Morgunblaðið - 03.02.2007, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 28/29
Veður 8 Bréf 29
Staksteinar 8 Kirkjustarf 36/37
Úr verinu 13 Minningar 30/35
Viðskipti 14 Myndasögur 44
Erlent 215/16 Dagbók 44/49
Akureyri 18 Víkverji 48
Suðurnes 19 Staður og stund
48/49
Árborg 19 Velvakandi 48
Daglegt líf 20/25 Bíó 46/49
Menning 17/41/44 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26
* * *
Innlent
Dómar Hæstaréttar yfir kyn-
ferðisbrotamönnum hafa þyngst á
undanförnum árum. Það er þó
langur vegur frá því að refsirammi
vegna kynferðisbrota sé fullnýttur
en það á við um fleiri afbrot þar sem
ofbeldi er beitt, s.s. alvarlegar lík-
amsárásir. » 1
Tveimum nýjum fiskiskipum
Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum
var í gær gefið nafn í Póllandi. Jafn-
framt undirrituðu eigendur Dala-
rafns samning um smíði á nýju skipi.
Bergur-Huginn hefur nú á tveimur
árum varið 2,8 milljörðum króna til
skipa- og kvótakaupa. Veiðiheimildir
félagsins eru orðnar ígildi 6.500
þorsktonna og nema 1,6% af öllum
úthlutuðum veiðiheimildum á land-
inu. » 13
Skatttekjur Hafnarfjarðar
myndu nær þrefaldast vegna stækk-
unar álvers Alcan í Straumsvík auk
þess sem árlegar tekjur ríkisins
vegna hennar myndu nema fjórum
til fimm milljörðum króna. Forstjóri
Alcan sagði ljóst að því betur sem
íbúar bæjarins kynntu sér málið, því
meiri líkur væru á að af stækkun
yrði. » 4
Kostnaður við lagningu jarð-
strengja getur verið allt að níu sinn-
um meiri en við loftlínur miðað við
sömu flutningsgetu. Sem dæmi má
nefna að 420 kílóvolta (kV) jarð-
strengur sem flytja þarf rúm 1.600
MVA (mega volt amper), kostar um
360 milljónir króna á hvern kíló-
metra (mkr/km) en sambærileg
loftlína kostar um 40 milljónir mkr/
km. » 12
Viðskipti
FL Group er komið í hóp þeirra
fjármálafyrirtækja sem skiluðu met-
hagnaði á síðasta ári. Hagnaður eftir
skatta jókst um 158% á milli ára og
var 44,6 milljarðar króna. Heildar-
eignir félagsins nær tvöfölduðust og
voru 262,9 milljarðar króna undir
lok síðasta árs. » 14
Íslenska krónan er ofmetnasta
mynt í heimi samkvæmt Big Mac-
vísitölunni sem tímaritið Economist
tekur saman. Samkvæmt henni er
gengi íslensku krónunnar gagnvart
Bandaríkjadal 131% hærra en það
ætti að vera, þ.e. ef Big Mac kostaði
jafnmikið og í Bandaríkjunum. » 14
laugardagur 3. 2. 2007
íþróttir mbl.is
! "#$%"$$&
enski boltinn
Leikur Hermann Hreiðarsson sama leikinn og 2003? » 2
MILLJARÐAKAUP
FÉLÖGIN Á ENGLANDI EYDDU 40,5 MILLJÖRÐUM
KRÓNA Í LEIKMANNAKAUP Á KEPPNISTÍMABILINU >> 2
Leikurinn gegn Spánverjum fer
fram á Old Trafford í Manchester á
miðvikudag en enska landsliðið hef-
ur ekki náð þeim árangri á stórmót-
um sem stuðningsmenn liðsins hafa
krafist.
Valið á Barton vakti mesta athygli
í gær þar sem hann hefur m.a. í
blaðaviðtali gagnrýnt leikmenn á
borð við Frank Lampard og Steven
Gerrard. Og efaðist Barton um að
þeir félagar væru uppteknir af því að
bæta sig sem knattspyrnumenn.
