Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FJÖLMENNI var á fundi Samtaka atvinnulífsins
og Alcan í Hafnarborg í Hafnarfirði í gær þar sem
farið var yfir helstu mál vegna stækkunar álversins
í Straumsvík. Á fundinum kom m.a. fram að skatt-
tekjur bæjarfélagsins myndu nær þrefaldast vegna
stækkunarinnar auk þess sem árlegar tekjur rík-
isins vegna hennar myndu nema fjórum til fimm
milljörðum króna. Forstjóri Alcan sagði ljóst að því
betur sem íbúar bæjarins kynntu sér málið, því
meiri líkur væru á að af stækkun yrði.
„Framleiðslukostnaður hjá okkur er fremur hár
miðað við það sem gengur og gerist í heiminum […]
og við þurfum að minnka framleiðslukostnað á
hvert tonn,“ sagði Rannveig Rist, forstjóri Alcan á
Íslandi, m.a. á fundinum. Hún sagði jafnframt að
þeim álverum, sem væru hvað dýrust í rekstri, væri
lokað eða þau lögð niður. „Þannig má segja að með
því að stækka ekki verksmiðjuna heldur halda
óbreyttri stærð, á meðan aðrar verksmiðjur stækka
og stærri verksmiðjur eru byggðar, ýtumst við ofar
kúrfuna.“ Álverið yrði þannig óhagkvæmara í
rekstri samanborið við önnur álver á heimsmark-
aðnum.
Rannveig gerði ráð fyrir að framkvæmdir við ál-
verið gætu hafist árið 2008 og álið myndi byrja að
streyma úr nýjum skálum tveimur árum síðar. Hún
segir útboðsgögn langt komin og því lítið sem standi
[út af] borðinu. „Spurningin snýst einnig um hvort
fólk vill Straumsvík, Helguvík eða Húsavík, því það
er kannski ljóst að það verða ekki allir þessi kostir,“
sagði Rannveig og bætti við: „Talað er um að ef
greidd verði atkvæði gegn stækkun muni Hafnfirð-
ingar bjarga Þjórsá en ég tel það nokkuð ljóst, þar
sem mikil eftirspurn er eftir raforku, að þá færi raf-
orkan til Helguvíkur.“
Að lokum sagði Rannveig framtíð fyrirtækisins
og starfsmanna þess ráðast í kosningunum 31. mars
nk. og hvatti hún alla til að kynna sér málið vel, því
„eftir því sem fólk kynnir sér málin betur eru lík-
urnar meiri á að þetta gangi eftir.“
Nærri þreföldun á tekjum bæjarfélagsins
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri SA, flutti erindi á fundinum um áhrif stækk-
unarinnar á atvinnulíf í Hafnarfirði. Þar kom m.a.
fram að tekjur bæjarins, sem tengjast starfsemi ál-
versins, myndu stóraukast kæmi til stækkunar og
myndu nema um 1,4 milljörðum króna á ári, en þær
eru núna um 490 milljónir króna á ári.
Hannes fór einnig yfir fjölda nýrra starfa í
tengslum við stækkunina en þau eru um tólf hundr-
uð, beint eða óbeint. Hann sagði að fyrir hvert starf
í álverinu yrðu til 2,5 störf annars staðar.
Einnig hvatti Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, fundargesti til að láta ekki Alcan
sleppa frá sér heldur samþykkja deiliskipulagstil-
lögu, sem fæli í sér stækkun álversins í Straumsvík.
Tekjur myndu aukast um
milljarð vegna stækkunar
Hafnarfjörður fengi um 1,4 milljarða í tekjur árlega vegna starfsemi Alcan
PÁLL Gunnar
Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftir-
litsins, segir það
ekki fela í sér
neina stefnu-
breytingu þótt
stofnunin kalli
eftir liðsinni fyr-
irtækja og ein-
staklinga við að
upplýsa um sam-
keppnishömlur sem kunna að fela í
sér brot á samkeppnislögum og
veita markaðnum með því nauðsyn-
legt aðhald. Þetta hefur SVÞ, Sam-
tök verslunar og þjónustu, gagn-
rýnt og telja samtökin að
Samkeppniseftirlitið sé að hvetja
starfsmenn í matvöruversluninni til
að bregðast trúnaðarskyldu við at-
vinnuveitendur sína. Þá hefur Fé-
lag íslenskra stórkaupmanna sömu-
leiðis gagnrýnt Samkeppniseftir-
litið.
