Morgunblaðið - 24.04.2007, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Þökkum öllum þeim sem vottuðu okkur samúð
sína við fráfall elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
STEFANÍU RANNVEIGAR
BRYNJÓLFSDÓTTUR,
síðast til heimilis á dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
Guð launi ykkur góðar kveðjur.
Stefán Tryggvason, Jarmíla Tryggvason,
Brynjólfur Tryggvason, Lilja Jónsdóttir,
Soffía Tryggvadóttir, Magnús Gíslason.
✝
Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu hlýju og
samúð vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MAGNEU KATRÍNAR BJARNADÓTTUR,
Heiðargerði 6,
Akranesi.
Benedikt Bjarnason,
Guðrún Stefanía Bjarnadóttir,
Halldór Bjarnason, Elín Hannesdóttir,
ömmubörn og langömmubarn.
✝ Hulda Péturs-dóttir fæddist á
Húsavík þann 25.
september 1920.
Hún lést á heimili
sínu mánudaginn
16. apríl síðastlið-
inn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Pétur
Sigfússon, kaup-
félagsstjóri, f. 9.
desember 1890, d.
5. október 1962, og
Birna Bjarnadóttir,
húsfreyja, f. 13.
ágúst 1892, d. 5. september 1981.
Systkini Huldu eru: Bjarni, f. 20.3.
1915, d. 24. 3. 1995, Sigríður
María, f. 1.8. 1918, d. 10.9. 1997,
Sigfús, f. 7.7. 1924, d. 28.5. 1992,
Sigurður Már, f. 4.4. 1929, d. 2.6.
1987 og Þórarinn, f. 3.10. 1930. Á
heimilinu ólust einnig upp þau
Heimir Bjarnason, systursonur
Birnu, móður Huldu, f. 2.8. 1923
og Sigríður Birna Bjarnadóttir,
bróðurdóttir Huldu, f. 10.5. 1938,
d. 22.3. 2001.
Hulda giftist árið 1952 eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Þórhalli
Ingibergi Einarssyni, f. 16.3.
1921. Foreldrar hans voru Einar
Runólfsson, trésmiður, f. 17.
september 1884, d. 10. mars 1991,
og Kristín Traustadóttir, hús-
freyja, f. 20.10. 1878, d. 3.2. 1960.
Hulda og Þórhallur eignuðust
fimm börn: 1) Pétur, f. 7.2. 1948.
Pétur ólst upp hjá systur Huldu,
Sigríði Maríu og manni hennar
George, í Bandaríkjunum. Pétur
er kvæntur Ilon Thyss Williams
og eiga þau tvö börn: a) Thysson
George, f. 5.3. 1985, b) Gemma
Sigríður, f. 22.3. 1987. Eru þau
búsett í Boulder, Colorado í
Bandaríkjunum. 2) Birna María f.
10.10. 1950, d. 10.4. 1951, 3) Einar
Kristinn, f. 1.7. 1952, eiginkona
hans er Sigríður Steinarsdóttir f.
fjölskyldan á Borðeyri við Hrúta-
fjörð. Hulda fluttist til Akureyrar
18 ára gömul og hóf störf hjá
KEA. Fjölskyldan bjó í Borgar-
nesi um nokkurra ára skeið þar
sem Pétur rak hótel. Hún fluttist
til Reykjavíkur þar sem hún starf-
aði fyrst hjá KRON á Hverfisgötu
og varð verslunarstjóri þar.
Hulda og Þórhallur bjuggu sín
fyrstu hjúskaparár í Reykjavík,
seinna flutti fjölskyldan á Hvols-
völl en Þórhallur starfaði þá sem
fulltrúi sýslumanns. Árið 1963
fluttu þau í Kópavog þar sem þau
bjuggu alla tíð síðan, lengst af á
Sunnubraut 16. Hulda hóf störf
hjá versluninni KRON í Kópavogi
og Þórhallur hjá borgarfógeta í
Reykjavík, en þar starfaði hann út
sinn starfsaldur. Hulda starfaði
alla sína tíð við verslunarstörf.
