Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 128. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SKOÐAR SJÁLFIÐ
ELÍN HANSDÓTTIR Í HÓPI HEIMSKUNNRA MYND-
LISTARMANNA Á SÝNINGU Í ÞÝSKALANDI >> 30
Í VITLAUSU KJÖRDÆMI
OG TUDDI Í FRAMBOÐI
Í SPARIFÖTUM
KOSNINGASÖGUR >> 12
framsokn.is
Árangur áfram - ekkert stopp
FORMENN stjórnmálaflokkanna
rýndu í niðurstöður síðustu skoð-
anakönnunar Capacent Gallup fyr-
ir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið
áður en umræður þeirra hófust í
sjónvarpssal í gærkvöldi.
Frá vinstri eru þau Steingrímur
J. Sigfússon, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Geir H. Haarde, Jón
Sigurðsson og Guðjón Arnar Krist-
jánsson.
Ómar Ragnarsson var í nýju hlut-
verki í sjónvarpssal, sem flokks-
leiðtogi en ekki spyrill. Á minni
myndinni bera þeir Geir Haarde
forsætisráðherra saman bækur
sínar.
Formenn
rýna í
tölurnar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hver vinnur og hver tapar í kosningunum samkvæmt síðustu skoðanakönnuninni?
hangið á bláþræði samkvæmt Gall-
up-könnununum, hún ýmist verið
með nauman meirihluta eða stjórn-
arandstaðan náð eins þingmanns
meirihluta.
Samkvæmt nýjustu raðkönnun-
inni er stjórnin fallin en séu allar
kannanir Gallup í vikunni, með 3.160
manna úrtaki, lagðar saman heldur
stjórnarmeirihlutinn með 49,9% at-
kvæða og 32 þingmenn.
Svipuð mynd birtist þegar skoðuð
eru svör kjósenda við spurningunni
hvort þeir styðji stjórnina eða séu
henni andvígir. Alla vikuna hafa
fylkingarnar verið nánast hnífjafnar
og þegar öll svör vikunnar eru lögð
saman segjast 50,5% þeirra, sem
tóku afstöðu, styðja stjórnina en
49,5% eru henni andvíg.
Þótt þingmeirihluti stjórnarinnar
haldi er hins vegar langt í frá sjálf-
gefið að hún haldi samstarfi sínu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN missir þing-
meirihluta sinn samkvæmt niður-
stöðum síðustu raðkönnunar Gallup
fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarp-
ið, sem gerð var dagana 9. til 10. maí.
Samkvæmt könnuninni fær Sjálf-
stæðisflokkurinn 38,4% og bætir
heldur við sig á lokasprettinum.
Fylgi Framsóknarflokksins dalar á
ný og mælist nú 10,3%. Samanlagt
eru þetta 48,7%, sem skila stjórnar-
flokkunum 31 þingmanni.
Kaffibandalagið svokallaða hefur
hins vegar nauman þingmeirihluta
með 32 þingmenn, samkvæmt niður-
stöðum könnunarinnar. Frjálslyndir
fá 6%, Vinstri grænir 17,6% og Sam-
fylking 25,8%.
Alla vikuna hefur líf stjórnarinnar
áfram og gerist langlífasta stjórn Ís-
landssögunnar.
Framsókn í vinstri stjórn?
Innan Framsóknarflokksins eru
tvö sjónarmið áberandi á lokaspretti
kosningabaráttunnar. Annað þeirra
er að fái flokkurinn ekki meira en
10–11% atkvæða eigi hann að vera
utan stjórnar og endurnýja sig í
stjórnarandstöðu.
Hitt er að flokkurinn eigi að skipta
um lið og fara í vinstri stjórn; eitt
kjörtímabil enn með Sjálfstæðis-
flokknum myndi endanlega gera út
af við flokkinn. Í vinstri stjórn fengi
hann hins vegar tækifæri til að sýna
á sér nýjar hliðar – og meiri völd,
enda yrði hann í oddaaðstöðu og
gæti jafnvel krafizt stjórnarforystu
gegn stuðningi við vinstri stjórn.
Það sem gæti styrkt stöðu Fram-
sóknarflokksins í viðræðum um slíka
vinstri stjórn með gamla laginu er að
þrátt fyrir að Kaffibandalagið fengi
meirihluta treysta Vinstri græn og
Samfylkingin frjálslyndum ekki
nema mátulega. Ýmis þingmanns-
efni flokksins eru lítt reynd í pólitík
og tiltölulega óþekkt stærð. Fram-
sóknarflokkurinn getur því verið
vænlegri samstarfskostur vinstri-
flokkanna enda væntanlega bæði
með fleiri þingmenn og meiri reynslu
af stjórnarsamstarfi en Frjálslyndir.
Líf stjórnarinnar hangir á bláþræði
Í HNOTSKURN
» Á mánudag virtist stjórn-in myndu lifa með 32
menn, á þriðjudag var hún
fallin með 31.
» Á miðvikudag hresstisthún verulega; hefði fengið
33 þingmenn miðað við tölur
Gallup.
»Á fimmtudag minnkaðimeirihlutinn í 32 og nú
stefnir í að stjórnin falli.
Ríkisstjórnin með 31 þingmann í síðustu raðkönnun Gallup Áframhaldandi samstarf stjórnarflokk-
anna óvíst jafnvel þótt meirihlutinn haldi Fylgjendur og andstæðingar stjórnarinnar álíka margir
Meirihlutinn virðist fallinn | 4
!"
#
$%
&
'&
!"
(
HELGI Tómasson er virtur dans-
frömuður á heimsmælikvarða sem
ritað hefur nafn sitt á spjöld danssög-
unnar, bæði sem dansari, listdans-
stjóri og danshöfundur,“ segir Anna
Kisselgoff sem lét af störfum sem að-
aldansgagnrýnandi New York Times
á síðasta ári en hún hefur fylgst með
ferli Helga í rúm þrjátíu ár og var
fyrsti gagnrýnandinn sem spáði hon-
um frama í dansheiminum.
Kisselgoff, sem kemur til landsins
til að fylgjast með sýningu San
Francisco-ballettsins á Listahátíð í
Reykjavík, segir að nánast útilokað
sé að benda á nokkra veikleika í dansi
Helga. „Helgi var í raun hinn full-
komni dansari,“ segir hún og bætir
við: „Það var alltaf svo mikil mennska
í dansi Helga, einhver mannlegur
þáttur í túlkun hans.“
Kisselgoff segir ennfremur að
Helgi hafi unnið mikið afrek sem list-
rænn stjórnandi San Francisco-
ballettsins: „Hann fer sér að engu
óðslega en er mjög sterkur stjórn-
andi. Það að hann er hljóðlátur í
framgöngu þýðir ekki að hann sé
feiminn eða óákveðinn.“
Helgi Tómasson hefur ritað
nafn sitt á spjöld sögunnar
Helgi Tómasson Anna Kisselgoff
Helgi Tómasson | Lesbók