Morgunblaðið - 24.04.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 41
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
M A R K W A H L B E R G
SANNSÖGULEG MYND UM STÆRSTA
HNEYKSLISMÁL Í SÖGU FBI
HVER ÞARF UPPHÆÐIN AÐ VERA
SVO ÞÚ SVÍKIR ÞJÓÐ ÞÍNA
BREACH kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl.6 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 8:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.16.ára
SHOOTER VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40
THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 10:40 B.i.12.ára
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.7.ára
/ ÁLFABAKKA
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eeee
V.J.V.
eeee
FBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
Á STÆRÐ VIÐ HNETU!
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG
FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ
21.04.2007
2 6 11 19 35
9 8 7 4 3
0 8 0 4 6
22
18.04.2007
5 7 14 15 25 35
1433 42
Frum-
útgáfa
í kilju
„Þessi stutta skáldsaga …
er satt að segja mögnuð lesning.
Carrère hefur ógnarlegt vald á
frásögninni.“
„Carrère kemur miklu til skila í
knöppu máli og dregur upp sterka
stemningu óvissu og ógnar, sem
hefst strax á fyrstu síðu og helst
allan tímann.“
Þröstur Helgason / Lesbók Morgunblaðsins
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
„… þýðing Sigurðar
Pálssonar gerir
hana að viðburði.“
Silja Aðalsteinsdóttir
/ tmm.is
HÉR er á ferðinni framhald af end-
urgerð hinnar „sígildu“ rusl-
hryllingsmyndar Wes Cravens, The
Hills Have Eyes frá árinu 1977, en
endurgerðin kom út í fyrra í leik-
stjórn Alexandre Aja. Sú mynd olli
vonbrigðum, einkum vegna þess að
hún stóðst engan veginn samanburð
við Haute Tension sem Aja hafði
gert þremur árum fyrr, en franska
myndin markar áveðin hápunkt í
þeirri „splatter“ bylgju sem hefur
verið helsti aflvaki endurvakningar
hryllingsmyndategundarinnar und-
anfarin ár. Í endurgerðinni á Cra-
ven-myndinni varpaði Aja þó öllum
þeim sniðugheitum sem einkenndu
fyrri myndina fyrir borð og einbeitti
sér eingöngu að sviðsetningu heldur
leiðigjarns sadísks sjónspils. En ef
fyrri myndin var ómerkileg þá er
framhaldið síst betra (og rétt er að
rugla því ekki saman við samnefnda
framhaldsmynd sem Craven sjálfur
gerði fyrir 22 árum). Skrímslin sem
voru eilítið dularfull í fyrstu mynd-
inni eru hér orðin að geislavirkum
skrípamyndum og áætlun þeirra um
að ræna konum til að viðhalda eigin
úrkynjaða kyni getur vart talist
heildstæð uppspretta fyrir kvik-
myndahandrit, þótt það reynist
Martin Weisz (enn einn músíkmynd-
bandagemlingurinn sem fenginn er
til að halda utan um kvikmynd með
lélegum árangri) allnokkur inn-
blástur fyrir kvikindisskap og blóðs-
úthellingar. Sú staðreynd að Wes
Craven skrifar handritið ásamt syni
sínum kann að hreyfa við gömlum
hryllingsaðdáendum, en rétt er að
staldra við og hugsa til baka því þá
minnumst við kannski þess að hand-
ritaskrif voru nú aldrei sterkasta
hlið Cravens. Eina myndin sem
hann hefur leikstýrt og hefur notið
velgengni undanfarin 20 ár er
Scream en það gleymist stundum að
hana skrifaði hann ekki sjálfur.
Óhugnaður í afdölum
Léleg „En ef fyrri myndin var ómerkileg þá er framhaldið síst betra.“
KVIKMYNDIR
Smárabíó og Regnboginn
Leikstjórn: Martin Weisz. Aðalhlutverk:
Michael McMillian, Jessica Stroup, Dani-
ella Alonso, Jacob Vargas, Flex Alexand-
er. Bandaríkin, 89 mín.
Margt býr í þokunni II
(The Hills Have Eyes II)
Heiða Jóhannsdóttir
FYRRVERANDI eiginkona Mick
Jagger, Jerry Hall, er hætt að vera
með „leikfangastrákum“. Hin 50 ára
fyrrverandi fyrirsæta hefur ákveðið
að hætta að hitta yngri menn það
sem eftir er ævinnar eftir að hún fór
á hræðilegt stefnumót nýlega. „Ég
fór út með ungum manni og við spil-
uðum biljarð allan tímann. Geturðu
ímyndað þér? Þessa dagana þrái ég
eldri menn, þeir hafa heldur ekki
eins lélegan tónlistarsmekk og þeir
yngri.“
Hall sagði líka nýlega að hún fengi
sér frekar nýjan eiginmann en and-
litslyftingu. „Konur eiga að eldast
með virðingu. Tilhugsunin um að
hafa unglegt andlit en hrukkóttan og
gamlan líkama er hræðileg.“ Hall
hefur einnig sagt að íturvaxinn lík-
ami hennar, en hún er stærð 12, láti
hana líta út fyrir að vera yngri. „Að
vera horaður gerir þig ellilegri.“
Reuters
Búin
að fá nóg
ARSENAL
hefur ekki
gengið sem
best á leiktíð-
inni en El-
ísabet drottn-
ing hefur samt
ekki snúið baki
við félaginu
sem hún hefur
haldið með í
hálfa öld. Móð-
ir hennar var
einnig einlæg-
ur Arsenal-aðdáandi að því er
breska blaðið The Sun greinir frá.
Blaðið hefur eftir Cesc Fabregas
að honum og nokkrum öðrum leik-
mönnum hafi verið boðið í Buck-
ingham-höll í febrúar sl. og þá hafi
drottningin sagt honum að hún héldi
með liðinu. Ónafngreindur heim-
ildamaður, sem er háttsettur við
bresku hirðina, staðfesti við blaðið
að hún styddi Arsenal.
Styður
Arsenal