Lampard hefur m.a. svarað Bar-
ton í blaðaviðtali og sagði Chelsea
leikmaðurinn m.a. að það væri varla
hægt að svara slíkum ásökunum frá
manni sem hefði það á samviskunni
að hafa drepið í sígarettu í auga á
ungum leikmanni Man. City í jóla-
boði félagsins og ráðist á ungan
stuðningsmann Everton á bar í Tæl-
andi.
Engin vandamál
McClaren sagði í gær er hann til-
kynnti lið sitt að hann hefði engar
áhyggjur af liðsandanum.
„Það verða engin vandamál. Leik-
menn enska landsliðsins geta barist
sín á milli á laugardegi og verið mikli
óvinir en um leið og þeir mæta á æf-
ingu landsliðsins eru vandamálin úr
sögunni. Þetta eru atvinnumenn,“
sagði McClaren.
Kieron Dyer leikmaður Newcastle
og Gareth Barry, úr Aston Villa, fá
einnig tækifæri eftir langt hlé.
Owen Hargreaves leikmaður Bay-
ern München var valinn en hann hef-
ur verið að jafna sig eftir fótbrot frá
því í september á síðasta ári.
Það var búist við því að hinn 24 ára
gamli Barton myndi fá tækifæri
gegn Spánverjum en hann hefur þótt
leika vel með Man. City í vetur og
sýnt meiri þroska í sínum aðgerðum.
Micah Richards, hinn ungi bak-
vörður City, var á ný valinn í liðið en
hann lék sinn fyrsta landsleik gegn
Hollendingum í desember. Richards
var ánægður með valið á Barton.
„Joe á þetta skilið og hann hefur
sýnt það í leikjum okkar í vetur hve
vel hann getur leikið,“ sagði Rich-
ards.
Woodgate með á ný
Jonathan Woodgate miðvörður
Middlesbrough segist aldrei hafa
gefið upp vonina um að öðlast sæti í
ensku landsliðinu á nýjan leik. Þessi
27 ára gamli varnarmaður sem er í
láni hjá Middlesbrough frá Real Ma-
drid lék síðast með enska landsliðinu
gegn Svíum í mars 2004 en meiðsli
hafa mjög sett strik í reikninginn hjá
honum undanfarir ár.
,,Ég hætti aldrei að trúa því að ég
fengi kall í landsliðið á nýjan leik. Ég
hélt í trúna að ég yrði valinn aftur ef
ég kæmist á skrið. Ég finn að ég er
tilbúinn í baráttuna með landsliðinu
og hef ekki kennt mér meins þrátt
fyrir að spila oft tvo til þrjá leiki í
viku," sagði Woodgate sem hefur
leikið sérlega vel í vörn Middles-
brough á tímabilinu.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:Paul Robinson (Totten-
ham Hotspur), Chris Kirkland (Wig-
an Athletic), Ben Foster (Watford).
Aðrir leikmenn: Jonathan Woodgate
(Middlesbrough), Rio Ferdinand
(Manchester United), Phil Neville
(Everton), John Terry (Chelsea),
Gary Neville (Manchester United),
Jamie Carragher (Liverpool),
Wayne Bridge (Chelsea), Micah
Richards (Manchester City), Mich-
ael Dawson (Tottenham Hotspur),
Owen Hargreaves (Bayern Münc-
hen), Steven Gerrard (Liverpool),
Frank Lampard (Chelsea), Stewart
Downing (Middlesbrough), Michael
Carrick (Manchester United), Scott
Parker (Newcastle United), Shaun
Wright-Phillips (Chelsea), Kieron
Dyer (Newcastle), Jermaine Jenas
(Tottenham Hotspur), Aaron Len-
non (Tottenham Hotspur), Gareth
Barry (Aston Villa), Joey Barton
(Manchester City), Wayne Rooney
(Manchester United), Andrew John-
son (Everton), Peter Crouch (Liver-
pool), Jermain Defoe (Tottenham
Hotspur).
Það vekur athygli að John Terry,
Owen Hargreaves og Andrew John-
son eru í hópnum þrátt fyrir að hafa
verið meiddir undanfarnar vikur.
Leikurinn gegn Spánverjum er síð-
asti leikur Englands fyrir leik liðsins
gegn Ísrael í undankeppni Evrópu-
mótsins.
Hinn umdeildi Joe Barton fær tækifæri til þess að sanna sig með enska landsliðinu
Reuters
Góður Joey Barton hefur leikið mjög vel með Manchester City að undanförnu.
