Morgunblaðið - 12.03.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 70. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÍR Í HUNDRAÐ ÁR
SAGA FÉLAGSINS GERIR MENN STOLTA OG
MARGIR HAFA KOMIÐ AÐ STARFINU >> 9
ALVEG BRILLJANT
SKILNAÐUR 150 SINNUM
VELGENGNI
HRÆRT Í HJÖRTUM >> 15
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ er grundvallaratriði varð-
andi almenna ferðamennsku, og eitt
af meginatriðunum áður en maður
leggur á fjöll, að kanna hvernig veð-
urútlit er,“ segir Þorsteinn Þorkels-
son, í landsstjórn björgunarsveita,
um þá ákvörðun hóps vélsleðamanna
að leggja á Langjökul á laugardag
þrátt fyrir afar slæmt veðurútlit.
Ljóst sé að þeir hefðu sloppið við
vandræði með því halda heim á leið
áður en spáð var aftakaveðri. Í sam-
tali við Morgunblaðið segir Stefán
Jónsson, einn vélsleðamannanna
þriggja, þá hafa verið sannfærða um
að þeir næðu til byggða í tæka tíð.
Fjallamenn eru ekki skyldaðir til
að gefa upp ferðaáætlun en nýr bún-
aður gæti þýtt að mun betri upplýs-
ingar fengjust um ferðir þeirra.
Fyrr um daginn var lýst eftir fimm
jeppum sem tilkynntu svo af sjálfs-
dáðum að þeir þyrftu ekki á aðstoð að
halda. Jeppamaður, sem lenti í vand-
ræðum við Klakka um fimmleytið á
laugardag, hefði hins vegar þurft
hjálp, sem og hópur fjallabíla á
Kaldadal og ökumaður jeppa við
Hagavatn.
Alls voru 43 björgunarhópar kall-
aðir til og TF-LIF send á loft klukk-
an 05.53 en afturkölluð 11 mín. síðar,
þegar vélsleðamennirnir fundust.
Reynslan af sektum ekki góð
Líkt og aðrir viðmælendur Morg-
unblaðsins vill Þorsteinn ekki gera
tilraun til að áætla kostnaðinn við
björgunaraðgerðirnar. Hann upp-
lýsir þó að tveir vélsleðar hafi laskast
og að bilanir hafi orðið í tveimur snjó-
bílum og björgunarjeppa.
Jeppamennirnir hafi haft samband
sjálfir en ættingjar vélsleðamann-
anna hringt í lögregluna.
„Veðurspáin var sú að það yrði suð-
austanátt á hálendinu og vitlaust veð-
ur. Ég veit um menn, sem voru að
fara á fjöll, sem ákváðu að fara fyrr
heim út af því,“ segir Þorsteinn og
játar að björgunarmenn leggi sig
ávallt í nokkra hættu í slíkum aðgerð-
um. Þeir séu þó afar vel búnir.
Sú ákvörðun ferðalanganna að
leggja á fjöll þrátt fyrir afleitt veð-
urútlit hefur enn á ný vakið þá um-
ræðu hvort beita eigi sektum gagn-
vart þeim taka slíkar ákvarðanir.
Reikningur björgunarsveita hljóði
upp á milljónir króna og ábyrgð-
arhluti að binda sjálfboðaliða við
verkefni sem væri hægt að forðast.
Kristinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, segist andvígur
slíkum sektum, reynsla annarra ríkja
sýni að þær geti leitt til þess að ekki
sé kallað á hjálp fyrr en í algert óefni
sé komið. Sérstakt tryggingargjald,
sem þekkist víða erlendis, sé í fljótu
bragði ákjósanlegri leið.
Inntur eftir því hvort fjallamenn
séu skyldaðir til að gera grein fyrir
ferðaáætlunum sínum segir Kristinn
svo ekki vera. Langflestir láti þó ætt-
ingja eða ferðafélög vita.
Spurður út í þá hugmynd Sig-
urgeirs Guðmundssonar, formanns
Landsbjargar, að stuðla að útbreiðslu
neyðarsenda segir Kristinn ekki hafa
fengist leyfi fyrir sölu þeirra hér.
Búnaðurinn kosti nú 50–100 þús. kr.
og að margir vélsleðamenn sem komi
erlendis frá hafi slíkan búnað með-
ferðis.
