Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 33. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Í PRJÓNAKAFFI
KÁTAR KONUR Á FYRSTA PRJÓNA-
KAFFIHÚSINU HÉR Á LANDI >> 20
TODD FIELD VILL ENG-
IN ÓSKARSVERÐLAUN
ENGA ATHYGLI
LÍTIL BÖRN >> 40
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
DÓMAR Hæstaréttar yfir kyn-
ferðisbrotamönnum hafa þyngst á
undanförnum árum. Það er þó
langur vegur frá því að refsirammi
vegna kynferðisbrota sé fullnýttur
en það á við um fleiri afbrot þar
sem ofbeldi er beitt, s.s. alvarlegar
líkamsárásir.
Þær Ragnheiður Harðardóttir
vararíkissaksóknari og Sigríður J.
Friðjónsdóttir, saksóknari hjá rík-
issaksóknara, hafa einna mesta
reynslu hér á landi af því að sækja
kynferðisbrotamenn til saka. Þær
segja augljós merki um að refsing-
ar Hæstaréttar í kynferðisbrota-
málum hafi þyngst á undanförnum
3–4 árum, bæði hvað varðar brot
gegn fullorðnum og börnum. Refs-
ingarnar séu nokkuð í takt við það
sem gerist á Norðurlöndunum.
Ragnheiður nefnir sem dæmi að
refsing fyrir nauðgun sé nú að
meðaltali um tvö ár en hafi fyrir
um áratug verið um eitt ár. Eins
hafi dómar í sifjaspellsmálum
þyngst og bendir á að fyrir
skömmu hafi maður verið dæmdur
í 5½ árs fangelsi fyrir slíkt brot.
Þessi þróun hefur átt sér stað án
þess að breyting hafi orðið á lögum
sem hafa áhrif á þyngd refsinga,
breytingin felst eingöngu í dóma-
framkvæmdinni.
Miðað við þetta hljóta að vakna
spurningar um hvort dómur
Hæstaréttar frá því á fimmtudag,
þar sem refsing yfir manni sem
hafði brotið gegn fimm stúlkum
var milduð úr tveimur árum í 18
mánuði, sé á skjön við þróun und-
anfarinna ára. Í dómnum er ekki
vísað til einstakra dóma en líklegt
má telja að Hæstiréttur hafi m.a.
haft dóm frá 20. nóvember 2003 til
hliðsjónar en þá dæmdi rétturinn
mann til 18 mánaða fangelsis fyrir
brot gegn sömu lagagreinum. Í því
tilviki voru fórnarlömb hins seka
reyndar þrjár stúlkur en ekki
fimm líkt og í málinu sem dæmt
var í á fimmtudag auk þess sem
þær voru nokkuð eldri. Því hefði
allt eins mátt búast við þyngri
dómi á fimmtudag – eins og meiri-
hluti í fjölskipuðum dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur taldi raunar við
hæfi.
Hvað álit almennings varðar er
nokkuð víst að meirihlutinn hefði
kosið að dómurinn væri enn
þyngri. Nægir í því samhengi að
benda á kannanir sem Helgi Gunn-
laugsson, prófessor við Háskóla Ís-
lands, gerði 2002 og 2005 sem
leiddu í ljós að 75% Íslendinga telja
að herða þurfi refsingar. Þegar
þessir einstaklingar voru spurðir
við hvaða brotum nefndu 66% kyn-
ferðisbrot en fæstir aðrir tiltóku
sérstakan brotaflokk. Helgi segir
að hvað sem sjónarmiðum um
þyngd refsinga líði sé ljóst að dóm-
arar þurfi að útskýra betur fyrir al-
menningi hvers vegna dómar í
kynferðisbrotamálum séu með
þessum hætti. | 4 og 11
Refsingar eru að þyngj-
ast án lagabreytinga
Morgunblaðið/Kristinn
Í HNOTSKURN
»Fangelsisrefsing fyrirnauðgun er nú að meðal-
tali um tvö ár en var eitt ár
fyrir um áratug.
»Samkvæmt könnunumHelga Gunnlaugssonar
prófessors á árunum 2002 og
2005 telja 75% Íslendinga að
herða þurfi refsingar og 66%
aðspurðra nefna kynferðis-
brot en fæstir aðrir tiltaka
sérstakan brotaflokk.
LIÐSMENN Vísinda-
nefndar Sameinuðu
þjóðanna um loftslags-
breytingar, IPCC, segja
í væntanlegri skýrslu
sinni að gera megi ráð
fyrir hækkun meðalhita-
stigs fram að aldamótum
er nemi 1,8–4 stigum á
Celsíus.
