Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 15
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BIRTUR var í gær í París 20 síðna
útdráttur úr nýrri, viðamikilli
skýrslu Vísindanefndar Sameinuðu
þjóðanna um hnattrænar loftslags-
breytingar (IPCC), sjálf skýrslan
kemur út í áföngum síðar á árinu.
IPCC telur nú að líkurnar á að lofts-
lagsbreytingar séu að miklu leyti til
komnar vegna gróðurhúsaáhrifa af
völdum manna séu „meiri en 90%“
en í skýrslunni árið 2001 voru lík-
urnar metnar „yfir 66%“. Spáð er
hækkun hitastigs við yfirborð jarð-
ar, um 1,1–6,4 gráður á Celsius, fram
að næstu aldamótum. Árið 2001 voru
nefndar tölurnar 1,4–5,8 gráður.
Mestar líkur eru nú taldar á að yf-
irborðshitastig hækki um 1,8–4
gráður fram að aldamótum. Það sem
m.a. skýrir þessar ólíku tölur og víðu
vikmörk er að í spánum er gert ráð
fyrir mismunandi forsendum, jafnt
eðlisfræðilegum sem hagfræðilegum
og pólitískum. Er um að ræða
nokkrar tilgátur; ef reiknað er með
geysimikilli losun gróðurhúsaloft-
tegunda er gert ráð fyrir mikilli
hækkun hitastigs, sé gert ráð t.d.
fyrir öflugum mótvægisaðgerðum er
hækkunin mun minni. Skýrsluhöf-
undarnir segja að sé miðað við hóf-
samar spár um hækkun gæti hita-
stigið við lok aldarinnar verið orðið
jafnhátt og það var fyrir 125.000 ár-
um, á óvenju heitu skeiði milli
tveggja ísalda.
Um hækkun sjávarborðs segir að
aukinn hiti valdi því að sjórinn þenj-
ist út og því hækki sjávarborð. En
einnig hefur það nokkur áhrif á sjáv-
arhæð að jöklar munu víða bráðna
og sumir hverfa. Í skýrslunni er spáð
að sjávarborð heimsins geti hækkað
um allt að 43 sentimetra fram til
2100 sem er lægri tala en í síðustu
skýrslu er hún var 88 sentimetrar.
Hundruð vísindamanna, þar af all-
margir loftslagsfræðingar en einnig
embættismenn frá yfir 100 löndum,
komu að gerð skýrslunnar en sætta
þarf mjög ólík sjónarmið þegar kem-
ur að túlkun gagna. Susan Solomon,
einn af ritstjórum skýrslunnar, segir
afleiðingar loftslagsbreytinga koma
mishart við íbúa heims eftir því hvar
þeir búi. Hún neitaði aðspurð á
blaðamannafundi í París að segja
hvernig henni fyndist að ætti að
bregðast við þróuninni. „Ég tel í ein-
lægni að það sé mun betra að ég
skilji á milli persónulegra skoðana
minna og þess sem ég get lagt fram
sem vísindamaður,“ sagði hún.
Ekki er allir sannfærðir um nið-
urstöður IPCC. Richard Lindzen,
prófessor í loftslagsfræði við MIT-
háskóla í Bandaríkjunum, benti ný-
lega á að samkvæmt mælingum
Hadley-stofnunarinnar bresku, sem
tekur þátt í rannsóknum IPCC, hafi
meðalhitastig á jörðunni ekki hækk-
að í átta ár og spyr hvernig það komi
heim og saman við kenningar IPCC.
Telur Lindzen að liðsmenn IPCC
fullyrði allt of mikið, í reynd vaði
þeir um í blindni.
Ákveðnara orðalag en áður
Skýrsluhöfundar nota mun
ákveðnara orðalag um áhrif manna á
loftslagið en áður hefur verið gert.
Fyrir sex árum var talið að sólin
gæti haft veruleg áhrif á veðurfars-
sveiflur en nú eru þau áhrif talin
minni en menn héldu þá. Ágreining-
ur er þó mikill um áhrif sólbletta og
gammageisla frá sólinni á veður-
farsþróun. Þannig segir dr. Nigel
Weiss, fyrrverandi prófessor í
stærðfræðilegri stjarneðlisfræði við
Cambridge-háskóla í Bretlandi, að
gróðurhúsaáhrif vegna notkunar
kola og olíu hafi valdið einhverri
hlýnun síðustu áratugina. En í við-
tali við kanadíska blaðið The Nation-
al Post í janúar spáir hann að næstu
áratugi fari í hönd minnkandi virkni
sólar. Traustar vísbendingar, m.a.
niðurstöður rannsókna á ísótópum,
séu um það aftur í aldir að slík
sveifla valdi veðurfarskólnun og fólk
geti farið að búa sig undir þau um-
skipti.