Bland í
poka hjá
McClaren
JOEY Barton miðvallarleikmaður
Manchester City var í gær valinn í
landsliðshóp Englands sem leikur
vináttuleik gegn Spánverjum á
miðvikudaginn í næstu viku. Þetta
er í fyrsta sinn sem Barton er val-
inn í enska landsliðið og Jonathan
Woodgate varnarmaður Middles-
brough var einnig valinn - í fyrsta
sinn frá árinu 2004 en Steve McCla-
ren þjálfari enska liðsins tilkynnti
val sitt í gær.
laugardagur 3. 2. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Eiður Smári ekki áhyggjufullur vegna stöðu sinnar hjá Barcelona >> 4
STÓRIR STRÁKAR
HSÍ, SEGIR AÐ SAMBANDIÐ ÆTLI AÐ BEINA
SJÓNUM AÐ HÁVAXNARI LEIKMÖNNUM >> 3
KSÍ, knattspyrnusamband Íslands,
birti í gær ársreikning sinn fyrir árið
2006. Hagnaður ársins var rétt tæp-
lega 100 milljónir króna. Heildar-
tekjur KSÍ-samstæðunnar voru 516,5
milljónir króna og heildargjöld voru
417,2 milljónir króna. Hagnaður sam-
bandsins varð því 99,3 milljónir
króna.
Í ljósi þess ákvað stjórn KSÍ að
greiða sérstakt framlag til aðild-
arfélaga af hagnaði, alls 16,1 milljón
króna. Niðurstaða ársins varð því já-
kvæð sem nemur 83,2 milljónum
króna. Rekstrarhagnaður af reglu-
legri starfsemi var 19,3 milljónir
k ón Rek t tekj o 377 illj
7% umfram áætlun en rekstr-
argjöldin voru 2% umfram áætlun.
Eins og mörg undanfarin ár voru
fjármunatekjur stór liður í afkomu
KSÍ. Á árinu 2006 námu þær 103,8
milljónum króna en fjármagnsgjöld
voru 14,3 milljónir króna.
Þriðja árið í röð voru lagðir fjár-
munir í sparkvallagerð vítt og breitt
um landið. Á árinu 2006 voru lagðir
12 vellir og þá hafa alls verið lagðir 76
vellir. Kostnaður KSÍ við sparkval-
laátakið er nú alls rúmlega 180 millj-
ónir króna og hefur KSÍ fengið um 80
milljónir króna frá ríkissjóði í það
verkefni, um 50 milljónir króna frá
UEFA og 50 illjóni k ón f á
76 sem nú eru til staðar er áætlaður
um 800 milljónir króna.
Afkoma KSÍ-samstæðunnar er sú
besta í sögu sambandsins og eigið fé
hennar var í lok árs 2006 orðið 280,6
milljónir króna. Eins og fram hefur
komið mun KSÍ verja 100 milljónum
króna af eigin fé í mannvirkjasjóð.
Til samanburðar má nefna að
hagnaður KSÍ árið 2005 var 27 millj-
ónir króna og eigið fé sambandsins í
árslok 2005 var 197,4 milljónir króna.
Árið 2003 var hagnaður KSÍ 38,2
milljónir króna og eigið fé sambands-
ins á þeim tíma var 131 milljón króna.
Árið 2002 var hagnaður KSÍ 4
illjóni k ón og eigið fé KSÍ
Methagnaður hjá KSÍ
Þeir leikmenn sem geta veitt
honum keppni eru Rússinn Edu-
ard Koksharov, sem hefur skorað
55 mörk og Pólverjinn Karol Bie-
lecki, sem hefur skorað 53 mörk.
Koksharov meiddist í leiknum
gegn Íslandi strax í byrjun leiks
og náði ekki að skora. Það er
óvíst hvort að hann leiki með
Rússum gegn Króötum í dag.
Bielecki, sem hefur skorað
jafnt og þétt fyrir Pólverja í síð-
ustu leikjum, leikur með þeim úr-
slitaleikinn gegn Þýskalandi í
Köln á morgun og má reikna með
að Þjóðverjar hafi góðar gætur á
honum.
