Morgunblaðið - 03.02.2007, Qupperneq 37
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli
kl.11 í hátíðarsal Álftanesskóla undir
stjórn Kristjönu Thorarensen. Allir vel-
komnir.
NJARÐVÍKURKIRKJAk (Innri-Njarðvík) |
Sunnudagaskóli sunnudaginn 4. febrúar
kl. 11. Umsjón hafa Laufey Gísladóttir ,
Dagmar Kunáková og Elín Njálsdóttir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA | Sunnudaga-
skóli sunnudaginn 4. febrúar kl. 11. Um-
sjón Natalía Chow Hewlett, Ástríður Helga
Sigurðardóttir, María Rut Baldursdóttir og
Hanna Vilhjálmsdóttir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónustan verður
með fjölbreyttu sniði. Kl. 12 verður
fræðsla um forvarnir gegn fíkniefnum fyrir
fermingarbörnin. Kl. 20 Samfélag um
Guðs borð. Organisti Hákon Leifsson,
meðhjálpari Helga Bjarnadóttir. Prestur sr.
Sigfús Baldvin Ingvason.
BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjón-
usta kl 11.15. Messa kl 14. Sókn-
arprestur
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson. Kór Akureyr-
arkirkju minnist aldarafmælis Jakobs
Tryggvasonar organista og söngstjóra.
Súpa og brauð eftir messu. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Æðruleysismessa kl. 20.30.
Sr. Jóna Lísa og sr. Sólveig Halla. Mikill
söngur og tónlist. Kaffisopi eftir messu.
GLERÁRKIRKJA | Barnasamvera og
messa kl. 11. Félagar úr Kór Glerárkirkju
syngja. Organisti: Hjörtur Steinbergsson.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Ferm-
inarbörn og foreldrar þeirra hvött til þátt-
töku í helgihaldinu.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri | Sunnu-
daginn 4. feb. kl. 11 Sunnudagsskóli, kl.
17 Almenn samkoma, Níels Jakob Erlings-
son talar. Allir velkomnir.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Börn sem verða 5 ára á árinu og fjöl-
skyldur þeirra, heiðursgestir. 5. feb.
(mánudag) Kyrrðarstund kl. 18.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum | Guðsþjón-
usta sunnudaginn 4. febrúar kl 11. Ferm-
ingarbörn taka þátt í athöfninni. Guðbjörg
Arnardóttir, sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukór
Selfoss og Jörg E. Sondermann. Hjónin
Þorsteinn Pálsson og Jónína Kristjáns-
dóttir lesa ritningarlestra. Barnasamkoma
í Safnaðarheimilinu kl. 11.15. Léttur
málsverður á eftir. Foreldrar og ferming-
arbörn sérstaklega velkomin. Sr. Gunnar
Björnsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Mánudagur 5. febrúar:
Alfa-námskeið kl. 19. Þriðjudagar kl. 10:
Mömmumorgnar. Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjón-
usta nk. sunnudag kl. 13.30. Söngkór
Hraungerðisprestakalls leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Glúms Gylfa-
sonar. Vænst er þátttöku fermingarbarna
og aðstandenda þeirra. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 37
KIRKJUSTARF
Kvenfélagsmessa
í Hafnarfjarðarkirkju.
SUNNUDAGINN 4. febrúar munu
konur í Kvenfélagi Hafnarfjarð-
arkirkju standa fyrir messu í kirkju
sinni kl. 11 og bjóða síðan til sam-
sætis og létts hádegisverðar í Há-
sölum safnaðarheimilisins Strand-
bergs. Þær munu lesa ritningarorð
og leiða bænir í messunni, gegna
kirkjuþjónsstörfum og auðvitað
taka vel á móti þeim sem í kirkju
koma.Guðrún Árný Karlsdóttir
syngur einsöng í messunni, en hún
fermdist á sínum tíma í kirkjunni
og hefur oft sungið í henni. Báðir
prestar kirkjunnar munu þjóna við
messuna. Aðalheiður Þorsteins-
dóttir leikur á orgelið og stjórnar
kirkjukórnum.
