Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 40

Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 40
|laugardagur|3. 2. 2007| mbl.is Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG geri ekki kvikmyndir til að öðl- ast vinsældir en það er alltaf ánægjulegt þegar aðrir kunna vel við það sem maður gerir,“ segir am- eríski leikstjórinn Todd Field um velgengni nýjustu kvikmyndar sinn- ar, Little Children, sem nú er sýnd í bíóhúsum hérlendis. Þrátt fyrir alla þá góðu dóma og verðlaunatilnefn- ingar sem myndin hefur hlotið er Field ekkert nema hógværðin þegar blaðamaður á símaspjall við hann til Los Angeles á dögunum. Little Children hefur verið til- nefnd til rúmlega tuttugu verðlauna að undanförnu, þar á meðal til þrennra Óskarsverðlauna, og unnið til ellefu verðlauna á hinum ýmsu verðlaunahátíðum. Field fékk m.a Óskarsverðlauna- tilnefningu fyrir besta handrit unn- ið eftir sögu en árið 2001 var hann tilnefndur til tvennra verðlauna fyr- ir mynd sína In the Bedroom sem fékk einnig mjög góða dóma á sín- um tíma. Hann segir að það sé ekki slæm tilfinning að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna aftur en nokkuð óraunverulegt. „Þá, sem vinna við kvikmynda- gerð, dreymir alla um að verða til- nefndir til Óskarsverðlauna og fólk sem vinnur ekki við kvikmyndir dreymir líka um að fá ósk- arsverðlaunatilnefningu. Þetta er frábært og ég er yfir mig ánægður,“ segir Field sem ætlar að mæta á hátíðina ásamt eiginkonu sinni og börnum. Hann býst samt ekki við að vinna verðlaunin fyrir besta handritið. „Ég vona ekki. Ég kann vel við það að vera tilnefndur en ég vil ekki vinna, tilhugsunin um að fara upp á svið og þurfa að flytja hina full- komnu ræðu á 60 sekúndum er hræðileg,“ segir hann og hlær dátt. Ekki trúir bókinni Little Children er byggð á sam- nefndri bók eftir Tom Perrotta, sem skrifaði handritið að myndinni með Field. „Ég og Perrotta unnum handritið í náinni samvinnu. Við vorum báðir með sterkar hugmyndir um það hvernig við vildum hafa myndina svo hún gæti staðið ein. Það var sumt í bókinni sem við héldum fast í en svo var annað sem við breyttum, við vildum ekki hafa þetta kvik- myndaútgáfu af bókinni. Þegar fólk hefur lesið bók verður það yfirleitt fyrir vonbrigðum með mynd sem er gerð eftir henni vegna þess að sem lesandi býr maður myndina til í eigin huga. Það er partur af ástæðunni fyrir því að ég og Perrotta ákváðum að vera ekki mjög trúir bókinni. Við vildum gefa fólki eitthvað ferskt og nýtt.“ Í Little Children eru sagðar nokkrar samhliða sögur úr litlu hverfi á Nýja-Englandi þar sem líf nokkurra einstaklinga skarast á leikvöllum, sundlaugum og götum, á óvæntan og jafnvel hættulegan hátt. Sarah, sem er leikin af Kate Wins- let, er heimavinnandi menntakona. Á leikvellinum sem hún fer með dóttur sína á kemst hún í kynni við lögfræðinemann Brad, sem leikinn er af Patrick Wilson, en hann kem- ur þangað með son sinn. Það er tómarúm í lífi þeirra beggja og þau leita á endanum lífsfyllingar í faðmi hvort annars. Einnig kemur við sögu barnaníðingurinn McGovey, leikinn af Jackie Earl Haley, sem er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn, og mislukkaði fyrrverandi lögreglumaðurinn Larry, leikinn af Noah Emmerich, sem hefur tekið að sér hlutverk dómstóls götunnar. Að mati blaðamanns virðast per- sónurnar í myndinni allar vera á einhverjum stöðnuðum tímapunkti í lífi sínu, eins og þær fullorðnist ekki, og Field tekur undir það. „Við hittum þær yfir þriggja mánaða tímabil og á ákveðnu stigi í lífi þeirra. Engin af aðalpersónun- um veit í raun og veru hver hún er og spurningin er hvort þær muni finna sjálfar sig. En það er skrýtinn aldur að vera um þrítugt í Ameríku eins og Sarah og Brad og því eru þau kannski í þessari leit. Um þrítugt á maður að vera orðinn fullorðinn en á síðustu árum í þessu landi hefur æskudýrk- un aukist svo mikið að það vill eng- inn eldast lengur og bera ábyrgð á öðrum en sjálfum sér.