Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 10
10 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Vorum við ekki frekar að hugsa um einhvern lit í stíl við kortareikninginn heldur en garð-
inn okkar, var það ekki, Nonni minn?
VEÐUR
Ómar Ragnarsson, formaður Ís-landshreyfingarinnar, hélt í
eitt hálmstrá í sjónvarpsumræð-
unum í gærkvöldi. Það hálmstrá
var Ólafur F. Magnússon, læknir,
sem Ómar hélt fram, að hefði
tvöfaldað fylgi sitt í borgar-
stjórnarkosningum á sínum tíma á
einum degi.
Þessi röksemddugar Ómari
ekki. Líkurnar á
því, að daglegar
skoðanakannanir
í þessari viku
hafi náð að end-
urspegla hreyf-
ingar á meðal
kjósenda eru miklar. Og sam-
kvæmt þeim á Íslandshreyfingin
enga möguleika á að koma manni
á þing.
Auðvitað er hugsanlegt að Ómarihafi tekizt að snúa svo mörg-
um kjósendum til fylgis við sig í
sjónvarpsumræðunum, sem fram
fóru eftir að niðurstöður síðustu
skoðanakönnunar lágu fyrir að það
dugi honum til að komast á þing en
það er mjög ósennilegt.
Það er umhugsunarefni hversvegna Íslandshreyfingunni
hefur gengið svona illa.
Kannski er það vegna þess, aðsviðsljósið hefur nánast ein-
göngu beinzt að Ómari og Margrét
Sverrisdóttir hefur varla sést.
Kannski er það rétt, sem Þor-steinn Pálsson, ritstjóri Frétta-
blaðsins, hefur sagt, að þjóðin hafi
fengið útrás í kosningunni í Hafn-
arfirði og umhverfismálin horfið af
dagskrá.
En að kvöldi föstudags fyrir kjör-dag er ljóst að hvorki frægð né
væntumþykja heillar þjóðar er
örugg trygging fyrir kjöri á þing.
STAKSTEINAR
Ómar Ragnarsson
Ónýt röksemd
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!" #
:
*$;<
!"" " #
$ "
% " &' "
*!
$$; *!
$% & "
% "
'
("
)(
=2
=! =2
=! =2
$'"&
*
#
+,!(-
<
62
.&$/0
& - 1
"
(
(
#
!%
2 ("3
(
# .
#% (
;
4! 0"+
"
(" (
0
& (
&$"
#" )
("$
3(450
#
.
%6 (
*
4/0"+
(
&
1
$'!"
1## " )
("
4/0
#
$0
#
.
# ("2
$50
#
71(66
("5 (
!(*
#
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Stefán Friðrik Stefánsson | 11. maí
2007
Samsæri í Eurovision
Ólgan hefur oft verið
ráðandi hér heima,
allt frá því að Selmu
Björnsdóttur mis-
tókst að komast upp
úr botninum með If I
had your love í maí
2005 í keppninni í Kiev. Í fyrra var
talað um að Silvía Nótt hefði
skemmt fyrir sér og því ekki komist
áfram. Staða Eiríks nú vekur nýjar
spurningar.
Meira: stebbifr.blog.is
Eva Þorsteinsdóttir | 11. maí 2007
Hreiðurgerð
óléttrar konu
Hreiðurgerð óléttrar
konu er eitt magnaðasta
fyrirbrigði mannlegs
eðlis. Kona sem að öllu
jöfnu telst í fullkomnu
jafnvægi og ballanserar
lífi sínu á fullkominn
máta, umbreytist á einhvern dul-
arfullan hátt í hugsun og forgangs-
röðun um leið og hún kemst að því
að nýr einstaklingur hefur tekið sér
bólfestu í líkama hennar.
Meira: evathor.blog.is
Jakob Smári | 11. maí 2007
Höldum bara okkar
eigin keppni
Ég legg til að við Ís-
lendingar höldum bara
okkar eigin Eurovisi-
onkeppni og leyfum
engum öðrum að taka
þátt. Ekki einu sinni
Færeyingum, og alls
ekki Pólverjum. Þá er allavega
öruggt að það verður íslenskt lag í
fyrsta sæti og íslenskur flytjandi.
Þetta gæti verið einskonar hreppa-
keppni eða keppni á milli kaupstaða.
Meira: jakobsmagg.blog.is
Anna Karen | 11. maí 2007
Síðbúin undan-
úrslitaskýrsla
Búlgaría – Engan veg-
inn eins flott og í
myndbandinu, en ég
held samt með laginu
áfram vegna mynd-
bandsins.
Ísrael – 30% fyndið
og 70% sorglegt. En ég virði þá mjög
fyrir að minna mig á húbba húlla.
Evridikí frá Kýpur er lang-
flottasta kellan sem hefur nokkru
sinni tekið þátt.