Kvenfélagskonur halda fjóra
meginfundi árlega í Strandbergi
auk þess sem þær koma saman til
verkefnafunda. Þær hafa liðsinnt
kirkju sinni á ómetanlegan hátt
gegnum tíðina með alúð sinni og
fórnfúsum störfum og búið hana og
Strandberg vel að dýrmætum og
gagnlegum munum. Þær gera sér
margt til uppbyggingar og gleði á
fundum sínum, hlýða t.d. á fyr-
irlestra og eru með skemmtiatriði.
Þær fara reglulega í ferðalög. Svo
dæmi sé tekið fóru þær í mjög
skemmtilega ferð á liðnu hausti til
Stokkseyrar og Eyrarbakka. Kven-
félagskonur hafa myndað með sér
gönguklúbb og ganga saman um
Fjörðinn sinn fagra fyrir messur á
sunnudögum og síðan til kirkju og
taka þátt í messunum. Þær hafa
uppi ýmis fleiri áform til að efla
starf félagsins. Allar konur sem eru
18 ára og eldri eru velkomnar í
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju.
Magnea Þórsdóttir, formaður fé-
lagsins, veitir frekari upplýsingar
um það í síma 847 8081.
Ánægjulegt væri að sem flestir
sæktu messuna á sunnudaginn
kemur í Hafnarfjarðarkirkju, bæði
konur og karlar, og tækju síðan
þátt í samsætinu og hádegisverð-
inum sem kvenfélagskonur bjóða til
í Hásölum Strandbergs.
Dómkirkjan –
fermingarfræðslan
FRÆÐSLUFUNDUR verður kl.
11–12.30 á laugardag með ferming-
arbörnum. Þar verða með fræðslu
af hálfu tollstjóraembættisins
Ragnheiður Guðmundsdóttir toll-
vörður og fíkniefnahundurinn
Skuggi. Ragnheiður mun sjá um hið
talaða mál en Skuggi sinnir emb-
ætti sínu með þeim hæfileikum sem
honum eru búnir. Fermingarbörn,
verið velkomin
Forsætisráðherra
talar á þorragleði
Hin árlega þorragleði eldri borgara
verður haldin þriðjudaginn 6. febr-
úar og hefst skemmtunin kl. 12.
Þorramatur, grín og gaman. Geir
H. Haarde talar á léttum nótum.
Þorvaldur Halldórsson söngvari
spilar og syngur. Að lokum verður
stiginn dans.
Aðalfundur
Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju
AÐALFUNDUR Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju verður haldinn
mánudaginn 5. febrúar kl. 20 í safn-
aðarsal kirkjunnar. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf: Skýrsla
stjórnar. Endurskoðaðir reikn-
ingar. Kosning stjórnar. Önnur
mál. Kristín Kristjánsdóttir hómó-
pati og ráðgjafi hjá versluninni
„Maður lifandi“ fjallar um heilsu-
vakningu, heilsuvörur og fyrstu
skrefin að bættri heilsu. Kaffiveit-
ingar og fyrirspurnir. Stjórnin.
Kvöldmessa um glím-
una við efann í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
KVÖLDMESSA kl. 20, Eva og
Fermingar-Ásurnar, þær Ásgerður
og Áshildur eru með söngatriði og
fermingardrengurinn Jón Atli les
ritningarlestra. Guðfræðineminn
og kirkjuvarðan okkar, Nanda
María, er með vitnisburð um glím-
una við efann. Anna Sigga og Carl
Möller leiða almennan safn-
aðarsöng, en Ása Björk Ólafsdóttir
leiðir messuna og þjónar fyrir alt-
ari. Altarisganga. Barnaguðsþjón-
usta kl 14. Nanda María, Pétur
Markan og Ása Björk leiða stund-
ina með söng, helgisögu og bænum.
Biblíumyndirnar og límmiðarnir
eru á sínum stað. Leikbrúðurnar
koma í heimsókn og öll sameinumst
við eftir stundina og gefum fugl-
unum á Tjörninni brauð.
