Morgunblaðið - 12.03.2007, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
París. AFP, AP. | Jacques Chirac, for-
seti Frakklands, lýsti því yfir í sjón-
varpsávarpi til þjóðarinnar í gær að
hann hygðist ekki bjóða sig fram í
forsetakosningunum í apríl. „Ég
mun ekki óska eftir atkvæðum ykk-
ar fyrir eitt kjörtímabil enn,“ sagði
Chirac, sem gegnt hefur embættinu
í 12 ár.
„Kæru landar mínir, nú þegar
kjörtímabilinu sem þið fóluð mér er
að ljúka er kominn tími fyrir mig til
að þjóna ykkur með nýjum, hætti,“
sagði Chirac sem orðinn er 74 ára
gamall. Hann hét því að vinna
áfram að framgangi þess sem hann
sagði líf sitt hafa snúist um, að
tryggja „réttlæti, framfarir, frið og
tign Frakklands“.
Chiracs verður að líkindum helst
minnst fyrir harða andstöðu við
innrásina í Írak 2003 en einnig fyrir
að koma því til leiðar að haldin var
þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórn-
arskrá Evrópusambandsins. Frakk-
ar felldu hana, honum til mikillar
gremju. Stuðningur við Chirac er
nú afar lítill, Frakkar eru ósáttir
við efnahagsástandið, viðvarandi
atvinnuleysi og lítinn hagvöxt og
kenna stefnu forsetans um. Svo get-
ur farið að hann verði er hann læt-
ur af embætti ákærður fyrir spill-
ingu í borgarstjóratíð sinni í París.
Chirac lét í ræðu sinni hjá líða að
lýsa yfir stuðningi við forsetaefni
hægriflokks síns, Nicolas Sarkozy
dómsmálaráðherra.
Chirac Frakklandsforseti
býður sig ekki fram á ný
Hættir Jacques Chirac Frakklandsforseti
eftir að hafa flutt ávarp sitt í gær.
Harare. AFP. | Einn var skotinn til bana af
lögreglu í Harare, höfuðborg Simbabve, í
gær þegar stjórnvöld hindruðu stjórnarand-
stæðinga í að efna til útifundar gegn rík-
isstjórn Roberts Mugabe forseta. Lýðræð-
ishreyfingin, MDC, sem er helsti flokkur
stjórnarandstæðinga, sagði manninn hafa
verið félaga í flokknum og hann hefði verið
myrtur með köldu blóði.
Áður hafði lögreglan handtekið leiðtoga
MDC, Morgan Tsvangirai en hann var í hópi
nokkurra tuga flokksmanna sem hugðust
hunsa bann stjórnvalda við fundahöldum í
borginni. Ætlaði Tsvangirai að heimsækja
nokkra félaga sínu á lögreglustöð skammt
frá fundarstaðnum en var þá sjálfur hand-
tekinn, að sögn talsmanns MDC. Auk
Tsvangirais voru fjórir aðrir þingmenn flokksins handteknir í gær.
Að útifundinum stóðu samtök kirkjudeilda, mannréttindahópa og
flokka er nefndu sig Baráttan fyrir að bjarga Simbabve og hefði fund-
urinn getað markað þáttaskil í samstöðu stjórnarandstæðinga. MDC
klofnaði árið 2005 vegna deilna um þátttöku í kosningum til öld-
ungadeildar þingsins.
Efnahagur Simbabve er á vonarvöl, talið er að um milljón tonna af ma-
ís, helstu fæðu landsmanna, skorti til að koma í veg fyrir hungursneyð.
Leiðtogi stjórnarandstöðunn-
ar í Simbabve handtekinn
Í haldi Morgan Tsvangirai, helsti
leiðtogi stjórnarandstöðunnar.
Washington, Teher-
an. AFP, AP. |
Sendiherra
Bandaríkjanna í
Írak, Zalmay
Khalilzad, telur
að samskipti við
fulltrúa Írans og
Sýrlands á ráð-
stefnunni á laug-
ardag í Bagdad hafa verið með
ágætum. „Þeir sjá að þeir eiga
sameiginlega hagsmuni með okkur
um að tryggja uppbyggingu í
Írak,“ sagði Khalilzad.
