Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 27 Samningur menntamála-ráðuneytisins við HáskólaÍslands um kennslu ogrannsóknir við skólann fram til ársins 2011 sem undirrit- aður var síðastliðinn fimmtudag markar tímamót. Hann leggur grunn að nýjum kafla í sögu Há- skólans og um leið þróun mennta- kerfisins á Íslandi. Í lögum um Háskóla Íslands sem samþykkt voru fyrir tæpum áratug segir að hlutverk hans sé að vera vísindaleg rannsóknastofnun og vísindaleg fræðslustofnun er veiti nemendum sínum menntun til að sinna sjálfstætt vísindalegum verk- efnum og til þess að gegna ýmsum störfum í þjóðfélaginu. Voru hin nýju sérlög samþykkt í kjölfar fyrstu almennu háskólalaganna sem samþykkt voru á Alþingi árið 1997. Ört hækkandi menntunarstig Eitt meginmarkmið þeirra laga var að auka sjálfstæði háskóla til að sinna hlutverki sínu. Í þeim var kveðið á um að skólarnir tækju að sér aukna rekstrarábyrgð og að sama skapi var stjórnunarábyrgð skólanna efld. Jafnframt var opnað fyrir stóreflingu háskólamenntunar á Íslandi og ný tækifæri til mennt- unar fyrir Íslendinga. Landsmenn hafa sannarlega nýtt sér þessi tækifæri. Þátttaka Íslendinga í há- skólamenntun hefur á örfáum árum farið úr því að vera sú minnsta á Norðurlöndum í að vera sú mesta og formlegt menntunarstig lands- manna hækkar nú hröðum skref- um. Vekur framtakssemi okkar nokkra undrun og athygli í nýlegri úttekt OECD á háskólakerfinu hér á landi. Eftir að ný lög um Háskóla Ís- lands höfðu verið sett var í fyrsta skipti gengið til samninga við há- skólann um kennslu og rannsóknir við skólann. Samningurinn sem var undirritaður í október 1999 byggði á ákveðnu reiknilíkani þar sem mið- að var við mismunandi kostnað við kennslu eftir námsgreinum innan skólans og miðað við fjölda þreyttra eininga á hverju ári. Kostnaður við rannsóknir var sömuleiðis reiknaður sem ákveðið hlutfall kennslukostnaðar. Þessi nýja aðferðafræði markaði ákveðin þáttaskil í samskiptum stjórnvalda og háskólans, gerði þau gegnsærri og nútímalegri. Þótt einungis tæpur áratugur sé liðinn frá því þetta gerðist hefur þróunin jafnt hér innanlands sem á alþjóðlegum vettvangi verið svo ör og umfangsmikil að nauðsynlegt er að stíga næstu skref. Margþætt stefnumótun Þegar ég tók við sem mennta- málaráðherra ákvað ég að setja af stað umfangsmikla vinnu er gæti orðið grundvöllur að stefnumótun til lengri tíma. Í fyrsta lagi setti ég í gang skoð- un á því hvernig taka bæri á mál- efnum Háskóla Íslands. Fyrsta skrefið í þeim efnum var annars vegar út- tekt á hinu akadem- íska starfi háskólans og hins vegar rekstr- ar- og stjórnsýsluút- tekt á skólanum sem Ríkisendurskoðun var falið að sjá um. Einnig var leitað til OECD um gerð út- tektar á íslenskum háskólamálum og var hún birt síðastliðið haust. Í öðru lagi taldi ég mikilvægt til að ís- lenskir háskólar yrðu betur í stakk búnir til að mæta erlendri samkeppni að kannað yrði hvort hægt væri að stækka og efla einingarnar. Stórt skref var stigið í þeim efnum með sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík og nú hefur verið lagt fram á Alþingi frumvarp um sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskólans. Í þriðja lagi voru háskólalögin frá 1997 endurskoðuð og tóku ný lög um háskóla gildi síðastliðið sumar. Hin nýju háskólalög ber ekki síst að skoða í alþjóðlegu samhengi því þeir háskólar sem starfa á grund- velli laganna verða að afla sér við- urkenningar og uppfylla skilyrði sem tíunduð eru í lögunum. