Morgunblaðið - 03.02.2007, Page 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
H
jónin voru nokkuð
viss í sinni sök þeg-
ar þau leituðu að
húsnæði í Hafn-
arfirðinum. Eigin-
maðurinn reyndar ekki uppalinn
þar en húsfreyjan fæddur og upp-
alinn Gaflari. Eftir nokkur ár í
Breiðholtinu fannst henni hún því
vera komin aftur heim er þau
festu kaup á fallegu húsi í norð-
urbæ Hafnarfjarðar. Gróið hverfið
er líka bæði barnvænt og rólegt
sem kemur sér vel fyrir fimm
manna fjölskyldu þar sem yngsti
meðlimurinn er ekki nema fimm
mánaða.
Húsið var byggt um miðjan átt-
unda áratuginn og þegar þau
keyptu húsið í árslok 2001 var það
í sinni upprunalegu mynd. Í stað
þess að henda öllu út ákváðu þau
að mála eldhúsinnréttingu og
gluggakarma hvíta og það breytti
heilmiklu – allt varð bjartara og
léttara. Þau létu þar við sitja í
nokkur ár, enda húsið bæði fallegt
og notalegt. Á síðasta ári hófu þau
hins vegar stórtækar breytingar
sem fólust meðal annars í því að
byggja við húsið og tengja við bíl-
skúrinn. Þannig fengu þau kær-
komna 65 fermetra í viðbót fyrir
stækkandi fjölskyldu og hús-
freyjan drauma-þvottahúsið. Hún
kímir og segist vera mjög dugleg
við að þvo þvott, enda sé meira en
nóg af honum.
Var efins í fyrstu
Þremur árum áður höfðu þau
fengið Rut Káradóttur innanhús-
arkitekt til að hanna tvö baðher-
bergi fyrir sig og það tókst svo vel
að engin spurning var að fá Rut
aftur. Hún teiknaði allskyns snið-
ugar lausnir í sambandi við hirslur
og útfærslu og ráðlagði þeim með
eldhúsinnréttinguna sem er HTH
frá Bræðrunum Ormsson. Hús-
freyjan segist hafa verið mjög ef-
ins um hvíta háglans-innréttingu
og hélt að það yrði of kuldalegt en
er í dag hæstánægð með þetta val.
Innréttingin er stílhrein og ákaf-
lega auðveld í þrifum, fingraför
eftir unga fjölskyldumeðlimi sjást
varla. Hún segir það líka lítið mál
að koma með hlýleikann í skraut-
munum og öðrum eldhúsmunum.
Borðplatan er úr graníti og þau
eru sérlega ánægð með hana.
Starfsmenn Steinsmiðjunnar Rein
fengu helluborðið sem þau hjónin
höfðu valið sér og vaskinn og
fræstu úr granítplötunni til að
bæði vaskur og helluborð pössuðu
Draumahúsið varð enn b
Í fallegu húsi í grónu
hverfi í norðurbæ Hafn-
arfjarðar býr fimm
manna fjölskylda sem ný-
lega flutti út í hálft ár á
meðan að húsið var
stækkað og því breytt að
þeirra þörfum. Katrín
Brynja Hermannsdóttir
brá sér í heimsókn.
Morgunblaðið/Golli
Óvenjulegir gluggar Horft úr eldhúsinu yfir í borðstofuna sem háir gluggarnir setja óneitanlega skemmtilega svip á.
Fallegt herbergi Hér sést inn í herbergi fjögurra ára prins-
essunnar. Hún er mjög snyrtileg og vill hafa allt í röð og reglu
og í réttu litunum herberginu sínu.
Glæsilegt Arininn er óvenjulegur og sérlega flottur en Rut
fékk alveg frjálsar hendur með hönnun hans. Skenkurinn
hægra meginn er úr versluninni Heima.
Draumur allra kvenna Fataherbergið af svefnherberginu er
óvenju rúmgott og húsfreyjan segist raunar vera í mestu
vandræðum með að fylla upp í allt skápaplássið.