Hún varð verslunarstjóri KRON
við Borgarholtsbraut, síðar starfs-
maður Ásgeirsbúðar, Verslunar-
innar Kópavogs og loks Nóatúns í
Hamraborg þar sem hún starfaði
til 78 ára aldurs. Hulda var ákaf-
lega félagslynd og vinamörg. Hún
var alla tíð sérstaklega áhugasöm
um íþróttir, þá einkum handbolta
og fótbolta. Sjálf spilaði hún
handbolta og varð meðal annars
Íslandsmeistari með Fram. Hún
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Breiðablik, var meðal annars
formaður handknattleiksdeildar
kvenna um árabil. Hún var heiðr-
uð fyrir störf sín og var valin
Heiðursbliki á 40 ára afmæli fé-
lagsins árið 1990, þá eina konan
sem hlotið hafði þann heiður. Þá
hlaut hún heiðursorðu ÍSÍ árið
2001. Hún var mikil áhugamann-
eskja um stjórnmál, var ávallt
virk í Framsóknarflokknum og
var hún meðal stofnenda Freyju,
félags framsóknarkvenna í Kópa-
vogi. Síðustu ár sín bjuggu Hulda
og Þórhallur í Vogatungu, en Þór-
hallur dvelur nú á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.
Útför Huldu verður gerð frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
9.4. 1952, þau eiga
fimm börn: a) Hulda
María, f. 11.1. 1973,
b) Arna Einarsdóttir,
f. 18.4. 1975, gift
Degi B. Eggertsyni
og eiga þau tvö börn,
Ragnheiði Huldu og
Steinar Gauta. c)
Birna, f. 17.1. 1981, í
sambúð með Krist-
jáni Guy Burgess, d)
Þórhallur, f. 16.12.
1982. e) Vera, f. 1.12.
1989. 4) Hinrik, f.
18.2. 1954, börn hans
eru: a) Daníel, f. 17.5. 1972. Móðir
Kristín Ólafsdóttir. b) Bragi Þór,
f. 8.6. 1973, kvæntur Jóhönnu
Guðlaugu Frímann og eiga þau
tvö börn, Bergþór Frímann Sverr-
isson, son Jóhönnu, og Ernu Ísa-
bellu. c) Þórhallur Örn, f. 10.9.
1976, kvæntur Helgu Ósk Hann-
esdóttur og eiga þau tvö börn,
þau Orra og Önnu Karen. d)
Kristín Hulda, f. 14.12. 1984, í
sambúð með Brynjari Unnsteins-
syni og eiga þau eina dóttur, Ingi-
björgu Ernu. e) Ingunn Birta, f.
16.8. 1980, í sambúð með Sæþóri
Jenssyni. Móðir Braga, Þórhalls,
Kristínar og Ingunnar Birtu er
Erna Norðdahl. f) Gunnar Árni, f.
19.11. 1985. g) Haukur, f. 3.6.
1990. h) Hinrik, f. 3.6. 1990. Móðir
Gunnars, Hauks og Hinriks er Vil-
borg Gunnarsdóttir. 5) Þórarinn,
f. 7.5. 1960, eiginkona hans er
Halldóra Þ. Friðjónsdóttir, f. 7.1.
1967. Börn þeirra eru: a) Íris, f.
17.5. 1983, í sambúð með Guð-
mundi Pálssyni og eiga þau 2
börn, Breka Stein og Sölva Pál.
Móðir Írisar er Inga María Frið-
riksdóttir. b) Margrét Rut, f. 3.4.
1992. c) Kolbrún Huld, f. 3.11.
1993. d) Friðjón Þór, f. 19.11.
1995. f) Ásdís Birna, f. 19.1. 2002.
Hulda fæddist á Húsavík og bjó
þar til 14 ára aldurs en þá fluttist
Elskulega tengdamóðir mín,
Hulda, þú svarar mér ekki lengur
þegar ég hringi í þig. Þú ert haldin
í langferð og kemur víst ekki í
bráð.Við sem vorum búnar að ráð-
gera að fara aftur saman til Am-
eríku og láta verða af margumtal-
aðri ferð til Ítalíu.
