Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 6
Í HNOTSKURN » Mönnun fæðingardeildaút á landi fer batnandi þar sem nýútskrifaðar ljósmæður skila sér heim í hérað eftir nám. » Fæðingum á Vestfjörðumhefur fækkað úr 100, þeg- ar mest var, í 60 á síðasta ári. » Metár var í fæðingum áAkranesi árið 2006 og en bætir í, eru nú orðnar 115 en voru 78 á sama tíma í fyrra FÆÐING einstaklings er mikill við- burður í lífi foreldra. Nú hafa heil- brigðisstofnanir farið að birta til- kynningar um fæðingar á heimasíðum sínum og fylgir þeim mynd af nýburanum. Með þessu móti er nú fjarstöddum fjölskyldu- meðlimum og vinum gert mögulegt að líta nýjan fjölskyldumeðlim augum fljótlega eftir fæðingu. Mælist vel fyrir Morgunblaðið hafði tal af ljós- mæðrum víðsvegar um landið til að forvitnast um viðtökur á þessari nýj- ung. Sigrún Kristjánsdóttir, ljós- móðir á Heilbrigðisstofnun Suður- lands, sagði myndbirtingar af nýburum hafa byrjað árið 2005. Að sögn Sigrúnar er það gert með samþykki foreldra. Þessu sé afar vel tekið og hún viti ekki um neinn sem hafi hafnað því. Undir þetta tekur stallsystir henn- ar Halldóra Karlsdóttir hjá Heil- brigðisstofnun Ísafjarðarbæjar. Það eru nokkrar vikur síðan þau fóru að birta myndirnar en nú séu allir ný- burar frá áramótum komnir inn. Hún segir viðtökur foreldra afskaplega góðar og síðuna mikið heimsótta af fjölskyldu og vinum. Á Sjúkrahúsinu á Akranesi og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er sömu sögu að segja af viðtökum en myndirnar eru víðast settar inn eins fljótt og verða má. Fæðingardeildir stóru sjúkrahús- anna, Landspítala Háskólasjúkra- húss og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, hafa ekki tekið upp þann sið að birta myndir af nýburum á heimasíðum sínum. Fæðingum fækkað á Vestfjörðum Í ljósi umræðu um fyrirsjáanlega fjölgun fæðinga á kvennadeild LSH í sumar og manneklu á deildinni lék Morgunblaðinu forvitni á að fræðast um stöðu mála annars staðar um landið. Á Akureyri hefur fæðing- artíðni haldist nokkuð jöfn und- anfarin ár, um 420 börn hafa fæðst á ári. Að sögn Ingibjargar H. Jóns- dóttur yfirljósmóður er gert ráð fyrir einhverri fjölgun fæðinga í júl- ímánuði. Það muni því verða meira álag á starfsfólk þá enda gangi erf- iðlega þar eins og víðar að ráða fólk til afleysinga. Aftur heim eftir ljósmóðurnám Á Ísafirði fengust þær upplýsingar að fæðingartíðni væri svipuð nú og undanfarin ár, eða um 60 á ári. Þetta sé þó mun minna en þegar mest var áður fyrr þegar fæðingar voru um 100 á ári, að sögn Halldóru Karls- dóttur ljósmóður. Sara Hauksdóttir, ljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Akranesi, sagði að um verulega fjölgun fæðinga væri að ræða hjá þeim. Á sama tíma í fyrra hefðu verið komnar 78 fæðingar en væru nú orðnar 115. Þó hafi árið 2006 verið met ár, eða 238 fæðingar. Anna Rut Sverrisdóttir, yfirljós- móðir á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja, segir fæðingartíðni fara vax- andi núna en fyrir tveimur árum hafi verið fækkun. Mönnun hjá henni væri orðin nokkuð góð og útlitið ágætt fyr- ir sumarið. Því væri helst að þakka að nýútskrifaðar ljósmæður væru að skila sér heim og það væri svo víðar. Hafdís Edda Eggertsdóttir, yf- irljósmóðir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað, sagði nýútskrifaða ljósmóður vera að koma til starfa og ekki vanþörf á þar sem hún hefði ver- ið ein nú um nokkurn tíma. Fæð- ingum á Austurlandi hafi fjölgað úr um 50 á ári í 70 árið 2006 og útlit fyrir að maí og júní verði mjög líflegir hjá sér. Á Selfossi verður annasamt sumar, en fæðingartíðni hefur verið nokkuð jöfn undanfarin ár eða 150 til 160 fæð- ingar á ári að sögn Sigrúnar Krist- jánsdóttur. Heimasíður mikið skoðaðar Morgunblaðið/Ásdís Netvæddir nýburar Á heimasíðum nokkurra heilbrigðisstofnana má nú sjá tilkynningar um fæðingar. Þessi ný- fædda dama lét sér þó fátt um tilstandið finnast en hún svaf værum blundi á fæðingardeild LSH í gærmorgun. Myndir af nýburum á Netinu mælast mjög vel fyrir af foreldrum og aðstandendum þeirra Eftir Þór Gíslason  Nýtt met í fæðingum á Akranesi 6 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is RÍFLEGA sautján þúsund manns fá nú að kjósa til Alþingis í fyrsta skipti en þessi fjöldi kjósenda er nánast á við heilt kjördæmi ef enn einn talnasamanburðurinn fær hér að líta dagsins ljós á síðustu klukku- stundum í aðdraganda þingkosning- anna 2007. Hér er reyndar vísað til