Morgunblaðið - 24.04.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 15
ERLENT
Sími 575 8585 – Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is
Opið virka daga
frá kl. 09:00-18:00
www.fmg.is
LOGAFOLD - EINBÝLI
165,4 fm. timbur einbýlishús á steyptum grunni, tvöf. 53,7 fm. bílskúr
og 18,9 fm geymsla. Sólpallur með heitum potti og terras. Flísalögð for-
stofa og gestasnyrting. Stór stofa og borðstofa, parket á gólfum. Rúm-
gott eldhús með borðkrók. Þvottaherb. Sjónvarpshol með parketi. 4
svefnherb og úr hjónaherb. og sjónvarpsholi er gengið út á sólpallinn.
Stórt bað með sturtuklefa, baðkari og innréttingu. V. 56 millj.
MOSFELLSBÆR - GLÆSILEGT EINBÝLI
Glæsilegt 183,2 fm hús ásamt 47,6 fm tvöf. bílskúr. Vandaðar innrétt-
ingar, innf. halogen lýsing og góð lofthæð. Gegnheilt parket og flísar á
gólfum. Baðherb. m/fallegri innr., gufubaði og sturtu. 3 rúmgóð svefnh.
og um 50 fm stofa. Verðlaunagarður með 2 sólpöllum, skjólv., heitum
potti, markísu, hita í stéttum og bílaplani. Einstaklega fallegt og vel
skipulagt hús þar sem engu hefur verið til sparað. TILBOÐ ÓSKAST.
DAGGARVELLIR - 3JA HERB. SÉR INNGANGUR
Glæsileg 105,9 fm, 3ja herbergja, fullbúin íbúð með sér inngangi af
svölum á 3. hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýlishúsi í Vallahverfi í Hafnar-
firði. Svefnherb. með skápum. 2 geymslur og þvottaherb.. Baðherb. flí-
salagt, innrétting, vegghengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu. Afar
rúmgóð stofa og borðstofa, suðvestur svalir. Eldhús með borðkrók.
Parket og flísar á gólfum. Innfelldar h,urðir. V. 21,9 millj.
RAUÐÁS - GLÆSILEGT RAÐHÚS
Glæsilegt 271,4 fm raðhús á 3 hæðum með innbyggðum bílskúr. Af
svölum er frábært útsýni yfir borgina. Á jarðhæð er anddyri, gesta wc,
þvottaherb., bílskúr, eldhús og borð-/setustofa. Á miðhæð eru 3 svefn-
herb., einu þeirra er mögulegt að breyta í 2-3 herb., fataherb., baðherb.
og geymsla. Í risi er svo 40 fm fullbúið rými. Á gólfum eru flísar, parket
og furuborð. Sólpallur út af stofu. Hellulagt bílstæði. TILBOÐ ÓSKAST.
FLÉTTURIMI - 2JA HERBERGJA
Falleg 2ja herb., 67,5 fm. íbúð á 2. hæð. Íbúðin er með sameiginlegum
inngangi með annari íbúð. Komið er inn í opið hol með fataskáp. Eld-
húsið er með borðkrók og úr stofunni er gengið út á vestur svalir með
fallegu útsýni. Parket er á holi og á stofu gólfi, annarsstaðar er dúkur.
Svefnherb. með rúmgóðum skáp. Á baðherb. er sturtuklefi. Sameigin-
legt þvottaherb. fyrir 4 íbúðir er á hæðinni. Sér geymsla. V. 16,9 millj.
GVENDARGEISLI - 3JA HERB. SÉRINNG. BÍLAG.
Glæsileg 3ja herb., 108,8 fm íbúð á jarðhæð með sér inngang ásamt
stæði í lokaðri bílageymslu. Bæði svefnherb. paketlögð og með skápum.
Mjög rúmgott hjónaherb.. Baðherb. með baðkari, innréttingu og flísum
á gólfi. Flísalagt þvottaherb. Stofan er björt og falleg. Flísalögð verönd
og um 30 fm afgirtur sólpallur. Eldhús með fallegri innréttingu og nýleg-
um tækjum. Parketflísar í holi, stofu og í eldhúsi. V. 26,5 millj.
STYKKISHÓLMUR - PARHÚS
157,4 fm. parhús á 2 hæðum við Höfðagötu í Stykkishólmi, ásamt 30,6
fm bílskúr. Íbúðin er afar rúmgóð. Neðri hæð: forstofa, gangur, 2 stofur,
rúmgott eldhús, lítið baðherb. og svefnherb.. Út af eldhúsi er sólpallur.
Efri hæð: 4 svefnherb. og baðherb.. Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Góð gólfefni. Á bílskúrnum er nýtt þak og ný hurð. Húsið er klætt, járn á
þaki er lélegt. Mjög gott útsýni. V. 15,85 millj.
KÓLGUVAÐ - NÝJAR NEÐRI SÉRHÆÐIR
Glæsilegar 127,5 fm neðri sérhæðir. Íbúðir afh. fullbúnar. Anddyri, eld-
hús, stofa, borðstofa, 3 rúmgóð svefnherb., fataherb. innaf hjónaherb.
með hillum, baðherb., geymsla og þvottarhús. Parket úr Hlyn og flísar á
gólfum. Fallegar innréttingar og hurðir. Hornbaðkar og upphengt salerni
á baði. Rafmagn fullfrágengið. Lóð fullfrágengin. Hellulagt bílaplan með
hitalögn. Öll íbúðin verður hvítmáluð. V. 33,9 til 34,9 millj.
