur smitað út frá sér og tóm-
ataræktin hefur almennt tekið miklum framförum á
skömmum tíma. „Við hjónin erum með fimm þúsund fer-
metra garðyrkjustöð þar sem við ræktum þrjú afbrigði af
tómötum; hefðbundna tómata, konfekttómata og lýkópen-
tómata. Svo erum við líka með mikla útirækt þar sem við
ræktum allskonar kál, mest blómkál og kínakál.“
Bragðmeiri en aðrir tómatar
Guðjón og Sigríður Helga segja að uppskeran sé minni af
lýkópen-tómötum en þeim hefðbundnu og einnig séu þeir
ekki eins stórir. „Þeir eru áþekkir kokteiltómötum að stærð
en þetta mikla lýkópen-magn gerir það að verkum að þeir
eru bragðmeiri. Við tínum þessa tómata fullþroskaða og
eldrauða af plöntunum, því þá er lýkópenið orðið mikið í
þeim og varan því heilnæmust. Við ræktum þetta ennþá í
litlum mæli, því við verðum að sjá hvernig viðbrögðin
verða, en við aukum ræktunina strax ef eftirspurnin eykst.
Við vitum að sá aðili sem ræktar lýkópen-tómata í Hollandi
hefur nóg að gera og selur meiri partinn af sínum afurðum
til Bandaríkjanna. Ameríkumenn eru mjög hrifnir af þess-
ari vöru.“
Aðeins rækt-
aðir á tveim-
ur stöðum í
Evrópu
Morgunblaðið/Ásdís
Sérstakir Þrefalt meira lýkópen er í tómötunum.
Morgunblaðið/
Sigurður Sigmunds
|laugardagur|13. 1. 2007| mbl.is
daglegtlíf
lifun
Þjónustulund starfsfólksins á
veitingastaðnum Salti batnaði
eftir að staðurinn varð reyklaus
á dögunum. » 25
daglegt líf
Litagleðin ræður ríkjum í tísk-
unni í vor, stutt pils halda velli,
leggings líka og púffermar og
mittisbelti. » 23
tíska
ÞEIR eru ófáir glæsikjólarnir
sem leikkonur í Hollywood hafa
klæðst við afhendingu Ósk-
arsverðlaunanna í gegnum tíðina.
Sumir eru vissulega minnisstæð-
ari en aðrir sem er ekki alltaf af
hinu góða. Bandarískir tískuspek-
úlantar virðast til að mynda seint
ætla að gleyma svanakjólnum
sem Björk klæddist við verð-
launaafhendinguna árið 2001.
Framleiðandinn Laura Ziskin
hyggst í félagi við Vogue-
ritstjórann Andrew Leon Talley
nú setja upp sýningu á minn-
isstæðum óskarshátíðafatnaði
sem vakið hefur athygli á rauða
dreglinum síðastliðna fimm ára-
tugi.
Sýningin verður opnuð 30. jan-
úar nk. fyrir fáeina útvalda úr
röðum kvikmyndastjarna, stílista
og fjölmiðla.
Tískustund Streisand
Meðal þess klæðnaðar sem
þegar hefur verið fenginn á sýn-
inguna eru tveir kjólar frá Sophiu
Lauren, hvít buxnadragt frá
Diane Keaton, Gap-bolur og Val-
entino-pils sem Sharon Stone
vakti eitt sinn mikla athygli fyrir
og gagnsær útvíður samfestingur
sem Barbara Streisand klæddist
er hún veitti Katherine Hepburn
verðlaun sem bestu leikkonunni.
„Enginn annar en Barbara
Streisand hefði getað klæðst
þessu,“ hefur Washington Post
eftir Talley. „Þetta var sannkölluð
tískustund.“
Ziskin og Talley hafa þó hug á
að fá enn meira af fatnaði á sýn-
inguna og meðal óskaklæðnaðar
er Versace-kjóll Ellenar Barkin
frá afhendingunni árið 1993, Hals-
ton-kjóll Glenn Glose frá 1990,
kjóllinn sem Julie Andrews
klæddist við óskarsverðlaunaaf-
hendinguna 1965 og prýddi ósk-
arsverðlaunaveggspjaldið í fyrra
og svo „hvað sem er“ frá Natalie
Wood.
Svanakjóll Bjarkar og eggið
sem honum fylgdi verða hins veg-
ar ekki með á sýningunni. „Þau
vildu ekki láta okkur hafa hann,“
segir Ziskin, sem hvetur alla þá
sem búa svo vel að eiga einn
klassískan óskarsverðlaunakjól í
sínum fórum að hafa samband við
oscars.org og láta vita.
Minnisstæðir óskarsverðlaunakjólar
Reuters
Minnisstæður Svanakjóll Bjarkar virð-
ist seint munu gleymast.
Óskalisti Kjóll Julie Andrews frá 1965
er óskakjóll á sýninguna.
Á vef Baggalúts kennir margragrasa í kveðskap. Þar má
meðal annars finna „stikluviku-
keðju“. Þar yrkir Ullargoði:
Máttur drottins magnar ei
að metta börnin svöngu.
Margt vill þjaka þessi grey,
þannig er lífið, fussum svei.
Mikið er um dulnefni í kveð-
skapnum á Baggalúti. Billi bilaði
yrkir:
Tvennum sögum segir af
sigrum ríkisstjórnar.
Framsókn sökk á kolakaf,
kannski þarf hún blindrastaf.
Og Salka fær vísu frá Sundlaugi
Vatne „varaformanni Sundráðs
Baggalútíu, stjórnarmanni Ung-
mennasambands Baggalútíu, ritara
Ungmennafélagsins Andspyrnunn-
ar og 1. varamanns á lista Bænda-
flokksins í Hreppsnefnd Ýsu-
fjarðar“:
Söm er við sig Salka mín
sannur kvennablómi.
Einhvern tíma, uppá grín,
inn ég læði mér til þín.
VÍSNAHORNIÐ
Kveðskapur
Baggalúts
pebl@mbl.is
tíska