Á næsta ári eru 40 ár liðin síðan
ég fann ástina mína, hann Einar, og
fékk svo ykkur heiðurshjón í kaup-
bæti. Allt frá þeim degi er ég, sex-
tán ára gömul, kom fyrst með Ein-
ari á Sunnubrautina, tókuð þið mér
sem eigin dóttur.
Það var svo dæmalaust gott að
koma til ykkar og alltaf voru hress-
ar og líflegar samræður við kringl-
ótta eldhúsborðið. Ég minnist þess
sérstaklega, frá þessum fyrstu
kynnum okkar, hversu mjög þessi
eldhúsumræða hreif mig. Það var
spjallað um svo margt, en þó sér-
staklega um íþróttir og stjórnmál.
Ég heillaðist svo af þessari elju og
kappsemi í þér og ég skildi aldrei
hvernig þú gast látið sólarhringinn
duga fyrir allt það sem þú tókst þér
fyrir hendur í félagsmálunum í
Kópavogi jafnframt því að vinna
tólf tíma vinnudag sem verslunar-
stjóri hjá KRON, fylgja sonunum á
fótboltaleiki og vera í ofaníkaupið
þessi glaða og jákvæða húsmóðir að
vinnudegi loknum. Þú varst gædd
fágætum persónutöfrum sem ein-
kenndust af ríkri réttlætiskennd,
heillandi og glettinni nærveru og
sterkum sannfæringarkrafti. Aldrei
skyldirðu svíkja Breiðablik eða
Framsóknarflokkinn. Ég hreifst
svo af þér Hulda mín, að sem ung
stúlka fannst mér ég hafa fundið
það sem ég hafði alltaf þráð, and-
rúmsloft kærleiksríkrar fjölskyldu.
Eftir stúdentinn og trúlofun
flutti ég í litla herbergið hans Ein-
ars og þú tókst mér opnum örmum
og heimilið ykkar varð mitt.
Einhver sú ljúfasta minning sem
ég á frá þessum fyrstu hjúskap-
arárum okkar var þegar ég kom
heim á Sunnubrautina með Huldu
Maríu, elstu dóttur okkar, ný-
fædda. Það var augljóst að þetta
var einnig stór dagur í lífi þínu.Við
höfum upplifað svo margt skemmti-
legt með ykkur, allar ógleymanlegu
heimsóknir ykkar til okkar til Sví-
þjóðar. Það var alltaf svo mikið til-
hlökkunarefni hjá börnunum og þá
útbjuggu þau og myndskreyttu
stór plaköt með yfirskriftinni „Vel-
komin elsku amma og afi!“. En nú
eru barnabarnabörnin tekin við og
sólargeislarnir okkar, Heiða og
Steinar, tóku sama ástfóstri við þig.
Þú varst vön að kalla Steinar Gauta
„litla kærstann þinn“, því hann
hljóp alltaf á móti þér með opinn
faðminn.
Þú varst rík, áttir tuttugu barna-
börn sem öll elskuðu þig og virtu.
Þú áttir einnig fjölmarga góða vini
af yngri kynslóðinni, sem haldið
hafa tryggð við þig vegna stuðnings
þíns við íþróttahreyfinguna.
Þú varst alveg yndisleg mann-
eskja, hreinskiptin og glettin, og
það var aldrei nein lognmolla í
kringum þig. Þú varst hrókur alls
fagnaðar hvar sem þú komst. Við
Einar munum seint gleyma Amer-
íkuferðinni með þér síðastliðinn
nóvember. Heimsóknin til Péturs
og fjölskyldu í Boulder var ógleym-
anleg og þar naust þú þess meðal
annars að aka á mótorhjóli með
Pétri og vera með okkur heilan dag
á golfvellinum.
