Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 21

Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 21
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 21 Hægt er að kaupa símann í verslunum Símans eða á vefversluninni á siminn.is Sony Ericsson Z530i 14.900 Verð aðeins: kr. Kauptu þér glæsilegan Z530i farsíma eða skráðu þig í 0 kr. innan fjölskyldunnar og þú gætir átt lúxussalinn! Einn heppinn viðskiptavinur verður dreginn út og getur unnið forsýningu í lúxussal fyrir allt að 28 manns á hina frábæru gamanmynd Music and Lyrics með Hugh Grant og Drew Barrymore. Dregið verður 15. febrúar. Nánari upplýsingar á siminn.is. Þorrinn var í eina tíð hrellingarmánuður Ís- lendinga en svo er ekki lengur. Í bæj- arfélögum um landsbyggðina er þorrinn orð- inn einn skemmtilegasti tími ársins. Það sem veldur eru hin vinsælu þorrablót. Í Grund- arfirði er það Hjónaklúbburinn sem haldið hef- ur úti þorrablóti í tugi ára og til skamms tíma var engum hleypt á þessi blót nema þeir væru harðgiftir og í versta falli ekkjur eða ekklar. Í dag hafa reglur verið rýmkaðar til muna og geta allir einstaklingar gengið í Hjónaklúbb- inn svo fremi þeir séu orðnir 25 ára og ekki eru neinar reglur um klæðnað á þorrablóti en ekki þykir verra að konurnar klæðist nýjum kjól- um. Stjórn Hjónaklúbbsins kýs sér þorrablóts- nefnd fyrir hvert þorrablót, áður sjö til átta hjón, en nú 14–16 manns, og er það gjarnan í desember sem ljóst er hverjir skipa nefndina. Í nefndinni leggjast menn yfir atburði liðins árs í bænum og reyna að sjá eitthvað skoplegt við þá til þess að endursegja síðan með leik- rænum tilburðum yfir súrum mat, hákarli og brennivíni. Úr þessu verður ein allrabesta skemmtun sem haldin er því hláturinn lengir lífið og spjallið um þorrablótsglensið léttir mönnum biðina eftir vorinu.    Byggingargleði ríkir nú í Grundarfirði og er hér byggt sem aldrei fyrr, greint var frá því á bæjarvefnum nýlega að 22 íbúðir væru nú komnar á framkvæmdastig víðsvegar um bæ- inn, eru þar að verki verktakar heima fyrir sem og aðkomuverktakar sem sjá fyrir sér sölumöguleika í ört vaxandi byggðarlagi. Lausar lóðir eru því orðnar mjög af skornum skammti en senn mun þess að vænta að ný- skipulögð svæði fyrir íbúðabyggð komist á framkvæmdastig. Þessi svæði eru tvö og eru bæði fyrir ofan núverandi byggð vestanvert og austanmegin.    Íþróttir eru stundaðar allan daginn og öll kvöld í íþróttahúsi bæjarins og er það löngu sprungið og ekki lengur í takt við þær kröfur sem gerðar eru til notkunarmöguleika slíkra húsa. Undirbúningur fyrir byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar er því hafinn og ætlaðar til þess málaflokks 10 milljónir króna á þessu ári. Skipaður verður sérstakur „Rýnihópur“ með fulltrúum hagsmunaaðila undir stjórn sérstaks hópstjóra og er það engin önnur en Hrönn Pétursdóttir sem stýra mun því verki en hún stjórnaði undirbúningsvinnu af svipuðum toga áður en bygging Fjölbrautaskóla Snæfellinga hófst með góðum árangri. Rýnihópurinn mun skila áliti sínu fljótlega og þá verður hafist handa við hönnun íþróttamiðstöðvarinnar. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Þorraveður Veðrið hefur verið að stríða Grundfirðingum að undanförnu en eitt er víst Kirkjufellið stendur af sér öll veður. GRUNDARFJÖRÐUR Gunnar Kristjánsson fréttaritari Þættinum bárust vísur fráhöfundi sem vildi ekki láta nafns síns getið, en sagði þó að fyrsti stafurinn væri Erlingur Hansen. Sú fyrri er öfugmælavísa: Ál og gull er gott í bland grær upp blóma svörður. Ævintýra undraland ert þú Reyðarfjörður. Og svo yrkir hann um stjórnmálaflokk: Niðdimm færist nótt að beði Nonni leiðir dapra hjörð; flokkurinn er fúll í geði fyrirlítur græna jörð. Kristján Bersi Ólafsson orti þegar skoðanakönnun sýndi að meirihluti Hafnfirðinga væri andvígur stækkun álversins í Straumsvík. Sólin á himni hækkar og hlynnir að lyngi og trjám. Og álverið ekki stækkar eftir nýjustu spám. Þau leiðu mistök urðu að vísa var kennd Jóni Ingvari Jónssyni í fyrradag, sem er eftir Einar Kolbeinsson og hljóðar svona: Þrungin harmi þjóðin grét, því við neyðin blasti, og andleg heilsa undan lét, út af boltakasti. VÍSNAHORNIÐ Af áli og Reyðarfirði pebl@mbl.is Það er ekki nauðsynlegt að japla dægrin löng á ávöxtum og grænmeti til að fá í sig þá hollustu sem þessum matvælum fylgja. Ný rannsókn bend- ir til þess að nægjanlegt sé að drekka safann úr þeim. Löngum hefur verið vitað græn- meti og ávextir geti virkað sem fyrir- byggjandi gegn sjúkdómum á borð við krabbamein og hjartasjúkdóma. Hópur breskra vísindamanna fór í gegnum fjölda rannsókna á heilnæmi ávaxta og grænmetis annars vegar og hins vegar ávaxta- og grænmetissafa. Niðurstöðurnar voru að hvort tveggja skilaði tilætlaðri hollustu, að því er fram kemur á forskning.no. Þeir segja ekkert benda til að safinn hafi minni áhrif en grænmetið og ávextirnir sjálfir er kemur að því að fyrirbyggja krabbamein og hjarta- sjúkdóma, en undirstrika þó að ít- arlegri rannsókna sé þörf. Rannsókn frá árinu 2006 bendir einnig til að safi hafi áhugaverð áhrif á Alzheimer. Af henni má ráða að þeir sem drekka a.m.k. þrjú glös af ávaxta- og grænmetissafa daglega séu í 76% minni hættu á að fá sjúk- dóminn en þeir sem drekka safa sjaldnar en einu sinni í viku. Hreinn safi og ávextir jafn hollir matur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.