Hraungerðiskirkja
GUÐSÞJÓNUSTA nk. sunnudag kl.
13.30. Söngkór Hraungerði-
sprestakalls leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Glúms Gylfa-
sonar. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og aðstandenda
þeirra. Kristinn Ágúst Friðfinns-
son.
Kirkjuleg sveifla
í Bústaðakirkju
SUNNUDAGINN 4. febrúar kl. 14
verður Kirkjuleg sveifla í Bústaða-
kirkju. Um árabil hefur Bústaða-
kirkja staðið fyrir fjölbreyttu helgi-
haldi. Kirkjulega sveifla er hluti af
þeirri fjölbreytni. Innan hennar
rúmast ýmsir stílar tónlistarinnar.
Næstkomandi sunnudag kl. 14 kem-
ur fram Kór Bústaðakirkju og
stjórnandi hans, Guðmundur Sig-
urðsson, ásamt hljómsveit hússins.
Hljómsveitina skipa Sigurgeir Sig-
mundsson, gítar, Birgir Bragason,
kontrabassi, og Einar Valur Schev-
ing, trommur. Prestur er sr. Pálmi
Matthíasson. Í sveiflunni er áhersla
lögð á nýjar útsetningar ýmissa
fjörugra laga í bland við annað efni.
Fólk er hvatt til að fjölmenna í
Kirkjulega sveiflu í Bústaðakirkju
nk. sunnudag kl. 14. Þetta er síð-
asta kirkjulega sveiflan sem Guð-
mundur Sigurðsson stjórnar, þar
sem hann hverfur nú til annarra
starfa, eftir góða og ötula þjónustu
í Bústaðakirkju. Barnamessa er
klukkan 11 og þar leikur hljómsveit
ungmenna undir stjórn Guðmundar
Sigurðssonar. Þetta er sam-
verustund fyrir alla fjölskylduna
með mikilli þátttöku barnanna.
Er fyrirgefningin
raunhæfur valkostur?
NÆSTU tvö þriðjudagskvöld, þ.e.
6. og 13. febrúar að loknum kvöld-
söngnum í Laugarneskirkju, sem
hefst kl. 20, mun Sigurbjörn Þor-
kelsson rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju
efna til umræðna um fyrirgefn-
inguna. Áleitnum spurningum
verður varpað fram og boðið verð-
ur upp á spjall. Er fyrirgefningin
raunhæfur valkostur? Hver á að
fyrirgefa og þá hverjum, hvenær
og hvernig?
Tekið skal fram að um jafningja-
fræðslu verður að ræða og því end-
anleg svör því ef til vill vandfundin
og jafnvel ófyrirséð því að sitt sýn-
ist hverjum? Ef það fást þá nokkur
svör?
Allir velkomnir að koma og taka
þátt í að dýpka skilning sinn á hug-
takinu fyrirgefning og þeim illskilj-
anlega leyndardómi sem henni
fylgir.
Á sama tíma að loknum kvöld-
söngnum í Laugarneskirkju þriðju-
daginn 6. febrúar verður síðasti
opni 12 spora fundurinn áður en
hóparnir lokast og halda síðan
áfram sinni vinnu.
12 sporin eru andlegt ferðalag til
uppbyggingar og sjálfshjálpar, til
að rækta trúna og kærleikann hið
innra með og í samfélagi með öðr-
um. Fyrir þau sem vilja kynna sér
12 sporin í Laugarneskirkju er
þetta lokatækifærið á þessu ári.
Allir eru velkomnir á mannrækt-
arkvöld í Laugarneskirkju á þriðju-
dagskvöldum sem hefjast kl. 20
með lofsöng og bæn. Þorvaldur
Halldórsson og Gunnar Gunnarsson
leika undir og leiða sönginn og Sig-
urbjörn Þorkelsson segir nokkur
orð og leiðir bæn.