Ég er forsjóninni þakklát fyrir
að hafa notið samvistanna við þig í
öll þessi ár. Þú varst ekki bara ynd-
isleg tengdamóðir, heldur einnig
besti vinur minn.
En hvar ertu núna, elsku Hulda
mín? Þú ert kannski að spóka þig í
spænsku tröppunum í Róm eða að
skoða Colosseum. Það hefði bara
verið svo gaman að vera þar með
þér, skilurðu...
Daglegu símtölin okkar síðasta
árið enduðu alltaf á enskri ástar-
játningu. Ef ég var fyrri til að
kveðja þig fékk ég ávallt svarið: „I
love you too, elskan!“ Svo nú segi
ég við þig í síðasta sinn, elsku
Hulda mín: I love you forever!
Þín
Sigríður.
Elsku besta amma mín.
Það er erfitt fyrir mig að kveðja
þig. Ég hélt að við fengjum meiri
tíma saman.
Amma mín hafði sterka og þægi-
lega nærveru og veitti það mér ör-
yggi og hlýju. Amma fylgdist vel
með því sem við barnabörnin tók-
um okkur fyrir hendur. Þegar ég lít
til baka sé ég ömmu standa í úti-
dyragættinni og veifa í sífellu þang-
að til hún sér okkur ekki lengur.
Ég man svo vel eftir Sunnubraut-
inni, ekki síst rabarbaragarðinum,
og hvað það var gott að vera þar
með ykkur afa. Ég á þér svo margt
að þakka. Þú varst alltaf tilbúin að
gera allt fyrir okkur öll. Allar
pönnukökurnar. Mikið á ég eftir að
sakna þeirra, elsku amma mín. Ég
man líka svo vel eftir því þegar þú
vannst í kjötborðinu og fékk ég
stundum að fara með þér í vinnuna.
Það fannst mér svo gaman. Við fór-
um í Skódanum þínum sem var al-
veg endalaus eins og þú. Það gat
tekið tímann sinn að fara eitthvert
með þér. Þú þekktir svo marga og
þurftir að spjalla við alla. Ég er
viss um að flestir Kópavogsbúar
vita hver þú ert.
Ég skal gera mitt besta til að
passa afa fyrir þig. Ég er stolt af
því að hafa átt þig fyrir ömmu. Ég
veit að þú átt eftir að vaka yfir okk-
ur öllum.
Góða ferð, amma mín. Ég elska
þig.
Sestu hérna hjá mér,
systir mín góð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát af því,
að mamma ætlar að reyna að sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna.
Mamma er svo þreytt.
- Og sumir eiga sorgir,
sem svefninn getur eytt.
Sumir eiga sorgir,
og sumir eiga þrá,
sem aðeins í draumheimum
uppfyllast má.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Mamma ætlar að sofna,
systir mín góð.
(Davíð Stefánsson.)
Íris Þórarinsdóttir.
Elsku amma,
Fyrir örfáum vikum síðan var ég
á tali við vini mína og montaði mig
af ömmu minni. Ég sagði, að ef ein-
hver manneskja væri ódauðleg, þá
værir það þú. En nú ert þú farin frá
mér. Þar sem ég bý í Svíþjóð, hef
ég ekki hitt þig eins oft og ég hefði
viljað, en þú hefur samt alltaf verið
náin mér. Ég vildi óska að ég hefði
fengið að upplifa fleiri stórkostleg-
ar stundir með þér. Þú ert sú
manneskja sem ég dáði mest og ég
get lofað þér því, að ég var aðdá-
andi númer eitt í aðdáendaklúbbi
þínum. Þú varst heimsins besta
amma, góður vinur minn og ert
besta fyrirmynd mín. Lífsgleði þín
var aðdáunarverð og ég er svo stolt
og glöð yfir að hafa átt hlutdeild í
lífi þínu. Í hjarta mínu ert þú
ódauðleg.
Ég elska þig!
Þín
Vera.
Ég átti stórkostlega ömmu. Og
lengi hef ég kviðið fyrir því að
kveðja hana hinstu kveðju. Þegar
það dynur á er það alltof snemmt.