Lögðu á fjöll þrátt fyrir viðvaranir
!" #
" "
$
%
" %
"
"
Á þriðja hundrað björgunarmenn
tóku þátt í aðgerðum við Langjökul
Ef maður gæti | 2
Eftir Andra Karl og
Silju Björk Huldudóttur
FJÖLMENNUR borgarafundur
sem haldinn var á Ísafirði í gær í
Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarð-
ar, krefst þess að stjórnvöld standi
við margítrekuð loforð og stefnumót-
un um uppbyggingu Ísafjarðar sem
eins þriggja byggðakjarna utan höf-
uðborgarsvæðisins og beinir því til
frambjóðenda flokka í Norðvest-
urkjördæmi að mæta til kosningabar-
áttunnar í vor með haldbærar tillögur
um framtíð byggðar á Vestfjörðum.
Greinilega ólgu mátti finna meðal
vestfirskra íbúa sem mættu á fundinn
og ljóst að flestir skelltu skuldinni á
stjórnvöld. Lína Björg Tryggvadótt-
ir, þjónustu- og svæðisstjóri Intrum á
Ísafirði, vísaði m.a. í skýrslu um þró-
un hagvaxtar í einstaka landshlutum
á árabilinu 1998–2004, og unnin var af
Byggðastofnun og Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands. Í henni kom fram að
hagvöxtur á höfuðborgarsvæðinu
hefði verið 49% en hagvöxtur að með-
altali á landinu öllu tæp 30%.
„Þegar hagvöxtur á Vestfjörðum
er hins vegar skoðaður kemur í ljós
að sá landshluti hefur orðið algjörlega
út undan í þessari hagsveiflu. Á þess-
um árum mældist hann neikvæður
um sex prósent og aðeins í ljósi þeirr-
ar niðurstöðu hlýtur það að vera eðli-
leg krafa til stjórnvalda að setja Vest-
firði í forgang, hvað varðar
framkvæmdir, fjárfestingar og aðra
uppbyggingu sem eykur hagvöxt og
tryggir byggð,“ sagði Lína.
Til fundarins var boðað af því til-
efni að ótíðindi hafa borist und-
anfarnar vikur frá Vestfjörðum, síð-
ast þegar Marel ákvað að loka
starfsstöð sinni á Ísafirði. Ólína Þor-
varðardóttir fundarstjóri segir nýj-
ustu tíðindin vera þau að fjárfesting-
arfélögin Atorka Group og
Straumborg hafa keypt meirihluta
hlutafjár í 3X Stál og reikna margir
með því að það muni hljóta sömu ör-
lög og ísfirska hátæknifyrirtækið
Póls, sem Marel keypti fyrir þremur
árum. „Við óttumst að það sama end-
urtaki sig þrátt fyrir fullyrðingar um
annað, og það er afar sorglegt þegar
hér hefur átt sér stað þekking-
arþróun í samstarfi fyrirtækja á
svæðinu, að hún sé keypt upp og sog-
uð burtu,“ segir Ólína.
Eðlileg krafa | Miðopna
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Fjölmennt Borgarafundurinnn á Ísafirði var vel sóttur, m.a. af þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna.
Stjórnvöld standi við
margítrekuð loforð
Vilja tillögur um
framtíð byggðar
á Vestfjörðum
Í HNOTSKURN
»Fullt var út úr dyrum áborgarafundi um búsetu-
og atvinnumál á Vestfjörðum
á Ísafirði í gær.
»Þingmenn allra flokka íkjördæminu, nema stjórn-
arflokkanna, voru meðal fund-
argesta.
»Framsögumenn vorunokkrir íbúar af svæðinu.
„ÉG FÉKK boð um
þennan fund með
fárra daga fyr-
irvara og var þá
þegar löngu búinn
að skuldbinda mig
til að mæta á öðr-
um fundum í kjör-
dæminu,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra og 4. þingmaður
Norðvesturkjördæmis.
Einar Oddur
Kristjánsson, 9.
þingmann
NV-kjördæmis,
sagði skamman
fyrirvara einnig
ástæðu þess að
hann hefði ekki
séð sér fært að
mæta á fundinn.
Samkvæmt upp-
lýsingum Morg-
unblaðsins er
Sturla Böðvarsson,
samgöngu-
ráðherra og 1.
þingmaður NV-
kjördæmis, stadd-
ur í Bandaríkj-
unum þar sem hann tekur þátt í al-
þjóðlegri ráðstefnu um útgerð og
þjónustu við skemmtiferðaskip.
Magnús Stef-
ánsson, félags-
málaráðherra og
3. þingmaður NV-
kjöræmis, hafði
boðað komu sína á
fundinn en gat
ekki mætt sökum
veikinda. Magnús
bað hins vegar fyrir kveðju sem les-
in var upp af fundarstjóra, Ólínu
Þorvarðardóttur.
Of skammur
fyrirvari