“ Dómstóll götunnar Það er ýmislegt í myndinni sem speglar samfélagið í Bandaríkj- unum og jafnvel það sem er að ger- ast á Íslandi um þessar mundir; þegar almenningur tekur að sér hlutverk dómstóls götunnar og ætl- ar að fullnægja réttlætinu án dóms og laga. „Ég las bók Perrotta árið 2003 og þá var mikið um svipað brjálæði og kemur fram í bókinni hér í Banda- ríkjunum, og er ennþá. Fólk gerir ýmislegt sem byggt er á litlum upp- lýsingum, það er óhrætt við að dæma hvert annað og taka sér hlut- verk lögvaldsins. Í myndinni eru persónur að berj- ast við eigin dómgreind og að dæma aðra. Ég las bók Perrotta sem mjög pólitíska líkingasögu og ég held að það hafi verið stór ástæða fyrir að- dáun minni á henni,“ segir Field sem tekur ekki undir það að hann hafi verið að reyna að koma ein- hverjum skilaboðum á framfæri í myndinni, heldur segir að hann hafi aðeins verið að reyna að fá fólk til að hugsa og líta í eigin barm. Breska leikkonan Kate Winslet er vinsæl í dag og er Óskars- verðlaunatilnefning hennar sem besta leikkonan fyrir leik hennar í Little Children sú fimmta á stuttum ferli hennar. Er hún yngsta leik- konan sem tilnefnd hefur verið fimm sinnum. „Ég valdi Winslet í þetta hlutverk eftir að hafa séð hana í Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Mér fannst frammistaða hennar þar óvenjuleg og sýna augljóslega að hún gæti leikið unga ameríska konu án vandræða. Það var í fyrsta sinn sem ég sá hana í mynd og hún held- ur manni í ójafnvægi allan tímann sem persónan Clementine. Winslet var sú fyrsta sem ég bað um að fara með þetta hlutverk og hún sagði strax já, sem mér fannst frábært því það er yndislegt að vinna með henni.“ Todd og Todd Það vakti athygli blaðamanns að Brad, persóna Wilsons í myndinni, heitir í raun og veru Todd í bók Toms Perrotta. Þegar Field er spurður hvers vegna hann vildi ekki hafa nafna sinn í myndinni hlær hann. „Það var bara af hagnýtum ástæðum. Þegar verið er að taka upp kvikmynd er fólk alltaf að kalla nafn hvert annars og það hefði orðið martröð að hafa tvo sem hétu Todd. Persóna Patricks Wilsons er með stærsta hlutverkið í myndinni og hann vann mest svo það hefði stöð- ugt verið öskrað „Todd“ og ég hefði orðið brjálaður eftir þriggja mánaða tökutíma.“ Næsta mynd í bígerð Little Children var frumsýnd í Bandaríkjunum í byrjun október á síðasta ári og Field segir að þegar hann hætti að vinna við kynningar á henni ætli hann að halda áfram að vinna að kvikmyndahandriti sem hann er að skrifa. Hann vill ekkert segja til um hvort það sé handrit að hefðbundinni Hollywood-mynd eða eitthvað í anda þess sem hann hefur gert hingað til. „Ég vona að ég eigi aldrei eftir að gera hefðbundna Hollywood-mynd. Annars er ég ennþá að vinna hand- ritið að næstu mynd minni svo ég veit ekki hvert hún stefnir, hún gæti jafnvel endað sem einhver klisja.“ Field segir að kvikmynda- framleiðendur í Hollywood sláist ekki um hann þrátt fyrir velgengn- ina. „Það er nóg af fólki hérna til að ráða í vinnu og ég held að enginn veiti mér neitt sérstaklega mikla at- hygli. Mér finnst gaman að leika en ég ætla úr þessu að halda mig á bak við myndavélina, þar vil ég frekar vera,“ segir Field, sem fór m.a. með hlutverk píanóleikarans Nicks Nig- htingale í Stanley Kubrick- myndinni Eyes Wide Shut. Vinsæll en vill enga athygli Týnd Kate Winslet og Patrick Wilson í hlutverkum sínum sem hin týndu Sarah og Brad í Little Children. Hógvær Todd Field er hæfileikaríkur leikstjóri sem og leikari en vill úr þessu halda sig á bak við myndavélina, þar sem hann kann best við sig. Leikarinn og leikstjórinn Todd Field vonar að hann vinni ekki til Óskarsverðlauna, en nýjasta mynd hans, Little Children, er tilnefnd til þrennra verðlauna, meðal annars fyrir besta handritið. staðurstund Flóki Guðmundsson fjallar um rithöfundinn dularfulla, Alonso Fernández frá Avellaneda og bók hans Falska Kíkóta. » 41 af listum Bjarni Thor Kristinsson syngur í Salnum í Kópavogi í dag við undirleik Jónasar Ingimund- arsonar píanóleikara. » 41 tónlist Síðasti riðill í Söngvakeppni Sjónvarpsins fer fram í kvöld en átta lög keppast um að komast á úrslitakvöldið. » 43 sjónvarp Það jafnast á við dauðadóm, er Danir okkur vinna. Botnar ósk- ast við þessum fyrriparti í þætt- inum Orð skulu standa. » 42 útvarp Leikarinn Vince Vaughn er sagð- ur reyna allt til að byrja aftur með Jennifer Aniston og vill eignast með henni barn. » 42 fólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.