Fjórir aðrir leikmenn íslenska
liðins eiga mikla möguleika á að
verða í hópi tíu markahæstu leik-
manna HM. Þeir eru Snorri
Steinn Guðjónsson, sem hefur
skorað 48 mörk, Ólafur Stefáns-
son, sem hefur skorað 45 mörk,
en hann er sá leikmaður sem hef-
ur átt langflestar sendingar á
HM sem gefa mörk, eða 46.
Næstur á blaði er Króatinn Ivano
Balic með 39.
Logi Geirsson og Alexander
Petersson hafa báðir skorað 43
mörk.
Þess má geta til gamans að
Gunnlaugur Hjálmarsson varð
fjórði markahæsti leikmaðurinn
á HM í Þýskalandi 1961 er hann
skoraði 22 mörk, en markahæstir
voru Rúmeninn Petre Ivanescu
og Tékkinn Rada með 24 mörk og
í þriðja sæti var Rúmeninn Ion
Moser með 23 mörk.
Morgunblaðið/Günter Schröder
Fagnað Guðjón Valur Sigurðsson fagna marki í leik gegn Rússum á HM.
Guðjón
Valur
marka-
kóngur?
GUÐJÓN Valur Sigurðsson á
mjög góðan möguleika á að
verða fyrsti Íslendingurinn til að
verða markakóngur á heims-
meistaramótinu í handknattleik.
Þegar aðeins fjórir leikir eru
eftir á HM er hann markahæst-
ur með 58 mörk – hefur skorað
einu marki meira en Tékkinn Fi-
lip Jicha, sem hefur lokið
keppni. Guðjón Valur á gegn
Spánverjum í dag kl. 13 í Köln.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
SÆNSKA úrvalsdeildarliðið Hels-
ingborg ætlar að gera tilboð í Ólaf
Inga Skúlason og hafa forráðamenn
félagsins sett sig í samband við um-
boðsmanns hans, Ólaf Garðarsson,
en Ólafur Ingi hefur fengið grænt
ljós frá forráðamönnum liðsins um
að hann megi fara án kaupverðs.
Ólafur kom til Englands frá S-
Afríku í gær en þar var hann í æf-
inga- og keppnisferð með Helsing-
borg og náði þar að heilla þjálfara
liðsins,
Stuart Baxter. Hann lék einn leik
með liðinu – gegn Santos sem Hels-
ingborg tapaði, 2:0. Í umsögn á
heimasíðu Helsingborg þótti Ólafur
Ingi einn besti maður liðsins.
Baxter talaði meðal annars við Ar-
sene Wenger, knattspyrnustjóra
Arsenal, áður en hann bauð honum
að koma til reynslu og fékk hann góð
meðmæli frá Wenger en Ólafur Ingi
var undir stjórn Frakkans í fjögur
ár.
Ólafur er 23 ára gamall miðjumað-
ur. Hann hefur verið í herbúðum
Brentford í eitt og hálft ár en hann
kom til liðsins frá Arsenal sumarið
2005. Hann missti nánast alveg af
síðasta tímabili eftir að hann sleit
krossband í ágústmánuði en hefur
leikið talsvert í vetur með Brenford.
Samherji Henrik Larssons
Helsingborg varð bikarmeistari á
síðustu leiktíð og gangi Ólafur Ingi í
raðir félagsins mun Henrik Larsson
verða samherji hans en Larsson,
sem er frægasti knattspyrnumaður
Svía, er í láni hjá Manchester United
fram til vors.
Helsingborg
vill semja
við Ólaf Inga
BRYNDÍS Bjarnadóttir, leikmaður
kvennaliðs Breiðabliks í knatt-
spyrnu, verður ekki dæmd í keppn-
isbann frá UEFA, Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, fyrir að mæta
ekki í lyfjapróf í október sl.
Bryndís var boðuð í lyfjapróf eft-
ir síðari leik Breiðabliks og Arsenal
í átta liða úrslitum Evrópukeppn-
innar í London í október sl. en
mætti ekki þar sem hún hafði ekki
hugmynd um að hún hefði átt að
mæta í prófið Aganefnd UEFA var
yrði ekki úrskurðuð í keppnisbann
og fær hún áminningu frá UEFA
vegna atviksins. Breiðablik fær
einnig áminningu frá UEFA.