Amma var vissulega ekkert ung-
lamb, orðin 86 ára, en ákaflega vel
á sig komin og kýrskýr eins og sagt
er, stórkostleg kona.
Enginn hefði getað óskað sér
betri leið til þess að kveðja þennan
heim, í friðsæld eigin heimilis.
Þrátt fyrir það er sársaukinn svo
mikill. Amma var í fullu fjöri, eng-
um fannst eins gaman að lifa og
henni. Lífsgleði hennar smitaði út
frá sér og var það ein af mörgum
ástæðum þess að við öll sóttum í
hennar félagsskap. Ég hugga mig
við það að hún hefði illa sætt sig við
alvarleg veikindi eða að verða upp á
aðra komin. Amma kaus að fara
meðan hún var ennþá á toppnum.
Fyrir aðeins fáeinum vikum síð-
an borðuðum við saman systkinin,
nokkrar vinkonur og amma á veit-
ingahúsi í miðbænum. Skemmtum
okkur svo vel að við hringdum í
Þórarin bróður hennar og töldum
hann á að slást í hópinn. Héldum
þaðan heim til okkar þar sem við
skemmtum okkur og dönsuðum til
klukkan þrjú um nóttina, amma og
Þórarinn hrókar alls fagnaðar.
Amma gisti svo í hjónarúminu. Það
var svo sjálfsagt að hafa hana með
því þannig var hún, hrífandi
skemmtileg og ung í anda. Alltaf
jafningi.
Amma Hulda var mín nánasta
vinkona og líklega sú manneskja
fyrir utan manninn minn sem ég
ráðfærði mig oftast við. Ég bar
mikla virðingu fyrir henni, enda
ákaflega sterk og kraftmikil kona,
en líka mikil tilfinningavera. Hún
var sjarmatröll, litrík, fluggreind,
skemmtileg, fórnfús og gjafmild.
Hún kvartaði ekki, var ekki þannig
karakter.
Amma Hulda kenndi mér margt
um lífið, um ást og sorgir. Í fyrra
fæðingarorlofinu árið 2004 hittumst
við nánast daglega. Við töluðum svo
mikið saman, hún kenndi mér
margt um fyrri tíma, fjölskylduna,
ættina stóru og uppruna minn.
Þegar fjölskyldan litla ferðaðist
hringinn í kringum landið, sumarið
2005, meðal annars um Suður-Þing-
eyjarsýslu, var ómetanlegt að hafa
ömmu Huldu í símanum sem sagði
okkur á hvaða bæjum við ættum að
banka upp á, þar kynntum við okk-
ur svo sem frændfólk og var alls-
staðar fagnað, enda auðvelt að vísa
í Huldu Pétursdóttur. Hana þekktu
allir. Þar fann ég loksins rætur
mínar, rætur hennar. Þau tengsl
mun ég rækta um ókomin ár.
Við áttum stórkostlega ömmu.
Það er svo sárt að hún skuli ekki
alltaf vera til staðar. Að geta ekki
hringt í hana, rennt við með börnin,
leyft henni að taka utan um litla
kærastann sinn, eins og hún kallaði
Steinar Gauta, sem tók ást á ömmu
sinni frá því hann opnaði fyrst aug-
un, að standa hana að því að lauma
nammi að Heiðu. Að geta ekki leng-
ur rætt um heima og geima, rifist
um pólítík, hlustað á hana fara með
ljóðin sín sem hún elskaði mest,
lært af henni eða skálað fyrir okkur
sjálfum eða lífinu.
Fyrir að hafa deilt með henni
mínum 32 árum verð ég alltaf þakk-
lát og minningarnar lifa með okkur
Degi. Hún verður ávallt mín
stærsta fyrirmynd í lífinu.
Hvíl þú í friði, elsku amma.
Arna Einarsdóttir.
Hulda Pétursdóttir
Fleiri minningargreinar
um Huldu Pétursdóttur bíða birt-
ingar og munu bírtast í blaðinu á
næstu dögum.