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og svig- rúm háskóla til eigin stefnumótun- ar. En jafnframt er lagður grunnur að gæðaeftirliti í háskólum og sam- ræmingu prófgráða til að greiða fyrir hreyfanleika nemenda og auka möguleika á samstarfi háskóla og annarra vísindastofnana hér á landi svo og við erlenda háskóla og háskólastofnanir. Lögin leggja miklar skyldur bæði á herðar há- skólanna og menntamálaráðuneyt- isins. Markmið samnings að efla starfsemi HÍ Nýjum samningi við Háskóla Ís- lands er ætlað að efla starfsemi Há- skólans og veita honum þannig ákveðið veganesti til að skipa sér í hóp bestu háskóla. Í samningnum eru skilgreindar væntingar stjórn- valda til Háskóla Íslands á næstu fimm árum og tilgreint er hve miklu fé skuli varið til helstu þátta í starfi hans af hálfu menntamálayf- irvalda. Gert er ráð fyrir að til við- bótar framlögum til kennslu miðað við nemendafjölda verði framlög til rannsókna og rannsóknanáms við skólann aukin frá því sem nú er um 640 m.kr. árlega á tímabilinu 2007– 2011. Þannig fái skólinn í lok tíma- bilsins um þrjá milljarða króna til viðbótar við framlög úr ríkissjóði á fjárlögum á árinu 2006. Hér er um að ræða beint framlag til rannsókna við skólann óháð þeim breytingum sem verða á nemenda- fjölda við skólann. Í þessu felst að framlög ríkisins til rannsókna við HÍ munu nærfellt þrefaldast á samningstímanum og við lok samn- ingstímans verður framlag til rann- sókna orðið hærra en framlag til kennslu er nú. Færi á alþjóðlegri sókn Samningurinn hefur það að meg- inmarkmiði að treysta stöðu Há- skóla Íslands í fararbroddi meðal háskóla á Íslandi um leið og honum gefst tækifæri til að sækja fram á hinum alþjóðlega vettvangi. Stefnt er að því að stórefla rannsókna- tengt framhaldsnám með því að fimmfalda fjölda brautskráðra doktora og tvöfalda fjölda braut- skráðra meistaranema á samnings- tímabilinu. Framboð námskeiða í framhaldsnámi verður aukið, m.a. með auknu samstarfi við innlendar vísindastofnanir og erlenda há- skóla. Samfara því er stefnt að auknum afköstum í rannsóknum og eflingu á gæðum þeirra. Fjölga á birt- ingum vísindagreina kennara við Háskóla Íslands í virtum og al- þjóðlegum tímaritum. Við höfum einmitt ný- lega séð afar ánægju- legan árangur íslensks vísindasamfélags á því sviði í samanburði sem finnska vísindaráðið gerði á gæðum finnskra vísindarann- sókna í samanburði við önnur OECD-lönd. Vekur staða Íslands þar sérstaka athygli. Háskóli Íslands á þar án efa drjúgan hlut að máli og ætti okkur nú ekki að verða skotaskuld úr því að gera hlut hans betur sýni- legan í alþjóðlegu samhengi. Við Ís- lendingar viljum og ætlum að eign- ast háskóla í fremstu röð! Nýta þarf fjölbreytileika Há- skóla Íslands til að efla þverfræði- legar rannsóknir í samvinnu við aðrar vísindastofnanir í landinu með það að markmiði að gera sýni- legan þekkingarlegan styrk Íslands gagnvart umheiminum og laða að hæft vísindafólk og mynda öflugt, alþjóðlegt vísindasamfélag á þeim sviðum þar sem við getum skarað fram úr. Jafnfram viljum við stuðla að myndun nýrra þekkingar- og fræðasviða og stórefla tengsl Há- skólans við atvinnu- og þjóðlíf. Umbuna þarf betur fyrir árangur háskólamanna á því sviði. Það er einn mælikvarði á framlag háskól- ans til samfélagsins. Endurskoðun á lögum um HÍ framundan Í samningnum er kveðið á um að efla og styrkja skuli stjórnkerfi Há- skóla Íslands. Skora- og deilda- skipting Háskóla Íslands verður endurskoðuð í því skyni að efla starfseiningar hans. Í menntamála- ráðuneytinu