Lagið skipti engu en útlit hennar
var æðislegt. Hún klæddist meir-
aðsegja í silfur Verka til heiðurs. Og
röddin hennar er ekkert smá þægi-
leg og kúl.
Herra Colgatebros eða hvað sem
hann hét frá Hvíta-Rússland var
yndislegur. Þetta var ótrúlega hall-
ærislegt og væmið atriði, miðað við
hvað myndbandið var flott, en hann
sjálfur heillaði mig.
Ég veit ekki hvað það er með mig
og Rússa, þeir er bara svo mjóir og
hvítir oftast. Ef bætt er við söng þá
ræð ég ekki við mig. Hann hlýtur að
fljúga inní úrslitin.
Ísland – Vá, Eiki bætti upp fyrir
að hata Verka!!! Þvílíkur töffari og
söngvari. Mér er sama hvort við
komumst áfram eða ekki. Eiki var
töfrandi svalur.
Georgía – Ótrúlega rosalega flott.
Svartfjallaland – Leiðinlegt lag en
búningarnir voru flottir og sýndu
mismunandi blæbrigði mannkyns-
sögunnar.
Sviss – Úps, ekki einu sinni ég
heillast af þessum vampírum. Mig
langaði samt alveg til þess, en jamm,
það er erfiðara að vera hræddur við
dj Bobo en Lestat.
Nærbuxnalausa Natalía frá Mol-
davíu stóð sig prýðilega, já hreint al-
veg prýðilega. Bardagastúlka. Ég
held með henni.
Holland – Leiðinlegt.
Albanía – Leiðinlegt.
Þegar dramadrottningin danska
kom á sviðið fannst mér einsog væri
kominn hálfleikur í keppninni og
núna væri talsmaður keppninnar að
skemmta okkur… Þetta var rosa-
lega miðsvæðis…
Króatía – Gamaldags. Mig langar
ekki að skjóta mig í hausinn af leið-
indum, en það er eina hrósið sem
þetta lag fær frá mér.
Meira: halkatla.blog.is
BLOG.IS
UMHVERFISRÁÐHERRA hefur
skipað sérfræðinganefnd til að kanna
möguleika á samdrætti í nettólosun
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Nefndin er skipuð í samræmi við
stefnumörkun stjórnvalda í loftslags-
málum sem ríkisstjórnin samþykkti
15. febrúar sl.
Nefndin á að fjalla um möguleika á
að draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda í eftirfarandi geirum: orkufram-
leiðslu; samgöngum og eldsneytis-
notkun; iðnaðarferlum; sjávarútvegi;
landbúnaði; og meðferð úrgangs.
Einnig skal farið yfir möguleika á
bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi
og hugsanlega í jarðlögum eða undir
hafsbotni.
Aðgerðir til skemmri tíma
Nefndinni er falið að meta kosti og
hagkvæmni helstu aðgerða sem
nefndar eru í stefnu stjórnvalda til að
minnka verulega nettólosun gróður-
húsalofttegunda, auk annarra að-
gerða sem til greina kæmu í sama til-
gangi. Nefndin skal einkum skoða
möguleika á aðgerðum sem hafa áhrif
til skemmri tíma, þ.e. á næsta áratug
eða svo, en einnig fjalla um möguleika
á tæknilegum lausnum sem gætu haft
umtalsverð áhrif síðar.
Nefndin á að bera stöðu Íslands
saman við stöðu annarra ríkja varð-
andi möguleika á minnkun losunar og
hversu loftslagsvænir helstu þættir
atvinnulífsins og samfélagsins teljast.
Nefndin skal skila skýrslu til um-
hverfisráðherra fyrir 31. mars 2008,
þar sem fram koma möguleikar á að
draga úr losun eða auka bindingu í
einstökum geirum, auk mats á kostn-
aði og hagkvæmni einstakra leiða. Að
þeim tíma loknum verður tekin
ákvörðun um hugsanlegt áframhald
vinnu nefndarinnar.
Í nefndinni sitja: Brynhildur Dav-
íðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands í
umhverfis- og auðlindafræðum, for-
maður, Ágústa Loftsdóttir, starfs-
maður Vettvangs um vistvænt elds-
neyti, Birna Hallsdóttir, sérfræðing-
ur hjá Umhverfisstofnun, Bryndís
Skúladóttir, efnaverkfræðingur hjá
Samtökum iðnaðarins, Daði Már
Kristófersson, hagfræðingur hjá
Bændasamtökum Íslands, Guðberg-
ur Rúnarsson, verkfræðingur, fram-
kvæmdastjóri Landssambands fisk-
eldisstöðva, Hreinn Haraldsson,
framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni,
Pétur Reimarsson, forstöðumaður
hjá Samtökum atvinnulífsins, og Þor-
steinn I. Sigfússon, prófessor við HÍ.
Sérfræðinganefnd
um loftslagsmál
Kanna möguleika á að draga saman
losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi