Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LISTAMANNASPJALL
við Guðrúnu Öyahals verð-
ur í dag kl. 15 í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg, þar sem
nú stendur yfir sýning á
verkum hennar. Þrívíð
verk, skúlptúrar og lág-
myndir, hafa verið mest
áberandi í list Guðrúnar
undanfarið en innsetningar,
myndbönd og málverk hafa
einnig verið viðfangsefni
hennar. Nú sýnir Guðrún teikningar unnar
með lími og blýi auk smáskúlptúra úr postulíni
og tvinna.
Myndlist
Postulín, tvinni,
lím og blý
Úr einu verka
Guðrúnar
MENNINGARNEFND
Ölfuss hefur staðið fyrir tón-
listarhátíð í vetur undir yf-
irskriftinni Tónar við hafið.
Síðustu tónleikar vetrarins
verða haldnir í dag. Það
verða fjölskyldutónleikar,
þar sem nemendur úr Tón-
listarskóla Árnesinga og
skólakórar Grunnskóla Þor-
lákshafnar flytja söngleikinn
Líf og friður eftir Per Har-
ling. Söngleikurinn byggist á sögunni af örkinni
hans Nóa. Sýningin hefst kl. 16 í Versölum,
Ráðhúsi Ölfuss og frítt er inn.
Tónlist
Líf og friður í
Tónum hafsins
Frá
Ölfusi
Á TÓNLEIKUM Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna
í Seltjarnarneskirkju á
morgun kl. 17, verða flutt
tvö af þekktustu verkum
tónbókmenntanna, tvíleiks-
konsert (Sinfonie Konzert-
ante) fyrir fiðlu og víólu eft-
ir Mozart, KV 364, og önnur
sinfónía Brahms. Einleik-
arar í verki Mozarts eru
Auður Hafsteinsdóttir og
Þórunn Ósk Marinósdóttir. Stjórnandi á tón-
leikunum er Óliver Kentish. Þetta eru sjöttu
tónleikar 17. starfsárs hljómsveitarinnar.
Tónlist
Jóhannes
Brahms
Mozart konzert-
ante og Brahms 2
Dagskráin í dag
Í dag, laugardag:
Royal de Luxe – Franskt götuleikhús fer á
stjá í miðborginni. Risessan vaknar á hafn-
arbakkanum kl. 10.30.
Les Kunz – trúðar og töfrandi tónlist
2. sýning í Þjóðleikhúsinu kl. 14.00
Spencer Tunick
Opnun sýningar í Galleríi i8 kl. 16.
Vatnasafn kynnir gestarithöfund
Roni Horn og Guðrún Eva Mínervudóttir í
Vatnasafni, Stykkishólmi, kl. 18.
Á morgun, sunnudag:
Tónamínútur – verk eftir Atla Heimi
Sveinsson
Tónleikar í Þjóðleikhúsinu kl. 15.
Les Kunz – trúðar og töfrandi tónlist
3. sýning hjá Leikfélagi Akureyrar kl. 20.
Listahátíð í Reykjavík
BÚTASAUMSTEPPI unn-
in í tilefni af 200 ára fæðing-
arafmæli Jónasar Hall-
grímssonar, verða á
sýningu sem opnuð verður í
Gerðubergi í dag kl. 15.
Við opnun sýningarinnar
verða veitt verðlaun fyrir
besta verkið á sýningunni.
Tólf bútasaumsteppi bárust
í samkeppnina að þessu
sinni og verða þau öll til
sýnis í Gerðubergi. Sýningarstjórn er í hönd-
um Sigríðar Guðjónsdóttur, kennara í text-
ílmennt við Víkurskóla.
Myndíð
Listaskáldið góða
í litríkum bútum
Jónas
Hallgrímsson
„ÞETTA voru alveg sérdeilis skemmtilegir tón-
leikar. Sko, þetta er dálítið sérstök upplifun, þetta
er tónlist sem er ekki hægt að skilgreina, hún er án
allra landamæra.
Þetta er ekki bara tónlist fyrir eyrun, þetta er
tónlist fyrir allan skrokkinn. Þetta minnti mig einna
helst á Underworld, bara góð dans-trans tónlist.
Maður verður bara að hlusta á þetta með öllum
skrokkinum, það þýðir ekkert að setja sig í gáfu-
mannslegar, vestrænar, niðurnjörvaðar skilgrein-
ingastellingar.
Maður verður bara að taka þessu, annað hvort er
maður í þorpinu eða ekki, og hlusta með öllum
skrokknum,“ sagði Freyr að tónleikum loknum.
„Þetta er ótrúlega skemmtileg tónlist og ég fílaði
hana.“
Hvernig var?
Freyr Eyjólfsson út-
varpsmaður fór á tónleika
með Komono no°1
Morgunblaðið/Eggert
Í þorpinu Freyr Eyjólfsson, útvarps- og dagskrárgerð-
armaður, fílaði Komono no°1.