er nú í gangi endur- skoðun á lögum um Háskóla Ís- lands, með það að markmiði m.a. að greiða fyrir slíkri endurskipulagn- ingu. Samtímis verður stoðþjónusta við kennara og nemendur efld í því skyni að skapa fyrirmyndarnáms- umhverfi. Er lögð áhersla á að bæta kennslustofur og tæknibúnað, lesaðstöðu, félagsaðstöðu, bóka- kaup og aðgang að rafrænum tíma- ritum og gagnasöfnum. Gert er ráð fyrir að Háskólinn þrói gæðamatskerfi fyrir lok árs 2007. Það felur í sér að hafa fjöl- breyttar leiðir til að meta gæði náms og kennslu. Og fyrir lok árs 2008 skal innleitt nýtt vinnumats- kerfi kennslu sem er ætlað að hvetja til góðra kennsluhátta og þróunarverkefna. Jafnframt er gert ráð fyrir að háskólinn móti sér skýra stefnu um fjarkennslu fyrir árslok 2007 og fjarkennsla verði efld í völdum greinum. Að auki er ætlunin að auka samstarfið við rannsóknar- og náttúrufræðisetrin á landsbyggðinni. Áhersla verður lögð á að tryggja gæði kennslu og rannsókna í grein- um sem hafa sérstaka þýðingu fyrir íslenska og norræna (þjóð)menn- ingu og stuðla að fræðilegri breidd og fjölbreytni í háskólastarfsemi á Íslandi. Vil ég í því sambandi nefna að í fjárlögum þessa árs eru fram- lög til þessara þjóðlegu greina hér við háskólann aukin um 40 milljónir króna. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar er ég afskaplega stolt af þessum samningi og tel að með honum sé tryggt af hálfu ríkisins að eins vel verði búið að Háskóla Íslands og kostur er á aldarafmæli hans árið 2011. Einhugur er um að efla áfram undirstöður íslensks samfélags, gera þær fjölbreyttari til að takast á við nýja tíma. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar er ég afskap- lega stolt af þessum samningi og tel að með honum sé tryggt af hálfu ríkisins að eins vel verði búið að Há- skóla Íslands og kostur er á aldarafmæli hans árið 2011. Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur Höfundur er menntamálaráðherra. Háskóli Íslands í fremstu röð fyrirsvari fyrir rannsókn og saksókn efnahagsbrota og beri faglega ábyrgð gagnvart ríkissaksóknara. Helga Magnúsi Gunnarssyni sak- sóknara hefur verið falið að gegna þessu embætti. Honum til aðstoðar við rannsókn efnahagsbrota og meðferð þeirra fyrir dómstólum verða lögfræðing- ar, sérhæfðir rannsóknarlögreglu- menn og annað starfsfólk sem rík- islögreglustjóri lætur honum í té. Efnahagsbrotadeildin sem slík leggst af og ákærur sem saksóknari efnahagsbrota gefur út verða kunn- gjörðar með eftirfarandi tilgrein- ingu: „SAKSÓKNARI EFNA- HAGSBROTA gjörir kunnugt“ en verða ekki gefnar út í nafni ríkislög- reglustjóra, eins og áður. Áður en breytingarnar gengu í gildi var saksókn efnahagsbrota í höndum saksóknara efnahagsbrota- deildar sem jafnframt var einn af fimm sviðsstjórum hjá ríkislög- reglustjóra og þar með hluti af yf- irstjórn embættisins. Svo er ekki um hinn nýja saksóknara efnahags- brota. Hann er samt sem áður skip- aður af ráðherra sem starfsmaður hjá ríkislögreglustjóra og gefur út ákærur í umboði hans. Skerpa á fyrirkomulagi Haraldur sagði að með þessum breytingum væri verið að styrkja saksókn efnahagsbrota og meðferð þessara mála. Saksóknari efnahags- brota myndi eftirleiðis aðeins taka hin þyngstu mál á þessu sviði en hin smærri mál, s.s. einföld skattalaga- brot, myndu ekki koma til hans kasta heldur verða rannsökuð hjá þeim sjö lögreglustjórum sem starf- rækja sérstakar rannsóknardeildir. „Við erum að skerpa á því fyrir- komulagi sem í gildi er, þ.e. að rík- issaksóknari er æðsti