Morgunblaðið - 24.04.2007, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Uppnám í Kópavogi
Uppbygging á svokölluðu Glað-
heimasvæði í Kópavogi er í upp-
námi eftir að umhverfisráðuneytið
ákvað að synja staðfestingu á
breyttu svæðisskipulagi. » Forsíða
Raforkusala
Norðurál og Hitaveita Suð-
urnesja undirrituðu í gær raf-
orkusamning fyrir fyrsta áfanga ál-
vers í Helguvík. Áætlað er að
gangsetja hann á síðari hluta árs
2010. » 2
Samruni
Annar stærsti banki Evrópu
verður til gangi samrunaáætlun
stjórna Barclays-banka og ABN
Amro eftir, en umfang samrunans
samsvarar 5.800 milljörðum króna.
» 13
Jeltsín látinn
Boris Jeltsín, fyrrverandi forseti
Rússlands, lést í gær af völdum
hjartaáfalls. Hans er minnst fyrir
þátt sinn í falli kommúnismans og
Sovétríkjanna. » Forsíða
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Blessaðar endursýn …
Staksteinar: Laumufarþegi með …
Forystugreinar: Boris Jeltsín |
Sego eða Sarko
UMRÆÐAN»
Höfnum glæfraakstri
Græn skref af fúsum vilja
Sýndarveruleiki
Vígsla samkynhneigðra
2% 7!&
.!+
8 !!"!5 ! / / /
/
/ / / / / / /
-
9)5 &
/ / / /
/
:;<<=>?
&@A><?38&BC3:
9=3=:=:;<<=>?
:D3&9!9>E3=
3;>&9!9>E3=
&F3&9!9>E3=
&6?&&3"!G>=39?
H=B=3&9@!HA3
&:>
A6>=
8A38?&6+&?@=<=
Heitast 14° C | Kaldast 5° C
Suðaustan 10–18 m/s
og skúrir sunnan og
vestan til en annars
hægari og víða bjart.
»8
Verkið Hjónabands-
glæpir eftir Schmitt
olli gagnrýnanda
vonbrigðum, honum
fannst það ótrúverð-
ugt. »38
LEIKHÚS»
Ótrúverð-
ugir glæpir
KVIKMYNDIR»
Mr. Bean er í fyrsta sæti
Bíólistans. »37
Óttar M. Norðfjörð
rithöfundur hefur
gefið út teikni-
myndasöguna Jón
Ásgeir og afmæl-
isveislan. »36
BÓKMENNTIR»
Afmælis-
veislan
TÓNLIST»
Bono og The Edge semja
söngleikjatónlist. »36
FÓLK»
Danska prinsessan er
komin heim. »43
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Simon ranghvolfdi ekki augunum
2. Pétur tekur við starfi hjá 365
3. Sekt fyrir að valda hneykslan
4. Saklaus á bak við lás og slá
EFTIRSPURN eftir svokölluðum endurvinnslu-
tunnum hefur stóraukist það sem af er ári og reikna
forsvarsmenn Gámaþjónustunnar og Íslenska
gámafélagsins, ÍG, með að fjöldi tunna í útleigu
muni tvöfaldast á fjórum mánuðum fyrir fyrsta júlí.
Alls voru á milli 1.400 og 1.500 tunnur í útleigu í lok
febrúar sl. og áætla talsmenn fyrirtækjanna að
fjöldinn verði kominn upp í 3.000 fyrir fyrsta júlí nk.
og aukist enn frekar með bættri þjónustu síðar á
árinu.
Enn sem komið er eru þessi fyrirtæki þau einu
sem bjóða upp á slíkar tunnur, þar sem nokkrir
flokkar úrgangs, þ.á m. blaðapappír og drykkjar-
fernur, fara til endurvinnslu en ekki til urðunar líkt
og almennur heimilisúrgangur. Að sögn Jóns Ísaks-
sonar, markaðsstjóra Gámaþjónustunnar, hafði
fyrirtækið leigt út rétt rúmlega 1.100 tunnur í febr-
úarlok. Síðan hafi orðið „sprenging“ í eftirspurn-
inni, hátt í 300 hafi bæst við á höfuðborgarsvæðinu
og búist við 10 prósent aukningu í maí og júní.