fámennasta kjördæmis landsins, Norðvesturkjördæmis. Ef marka má kjörsókn á landsvísu í síðustu kosningum má gróflega reikna með að tæp 15 þúsund nýrra kjósenda neyti atkvæðisréttar síns að þessu sinni. Það er síðan önnur umræða hvort yngri kjósendur hafi minni áhuga á kosningum og pólitík en hinir eldri. Hins vegar má á það benda að í síðustu kosningum tók yngri kynslóðin duglegan kipp í röð- um frambjóðenda og síðar þeirra sem náðu kjöri því þá settust þrír þingmenn undir 27 ára aldri á þing og hafa aldrei verið fleiri. Allt um það, ríflega 221 þúsund manns hafa kosningarétt um land allt og eru konur heldur fleiri en karlar. Kjós- endum með lögheimili erlendis hef- ur fjölgað lítillega frá síðustu kosn- ingum, eru nú 8.793 talsins eða 4% kjósendatölunnar. Hefur þeim fjölg- að um 65 frá síðustu kosningum. Lokað kl. 22 á kjördag Um upphaf og lok kjörfundar gilda þær reglur að kjörstaðir skulu opnaðir á bilinu 9–12 árdegis og skal sveitarstjórn eða yfirkjörstjórn auglýsa nákvæma tímasetningu með hæfilegum fyrirvara. Megin- reglan við lok kjörfundar er að at- kvæðagreiðslu megi ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Frá þessari meginreglu er þó sú und- antekning að atkvæðagreiðslu megi slíta ef allir sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukku- stundir ef öll kjörstjórnin og um- boðsmenn eru sammála um það, enda sé hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó slitið eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Í Suðurkjördæmi eru 30.597 þús- und manns á kjörskrá og fjölgar um rúm tvö þúsund frá síðustu kosn- ingum. Atkvæðin verða talin í Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi. Í Suðvesturkjördæmi, langfjöl- mennasta kjördæminu, eru 54.584 á kjörskrá og fjölgar umtalsvert frá síðustu kosningum, eða um tæplega 6 þúsund manns. Í kjördæminu eru kjördeildir 47 talsins og atkvæði verða talin í Íþróttahúsinu við Kaplakrika og fyrstu tölur birtar um kl. 22 að sögn Bjarna S. Ás- geirssonar, formanns yfirkjör- stjórnar. í Norðvesturkjördæmi eru 21.126 manns á kjörskrá og eru kjördeildir 52. Talning fer fram í Íþróttahúsinu í Borgarnesi við Þorsteinsgötu og ráðgert að birta fyrstu tölur um kl. 22. Sömu sögu er að segja úr Norð- austurkjördæmi en talning fer fram í KA-heimilinu á Akureyri. Á kjör- skrá eru 27.888 manns og fjölgar um tæp 1.800 frá síðustu kosning- um. Kjördeildir eru 44 og gerir Jón Kr. Sólnes, formaður yfirkjörstjórn- ar, ekki ráð fyrir því að norðanhret- ið sem er í veðurkortunum spilli mikið fyrir söfnun atkvæða. Reykjavíkurkjördæmin tvö, suður og norður, hafa samanlagt ríflega 96 þúsund manns á kjörskrá. Í Reykja- víkurkjördæmi suður eru 43.398 kjósendur og eru kjördeildirnar 40. Verður talið í íþróttahúsi Haga- skóla. Í Reykjavíkurkjördæmi norð- ur eru 43.775 manns á kjörskrá og eru kjördeildir 39. Talning fer fram í Ráðhúsinu. Löng kosninganótt framundan Morgunblaðið/Brynjar Gauti Margir kassar Þessir kjörkassar voru fluttir á börum inn í Ráðhús Reykjavíkur í gærkvöldi.  Hvað skila sér margir úr hópi nýrra kjósenda?  Fyrstu tölur birtast um klukkan 22 í kvöld STARFSFÓLK kjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður vann að því í gær að koma kjörseðlum fyrir í innsiglaðri geymslu til notkunar á kjörstöðunum sex í dag. Mikillar umferðar má vænta á kjörstöðum víða um land en hinu má ekki gleyma að hægt er að kjósa víðar en á kjörfundi. Margir nýta sér utankjörfundarkosn- ingu og eins má fólk kjósa heima hjá sér ef ákveðnum skilyrðum er fullnægt samkvæmt lögum. Kjósa má á skipum, sjúkrastofnunum og í fangelsum. Kosning fór fram á fimmtudag í fangelsinu Litla-Hrauni. Feiknamikil utankjörfundaratkvæðagreiðsla var í Laugardalsöll í gær í umdæmi sýslumannsins í Reykja- vík, þ.e. báðum Reykjavíkurkjördæmunum og í Suð- vesturkjördæmi. Voru tæp 11 þúsund atkvæði greidd um kl. 19 og 1.350 aðsend að auki. Var þetta þegar orð- ið um 1.700 atkvæðum meira en í síðustu kosningum. Utankjörfundaratkvæðin fara í innsiglaða kjörkassa sem fluttir eru í Ráðhúsið á kjördag og dreift í viðeig- andi kjördeild. Þar eru atkvæðin talin þegar lokað hef- ur verið fyrir atkvæðagreiðslu. Kjósendur sem kosið hafa utan kjörfundar, geta fram að því komið á kjör- fund og greitt atkvæði aftur og þar með ógilt utankjör- fundaratkvæðið sitt ef þeim hefur snúist hugur í milli- tíðinni. Fleiri kjósa nú utankjörfundar en síðast
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.