Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn-
arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HEILSUVIKU lauk í Vesturbæjarskóla í gær. Meðan á
henni stóð var lögð áhersla á fjóra þætti; hreyfingu,
mataræði, öryggi í íþróttum og geðheilbrigði.
Hvern dag vikunnar var dagskrá helguð efninu.
Bekkirnir unnu verkefni, fóru í heimsóknir og fengu
gesti. Í gærmorgun hjálpuðu nemendur í sjöunda bekk
Árna Þór Arnórssyni, matreiðslumeistara skólans, að
undirbúa hlaðborð í hádeginu þar sem vitaskuld var
lögð áhersla á hollustu.
Hér fylgjast Hrefna Birna Björnsdóttir umsjónar-
kennari og nokkrir nemendur með Árna Þór gera
grein fyrir krásunum á hlaðborðinu.
Hollusta í heilsuviku
Morgunblaðið/RAX
FJÖLMARGT starfsfólk vant-
ar í ferðaþjónustustörf í sumar,
bæði faglært og ófaglært, í ým-
is störf. Þensla og meiri eftir-
spurn veldur þessu og koma
fjölmargir erlendir starfsmenn
af Evrópska efnahagssvæðinu
til vinnu á vettvangi ferðaþjón-
ustunnar hérlendis í sumar líkt og undanfarin ár –
en samt vantar fólk.
Víða erfitt að manna stöður
Að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra
Samtaka ferðaþjónustunnar, vantar margt viðbót-
arfólk til starfa í sumar og erfitt er að manna stöð-
ur víða. Mörgum hefur þó tekist að ljúka ráðn-
ingum en það á þó alls ekki við um alla. „Víða er
erfitt að fá faglært matreiðslu- og framreiðslu-
fólk,“ bendir Erna á. Hún segir að almennt sé
skortur á matreiðslufólki í Evrópu og Ísland sé
engin undantekning hvað það varðar.
Yfir sumartímann þarf viðbótarstarfskraft á
mörgum sviðum ferðaþjónustunnar, allt frá bens-
ínsjoppum til hótela og afþreyingarfyrirtækja, að
meðtöldum bílaleigum og rútufyrirtækjum, svo
eitthvað sé nefnt.
Allir þurfa að bæta við
fólki yfir háannatímann
„Flóran er gríðarlega fjölbreytt og allir þurfa að
bæta við fólki hjá sér yfir háannatímann,“ segir
Erna. „Það er mikið af útlendingum í vinnu við
ferðaþjónustuna og þessi atvinnugrein er í svip-
uðum sporum og margar atvinnugreinar varðandi
vinnuafl, þó að árstíðasveiflan sé meiri hjá okkur.“
Erna bendir á að lengi hafi verið erfitt að fá fag-
fólk til starfa og ekki batni ástandið nú þegar at-
vinnuleysi hefur nánast aldrei verið jafnlítið. „Al-
mennt á landinu er því mannekla og hún er nú
meiri en verið hefur síðustu árin,“ segir hún. „Það
er mikil þensla og mikil eftirspurn alls staðar.“
Vantar í ferðaþjónustu
Margt viðbótarfólk þarf til starfa í ferðaþjónustu í sumar og víða er erfitt að
manna stöður Mikill skortur er á faglærðu matreiðslu- og framreiðslufólki
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Erna Hauksdóttir
Morgunblaðið/RAX
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms yfir erlendum manni vegna
rannsóknar á alvarlegu kynferðis-
broti á Hótel Sögu þegar ungri
konu var nauðgað þar 17. mars sl.
Hinn grunaði situr í gæsluvarðhaldi
til 6. júní samkvæmt dómi Hæsta-
réttar. Rannsókn málsins er á loka-
stigi hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu.
Hinn grunaði hefur gengist undir
geðrannsókn sem tók lengri tíma
en ráðgert var vegna hegðunar
hans. Lögreglan taldi rétt að bíða
með yfirheyrslu yfir honum þar til
niðurstaða geðrannsóknar lægi fyr-
ir, svo og niðurstaða sálfræðirann-
sóknar á konunni sem kærði at-
burðinn. Af þessum ástæðum hefur
útgáfa ákæru tafist. Lögreglan vildi
fá gæsluvarðhaldið framlengt þar
sem hún taldi manninn hættulegan
öðrum konum ef hann gengi laus.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Hrafn Bragason, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Jón Steinar
Gunnlaugsson.
Áfram í
gæslu-
varðhaldi
Sakaður um að hafa
nauðgað ungri konu
Í DAG eru allar
líkur á því að
kjósendur á suð-
urhelmingi
landsins fái mun
betra kosninga-
veður en kjós-
endur á norð-
urhelmingi þess.
Spáð var létt-
skýjuðu að
mestu fyrir
sunnan en úr-
komu á Norðaustur- og Austur-
landi. Að sögn Óla Þórs Árnason-
ar, veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands, gæti byrjað að snjóa á
Norðausturlandi með morgninum
en búist var við einhverjum élja-
gangi á öllu Norðurlandi í nótt.