Þá hafi viðbrögð við markaðssetningu tunnunnar
á Akureyri, Suðurnesjum, Akranesi og Borgarnesi
á síðustu vikum farið fram úr björtustu vonum og
um 350 tunnur verið leigðar á þeim stöðum frá
marsbyrjun. Þar af eru 175 á Akureyri, sem Jón tel-
ur „mjög mikið“. Því megi vænta þess að fjöldinn
verði kominn í 2.000 í byrjun júlí.
Suðurnesjamenn áhugasamir
Jón Þ. Frantzson, framkvæmdastjóri ÍG, segir
áhugann hafa aukist mjög á síðustu tveimur mán-
uðum, heildarfjöldi tunna í leigu hjá fyrirtækinu
hefur aukist úr hátt í 300 í lok febrúar í tæplega 700
nú. Þar af leigðu Suðurnesjamenn 130 tunnur á síð-
ustu tveimur vikum, eða frá því ÍG hóf að bjóða upp
á slíka þjónustu.
Báðir eru þeir sammála um að umræða í fjöl-
miðlum að undanförnu eigi þátt í stigvaxandi áhuga
á endurvinnslu og fullyrðir Jón Þ. að hún hafi haft
„gífurleg áhrif“. Þá hafi áhersla stjórnmálamanna á
þennan málaflokk einnig haft sitt að segja.
„Sprenging“ í leigu
endurvinnslutunna
Í HNOTSKURN
» Eftirspurnin er til marks um aukinnáhuga almennings á endurvinnslu.
» Fastlega má búast við að hún muniaukast enn frekar þegar Reykjavík-
urborg setur á næstunni á markað bláu
tunnuna, þjónustu sem byggist á sömu hug-
myndafræði.
» Gámaþjónustan reið á vaðið með sínatunnu í árslok 2005 og fylgdi ÍG svo á
eftir 2006.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
LAG Bjarkar Guðmundsdóttur
„Earth Intruders“ komst upp í 84.
sæti á bandaríska Billboard Hot 100-
smáskífulistanum um nýliðna helgi.
Lagið er að
finna á tilvonandi
plötu Bjarkar
Volta og er ekki
enn komið út á
smáskífu en það
er stafrænni sölu
í gegnum Netið
að þakka að lagið
er komið inn á
Billboard-listann
áður en það kem-
ur formlega út.
Þetta er í annað skiptið sem Björk
kemst inn á Hot 100-smáskífulistann
með lag, en síðast náði hún 88. sæti
árið 1993 með lagið „Big Time Sen-
suality“. Hún hefur aftur á móti átt
mörg topplög í Bretlandi og þrjú lög
hafa komist í fyrsta sæti á banda-
ríska danslistanum en með því að ná
84. sæti á Hot 100 mætti segja að
„Earth Intruders“ væri stærsti
poppsmellur Bjarkar í Bandaríkjun-
um hingað til og komi í veg fyrir að
hún kallist „eins smells stjarna“ þar í
landi.
Volta kemur út 7. maí.
Björk
komin á
Billboard
Earth Intruders í 84.
sæti smáskífulistans
Björk
Guðmundsdóttir
ÞEIR eru báðir svolítið súrir á svip-
inn, hvutti litli og fótboltakappinn
David Beckham, þar sem þeir sitja í
búðarglugga á Laugaveginum.
Ætli hvutti sé ekki að hugsa hvað
það væri gaman að spóka sig í góða
veðrinu enda hátt í 10°C hiti í höf-
uðborginni í gær og því tilvalið fyr-
ir hunda að njóta lífsins og þefa af
græna gróðrinum sem er að vakna
af vetrardvalanum.
Beckham er líklega að hugsa fátt
enda bara töffari á auglýsinga-
spjaldi fyrir sólgleraugu. Lítil þörf
verður fyrir sólgleraugu á sunn-
anverðu landinu næstu daga en íbú-
ar norðaustanlands ættu að geta
skartað slíkum megnið af vikunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Sitja súrir í búðarglugga
HUNDUR OG FÓTBOLTAKAPPI