Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● LITLAR breytingar urðu á gengi
bréfa í Kauphöll Íslands í gær. Úr-
valsvísitalan OMX á Íslandi hafði
lækkað um 0,03% í lok gærdagsins
og endaði í 7.856 stigum.
Verð hlutabréfa í Teymi hækkaði
mest eða um 3,3% en af úrvalsvísi-
tölufélögunum var mesta hækkunin í
bréfum Atorku eða um 3% og bréf-
um Eimskipafélagsins um 2,7%.
Mesta lækkunin varð í bréfum
365 eða um rúm 1,4% og bréfum
Actavis sem lækkuðu um tæp 1,4%.
Gengi Marels lækkaði einnig eða um
1,1% og í Flögu um tæp 0,9%.
Litlar breytingar í
kauphöllinni í gær
● VÆNTANLEGT yfirtökutilboð Nova-
tor í Actavis hefur verið skoðað af
stjórn félagsins og var ákveðið að
leita til alþjóðlegs aðila um að gera
faglegt og óháð mat á tilboðinu sem
stjórnarmenn munu síðan nýta við
mat sitt til hluthafa. Í tilkynningu er
sagt að matið verði unnið eins fljótt
og hægt er, eftir að tilboðið hafi verið
kynnt hluthöfum og sú niðurstaða
kynnt þeim. Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, stjórnarformaður og aðal-
eigandi Novator, og stjórnar-
mennirnir Andri Sveinsson og Róbert
Wessman hafa óskað eftir að taka
ekki þátt í mati stjórnarinnar.
Stjórn Actavis fær
óháðan aðila í matið
● STJÓRN Icelandic Group hefur
ákveðið að flýta lokun verksmiðju
sinnar, Icelandic USA í Cambridge,
Maryland og nýta í staðinn verk-
smiðju sína í Newport News betur.
Gert hafði verið ráð fyrir að ljúka
framleiðslu í lok árs 2007 en lok-
uninni hefur verið flýtt til 8. júní nk.
Í tilkynningu er lokunin á Cam-
bridgeverksmiðjunni sögð loka-
hnykkurinn í sameiningu Icelandic
USA og Samband of Iceland sem
hófst 2005 og liður í að bæta arð-
semi Icelandic í Bandaríkjunum.
Icelandic flýtir lokun
verksmiðju í Maryland
● HREIN eign lífeyrissjóðanna jókst
um 18,4 milljarða króna í mars sl.,
eða um 1,2%, og nam 1.537 millj-
örðum króna. Þetta er samkvæmt
nýjum tölum frá Seðlabankanum en í
Morgunkorni Glitnis er bent á að
eignir lífeyrissjóðanna hafi á sama
tíma í fyrra aukist um 2,1%. Síðustu
tólf mánuði hafi eignir sjóðanna auk-
ist um 16% miðað við 28% síðustu
tólf mánuði þar á undan. Segir í
Morgunkorni að í mars í fyrra hafi líf-
eyrissjóðir verið að fjárfesta meira í
verðbréfum með föstum tekjum og
mikil aukning hafi verið í erlendum
verðbréfum. Í ár sé lítil aukning í inn-
lendum og erlendum bréfum.
Eignir lífeyrissjóðanna
jukust um 18 milljarða
VIÐAR Már Matthíasson, formaður
Yfirtökunefndar, segir ummæli Arn-
ars Sigurmundssonar á aðalfundi
Landssambands lífeyrissjóða í
fyrradag hafa verið mikla stuðnings-
yfirlýsingu við nefndina. Hann segir
að á fundi nefndarinnar með stofn-
aðilum síðastliðinn miðvikudag hafi
komið fram eindreginn vilji stofn-
aðila til þess að nefndin beitti slíkum
úrræðum. „Það kom líka fram að
stofnaðilarnir eru tilbúnir til þess að
axla þá ábyrgð sem því kann að
fylgja að þessu úrræði sé beitt. Þar
með talið hugsanlega fjárhaglega
ábyrgð því það er ekki hægt að úti-
loka að einhverjir telji sig verða fyrir
fjárhagslegu tjóni séu nöfn þeirra
birt og gætu viðkomandi hugsanlega
viljað knýja á um bætur. Yfirtöku-
nefnd er ekki sjálfstæður lögaðili
heldur starfar hún á ábyrgð stofn-
aðila. Við fengum mikinn stuðning á
fundi okkar með stofnaðilum og telj-
um okkur nú í stakk búin til þess að
beita þessu úrræði.“
Viðar segir að á fundi nefndarinn-
ar og stofnaðila hafi því verið beint
til Samtaka fjármálafyrirtækja „að
þeir tryggðu að áður en til slíkrar
milligöngu um viðskipti yrði stofnað,
myndu þeir tryggja fyrirfram heim-
ild til að afhenda Yfirtökunefnd gögn
og upplýsingar“.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri SFF, segir stjórn samtakanna
munu funda í næstu viku og verður
málið þá tekið fyrir.