Alla fimmtudaga er svo boðið
upp á kyrrðarstund í Laugarnes-
kirkju hádeginu, kl. 12. Gunnar
Gunnarsson leikur ljúfa tóna á org-
el kirkjunnar og sr. Hildur Eir
Bolladóttir eða Sigurbjörn Þorkels-
son flytja Guðs orð og leiða bæna-
stund. Að stundinni lokinni eða um
kl. 12.30 er síðan hægt að kaupa
léttan en kjarngóðan og samfélags-
eflandi hádegisverð á kr. 500, í
notalegu umhverfi í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Laugarneskirkja er fyrir alla,
konur, börn og karla, öryrkja og
aldraða, ríka og fátæka. Alla sem
vilja tilheyra fjölskyldu Guðs, vera
bræður og systur Jesú Krists og
samferða í lífinu.
Toshiki Toma prédikar
PRESTUR innflytjenda er Toshiki
Toma. Hann hefur skrifstofuað-
stöðu í Neskirkju við Hagatorg,
þjónar við helgihaldið, en hefur
aldrei prédikað í kirkjunni. Það
mun hann gera í messunni sunnu-
daginn 4. febrúar. Sr. Toshiki er
líka kunnur fyrir skrif sín um mál-
efni innflytjenda, fyrir næmi í
greiningu íslensks samfélags og
fyrir ljóðagerð. Messan hefst kl. 11
og oftast hægt að finna laus sæti.
Hrafnista í Reykjavík
GUÐSÞJÓNUSTA klukkan 10.30 í
samkomusalnum Helgafelli 4. hæð.
Organisti Kári Þormar en kór
Hrafnistu og kórfélagar úr kirkju-
kór Áskirkju syngja. Prestur sr.
Svanhildur Blöndal.
Gunnar Hersveinn
og fimm ára bókin
í Hallgrímskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 4. febr-
úar, hefjast að nýju Fræðslumorgn-
ar í Hallgrímskirkju. Það er Gunn-
ar Hersveinn rithöfundur sem ríður
á vaðið með erindi sem hann nefn-
ir: Hugleiðingar um lífsgildi Ís-
lendinga. Gunnar Hersveinn hefur
nýlega gefið út bókina Gæfuspor,
þar sem hann fjallar um dyggðir
og gildi á einstaklega aðgengileg-
an og lærdómsríkan hátt. Fyr-
irlesturinn hefst kl. 10 og allir eru
velkomnir. Í messunni kl. 11 pre-
dikar sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Birgi Ásgeirssyni og messuþjón-
um. Organisti er Hörður Áskels-
son og félagar úr Mótettukórnum
leiða safnaðarsöng. Fimm ára
börn eru sérstaklega boðin vel-
komin til messunnar og verður
þeim afhent bók að gjöf frá kirkj-
unni.
Fjölskylduguðs-
þjónusta og skóla-
stjóra þakkað.
SUNNUDAGINN 4. febrúar verð-
ur fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
Vídalínskirkju. Í upphafi guðs-
þjónustunnar verður Hilmari Ing-
ólfssyni, fyrrverandi skólastjóra
Hofsstaðaskóla, þökkuð góð störf
fyrir bæjarfélagið og gott sam-
starf við þau sem hafa leitt starfið í
Garðasókn á undanförnum árum.
Sr. Bragi Friðriksson, fyrrverandi
sóknarprestur, flytur stutt ávarp
við það tilefni. Sr. Hans Guðberg
Alfreðsson leiðir guðsþjónustuna
ásamt Jóhönnu Guðrúnu Ólafs-
dóttur djákna og Hjördísi Rós
Jónsdóttur leiðtoga í sunnudaga-
skólanum. Kór Hofsstaðaskóla
leiðir lofgjörðina undir stjórn
Hildar Jóhannesdóttur og Unnar
Þorgeirsdóttur. Jóhann Baldvins-
son organisti sér um undirleik. Að
lokinni guðsþjónustu er boðið upp
á hressingu í safnaðarheimilinu.