Að sögn Óla Þórs er ekkert óeðli-
legt við snjóhret í fyrrihluta maí.
Búist er við úrkomu á Vest-
fjörðum og Norðvesturlandi í dag
en þó ekki eins mikilli og á Norð-
austur- og Austurlandi. Hiti verð-
ur á bilinu 0–10 stig, heitara
verður þó á sunnanverðu landinu.
Á kjördag fyrir fjórum árum
var frekar svalt á landinu öllu
eða 5–8 stiga hiti en engin snjó-
koma.
Sólskin eða él
á kosningadag
Veður verður gott
fyrir sunnan í dag,
ef að líkum lætur.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
drög að samningi við hjúkrunar-
heimilið Eir um úthlutun bygging-
arréttar fyrir öryggisíbúðir í Spöng-
inni og samstarf, samvinnu og
verkaskiptingu vegna framkvæmda
og rekstrar byggingar öryggisíbúða
og þjónustu- og menningarmiðstöðv-
ar í Spönginni í Grafarvogi.
Samkvæmt samningnum byggir
Eir öryggisíbúðirnar og Reykjavík-
urborg þjónustu- og menningarmið-
stöðina. Í henni er meðal annars gert
ráð fyrir aðstöðu fyrir Miðgarð,
Borgarbókasafn, íþrótta- og tóm-
stundaráð, heimaþjónustu, heima-
hjúkrun, matsal, fundarsal, kirkju-
sel, lögreglu, dagdeild, fótaaðgerðar-
stofu, hársnyrtingu, sjúkraþjálfun
og læknis- og hjúkrunaraðstöðu.
Innangengt verður úr öryggisíbúð-
unum í þjónustu- og menningarmið-
stöðina.
Í desember 2005 fól borgarráð
framkvæmdasviði borgarinnar að
vinna frumáætlun vegna byggingar
þjónustu- og menningarmiðstöðvar í
Spönginni. Í júní í fyrra skipaði
borgarstjóri starfshóp til að setja
fram tillögur um úrræði í húsnæðis-
málum aldraðra og í október sl. var
skrifað undir viljayfirlýsingu við Eir
um uppbyggingu þjónustu- og ör-
yggisíbúða auk þjónustu- og menn-
ingarmiðstöðvar í Spönginni.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, segir að þessi miðstöð sé
löngu tímabær og geti orðið mikil
lyftistöng fyrir hverfið.
Reykjavík
semur við Eir
Borgin reisir menningarmiðstöð
ÍTARLEG umfjöllun verður um úr-
slit alþingiskosninganna á mbl.is,
fréttavef Morgunblaðsins. Hægt
verður að fletta upp öllum tölum sem
kjörstjórnir birta um úrslit í ein-
stökum kjördæmum. Þar verður
einnig hægt að fá upplýsingar um
hvaða menn eru inni miðað við töl-
urnar og hve miklu munar á þeim og
næstu mönnum.
Á fréttavefnum verður lögð
áhersla á að ná tali af frambjóðend-
um og fá viðbrögð frá þeim við úrslit-
um kosninganna. Einnig verður þar
að finna viðbrögð forystumanna
flokkanna við úrslitunum og frétta-
skýringar um stöðu mála.
Vakt verður á fréttavefnum þar til
úrslit liggja fyrir. Þar verður því
hægt að fletta upp endanlegum töl-
um í einstökum kjördæmum um leið
og þær liggja fyrir. Sömuleiðis nöfn-
um þeirra sem kjörnir hafa verið á
þing til næstu fjögurra ára.
Hægt að fylgjast með
útsendingu RÚV á mbl.is
Sú nýjung verður á fréttavef
Morgunblaðsins að þessu sinni að
hægt verður að horfa á útsendingu
Ríkissjónvarpsins með því að tengj-
ast mbl.is.
Á kosningavef Morgunblaðsins
eru upplýsingar um skoðanakannan-
ir sem birtust fyrir kosningar og
fréttir sem tengjast kosningunum og
fleira.
Allar tölur
og viðtöl
á mbl.is
♦♦♦
VINNUSLYS varð við brunarústir
húsanna á horni Lækjargötu og
Austurstrætis í Reykjavík í gær
þegar karlmaður féll af vinnupalli.
Hann var fluttur til meðferðar á
brjóstholsdeild LSH en læknar á
slysadeild töldu að rétt væri að
fylgjast með því að brotin rifbein
styngjust ekki inn í lungu og
hjarta.
Maðurinn féll í götuna úr um
þriggja metra hæð og er talinn
vera alvarlega slasaður en ekki í
lífshættu.
Þá féll maður niður í lest við
löndun úr fiskiskipinu Kap VE í
Vestmannaeyjahöfn í gær.
Féll af
vinnupalli