Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 20
Morgunblaðið/Sverrir
Glatt á hjalla Þær voru kátar og á öllum aldri, konurnar sem sátu iðnar með prjónana þar sem þær komu saman í Iðu og báru saman bækur sínar.
|laugardagur|3. 2. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Þ
að er rosalega gaman að prjóna
og það er líka frábær slökun.
Þetta getur reyndar þróast út í
það að verða hálfgerð fíkn,
þannig er það alla vega hjá mér
en það er kannski vegna þess að ég reyki
ekki. Mér finnst ég alltaf svo örugg ef ég er
með prjónana mína nálægt mér og helst vil
ég ekki vera án þeirra,“ segir ein þeirra
áttatíu kvenna sem komu saman síðastliðið
fimmtudagskvöld í IÐU á fyrsta prjóna-
kaffikvöldinu sem haldið er hérlendis. „Ég
þekkti enga konu þegar ég kom hér inn, en
ég er búin að heimsækja hvert borð og
þetta er rosalega gaman og ég er staðráðin
í að mæta á næsta prjónakaffi eftir mánuð,“
bætir sú prjónafíkna við.
Leysum líka úr flækjum
„Við renndum blint í sjóinn og þessi
mikla þátttaka er óvænt ánægja og enn ein
sönnun þess að prjón er á uppleið. Hér er
fjöldi kvenna saman kominn á öllum aldri
og það klingir í prjónunum þeirra. Þær fá
sér kaffi, spjalla og bera saman bækur sín-
ar, sýna hver annarri ólík hráefni, afurðir
og aðferðir og læra hver af annarri. Þetta
eru skemmtilega ólíkir einstaklingar, sumar
eru byrjendur í prjónaskap, aðrar hafa
prjónað frá því þær muna eftir sér og eng-
ar tvær eru að gera það sama. Við bjóðum
líka upp á leiðbeiningu, til dæmis ef einhver
er fastur í miðri uppskrift getum við leyst
úr flækjum,“ segir Védís Jónsdóttir, hönn-
uður hjá Ístex, sem var með kynningu um
íslensku ullina.
Vilja fá karlana með
Prjónakaffið er samstarfsverkefni Heim-
ilisiðnaðarfélags Íslands, Handprjóna-
sambands Íslands og Ístex. Fyrirmyndina
segja þær koma erlendis frá.
„Prjónakaffihús eru þekkt í Bandaríkj-
unum en þar er líka verið að selja prjóna-
vörur á prjónakaffihúsunum. En þetta
form sem við erum með hér, að koma fyrst
og fremst saman og prjóna og njóta fé-
lagsskaparins, það er þekkt í Noregi og
Danmörku. Prjónakaffið kom meðal annars
til af því að okkur langaði til að gera eitt-
hvað nýtt til að vekja athygli á
Heimilisiðnaðarfélagi Íslands, en félagið
verður með mjög stórt þing heimilisiðnaðar-
félaga á Norðurlöndum í haust hér á landi,“
segir Ásdís Birgisdóttir, framkvæmdastjóri
Handprjónasambands Íslands.
„Og það er gaman að geta þess að nú á að
fara að gera kvikmynd byggða á bókinni
The Friday Night Knitting Club, og stór-
stjörnur í hlutverkunum, en bókin er um
konur sem hittast á föstudagskvöldum og
prjóna.“
Prjónakaffið íslenska mun vera fyrsta
fimmtudag í hverjum mánuði.
„Við hvetjum alla áhugasama til að mæta
og karlarnir mættu endilega láta sjá sig líka,
því við vitum að fjölmargir karlar prjóna.“
Morgunblaðið/Sverrir
Vanir fingur Hún Þuríður hjá Handprjóna-
sambandinu er vön með prjónana.
Fjörugt prjónakaffi
Afslöppun Prjónaskapur
getur verið góð slökun.
Prjónaskapur er vinsælt áhuga-
mál hjá mörgum íslenskum kon-
um og getur raunar orðið hálf-
gerð fíkn. Kristín Heiða
Kristinsdóttir hitti kátar
konur á prjónakaffi.
Þetta form sem við erum með
hér, að koma fyrst og fremst
saman og prjóna og njóta fé-
lagsskaparins, það er þekkt í
Noregi og Danmörku.
Heklað Þessi fínlegheit vöktu undrun margra, enda líkt og unnið væri úr skýjum.
khk@mbl.is
Hvaða fyrirbyggjandi aðgerðum
geta foreldrar beitt gagnvart
mögulegri netfíkn unglingsins á
heimilinu? » 23
uppeldi
Munsturgleði, litagleði, glans og
gljái er meðal þess sem mun
setja svip sinn á fatatískuna
næsta sumar. » 22
tíska
Í fallegu húsi í norðurbæ Hafn-
arfjarðar býr fimm manna fjöl-
skylda sem hefur stækkað hús-
ið að sínum þörfum. » 24
innlit