„Við erum einfaldlega að leggja
áherslu á mikilvægi þess að allir
taki þátt í að móta skilvirka og góða
samkeppni meðal annars á mat-
vörumarkaði. Slíkt getur ekki ein-
vörðungu verið á hendi hins opin-
bera, heldur er oft þörf á stuðningi
þeirra sem starfa á markaðnum.
Það er ekki óeðlilegt að standa
svona að málum. Að mínu mati ættu
fyrirtæki að taka þessu vel því að
þeir sem starfa á markaðnum vilja
skilvirka samkeppni,“ segir Páll
Gunnar. „Mér finnst því gagnrýnin
endurspegla ákveðna þröngsýni.“
Gagnrýni
byggð á
þröngsýni
Páll Gunnar
Pálsson
ÁSGEIR Eiríksson hefur í samráði
við stjórn byggðasamlagsins ákveðið
að láta af störfum sem framkvæmda-
stjóri Strætós.
Ásgeir hefur gegnt starfinu frá
stofnun fyrirtækisins fyrir fimm og
hálfu ári. Hans fyrsta verk var að
sameina í eitt þau fyrirtæki sem
sinntu almenningssamgöngum á höf-
uðborgarsvæðinu. Þá vann Ásgeir að
þeirri heildarendurskoðun á leiða-
kerfi borgarinnar sem lauk í mars á
síðasta ári.
Í fréttatilkynningu frá stjórn
Strætós segir að nýtt og skilvirkt
leiðakerfi hafi orðið til þess að far-
þegum Strætós hafi nú fjölgað í
fyrsta skipti frá stofnun fyrirtækis-
ins og þakkar stjórnin honum vel
unnin störf í þágu byggðasamlags-
ins.
Ásgeir
hættir hjá
Strætó bs.
TVEIR karlmenn á þrítugsaldri
voru á fimmtudag úrskurðaðir til
gæsluvarðhaldsvistar í Héraðsdómi
Suðurlands að kröfu lögreglustjór-
ans á Selfossi vegna rökstudds gruns
um aðild að innflutningi fíkniefna til
landsins.
Annar sakborninganna sætir
gæsluvarðhaldi til föstudagsins 9.
febrúar næstkomandi en hinn til 6.
febrúar. Rannsókn málsins stendur
yfir hjá lögreglunni á Selfossi og
vildi hún ekki gefa frekari upplýs-
ingar um tildrög málsins að svo
stöddu, þ.e. um magn umræddra
fíkniefna, haldlagningar eða tegund-
ir.
Í gæslu
vegna
fíkniefna
VALGERÐUR Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Jó-
annes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrituðu í
gær samning milli Íslands annars vegar og Danmerkur
og Færeyja hins vegar um afmörkun hafsvæðisins milli
Íslands og Færeyja. Áður hafði Per Stig Møller, utan-
ríkisráðherra Danmerkur, undirritað samninginn. Þar
með er lokið með formlegum hætti afmörkun efnahags-
lögsögu Íslands gagnvart lögsögu nágrannalandanna,
en áður hafði verið gengið frá afmörkun efnahags-
lögsögunnar gagnvart lögsögu Jan Mayen, Grænlands
og Bretlands.
Við útfærslu efnahagslögsögunnar í 200 sjómílur ár-
ið 1975 ákváðu íslensk stjórnvöld m.a. að nota klettinn
Hvalbak sem viðmiðunarpunkt við ákvörðun miðlínu
milli Íslands og Færeyja. Dönsk stjórnvöld gerðu fyr-
irvara við þessa ákvörðun fyrir hönd Færeyja og
ákvörðuðu miðlínuna miðað við grunnlínur landanna
án tillits til Hvalbaks. Þar með varð til umdeilt haf-
svæði milli Íslands og Færeyja, um 3.700 km² að stærð.
Samkomulag náðist um afmörkun hins umdeilda haf-
svæðis 2002. Ákveðið var að gengið yrði frá formlegum
afmörkunarsamningi, sem myndi ná til allrar lögsögu-
línunnar milli Íslands og Færeyja þegar tæknilegri
endurskoðun á grunnlínupunktum hvors lands um sig
væri lokið. Hinni tæknilegu endurskoðun lauk nýverið
og var samningurinn undirritaður í gær.
