Morgunblaðið - 24.04.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 110. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
EKKERT LÍNUBIL
UNDIR HUGLJÚFRI SVEITATÓNLIST SAM-
EINAST UNGIR OG ALDNIR Í DANSINUM >> 20
ER SKYNDIBITAMENN-
ING LÍKA MENNING?
TALSTAURINN
HAMBORGARAR >> 40
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
AFNÁM launaleyndar kemur út af fyrir
sig tæplega til með að hafa afgerandi áhrif
á kynbundinn launamun í landinu, a.m.k.
ekki á grundvelli lagabreytinganna sem
lagðar eru til í drögum að nýju frumvarpi
til laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla
og kvenna sem kynnt voru í mars.
Fram kom í athugasemdum við frum-
varpsdrögin – sem þverpólitísk nefnd und-
ir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrr-
verandi hæstaréttardómara, samdi að
frumkvæði félagsmálaráðherra – að allir
umsagnaraðilar, ef frá eru talin Samtök at-
vinnulífsins, hefðu bent á að launaleyndin
ætti stóran þátt í því hversu mikill launa-
munur væri á milli kynjanna. Hann er nú
um 16% skv. könnun sem Capacent Gallup
gerði í fyrra og hefur lítið breyst frá 1994.
Ekki er þó fullkomlega ljóst hvernig það
myndi í reynd hafa áhrif til breytingar, að
launþegum verði framvegis heimilt að tala
um laun sín við þriðja aðila.
Lilja Mósesdóttir, prófessor við Háskól-
ann á Bifröst, segist hafa efasemdir um að
sú breyting sem lögð er til gangi nægilega
langt til að það markmið náist að draga
verulega úr launamun kynjanna. Lögin
þurfi að færa launþeganum einhver rétt-
indi eða tæki, sem geri honum kleift að
leysa þann ágreining sem upp kunni að
koma, telji hann sig ekki fá greitt í sam-
ræmi við hæfni og getu.
Sænska/finnska leiðin betri?
Segist Lilja hlynntari leiðinni sem farin
hefur verið í Svíþjóð og Finnlandi en þar
eru ákvæði í lögum um aðgang trún-
aðarmanna stéttarfélaga að launaupplýs-
ingum sem þannig skapar möguleika á
samanburði á launum tveggja starfsmanna.
Sú leið sem hér eigi að fara, og tekur
mið af dönskum lögum, þýði að vissulega
geti launþegi rætt laun sín við samstarfs-
mann og farið á fund atvinnurekanda og
farið fram á leiðréttingu telji hann muninn
óeðlilegan. Úrræði launþegans séu aftur
þau ein, fallist atvinnurekandinn ekki á
sjónarmið hans, að sætta sig við niðurstöð-
una eða fara með deiluna út fyrir fyr-
irtækið, þ.e. fyrir kærunefnd jafnrétt-
ismála.
Margrét Kristmannsdóttir, formaður
Félags kvenna í atvinnurekstri, segir hug-
myndina þá að afnám launaleyndar í þeirri
mynd sem rætt er um veiti launþegum, og
einkum konum, tæki til að bera sig saman
við aðra í sambærilegum störfum. „Það er
langt í frá að þetta skerði launamuninn. En
þetta er þó skref, viljayfirlýsing um að
menn séu að skoða alla hluti sem hugs-
anlega geta viðhaldið launamuninum,“
sagði Margrét.
Morgunblaðið/Þorkell
Afnám launa-
leyndar engin
töfralausn
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UPPBYGGING á Glaðheimasvæðinu, sem
Kópavogsbær keypti af fjárfestum og hesta-
mannafélaginu Gusti fyrir um einu ári, er í upp-
námi eftir að umhverfisráðuneytið ákvað að
synja staðfestingar á tillögu Kópavogsbæjar að
breyttu svæðisskipulagi. Þetta þýðir að sam-
vinnunefnd um svæðisskipulag þarf að fjalla um
tillöguna og gæti það tafið málið um nokkra
mánuði auk þess sem óvíst er um útkomuna.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi,
segir ákvörðun ráðuneytisins furðulega. Lík-
lega höfði bærinn mál til að fá henni hnekkt.