Sama dag er messa í Garðakirkju
kl. 14, þar þjóna sr. Friðrik J.
Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga
djákni. Kór Vídalínskirkju leiðir
lofgjörðina undir stjórn Jóhanns
Baldvinssonar. Allir velkomnir.
Sjá www.gardasokn.is
Málþing um
hlutverk Þjóðkirkj-
unnar á 21. öld.
ÞAÐ er mikilvægt fyrir íslensku
Þjóðkirkjuna jafnt sem hreyfingu
og stofnun að iðka naflaskoðun.
Nú langar okkur í Garða-
prestakalli að vera með í þeirri
skoðun og bjóðum til málþings
miðvikudaginn 7. febrúar kl.
17.30–20 í safnaðarheimili Vídal-
ínskirkju. Yfirskriftin er ,,Hlut-
verk Þjóðkirkjunnar á 21. öld“.
Þar munu dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson og cand. theol. Steinunn
Arnþrúður Björnsdóttir frá Bisk-
upsstofu flytja erindi. Einnig
munu fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna fimm vera með innlegg, en
þau eru: Ögmundur Jónasson frá
VG, Jón Kristjánsson frá Fram-
sóknarflokknum, Guðjón Arnar
Kristjánsson frá Frjálslynda
flokknum, Bjarni Benediktsson frá
Sjálfstæðisflokknum, Árni Páll
Árnason frá Samfylkingunni. Þá
verða leyfðar fyrirspurnir til
frummælenda. Fundarstjóri er dr.
Gunnar Kristjánsson prófastur.
Aðgangur ókeypis. Sjá www.
gardasokn.is
Góðir gestir í Veginum
HELGINA 8.–11. febrúar verðum
við með góða gesti í Veginum að
Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Hjónin
Kevin og Cheril Upton frá Aber-
deen í Skotlandi. Þau tilheyra
Christian Outreach Center sam-
tökunum sem Alhley Schmierer
veitir forstöðu í Englandi. Sjá
www.coc.org.uk. Cheril mun tala
á kvennastund fimmtudagskvöldið
8. febrúar kl. 20. Kevin predikar á
unglingasamkomu föstudags-
kvöldið 10. febrúar kl. 20.
Einnig munu þau þjóna á fjöl-
skyldusamkomunni 12. febrúar kl.
11 og um kvöldið kl. 19. Kevin hef-
ur komið hingað nokkrum sinnum
og flutt okkur góðan og upp-
byggilegan boðskap. Eftir sam-
komu er boðið upp á kaffi og sam-
félag. Allir hjartanlega velkomnir.
Hafnarfjarðarkirkja
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational hvetur fólk til að taka
þátt í óvenjulegri undirskriftaher-
ferð AI og krefjast lokunar fanga-
búðanna í flotastöð Bandaríkja-
manna við Guantánamo-flóa.
Undirskriftaherferðin fer fram á
netinu á slóðinni: http://www.amn-
esty.org/guantanamoflotilla/
„Aðeins þremur vikum eftir opn-
un undirskriftasíðunnar hafa um
ellefu þúsund einstaklingar frá
rúmlega 90 löndum lagt upp í net-
leiðangur til Guantánamo. Rúmlega
300 einstaklingar hafa farið frá Ís-
landi,“ segir í frétt frá Amnesty á
Íslandi.
Ferðalangarnir taka þátt í nýj-
ustu netherferð Amnesty Inter-
national til að krefja bandarísku
ríkisstjórnina um að loka
Guantánamo. Herferðin stendur til
26. júní sem er alþjóðlegur dagur
til verndar fórnarlömbum pynd-
inga.
Þeir sem ganga til liðs við flotann
geta valið útlit, hárgreiðslu, föt og
farartæki, allt frá sjóræningjaskip-
um til höfrunga og dreka. Þegar
flotinn nálgast Kúbu verður þátt-
takendum boðið að skrifa undir
bænaskrár fyrir hönd þeirra sem
haldið er í Guantánamo.
Krefjast
lokunar
Guant-
ánamo