Bryndís lék ekki umræddan leik
vegna meiðsla. Hún sat í áhorf-
endastúkunni og fylgdist með
leiknum þaðan en var samt á leik-
skýrslu Breiðabliks. Sjö varamenn
eru leyfðir í Evrópukeppninni og
þar sem ekki voru 18 leikfærir leik-
menn með í för var Bryndísi bætt á
skýrsluna án hennar vitundar og
Bryndís sleppur
við keppnisbann
laugardagur
3. 2. 2007
börn
HITTU SKOPPU OG SKRÍTLU
VINKONURNAR SUNNA BJÖRK OG REGÍNA SJÖFN
FENGU AÐ SYNGJA MEÐ SKOPPU OG SKRÍTLU » 3
Skemmtileg myndakrossgáta í verðlaunaleik vikunnar » 2
Mörgæsirnar í mörgæsakórnum syngja
eins og englar en þessar sniðugu mörgæs-
ir hafa samt aldrei kynnst því að syngja
með hljóðnema. Ef þú leiðir þær í gegnum
völundarhúsið geta þær prófað nýja hljóð-
nemann.
La, la,
la, la!
Asnar eru líkir hestum en hafa lengri eyru en þeir. Asn-ar eru ekki stórir en mjög duglegir og sterkir. Asnareru einstaklega rólegir og stundum er sagt að þeir séu
A a
ASNI Krakkarnir á leikskólanum Holtaborg eru rosalega dug-leg að syngja og æfa sig á hverjum degi. Það komsamt upp óhapp hjá þeim um daginn í söngstund, þá
sungu þau og sungu en það heyrðist ekkert í þeim. Fallegu
tónarnir sem frá þeim komu ákváðu að stríða þeim og földu
Það heyrist
ekkert í okkur!
Halló krakkar!
Mig langar til að
þakka ykkur fyrir
öll frábæru bréfin
sem þið eruð búin
að senda mér. Ég
mun nú vinna í því
næstu vikur að birta
allar teikningarnar
ykkar, óskir um
pennavini, ljóð og
sögur næstu vikur.
Ef ykkur langar
til að senda mér
eitthvað meira eftir ykkur þá verð ég innilega þakklátur.
Heimilisfangið mitt er:
Morgunblaðið
Patti póstkassi – Barnablaðið
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Bless krakkar!
Takk fyrir bréfin!
Morgunblaðið/G.Rúnar
Pollapönk Heiðar, úr Botnleðju, gaf nýlega út barnageisladiskinn Pollapönk ásamt vini sínum Halla. Hér sjáum við Heiðar rokka með börn-
unum á leikskólanum Engjaborg. Við hittum Heiðar og Halla og ræddum við þá um leikskólalífið og tónlistina. » 3
Ljósmynd/Paul Tahon og R. Bouroullec
Bouroullec-bræður slá í gegn Ronan og Erwan Bouroullec eru franskir bræður um þrítugt sem hafa á skömmum tíma orðið meðal skærustu stjarnanna á himni alþjóðlegrar hönnunar. Rætt er
við þá um hönnun í Lesbók í dag en þeir segja að einn af höfuðgöllum hönnunar nú sé bókstafstrúarnálgun. Á myndinni er sófi þeirra sem kallast Late og í baksýn er angmynstur. » 8-9
Laugardagur 3. 2. 2007
81. árg.
lesbók
SÉRKENNILEIKI BANDARÍKJANNA
DAVID FOSTER WALLACE HEFUR SKRIFAÐ GREINASAFN SEM LÝSIR
SÉRKENNILEIKA BANDARÍKJANNA OG HANS SJÁLFS » 11
Í birtu og við fyrstu sýn er Caracas, þessi sjö milljóna borg, skelfileg » 6-7
Rithöfundar eru lykilpersónur í grátbroslegum eldhúsróman jóla-bókaflóðsins en án áhrifa, segir Ari Trausti Guðmundsson semhefur reynslu af flóðinu bæði sem rithöfundur og útgefandi.