Gengið er lengra en í
fyrri skýrslum IPCC og
sagt að „mjög líklegt“ sé að menn eigi með
brennslu jarðefnaeldsneytis mestan þátt í
hlýnuninni. Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur segir spár um veðurfar í eðli sínu afar
flókin vísindi og óvissuþætti marga. En
skýrslur stofnunarinnar séu bestu tækin
sem menn ráði nú yfir til að meta áhrif gróð-
urhúsalofttegunda.
Halldór Þorgeirsson á sæti í nefndinni.
„Það sem mér finnst mikilvægast fyrir Ís-
lendinga er að vísindanefndin telur ekki
miklar líkur á meiri háttar röskun á Golf-
straumnum. Hins vegar gera vísindamenn-
irnir ráð fyrir því að hann geti veikst á öld-
inni ef ekkert verður að gert. En það er
ekkert sem bendir til þess að meiri háttar
röskun verði á hafstraumnum eins og menn
hafa haft áhyggjur af.“ Hlýnunin á Íslandi
geti orðið minni en ella veikist Golfstraum-
urinn. „Gert er ráð fyrir því að hlýnunin
vegi upp hugsanlega veikingu á Golf-
straumnum, þannig að það verði áframhald-
andi hlýnun við Ísland.“ | 6 og 15
Menn valda
hlýnandi
veðurfari
Halldór
Þorgeirsson
MINNST 19 manns týndu lífi er skýstrókur
reið yfir Lake-sýslu í Flórída, um 80 kíló-
metra norðvestur af Orlando, í gærmorgun.
Talið er að hinir látnu hafi flestir verið í
fastasvefni. Þar af létust sex er fárviðrið
lagði hús og hjólhýsabyggð í rúst í bænum
Lady Lake, þar sem myndin er tekin.
Hákon Már Örvarsson matreiðslumeistari
lando. „Ég vaknaði klukkan fimm í [fyrri]-
nótt að mínum tíma við óvenju miklar
drunur. Hvassviðrið reið yfir þveran Flór-
ídaskagann, St. Petersburg og Orlando.
Skólafélagar mínir urðu ekki einu sinni var-
ir við fárviðrið sem var á afmörkuðu svæði.
Yfirvöld búast við meira óveðri og biðja fólk
um að vera heima.“
er búsettur í bænum Clermont, um 35 kíló-
metra frá Leesburg, bænum sem varð að
hans sögn einna verst úti í fárviðrinu. „Það
gekk á með miklum eldingum og þrumum í
[fyrri]nótt,“ segir Hákon. „Fjölskyldan svaf
og aðeins frúin vaknaði.“
Guðmundur Jóhannsson varð einnig var
við fárviðrið þar sem hann er búsettur í Or-
Reuters
Mannskaði og eignatjón í fárviðri í Flórída
BORIÐ hefur á því að foreldrar taki lögin
í sínar hendur og beiti tálbeituaðferð til
að komast í tengsl við kynferðisafbrota-
menn, að sögn verkefnisstjóra hjá SAFT
sem segist m.a. hafa fengið símtöl frá
fólki sem hyggur á slíkar aðgerðir. Hann
hvetur fremur til að foreldrar kenni
börnum sínum að nota Netið.
„Við höfum bæði fengið símtöl frá
mæðrum sem hafa skráð sig inn á einka-
mál.is með þessum hætti og einnig öðrum
sem spyrja hvort þeir eigi að taka málin í
sínar hendur,“ segir Guðberg Jónsson,
verkefnisstjóri hjá SAFT – Samfélagi,
fjölskyldu og tækni. Hann segist þó ekki
vita til þess að aðgerðir foreldranna hafi
borið árangur, þ.e. að gögnum hafi verið
skilað til lögreglu.
„Við höfum beðið þessa aðila að leiða
hugann að því hvort þeir séu jafnvel að
brjóta lög og hvetjum fólk til að nálgast
málið frá annarri hlið, þ.e. að kenna
börnum sínum að nota Netið.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, segist ekki hafa heyrt af slík-
um málum. Hann segir lögregluna
almennt mæla gegn því að fólk taki lögin
í sínar hendur. „Lögreglan er alltaf tilbú-
in að taka við upplýsingum um brota-
starfsemi af öllu tagi en jafnvel þó að
fólki gangi gott til er þetta fremur var-
hugaverð leið.“
Taka lögin í
sínar hendur