VESTMANNAEYJAR - EINBÝLI M/BÍLSKÚR
Mikið endurnýjað 89,1 fm, steypt einbýlishús á 2 hæðum ásamt 32.5 fm
bílskúr við Miðstræti. Neðri hæð: Hol með náttúruflísum, baðherbergi
nýlega tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf, steyptur sturtuklefi, hiti í
gólfum. Allar skolplagnir nýjar út í götu. Stofa og eldhús með nýju eik-
arparketi og nýjum loftum, allt nýtt í eldhúsi. Efri hæð: Hol og 3 herb.
með parketi. Nýir ofnar á efri hæð. Geymsluris. V. 13 millj.
STYKKISHÓLMUR - EINBÝLI
129,6 fm einbýlishús við Lágholt ásamt 31,2 fm. sambyggðum bílskúr.
Aðkoma að húsinu er góð í lokuðum botnlanga. Húsið skiptist í forstofu,
stórt sjónvarpshol, þvottaherb., eldhús með rúmgóðum borðkrók, stóra
stofu og borðstofu, 3 svefnherb. og baðherb.. Flísar, korkflísar, parket
og plastparket á gólfum. Nýleg innrétting í eldhúsi. Nýlegt járn á þaki.
Ofna- og raflagnir eru nýlegar. Sólpallur. V. 19,8 millj.
GRAFARHOLT - VERSL.- OG ÞJÓNUSTURÝMI
200,6 fm verslunarpláss á jarðhæð í Grafarholti. Þrír inngangar, rúmgóð
malbikuð sér bílastæði. Útigeymsla. Húsnæðið er innréttað sem verslun
með kaffiaðstöðu, snyrtingu, lager og geymslu. Sérsmíðaðar innrétting-
ar fyrir myndbandaleigu, sælgætisbar, ísbar, grill og verslun eru til stað-
ar. Spilakassar. Allar innréttingar eru nýjar. SKIPTI MÖGULEG.
SJÁVARFLÖT í STYKKISHÓLMI
EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ. 133 fm. einbýli ásamt 36,4 fm. innbyggð-
um bílskúr (innangengt) eða samtals 169,4 fm, á frábærum útsýnistað
við Sjávarflöt í Stykkishólmi. Afgirtur sólpallur er fyrir framan húsið.
Forstofa, forstofuherb., gangur, stofa, eldhús með borðkrók, þvottaherb.
á sérgangi, baðherb. með innréttingu og þrjú svefnherbergi. Parket,
dúkur og flísar á gólfum. Útsýni yfir Breiðafjörðinn.. V. 22,9 millj.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÞVÍ fer fjarri, að baráttan gegn al-
mennri byssueign í Bandaríkjun-
um hafi fengið byr í seglin vegna
fjöldamorðanna í háskólanum í
Virginíu. Þvert á móti virðist kraf-
an um, að háskólanemendur fái að
bera vopn innan veggja skólanna,
njóta æ meiri stuðnings.
„Þetta var enn einn naglinn í lík-
kistu aukinna takmarkana við
vopnaburði,“ sagði Philip Van
Cleave, formaður í Varnarsamtök-
um borgara í Virginíu, en þau
berjast fyrir rétti manna til vopna-
burðar. „Í Tech-háskólanum var
strangt eftirlit með vopnaburði og
það var þess vegna, að enginn gat
borið hönd fyrir höfuð sér.“
Van Cleave sagði, að fjöldamorð-
in myndu auka líkur á, að ný lög
um vopnaburð yrðu samþykkt á
Virginíuþingi en samkvæmt þeim
mun starfsfólki háskólanna og
þeim nemendum, sem orðnir eru
21 árs, verða heimilt að vera með
skammbyssu innanklæða. Slík lög
gilda raunar í Virginíu almennt en
hafa ekki náð til háskólanna.
Algjör vítahringur
Fyrst eftir fjöldamorðin í Virg-
iníu töldu margir, að krafan um
hert eftirlit með vopnaburði myndi
tvíeflast en raunin virðist ætla að
verða allt önnur. Á það er líka
bent, að fjöldamorðin í Columbine-
framhaldsskólanum í Colorado
1999 dugðu ekki til að sett yrðu
strangari lög um vopnakaup og
þingmenn hafa ekki sýnt því mik-
inn áhuga. Þeir hafa það í huga, að
byssur er að finna á 40% banda-
rískra heimila að minnsta kosti og
margir líta á það sem stjórnar-
skrárvarinn rétt að bera byssu.
Nemendur
vopnaðir?
Reuters
Byssueign Krafa um að háskólanemendur og kennarar fái að bera vopn innan veggja skólanna, virðist njóta æ
meiri stuðnings í kjölfar fjöldamorðanna í háskólanum í Blacksburg í Virginíu í liðinni viku.
Fjöldamorðin í Virginíu virðast ætla að
styrkja kröfuna um almennan vopna-
burð meðal nemenda og kennara