Í grein í Lesbók í dag telur hann til nokkur atriði sem hann segir ein-
kenna flóðið. Telur hann að þegar útgefendur kynni 600 til 700 bækur á
fjórum til sex vikum myndi það ógagnsæja holskeflu sem sé fáum til
gagns en til þess fallin að valda ringulreið og áhugaleysi vegna of-
hleðslu.
Í erindispistli er svo tekinn upp þráðurinn í fyrirlestri Þorgerðar E.
Sigurðardóttur gagnrýnanda á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra
fræða í vikunni en hún hélt því fram að jólabókaflóðið hefði að þessu
sinni verið mikið ljóðabókaflóð. Augljóst væri að ljóðið rataði nú til fleiri
en sinna og væri góð sala á bók Ingunnar Snædal, Guðlausir menn: hug-
leiðingar um jökulvatn og ást, til marks um það.
Þorgerður hélt því enn fremur fram að tími innbundinna þýddra bók-
mennta gæti verið liðinn hér á landi, að minnsta kosti í bili, en aðeins
þrjár þeirra voru meðal fimmtíu mest seldu bóka síðasta árs samkvæmt
lista Eymundson. Hún var einnig á þeirri skoðun að gildi bókmennta-
Grátbroslegur eldhúsróman
Börn eru svo auðnýtanleg fyrir mál-stað kristninnar. Ég get leitt þautil drottins á svo stuttum tíma.
Augnabliki síðar eru þau farin að sjá sýn-
r og heyra rödd guðs,“ segir Becky Fis-
her en hún stýrir kristilegum sum-
arbúðum í Bandaríkjunum sem nefnast
Kids on Fire. Sumarbúðirnar eru umfjöll-
unarefni heimildamyndarinnar Jesus
Camp sem tilnefnd er til óskarsverðlauna
og hefur vakið miklar deilur í Bandaríkj-
unum.
Myndin sýnir hvert dæmið á fætur
öðru þar sem börn frá sex upp í fimmtán
ára aldur umfaðma Krist, tala tungum,
gráta af gleði yfir fagnaðarerindinu og
virðast afskaplega einlæg, jafnvel róttæk, í trúarhita sínum. En það er einmitt
róttæknin sem hefur vakið áhorfendur til umhugsunar.
Stríðsbörn guðs
Á vegum guðs Róttæk trúuð börn.
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
ÞAÐ Á
AÐ BURSTA
TENNURNAR
TVISVAR Á DAG!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
35
91
1
01
/0
7
TÆPLEGA 10% landsmanna voru
með tekjur undir lágtekjumörkum
árin 2003 og 2004, eins og þau mörk
eru skilgreind í lífskjararannsókn
Evrópusambandsins. Mörkin voru
tæplega 103 þúsund krónur fyrir
einstakling og tæp 216 þúsund fyrir
tvo fullorðna með tvö börn.
Þetta kemur fram í lífskjararann-
sókn Hagstofu Íslands, en hún er lið-
ur í samræmdri rannsókn Evrópu-
sambandsins á lífskjörum. Flestir
voru undir lágtekjumörkum í yngsta
aldurshópnum, þ.e. 16–24 ára eða
15,4%, en fæstir í aldurshópnum 50–
64 ára þar sem hlutfallið var 5,9%.
Þá voru hlutfallslega fleiri sem
bjuggu einir undir lágtekjumörkum
en þeir sem bjuggu með öðrum og
það sama gildir um þá sem bjuggu í
leiguhúsnæði í samanburði við þá
sem bjuggu í eigin húsnæði.
Af 31 Evrópuþjóð er aðeins ein
þjóð með lægra lágtekjuhlutfall en
hér. Það eru Svíar, en tvær voru með
sama hlutfall og við, Slóvenía og
Tékkland. Langhæsta hlutfallið var
hins vegar í Tyrklandi.
Fimmtungsstuðullinn 3,5
Í könnuninni er einnig gerður
samanburður á launamun, þ.e.a.s.
þess fimmtungs þjóðarinnar sem er
með lægstar tekjurnar í samanburði
við þann fimmtung sem er með
hæstar tekjurnar. Í ljós kom að
tekjuhæsti fimmtungurinn var með
3,5 sinnum hærri tekjur en tekju-
lægsti fimmtungurinn. Í einungis
tveimur löndum er þessi stuðull
lægri en hér á landi, þ.e.a.s. í Svíþjóð
og Slóveníu. Hann er litlu hærri en
hér á landi í Danmörku og Finnlandi,
en nokkru hærri í Noregi eða rúm-
lega fjórir. Hann er hins vegar hæst-
ur í Portúgal þar sem hann er rúm-
lega áttfaldur og í Tyrklandi þar sem
hann er nær tífaldur.