Auk gestgjafanna Íraka og al-
þjóðastofnana áttu Bandaríkin,
Bretland og grannríki Íraks full-
trúa á fundinum. Íranar lýstu
einnig í gær ánægju sinni með
fundinn og sögðu hann hafa verið
fyrsta skrefið og það hefði tekist
vel. „Ef haldin yrði önnur ráð-
stefna í Bagdad með þátttöku ut-
anríkisráðherra ríkjanna myndu
vonir enn aukast um að framhald
yrði á þessari jákvæðu þróun,“
sagði talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Teheran, Mohammad
Ali Hosseini.
Segja ráðstefnuna í Bagdad
hafa verið jákvæða
Zalmay Khalilzad
IAN Paisley, hin áttræði leiðtogi
stærsta flokks mótmælenda á Norð-
ur-Írlandi, neitar enn að gefa upp
hvort hann muni mynda stjórn með
erkifjendum sínum í Sinn Fein,
helsta flokki kaþólskra. Héraðinu
er nú stjórnað beint frá London.
Paisley hikar
FJÖGURRA daga gömul stúlka,
Mychael Darthard-Dawodu, sem
rænt hafði verið af sjúkrahúsi í
Texas í Bandaríkjunum, fannst í
gær heil á húfi í Nýju-Mexíkó.
Kona, sem grunuð er um að hafa
rænt barninu, var handtekin.
AP
Heimt úr helju
ÍSLAMSKIR uppreisnarmenn hafa
hótað að gera árásir á Þýskaland
og Austurríki dragi ríkin ekki her-
lið sitt frá Afganistan. Hótunin kom
fram í yfirlýsingu sem var birt í
gær á vefsíðu uppreisnarmanna
sem tengjast al-Qaeda.
Hóta árásum
RÚMLEGA 40.000 óbreyttir borg-
arar hafa flúið heimili sín á austur-
hluta Srí Lanka undanfarna daga
vegna átaka stjórnarhersins og
uppreisnarsveita Tamíl-Tígranna.
33 hafa fallið í átökunum.
Flýja heimili sín
MIKLAR efasemdir eru í Banda-
ríkjunum um gagnsemi meðferðar
fyrir kynferðisafbrotamenn eftir af-
plánun en rannsóknir gefa til kynna
að gagnið að þeim sé yfirleitt lítið eða
ekki neitt, segir í grein í The New
York Times. Opinber könnun sem
gerð var í Kanada bendir til þess að
15% umræddra afbrotamanna brjóti
aftur af sér innan fimm ára og menn
sem beiti börn ofbeldi séu enn lík-
legri til þess en hinir.
Könnun sem gerð var í Kaliforníu
1985–2001 sýndi jafnvel að þeir sem
fengu meðferð voru ívið líklegri til að
brjóta aftur af sér en þeir sem enga
meðferð fengu. Dómarar og kvið-
dómar vestra hneigjast æ oftar til
þess að úrskurða að kynferðisaf-
brotamaður skuli áfram vera í fang-
elsi þótt hann sé búinn a afplána.
The New York Times hefur eftir
sérfræðingum að afar erfitt sé að
mæla árangurinn af meðferð eftir
fangelsisvist, venjulega séu brota-
mennirnir tregir til að tala. Og oft
reynist erfitt að kveða niður hjá
þeim ranghugmyndir eins og þær að
börnunum líki vel að eiga kynmök
við þá. Aðrir telja líklegt að fang-
arnir séu oft slungnir að blekkja sér-
fræðingana og fá þá til að mæla með
lausn úr haldi. En sumir brotamenn-
irnir eru þó örvæntingarfullir og
dæmi eru um að fangi hafi gelt sjálf-
an sig með rakblaði.
Gerðar hafa verið tilraunir með
lyfjafræðilega geldingu en þær eru
umdeildar vegna aukaverkana auk
þess sem erfitt er að tryggja að
mennirnir haldi áfram að taka lyfin.
Kynórar brotamanna halda áfram
enda þótt nær ekkert testósterón
mælist lengur í blóði þeirra.
Blaðið ræddi við Bill Price, sem er
59 ára og fyrrverandi sunnudaga-
skólakennari. Hann hefur viður-
kennt brot gegn alls 21 fórnarlambi,
þau yngstu voru aðeins þriggja ára.
