Morgunblaðið - 12.03.2007, Side 18
fjármál fjölskyldunnar
18 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
! "#$%& '( ' )*+%&
,-& ./ 0'' 111!23+22!&
4
4
5
T
ilteknar tekjur ein-
staklinga, sem til-
greindar eru í skattalög-
um, teljast ekki til tekna
og í ýmsum tilvikum er
heimilt að færa frádrátt á móti
tekjum áður en skattur er reiknaður,
sagði Kristján Gunnar Valdimarsson,
skattasérfræðingur LÍ, á fjár-
málakvöldi um skattamál sem bank-
inn hélt í Vesturbæjarútibúi sínu sl.
fimmtudagskvöld.
Um fimmtíu manns nýttu sér
skattafræðsluna og spunnust í kjöl-
far fyrirlesturs Kristjáns talsverðar
umræður um eitt og annað er lýtur
að framtalsgerðinni, svo sem um arf,
persónuafslátt, barnabætur, húsa-
leigubætur, vaxtabætur, meðlög,
gjafir, ökutækjastyrki, dagpeninga,
iðgjöld í lífeyrissjóði, ívilnanir og
fjármagnstekjur.
Fram kom hjá Kristjáni að eigna-
auki vegna arfs og fyrirframgreiðslu
arfs telst ekki til tekna, enda hafi 5%
erfðafjárskattur verið greiddur.
Eignaauki vegna greiðslu líftrygg-
inga, dánarbóta, miskabóta og bóta
vegna varanlegrar örorku telst ekki
til tekna enda séu bætur þessar
ákveðnar í einu lagi til greiðslu. Hann
sagði að bætur vegna tímabundinnar
örorku væru þó skattskyldar. Per-
sónuafsláttur, sjómannaafsláttur,
barnabætur, vaxtabætur og húsa-
leigubætur væru ekki skattskyldar
tekjur og ekki heldur barnalífeyrir
frá Tryggingastofnun, meðlög og
framfærslueyrir til maka. Þó ber að
greiða skatt af meðlagi ef það er
ákvarðað meira en tvö-
faldur barnalífeyrir og
framfærslueyrir er
skattlagður ef hann er
umfram grunnlífeyri
almannatrygginga. Þá
eru styrkir til foreldra
eða forráðamanns
barns frá sveitarfélagi
til að annast barn
heima frá lokum fæð-
ingarorlofs fram að
leikskólavistun eða
grunnskólanámi ekki
skattskyldir.
Gjafir teljast skatt-
skyldar, þó ekki tæki-
færisgjafir, enda sé
verðmæti þeirra ekki
meira en almennt ger-
ist um slíkar gjafir. Sérstaklega er
tekið fram í skattalög-
um að beinar gjafir til
nákominna ættingja
teljist skattskyldar
nema um fyrirfram-
greiddan arf sé að ræða.
Ekki er þó, að sögn
Kristjáns, að finna við-
mið í skattalögum hvert
verðmæti gjafar má
vera án þess að teljast
til skattskyldra tekna.
Hlunnindi eru líka
skattskyld
Fái einstaklingur
greiðslu í öðru formi en
peningum og unnt er að
meta greiðsluna til pen-
ingaverðs eru slíkar
tekjur skattskyldar, að sögn Krist-
jáns. „Hér getur verið um að ræða
húsnæðishlunnindi, bifreiðahlunn-
indi, fatahlunnindi og fæðishlunnindi.
Fjármálaráðuneytið gefur út skatt-
mat á hverju ári þar sem umrædd
hlunnindi eru metin til peningaverðs.
Fái launamaður t.d. frítt húsnæði
skal meta 5% af fasteignamati hús-
næðis honum til tekna, þ.e. sé fast-
eignamatið 10 milljónir króna, telst
skattstofninn 500 þúsund og greiðist
35,72% skattur eða 178.600 kr. og ber
því mánaðarlega að halda eftir stað-
greiðslu 14.883 kr. vegna hlunnind-
anna. Vafamál kunna að rísa um
hlunnindi, sem starfsmaður kann að
njóta ef ekki er getið um hlunnindin í
skattmati fjármálaráðuneytis en al-
menna reglan er að sé um hlunnindi
að ræða skuli þau metin til verðs á
gangverði eða markaðsverði. Hafi
komið greiðsla fyrir hlunnindi er mis-
munur á greiðslu og matsverði talið
til skattskyldra tekna.“
Frádráttur á móti tekjum
Til að unnt sé að draga frá kostnað
á móti tekjum einstaklinga utan at-
vinnurekstrar þarf að vera til staðar
sérstök lagaheimild í skattalögum, að
sögn Kristjáns. „Einstaklingi er
heimilt að draga frá kostnað á móti
fengnum ökutækjastyrk. Frádrátt-
urinn má þó ekki vera hærri en feng-
inn ökutækjastyrkur. Halda þarf ut-
an um kostnað við rekstur ökutækis
og halda sérstaka akstursdagbók til
að sýna fram á kostnað og akstur í
þágu vinnuveitanda. Ekki er heimilt
að færa kostnað vegna aksturs milli
heimilis og vinnustaðar þar sem slík-
ur kostnaður telst vera í einkaþágu.
Óheimilt er að færa kostnað
tölvukaupa á móti styrkjum
Skattskyldar tekjur ein-
staklinga eru hvers konar
gæði, arður, laun og hagn-
aður sem þeir fá og metin
verða til peningaverðs.
Skiptir þá ekki máli hvað-
an tekjurnar stafa eða í
hvaða formi þær eru.
Jóhanna Ingvarsdóttir
fékk ásamt fleirum skatta-
fræðslu hjá Kristjáni
Gunnari Valdimarssyni,
skattasérfræðingi LÍ.
Skattasérfræðing-
urinn Kristján Gunnar
Valdimarsson.