yfirmaður ákæruvalds í landinu og faglegur yf- irmaður lögreglustjóra og saksókn- ara, bæði þeirra saksóknara sem starfa hjá ríkissaksóknara og þeirra sem starfa hjá ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á höfuðborg- arsvæðinu,“ sagði Haraldur. Í huga margra hefði það e.t.v. ekki verið nægjanlega skýrt að ríkissaksókn- ari væri faglegur yfirmaður ákæru- valds í landinu og bæri faglega ábyrgð og hefði eftirlit með saksókn og rannsókn í öllum sakamálum. Með breytingunni væri verið að skerpa þessa skipan mála. Að sögn Haraldar tekur skipan saksóknara efnahagsbrota einnig mið af fyrir- komulagi þessa málaflokks í Dan- mörku, umræðum sem fram hefðu farið innan stjórnsýslunnar um fyr- irkomulag ákæruvalds og tillögum sem fram komu í fyrrnefndri stjórn- sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Aðstoða hvert annað Með fækkun lögregluumdæma um áramótin á að efla rannsóknar- deildir einstakra lögregluliða og verður öflugasta deildin starfrækt á höfuðborgarsvæðinu. Haraldur sagði að með þessu væri stefnt að því að efla lögreglurannsóknir á landinu og skapa svigrúm til sér- hæfingar hjá deildunum. Ríkislög- reglustjóri hefði hingað til veitt ein- stökum embættum aðstoð við rannsókn sakamála, en eftir breyt- ingarnar gætu lögregluliðin í ríkara mæli aðstoðað hvert annað við flóknari rannsóknir. Embættið gæti þó áfram veitt aðstoð, yrði þess ósk- að. Þetta þýddi jafnframt að ríkis- lögreglustjóri gæti einbeitt sér bet- ur að öryggis- og löggæslumálum, verkefnum á sviði opinberrar stjórnsýslu, samhæfingu lögreglu- liða og ýmsum þróunarverkefnum, s.s. verkefnamiðaðri löggæslu og umbótum á starfsumhverfi lög- reglumanna, svo nokkuð væri nefnt. i mæli að lögreglu Morgunblaðið/ÞÖK g það breytist ekki með því að greiningardeild Á ensku nefnist deildin „National security unit“. andi. Það emi deild- væri ekki arfsmenn gt að hafa væri fyrir g að alls ustustarf- i lögregl- en eðlilegt slegt sem etta emb- iþjónustu eð því að l starfa,“ ildarinnar reyna að i að land- hvort sem m glæpa- amönnum eyna með veg fyrir ekki alltaf agi skipu- öðru lagi a lagi það venjulegu við höfum i. Sá sem enjulegur einu orðið þátttakandi í skipulagðri brotastarf- semi eða jafnvel hryðjuverkum. Þetta kom meðal annars í ljós eftir hryðjaverkaárásina í Madríd árið 2004.“ Aðspurður hvort fengi meira vægi í starfsemi deildarinnar, hryðju- verkaógn eða alþjóðleg glæpastarf- semi, sagði Haraldur að hér væri talin lítil hætta á hryðjuverkum, hættumatið væri með öðrum orðum lágt. Á hinn bóginn gætu Íslending- ar ekki horft fram hjá þeim hættum sem stafa af alþjóðlegri glæpastarf- semi. Ríkislögreglustjóri væri í nán- um samskiptum við bankastofnanir hér á landi vegna peningaþvættis- mála og þar mætti sjá ákveðna þró- un, alveg eins og tiltekin þróun hefði átt sér stað við fíkniefnasmygl. „Heimurinn í dag er orðinn eitt at- hafnasvæði glæpamanna, alveg eins og hann er eitt athafnasvæði fyrir þá sem stunda lögleg viðskipti,“ sagði Haraldur. Efnahagsbrotadeild leggst af Um breytingar á saksókn efna- hagsbrota er mælt fyrir í nýrri reglugerð sem tók gildi um síðustu áramót. Þar kemur fram að sak- sóknari efnahagsbrota, sem skipað- ur er hjá ríkislögreglustjóra, verði í         " # $ %  ! &   " &'" & (! &    2   ;3 /  )@2 < :3$   &! ;    /   &3  % &     %, &3   -  5 : !    %  & # 1  6    % < % ) % !$  $! -5 / 7(8 5 )&B  ! ! !;     $ 59: /590 1 *! % ! %&  ;&  $! $;   ?  $ ! 2  $ $! ,  1  %   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.