Málið snýst um hvort breytingarnar á hverf-
inu úr því að vera hesthúsahverfi í hverfi stórra
atvinnuhúsa teljist verulegar eða óverulegar í
skilningi skipulags- og byggingarlaga. Um-
hverfisráðuneytið taldi breytingarnar veru-
legar en bæði Kópavogsbær og Skipulagsstofn-
un höfðu komist að þveröfugri niðurstöðu.
inni,“ sagði hann. Garðbæingar hefðu byggt upp
gríðarstórt svæði í Kauptúni, þar sem verslun
IKEA stendur m.a., og það hefði verið talin
óveruleg breyting. Furðulegt væri að annað
gilti um Glaðheima. Aðspurður sagði hann að
hugsanlega þyrfti að þrefalda Reykjanesbraut í
Kópavogi til að anna umferðinni. | Miðopna
Alvarlegustu athugasemdirnar við tillöguna
bárust frá Garðabæ og þá var umsögn Vega-
gerðarinnar neikvæð. Gunnar I. Birgisson er
hvorki ánægður með nágranna sína né Vega-
gerðina. „Garðabær gerði athugasemdir út af
því að þeir töldu umferðina of mikla af því að
þeir vildu hafa einkarétt á Reykjanesbraut-
Glaðheimar í uppnámi
Mynd/VGK-Hönnun
Þétt Svona gæti atvinnuhverfið í Glaðheimum
litið út skv. óstaðfestri deiliskipulagstillögu.
Í HNOTSKURN
» Samkvæmt tillögunni verður reist at-vinnuhúsnæði sem verður samtals
150.000 m² að stærð en fyrir eru hesthús
sem munu öll víkja og samtals nemur við-
bótin því um 134.500 m².
» Stærð húsanna jafngildir öllu núver-andi atvinnuhúsnæði í Smáralind, við
Smáratorg, Dalveg og Hlíðarsmára.
» Garðabær og Vegagerðin gerðuverulegar athugasemdir.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BORIS Jeltsíns, fyrrverandi for-
seta Rússlands, var minnst víða um
heim í gær eftir að andlát hans var
tilkynnt. Stjórnmálaleiðtogar báru
honum almennt vel söguna og hrós-
uðu honum fyrir hugrekki á erf-
iðum tímum. Útför hans fer fram í
Moskvu á morgun og hefur Vladim-
ír Pútín, forseti Rússlands, lýst yfir
þjóðarsorg á útfarardaginn.
Jeltsín var 76 ára og fyrsti lýð-
raun og veru hjá þjóðinni. Jeltsín
hefði gegnt lykilhlutverki við samn-
ingu nýrrar stjórnarskrár fyrir
Rússland, þar sem mannréttindi
hefðu verið í fyrirrúmi og skoðana-
og kosningafrelsi tryggt.
Pútín sagði að Jeltsín hefði verið
hugrakkur maður og hjartahlýr,
komið hreint fram og verið djarfur
þjóðarleiðtogi. George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, sagði að
Jeltsín hefði verið söguleg persóna
sem hefði stýrt þjóð sinni á tímum
mikilla breytinga.| 14
lýðræðis í Rúss-
landi. Jeltsíns
yrði ávallt
minnst sem
fyrsta forseta
Rússneska
ríkjasambands-
ins eftir hrun
Sovétríkjanna. Í
stjórnartíð hans
hefði nýtt lýð-
ræðislegt Rússland fæðst og frjáls
þjóð opnað dyrnar fyrir umheim-
inum, ríki þar sem valdið væri í
ræðiskjörni forseti Rússlands en
hann gegndi embættinu á árunum
1991 til 1999. Hann átti við hjart-
veiki að stríða og lést úr hjartaslagi
á sjúkrahúsi í Moskvu um miðjan
dag að rússneskum tíma. Áður en
Jeltsín lét af embætti 1999 skipaði
hann Vladimír Pútín, þáverandi yf-
irmann rússnesku öryggisþjónust-
unnar, í embætti forsætisráðherra
og lýsti því yfir að hann vildi að Pút-
ín tæki við af sér. Það gekk eftir og í
gær minntist Pútín fyrirrennara
síns og sagði hann hafa verið föður
Hrósað fyrir hugrekki og dirfsku
Boris Jeltsín
ÞAÐ styttist óðum í að Íslandsmótið í knatt-
spyrnu hefjist en hinn 12. maí verður flautað
til leiks með leik ÍA og FH. Undanfari þess er
mildu ungu drengir voru á Varmárvelli í Mos-
fellsbæ í gærkvöldi þar sem Breiðablik og Vík-
ingur leiddu saman hesta sína. | Íþróttir
deildabikarkeppnin og í gær lauk átta liða úr-
slitunum þar sem FH, HK, Víkingur og Valur
tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Þessir bros-
Morgunblaðið/Kristinn
Styttist óðum í Íslandsmótið í knattspyrnu