Mikilvæg stuðnings-
yfirlýsing við nefndina
VÍSITALA neysluverðs (VNV) hef-
ur hækkað um 4,7 prósent síðast-
liðna tólf mánuði en án húsnæðis
nemur hækkunin um 2,5 prósentum.
VNV í maí hækkaði um 0,86% milli
mánaða sem minnkaði verðbólguna á
12 mánaða tímabili úr 5,7% í 4,3% og
hefur hún ekki mælst lægri síðan í
mars á síðasta ári. Ef ekki hefði
komið til skattalækkunar í mars
hefði verðbólgan mælst 6,5%. VNV
hefur hækkað um 1,1% síðustu þrjá
mánuði sem jafngildir um 4,6% verð-
bólgu á ársgrundvelli.
Þessar tölur eru talsvert hærri en
spár greiningardeilda bankanna
gerðu ráð fyrir en þeir eru sammála
um að Seðlabankinn muni ekki ná
2,5% verðbólgumarkmiði sínu í ár,
þó áfram takist að draga úr verð-
bólgunni. Greiningardeild Glitnis
bendir á að mikil undirliggjandi
verðbólga komi fram í kjarnavísitöl-
um sem hækkuðu verulega milli apr-
íl og maí og hafi þær hækkað meira á
ársgrundvelli en VNV, eða um tæp
6%.
Hækkun vísitölunnar má m.a.
rekja til áframhaldandi hækkunar á
húsnæðisverði sem nam um 0,9%
milli mánaða og þrátt fyrir lækkun
virðisaukaskatts og sterkari krónu á
árinu hækkaði matvöruverð um 1,3%
á milli mánaða. Verð á eldsneyti hef-
ur sömuleiðis haldið áfram að hækka
og var hækkunin um 3,1%.
Aukinn verðbólguþrýstingur
( )*
.
.
6&#% &2% # &!7',&89% 8
.
/
0
.
/
1
#&%( &&+ &%# ! .& .
&
Verðbólgan meiri en búist var við og ólíklegt að markmið Seðlabankans náist
Vilja kaupa flugfélag í Tékklandi
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
ICELANDAIR Group hefur undirritað viljayfir-
lýsingu um kaup á tékkneska flugfélaginu Travel
Service, stærsta einkarekna flugfélaginu í Tékk-
landi. Travel Service rekur leiguflugsstarfsemi
einkum frá Prag í Tékklandi og Búdapest í Ung-
verjalandi og á einnig og rekur lágjaldaflugfélagið
Smart Wings. Kaupverðið er ekki gefið upp, en
kaupin verða fjármögnuð að hluta til með lánsfé.
Heildarvelta Travel Service á árinu 2006 var um
18 milljarðar króna. Félagið rekur alls 12 Boeing
737-800 og 737-500 farþegaþotur, flutti um 1,8
milljónir farþega á síðasta ári, heldur fleiri far-
þega en Icelandair, og flýgur til 230 áfangastaða í
fjórum heimsálfum.
Fram kom á fréttamannafundi í gær að á næstu
vikum muni fara fram áreiðanleikakönnun í
tengslum við viljayfirlýsinguna. Að henni lokinni
er stefnt að frágangi samninga og að þeim verði
lokið fyrir lok júnímánaðar. Ef af verður mun Ice-
landair Group eignast 50% í félaginu fyrir mitt ár-
ið, og félagið allt á árinu 2008. Eftir kaupin verður
áætluð velta Icelandair Group árið 2007 um 72
milljarðar króna, sem er um 30% aukning frá
2006. Áætlað er hins vegar að velta Icelandair
Group verði rúmlega 80 milljarðar króna á árs-
grundvelli eftir kaupin á Travel Service.
Góður fjárfestingarkostur
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group,
sagði að viljayfirlýsingin væri í samræmi við
stefnu félagins um vöxt í alþjóðlegu leiguflugi. Fé-
lagið hafi horft til austurhluta Evrópu og telji sig
eiga erindi þangað.