„Þetta var eins og veiðar fyrir mig,“
sagði hann. „Ég hélt áfram að velja
börn af því að þau voru auðveld bráð,
auðveldara að fást við þau en konur.“
Hann segist vera hræddur við sjálf-
an sig. „Ég er ekki eins hættulegur
og ég var en ég finn svo sannarlega
að ég er hættulegur.“
Deilt um ráð gegn
kynferðisglæpum
Rannsóknir gefa til kynna að 15% kynferðisafbrotamanna
brjóti aftur af sér innan fimm ára frá lausn úr haldi
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÍHALDSFLOKKURINN breski
hyggst nú taka frumkvæðið í til-
lögum um aðgerðir gegn loftslags-
breytingum og leggja til sérstakan
skatt á þá sem ferðast með flug-
vélum. Útblástur frá vélunum á sök
á verulegum hluta alls koldíoxíðs
sem menn senda út í andrúmsloftið
og talið er geta valdið hlýnun.
George Osborne, talsmaður fjár-
mála í skuggaráðuneyti íhalds-
manna, segir koma til greina að
leggja sérstakan, „grænan“ skatt á
þá sem ferðast mikið með flugvélum.
Einnig sé hægt að skattleggja allt
flug innan Bretlands. En hann vill
lækka aðra skatta á móti, ekki standi
til að auka heildarskattbyrði fólks.
„Þetta sýnir að við erum reiðubú-
in að taka erfiðar ákvarðanir sem við
teljum nauðsynlegar til að fást við
vaxandi losun koldíoxíðs,“ sagði Os-
borne.
Umræður eru einnig hafnar í
Þýskalandi um breyttar neysluvenj-
ur ferðamanna vegna ótta við lofts-
lagsbreytingar. „Í allra næstu fram-
tíð mun fólk gera sér æ betur grein
fyrir því að flugvélar spúa geysilegu
magni af gróðurhúsalofttegundum
út í andrúmsloftið, miklu meira en
bílar eða lestir,“ segir Manfred
Stock, sérfræðingur á hjá rannsókn-
arstöð loftslagsmála í Potsdam við
Berlín. „Ef við bætum við þeirri
staðreynd að á næstu áratugum
munu sumrin okkar verða stöðugt
hlýrri verður hentugra fyrir sum-
arleyfisfólk að fara til Sylt [lítillar
eyjar vestan við nyrsta hluta Þýska-
lands] en að fljúga til Seychelles-
eyja [á miðju Indlandshafi].“
Þjóðverjar verja mestu fé allra
þjóða í ferðir til útlanda. En skoð-
anakönnun N24-sjónvarpsstöðv-
arinnar á miðvikudag gefur til kynna
að 68% landsmanna vilji með
ánægju halda sig heima til að berjast
gegn loftslagsbreytingum. Og 45%
sögðust reiðubúin að borga auka-
skatt á farmiða lággjaldaflugfélaga.
Peter Hauptvogel, talsmaður Air
Berlin, segir að tal um að ferðamenn
skuli halda sig á heimaslóðum sé fá-
ránlegt og líkist sefasýki. „Orkuver
sem brenna jarðefnaeldsneyti gefa
frá sér meira af gróðurhúsaloftteg-
undum en við og þar auki eru vél-
arnar okkar að verða stöðugt um-
hverfisvænni,“ segir hann.
„Grænir skattar“ á flug
til að sporna við hlýnun?
Reuters
Skaðvaldur? Þotuhreyflar spúa
miklu af koldíoxíði út í loftið.
Breskir íhaldsmenn
vilja taka frumkvæði
í loftslagsmálunum
PALESTÍNUSTÚLKA í brunnu her-
bergi stöðva Fatah í Beit Hanoun á
Gaza í gær. Til skotbardaga kom
milli liðsmanna Fatah og Hamas í
borginni í gærmorgun og féll einn
en sjö særðust. Voru þetta hörðustu
átök fylkinganna eftir að samið var
um að flokkarnir tveir myndu skipta
með sér völdum í heimastjórninni.
Fatah og Hamas berjast á Gaza