Að sögn IPCC er ekki talið að vís-
bendingar séu nú um að íshellan á
Suðurskautslandinu muni bráðna á
öldinni, er jafnvel hugsanlegt að hún
eflist vegna aukinnar snjókomu.
Gert er ráð fyrir að Grænlandsjökull
muni halda áfram að minnka og eiga
sinn þátt í hærra sjávarborði.
Grænlandsjökull nokkur
þúsund ár að bráðna
Verði meðalhitastig 4–5 gráðum
hærra næstu árþúsundin en núna
myndi það bræða að mestu Græn-
landsjökul og myndi þá sjávarborð
heimsins hækka um sjö metra, segir
í skýrslunni. Mikil óvissa ríki varð-
andi áhrifin á hitastig ef skyndilega
losnuðu út í andrúmsloftið gróður-
húsalofttegundir sem nú eru bundn-
ar í jarðvegi. Reikna megi með aukn-
um öfgum í veðurfari og líklegt sé að
fellibyljir verði öflugri en áður en
ekki sé hægt að fullyrða neitt um
breytingu á tíðni þeirra.
Ítreka spár um hækkandi
meðalhita á jörðinni
Reuters
Mengun Raflínumöstur við orkuverið Niederaussem, vestan við Köln í Þýskalandi. Það er knúið brúnkolum.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SLÓVENSKI sundkappinn Martin
Strel hefur sigrast á Dóná, Miss-
issippi-fljóti og Yangtze-fljóti en nú
hyggst hann synda niður vatnsmesta
stórfljót veraldar, Amason.
Fæstir myndu þora að synda á
milli bakka Amason en Martin Strel
hyggst synda niður allt fljótið þótt
hann eigi á hættu að verða fyrir
barðinu á ránfiskum, snákum, hættu-
legum sýklum eða sníklum, krókódíl-
um eða jafnvel hákörlum.
Strel ætlar að synda alls 5.430
metra á 70 dögum og slá eigið heims-
met í langsundi. Sundið hófst í fyrra-
dag í frumskógarbænum Atalaya í
Perú, nálægt upptökum Amason, og
sundkappinn vonast til þess að ljúka
þrekrauninni við Atlantshafsströnd
Brasilíu 11. apríl.
Tuttugu manna hópur aðstoðar-
manna fylgir
Strel á bátum.
Aðstoðarmenn-
irnir verða með
fötur fullar af
blóði sem þeir
ætla að hella út í
fljótið til draga at-
hygli ránfiska frá
sundkappanum
geri þeir sig lík-
lega til að ráðast á hann.
„Yangtze er mjög hættulegt fljót
fyrir sundmenn, en í Amason lifa líka
nokkur af hættulegustu og grimm-
ustu dýrum, fiskum og pöddum ver-
aldar,“ sagði Strel áður en hann hóf
sundið. „Ég ætla að synda niður fljót-
ið eða deyja í þeirri tilraun. Það er þó
ekki ætlun mín að deyja.“
„Mig langar til að sanna hvers
maðurinn er megnugur,“ hafði frétta-
stofan AP eftir Strel. „Ég vil sanna
að hið ómögulega er mögulegt.“
Í fylgdarliði sundmannsins eru
læknar sem fylgjast grannt með líð-
an hans því auk líkamlegu áreynsl-
unnar eru hætturnar margar. Strel
þarf til að mynda að varast að míga í
fljótið vegna þess að það gæti laðað
að hættulegan smáfisk sem nefnist
kandiru og líkist tannstöngli. Ella er
hætta á að fiskurinn syndi inn í op
líkamans til að nærast á blóði eða
vefjum hýsilsins.
Strel er því í froskbúningi og ber á
sig sérstök smyrsl sem vernda hann
fyrir slíkum sníklum. Sundmann-
inum stafar og hætta af snákum á
borð við anakonda, risastóra kyrki-
slöngu sem getur orðið sjö metra
löng. Í Amason eru einnig sting-
skötur, grimmir ránfiskar á borð við
píranafiska og jafnvel hákarlar sem
synda upp fljótið.
Sundkappanum getur stafað
hætta af frumbyggjum, sem lifa í af-
skekktum frumskógum, og Amason
er gróðrarstía sýkla sem valda mal-
aríu, beinbrunasótt, gulu og fleiri
sjúkdómum.
Í lok sundsins þarf Strel að var-
ast allt að fjögurra metra háar flóð-
öldur sem ganga upp mynni fljóts-
ins. „Þær eru stórhættulegar,“
sagði Strel. „Þær eru mjög góðar
fyrir brimbrettabrun en slæmar
fyrir sundmenn.“
Martin Strel er 52 ára Slóveni og
var gítarkennari áður en hann gerð-
ist atvinnumaður í langsundi 1978.