Fram kom í máli hans að Icelandair Group telji
kaup á Travel Service vera góðan fjárfestingar-
kost. Félagið sé vel rekið og núverandi stjórn-
endur og eigendur muni starfa áfram með stjórn-
endum Icelandair. Þá sagði Jón Karl að Travel
Service hefði góða og vaxandi stöðu á leiguflugs-
og lággjaldamarkaði í A-Evrópu, sem hafi verið í
mikilli gerjun. Einnig sjái Icelandair töluverða
samlegðarmöguleika við núverandi rekstur.
Morgunblaðið/Ómar
Kynning Sigþór Einarsson framkvæmdastjóri og
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group.
frekar fram. Engar stórar breyt-
ingar væru fyrirhugaðar á næst-
unni.
Danól og Ölgerðin eru því alfarið í
eigu stjórnenda sinna en fyrr á árinu
keyptu Andri Þór Guðmundsson,
forstjóri Ölgerðarinnar, og Októ
Einarsson, framkvæmdastjóri
Danóls og stjórnarformaður Ölgerð-
arinnar, tæplega 70% hlut. Kaup
fjórmenningana eru fjármögnuð af
Icebank og var ráðgjöf í höndum
Guðmundar B. Ólafssonar hrl.
Velta fyrirtækjanna hefur aukist
mjög á undanförnum árum og nam
tæpum 10 milljörðum kr. í fyrra.
FJÓRIR stjórnendur fyrirtækjanna
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar
ehf. og Danóls ehf. hafa keypt 31
prósents hlut Kaupþings banka í fyr-
irtækjunum.
Kaupendur eru þeir Pétur Kr.
Þorgrímsson markaðsstjóri og Ólaf-
ur Kr. Guðmundsson, sölustjóri
Danóls, ásamt Friðjóni Hólmberts-
syni, framkvæmdastjóra veit-
ingasviðs, og Kristjáni Elvari
Guðlaugssyni, framkvæmdastjóra
fjármálasviðs hjá Ölgerðinni.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Pétur að kaupin væru gerð til að
styrkja eigendahópinn og sækja enn
Stjórnendur kaupa
út Kaupþing banka
Morgunblaðið/G. Rúnar
Danól, Ölgerðin Friðjón Hólmbertsson, Pétur Kr. Þorgrímsson, Ólafur Kr.
Guðmundsson og Kristján Elvar Guðlaugsson keyptu 31% hlut Kaupþings.
+ , -! . ! !, $
/01%
"233
:; ,& %
2.3($
4
5
($
4$($
4
6
6)+
4
($
75
($
+8
($
*($
9$ :
$; -!
< *($
8!*-!($
=($
= +( ($
"
7#+#$ * ($
>($
< &3&;"2! %
:?
($
+
($
@!
9 ! ($
@!
($
AB(($
C=D47
E&($
E&
($
'
($
=% 3 !&! "#
$; "!5$
:%& &+2> $%
97!($
9
($
%!%?
&!
!
"
##
"$
%
#"
%
"
$$
!
9! 5
! E* ! F
"
3 3 033
2 ./0 /3
/ /
23 .
. .2 /30
2. /.
.0 0/ 23
3/0 2.
3 /2
2 0 0
. /.
2 20
. .0.
3 2. 30
2 2 0
20 . //0
0/
32 .
03 .
0 3
2 . 0
2G3
0.G3
/G0
3G
G/
.0G0
G
.G
2.G3
.G
23G
G
.G3
G3
0G
2G33
G/
G
.G.3
G.
/G.0
2G0
0G2
.G0
2G3/
0.G
/G03
0G
G/
. G/
G3
G
2.G23
.G
23G
G
G
G3
G3
2G.
G
G
.G2
G
/G
20G
G
G2
'
,
4E9 H4
(
+ !
5
3
0
3
.
22
22
/
.
2
2
2
I
5 5
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
2
3
0 3
C=D
C=D
.
/
C=D @7D
.
/ 0
I JK
A! .
.
/ /
+E":
I4D
. . / /
C=DA3
C=D/
.
.
/
● INNOVATE Logistics, dótturfélag
Eimskips, hefur skrifað undir 10 ára
samning við Nestlé UK Ltd, stærsta
matvæla- og drykkjarvöruframleið-
anda heims, um rekstur á 75.000
bretta kæligeymslu í Bardon í Leic-
estershire. Í tilkynningu kemur fram
að heildarvirði samningsins, sem er
til 10 ára, nemi milljörðum króna og
sé hann hrein viðbót við fyrri samn-
inga félaganna.
Samningur við Nestlé
ÞETTA HELST ...