Morgunblaðið/Ásdís
Búið að afmarka hafsvæði landanna
♦♦♦
VEGAGERÐIN
greiddi á liðnu ári
642 milljónir króna
með rekstri far-
þegaferjunnar
Herjólfs. Ferðir
voru samtals 725
þannig að hver ferð kostaði um
885.000 krónur. Þetta kemur fram í
upplýsingum frá Vegagerðinni.
Framlagi Vegagerðarinnar er
annars vegar skipt í rekstrarkostnað
og hins vegar í afborgarnir og vexti
af lánum. Í fyrra nam rekstrarkostn-
aður 290 milljónum en afborgarnir
og vextir voru 352 milljónir. Þar með
er þó ekki öll sagan
sögð því ekki er um
eiginleg lán að ræða
þar sem ríkið yfir-
tók og greiddi öll
lán af ferjunni en
Vegagerðin greiðir
ríkinu eins og um lán væri að ræða.
Sé einungis tekið tillit til rekstrar-
kostnaðar kostaði hver ferð ríkissjóð
400.000 krónur. Ferjan er rekin af
Eimskip sem innheimtir gjöld fyrir
flutning með ferjunni. Samningurinn
var gerður á grundvelli útboðs og
gildir frá 2006-2010, samkvæmt upp-
lýsingum frá Vegagerðinni.
Hver ferð með Herjólfi á 400 þúsund kr.
642 milljóna kr.
meðgreiðslurMORGUNBLAÐINU hefur boristeftirfarandi athugasemd frá Dóm-
arafélagi Íslands vegna forsíðufrétt-
ar í Morgunblaðinu í gær.
„Á forsíðu Morgunblaðsins í gær
voru birtar myndir af og nafn-
greindir 5 dómarar Hæstaréttar
fyrir ofan flennistóra fyrirsögn með
heitinu „Milduðu dóminn“. Í milli-
fyrirsögn með stóru letri segir
„Hæstiréttur dæmdi karl á fimm-
tugsaldri í 18 mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn fimm stúlku-
börnum en í undirrétti hafði hann
hlotið tveggja ára dóm“. Er síðan
fjallað um dóm þennan í forsíðu-
fréttinni. Fréttaflutningur af dóms-
máli með þessum hætti á sér enga
hliðstæðu og fer langt út fyrir eðli-
leg mörk og jaðrar við sorpblaða-
mennsku, sem ekki hefur verið
dæmigerð fyrir Morgunblaðið fram
að þessu. Ekki er ljóst hvað fyrir
blaðinu vakir með fréttaflutningi af
þessu tagi og með engu móti verður
skilið hvers vegna dómendur eru
persónulega dregnir fram með
myndbirtingum vegna umfjöllunar
um dóminn. Öllum er frjálst að
gagnrýna dóma og Morgunblaðið
hefur hingað til gert það með mál-
efnalegum hætti. Ritstjórn Morg-
unblaðsins verður að gefa skýringu
á því hvers vegna það gengur fram
með svo ósmekklegum fréttaflutn-
ingi í umfjöllun sinni um þennan
dóm. Með dómi Hæstaréttar var
breytt ákvörðun um refsingu, það
hefur ótal sinnum gerst og í fjöl-
skipuðum héraðsdómi í málinu var
ágreiningur um refsinguna, þar sem
tveir töldu 2 ár hæfilega refsingu og
einn taldi 15 mánuði hæfilega refs-
ingu. Það voru fleiri dómar kveðnir
upp í kynferðisbrotamálum í
Hæstarétti þennan sama dag. Í
öðru máli var refsing þyngd og skil-
orð tekið af. Ekki var minnst á það.
Dómarafélag Íslands telur að vegið
sé ómaklega að dómstólum og ein-
stökum dómurum með fréttaflutn-
ingi af þessu tagi og krefst þess að
ritstjórn Morgunblaðsins svari því
umyrðalaust hvað hér býr að baki.
F.h. stjórnar Dómarafélags
Íslands,
Eggert Óskarsson formaður.“
Athugasemd frá
Dómarafélagi Íslands
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu þurfti að flytja framhaldsskóla-
nema á slysadeild Landspítalans
vegna ótæpilegrar áfengisdrykkju
fyrir skólaball á fimmtudagskvöld.
Að sögn lögreglu bar töluvert á ölv-
un meðal gesta á tveimur skólaböll-
um sem haldin voru á fimmtudag og
var hringt í á fimmta tug foreldra og
þeir látnir sækja börn sín. Einnig
var ölvaður framhaldsskólanemi
handtekinn vegna óláta.
Sóttu ölvuð
börn sín
♦♦♦