Tæp 10% landsmanna
undir lágtekjumörkum
Ein þjóð af 31 í Evrópu með lægra hlutfall en Íslendingar
Í HNOTSKURN
»Svonefndur Gini-stuðullvar 0,25 á Íslandi árið 2004
og var lægri hjá þremur þjóð-
um og hærri hjá 27 þjóðum
sem rannsóknin tekur til.
» Hann var lægri hjá Svíum,Dönum og Slóvenum en
hæstur hjá Portúgölum og
Tyrkjum.
»Gini-stuðullinn er mæli-kvarði á jöfnuð og eftir því
sem stuðullinn er lægri er
jöfnuðurinn meiri.
GÖNGUEFTIRLIT lögregluþjóna hefur verið snar
þáttur í lögreglustarfi um aldir hérlendis og hefur sýni-
legra göngueftirlit verið boðað með sameiningu lög-
regluembættanna á höfuðborgarsvæðinu nýlega. Í gær
viðraði sæmilega til starfans í miðbæ Reykjavíkur en
þar var á ferð Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
ásamt varðstjóra LRH.
Lögregluþjónar á röltinu gætu þurft að setja upp loð-
húfurnar eftir helgi því að þá er spáð nýjum frostakafla
langt fram eftir vikunni.
Morgunblaðið/Guðmundur Rúnar
Við göngueftirlit í miðbænum
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands
hefur kvartað til Umboðsmanns Al-
þingis fyrir hönd Réttindaskrifstofu
stúdentaráðs HÍ vegna ítrekaðra
einkunnavanskila sumra kennara við
HÍ.
Kennarar hafa þrjár vikur til að
skila einkunnum samkvæmt reglum
skólans en mega á haustönn skila
eftir fjórar vikur, að sögn Sigurðar
Arnar Hilmarssonar, formanns
stúdentaráðs. Því miður séu þessar
reglur brotnar ítrekað af kennurum
skólans, þótt flestir standi sig vel.
Hins vegar fari einstaka kennarar
langt yfir leyfileg mörk og eru dæmi
um eftir jólaprófin í desember sl. að
tekið hafi 45 daga að skila einkunn úr
prófi og enn séu einkunnir í einstaka
námskeiðum ókomnar. Telur stúd-
entaráð þessi vanskil skaða stúdenta
með þrennum hætti, en í fyrsta lagi
setji það námsframvindu nemenda á
vorönn í óvissu enda geti margir
þeirra ekki gengið frá skráningu í
námskeið fyrr en einkunnir liggja
fyrir. Í öðru lagi geti vanskilin rask-
að stöðu námsmanna á stúdenta-
görðum en þeir verða að sýna fram á
tiltekinn námsárangur til þess að
halda húsnæði á görðunum. Í þriðja
lagi hafi tafir á einkunnaskilum áhrif
á námslán, en lánin eru greidd eftir
á.
Við þetta ástand verði ekki unað
og telur Sigurður með ólíkindum að
kennarar taki ekki ábyrgð á tjóni
nemenda sinna.
Kvarta til
umboðsmanns FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur gengið til samn-
inga við Capacent ehf. um ráðgjöf
varðandi fyrirhugaða sölu á 15,2%
hlut ríkissjóðs í Hitaveitu Suður-
nesja hf.
Tilboð bárust einkavæðingar-
nefndinni frá fjórum innlendum ráð-
gjafarfyrirtækjum. Var það mat
nefndarinnar að tilboð Capacent ehf.
væri hagstæðast.
Þekking og reynsla til staðar
Við mat á tilboði Capacent ehf.
voru vegnir saman matsþættir sem
vörðuðu verðtilboð frá fyrirtækinu
ásamt þekkingu og reynslu þess og
starfsmanna þess á sviði innlendra
og erlendra fjármála- og orkumark-
aða, segir í fréttatilkynningu frá
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu.
Semur við
Capacent