Hann setti fyrst heimsmet í lang-
sundi sumarið 2000 þegar hann
synti niður Dóná, rúma 3.000 kíló-
metra á 58 dögum.
Tveimur árum síðar bætti hann
metið og synti niður Mississippi-
fljót, 3.797 km á 68 dögum.
Sumarið 2004 setti hann þriðja
heimsmetið þegar hann synti niður
Yangtze, lengsta fljótið í Kína, 4.003
km á 51 degi.
Hyggst sigrast á Amason
Martin Strel
TRAUSTI Jónsson veðurfræðingur hefur
lengi fylgst með rannsóknum IPCC. Hann
segir að almennt sé nú orðið samkomulag um
að hlýnun sé í gangi og að menn eigi þar hlut
að máli. Óvissan sé minni, skýrslan beri þess
merki, framfarir hafi á orðið á ýmsum svið-
um þessara rannsókna, m.a. áhrifum efnis-
agna úr iðnaði og frá samgöngutækjum og
spálíkön séu orðin betri.
„Menn sjá með líkönunum að sé veður-
kerfið látið eiga sig verða sveiflur ekki jafn
miklar og þær hafa orðið í reynd, eitthvað
utanaðkomandi hefur gripið inn,“ segir
Trausti. „Það eru komin betri eðlisfræðileg
rök fyrir því að þáttur manna sé meiri en
aðrir. Hugsanlegt er að eitthvað í veðurkerf-
inu sem við þekkjum ekki nú komi við sögu
en við notum einföldu skýringarnar meðan
við höfum ekki aðrar. Þessi skýrsla er það
besta sem við höfum.“
„Það besta sem við höfum“
FJÖLMIÐLAR í
Tyrklandi fóru
hörðum orðum
um liðsmenn ör-
yggissveitanna,
sem halda Ogun
Samast á bak við
lás og slá en
Samast, sem er
17 ára, hefur ját-
að á sig morðið á
blaðamanninum Hrant Dink. Gagn-
rýnin stafar af því að lekið var í fjöl-
miðla myndum sem sýndu þá með
Samast fyrir framan dagatal þar
sem tyrkneska fánann getur að líta
og tilvitnun í Ataturk, stofnanda
tyrkneska ríkisins, þess efnis að
fósturjörðina verði að verja, hún sé
heilög. Þykir myndin benda til þess
að öryggissveitarmenn hafi samúð
með Samast; en hann er talinn hafa
myrt Dink vegna umfjöllunar hans
um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum.
Morðingi í há-
vegum hafður?
Hrant Dink
BORÍS Tadic, forseti Serbíu, segir
Serba aldrei geta samþykkt tillögur
Martti Ahtisaari, sérlegs útsendara
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, varðandi framtíð Kosovo. Þær
marki leiðina að sjálfstæði Kosovo-
Albana.
Serbar ósáttir
STASI, leyniþjónusta Austur-
Þýskalands, hafði á sínum snærum
yfir 500 njósnara í Póllandi eftir að
Jóhannes Páll II. varð páfi, þrátt
fyrir samvinnu ríkjanna, að sögn
þýsks sérfræðings í gær.
500 á mála Stasi
TONY Blair forsætisráðherra Bret-
lands sagðist í gær ekki mundu láta
af embætti þrátt fyrir háværar
kröfur þar um í kjölfar ásakana um
spillingu innan Verkamannaflokks-
ins í lánamálinu svokallaða.
AP
Ákveðinn Tony Blair segir það
mundu vera rangt að hætta núna.
Blair keikur
Birmingham. AFP. | Leiðtogar músl-
íma í bresku borginni Birmingham
hvöttu í gær fólk til að sýna still-
ingu eftir að níu múslímar voru
handteknir í vikunni vegna gruns
um að þeir væru að undirbúa rán á
hermanni. Þeir sitja nú í gæslu-
varðhaldi.
Mohammad Naseem, talsmaður
helstu mosku borgarinnar, sagði
um 2.000 trúbræðrum sínum að
Bretland færðist nú í átt til „lög-
regluríkis“. Þetta væri öfugþróun
sem minnti á hvernig nasistar
hefðu hamrað á við Þjóðverja að
þeim stafaði ógn af gyðingum.
Mikil spenna er í borginni vegna
málsins en talið er að ætlunin hafi
verið að afhöfða manninn og dreifa
myndum af ódæðinu á Netinu.
AP
Spenna Breska lögreglan vinnur
að rannsókn óvenjulegs máls.
Lægja öldur
í Birmingham