Morgunblaðið - 03.02.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 43
menning
ÓSKUM EFTIR FASTEIGNUM FYRIR A.M.K. 10 MILLJARÐA
Traustur fjárfestir hefur beðið Eignamiðlun ehf. að útvega góðar fasteignir
svo sem: skrifstofuhúsnæði, verslunarpláss, ýmiskonar atvinnuhúsnæði og
hótel. Eignirnar þurfa helst að vera í útleigu til traustra aðila.
Lágmarksfjárfesting í hverju tilviki væri um 100 milljónir króna.
Kaup á fasteignafélagi koma einnig til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
IÐNAÐARPLÁSS ÓSKAST – KAUP EÐA LEIGA
Traustur aðili óskar eftir u.þ.b. 350 fm iðnaðarplássi til kaups eða
leigu. Lofthæð um 3,5 metrar.
Æskileg staðsetning: Kópavogur, Vogar (Rvk).
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Geir Sigurðsson lögg. fasteignasali.
Íbúðir á Akureyri óskast
Óskum eftir tveimur „lífeyrissjóðs-íbúðum” á Akureyri. Önnur 2ja
herbergja u.þ.b. 60 fm. En hinni 3ja–5 herb., 100-140 fm. Íbúðirnar
þurfa að vera í blokkum með húsverði og góðri sameign.
Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Til sölu
nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir
í grónu hverfi 2ja og 5 herbergja
• Tveggja herbergja 80 m²
• Fimm herbergja 143 m²
Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og
fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum.
Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum.
Stofurnar eru 30-40 m².
Á gólfum eru flísar og gott eikarparket.
Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni.
Stutt í golfvöll.
Hrauntún ehf. byggir
Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari,
í símum 896 1606 og 557 7060.
Dæmi um 2ja herbergja íbúð
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÓPERUDEILD Söngskólans í
Reykjavík frumsýnir í dag óperett-
una Algjör draumur í Iðnó. Í sýning-
unni er fléttað saman söng, dansi og
leiklist, en höfundur verksins og leik-
stjóri er Austurríkismaðurinn Anton
Steingruber. „Þetta er ekki beint
frumsamið, en hann samdi nýja óper-
ettu með tónlist úr þekktum óper-
ettum,“ segir Sibylle Köll, danshöf-
undur og aðstoðarleikstjóri. „Þetta er
vínartónlist og hann tengir þetta allt
saman með samtölum. Hann samdi
söguna á milli og setti stykkið svo
saman svo það myndar eina heild.
Það er allt sungið á þýsku nema loka-
kórinn, hann er á íslensku. Samtölin
eru svo öll á íslensku,“ segir Sibylle,
en sagan segir frá fallegum, ólofuðum
systrum sem hitta fræga bræður sem
eru bráðmyndarlegir tenórar.
Alls taka 23 nemendur óp-
erudeildar Söngskólans í Reykjavík
þátt í uppfærslunni, auk þess sem Ja-
net Haney leikur undir á píanó.
Finnst gaman á Íslandi
Anton Steingruber er tenórsöngv-
ari sem komið hefur fram í óperum
og á vínartónleikum í flestum löndum
Evrópu, auk Japans.
Að sögn Sibylle hefur hann snúið
sér meira að kennslu á undanförnum
árum, en hann syngur þó enn á hinum
ýmsu sumarhátíðum. „Hann er búinn
að fást við kennslu í um það bil tíu ár
og hefur kennt söngvurum sem
þekktir eru í heimi óperunnar í dag,“
segir Sibylle. Steingruber kom hing-
að til lands í fyrsta skipti árið 1989
þegar hann söng með Signýju Sæ-
mundsdóttur og Sinfóníuhljómsveit
Íslands í Háskólabíói. Þá kom hann
hingað til lands á síðasta ári þegar
Óperustúdíó Íslensku óperunnar
setti upp Nótt í Feneyjum, en
Steingruber var þá raddþjálfari.
„Honum fannst svo gaman á Íslandi
að hann hefur komið hingað aftur og
aftur auk þess sem nemendum hefur
líkað mjög vel við hann.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Óperetta Janet Haney, undirleikari, Anton Steingruber, leikstjóri og höf-
undur og Sibylle Köll, aðstoðarleikstjóri og danshöfundur.
Algjör draumur í Iðnó
Algjör draumur í Iðnó. Frumsýning
í dag kl. 14. Önnur sýning annað
kvöld kl. 20. Miðaverð er 1.500 kr.
Miðasala á midi.is.
ÞRIÐJI riðill Söngvakeppni Sjón-
varpsins fer fram í kvöld þegar átta
lög verða flutt í beinni útsendingu í
Ríkissjónvarpinu. Líkt og síðast
hafa þónokkrir lagahöfundar og
flytjendur áður komið við sögu í
Söngvakeppni Sjónvarpsins og því
ber að minnast á lag Dr. Gunna sem
hingað til hefur ekki talist líklegur
til að taka þátt í forkeppni Sjón-
varpsins til Evróvisjónþátttöku.
Lögin eru annars þessi:
Riðill 3
„Örlagadís“
Lag: Roland Hartwell
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: Erna Hrönn
Ólafsdóttir
Símanúmer 900 2001
„Villtir skuggar“
Lag: Ingi Gunnar Jóhannsson
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: Alexander Aron
Guðbjartsson
Símanúmer 900 2002
„Júnínótt“
Lag og texti: Ómar Þ. Ragnarsson
Flytjandi: Soffía Karlsdóttir
Símanúmer 900 2003
„Leiðin liggur heim“
Lag: Elvar Gottskálksson
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: Davíð Smári
Harðarson
Símanúmer 900 2004
„Bjarta brosið“
Lag: Torfi Ólafsson
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: Andri Bergmann
Símanúmer 900 2005
„Vetur“
Lag og texti: Magnús Guðmann
Jónsson
Flytjandi: Helgi Rafn Ingvarsson
Símanúmer 900 2006
„Ég og heilinn minn“
Lag: Dr. Gunni og Ragnheiður
Eiríksdóttir
Texti: Dr. Gunni
Flytjandi: Ragnheiður
Eiríksdóttir
Símanúmer 900 2007
„Þú tryllir mig“
Lag: Hafsteinn Þórólfsson
Texti: Hafsteinn Þórólfsson og
Hannes Páll Pálsson
Flytjandi: Hafsteinn Þórólfsson
Símanúmer 900 2008
Símakosning
Hægt að kjósa fimm sinnum
Eftir að símakosning er hafin gef-
ast um 35 mínútur til þess að kjósa.
Einungis þau atkvæði sem greidd
eru innan tímarammans eru gild.
Eitt atkvæði er gefið ef hringt er eða
sms sent í viðkomandi símanúmer.
Enginn texti þarf að fylgja sms-
skilaboðum.
Heimilt er kjósa fimm sinnum úr
hverju símanúmeri en gjaldfært er
fyrir öll símtöl. Hvert símtal/SMS
kostar 99 kr.
Keppnin er haldin í nýja Base-
Camp-verinu á Seljavegi 2 og er
hægt að taka á móti 600 gestum.
Sætin eru númeruð og eru miðar fá-
anlegir í forsölu á www.midi.is, í
verslunum Skífunnar í Reykjavík og
í verslunum BT utan Reykjavíkur.
Söngvakeppni Sjónvarpsins
Síðasti
riðillinn í
kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Smart Jónsi fór áfram um síðustu
helgi með laginu Segðu mér.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn