Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 27
Samhengi listar og fjármagnsvar rætt í Víðsjá í gær,öðru sinni í þessari viku.
Talað var um að umhverfi mynd-
listar hefði gjörbreyst hér á
landi. Fyrirtæki hafa nú meira
bolmagn til þess að fjárfesta í
myndlist og styrkja einstök verk-
efni.
Í fyrra skiptið tengdist umræð-
an opnun Vatnasafns Roni Horns
í Stykkishólmi.
Þar var spurt hver ætti listina,
þeir sem gerðu hana mögulega
með fjármagni sínu og pólitískum
völdum eða listamaðurinn. Og
ennfremur: Getur listin hugs-
anlega drukknað í fjármunum?
Og auðvitað kann sumum aðblöskra dýrtíðin vestur á
Snæfellsnesi en sé dýrt kveðið má
öllum vera sama hvað það kostar.
Væri ég myndlistarmaður enekki menningarblaðamaður
– sem er þó að vissu leyti sami
hluturinn – þá myndi ég sækja
um það bil tuttugu syngjandi
krákur í Stóragil og láta þær
þyrla upp ryki í Wisconsin.
Í gær var opnuð yfirlitssýning áverkum eftir Roni Horn í
Hafnarhúsinu.
Þar mátti meðal annars sjá
nýtt og heillandi glerverk eftir
listamanninn og orð hennar um
blindu sem við erum sum slegin –
viljandi.
Dýrt kveðið
MENNINGARVITINN
Þröstur Helgason
LISTMÁLARINN Sigurþór Jak-
obsson opnar kl. 14 í dag sýninguna
Boltamenn, í Kirkjuhvoli á Akra-
nesi. Titill sýningarinnar vísar til
myndefnisins sem er að mestu
knattspyrnumenn að keppa.
Myndverkin eru að miklu leyti
unnin út frá endurminningum lista-
mannsins úr æsku og sýna hvernig
löngu liðnir leikir, menn og atvik
birtast honum nú.
Sigurþór bendir á að einnig sé um
hans eigin leik á léreftinu að ræða,
vangaveltur um leik mannsins á
vettvangi lífsins, hvort sem hann
snýst um boltann eða önnur við-
fangsefni.
Í sýningarbæklingi segir að
Sigurþór hafi í æsku verið aðdáandi
gullaldarliðs Skagamanna í knatt-
spyrnu og verið mikill boltastrákur.
Leikmenn liðs Skagamanna hafi ver-
ið hetjur í augum hans. Fyrir tveim-
ur árum hafi hann svo fengið tæki-
færi til að taka upp knattspyrnu á
ný, með litlum boltadreng, barna-
barni sínu.
„Þetta er upprifjun úr æsku, þeg-
ar ég var lítill strákur horfði maður á
þessa frægu menn keppa og svo fór
maður að keppa sjálfur seinna. Ég
fór að hugsa til baka þegar ég var að
leika mér með bolta með dóttursyni
mínum. Þá fóru að rifjast upp fyrir
mér gömlu dagarnir, hvernig ég var
þegar ég var lítill, dáði þessa karla
og horfði á þá,“ segir Sigurþór. Allir
hafi dáð Skagaliðið á þessum tíma.
Hreyfing mannsins, hreyfing bolt-
ans, hreyfing hugans, hreyfing alls
sem lifir, allt leikur þetta hlutverk í
verkunum. „Hvort sem það er
mannslíkaminn eða hugurinn, allt
hreyfist nú,“ segir Sigurþór.
Í minni myndunum birtast hug-
leiðingar Sigurþórs um landslags-
formið sem hann nefnir „boltalands-
lag“. Þar lætur hann sjóndeildar-
hringinn skipta verkinu í tvo hluta
en teflir fram litlum boltamönnum í
stað íslenskra fjalla, hefðbundnu
myndefni gömlu málaranna.
Þetta er 9. einkasýning Sigurþórs.
Sýningin stendur yfir 12.-28. maí og
er opin kl. 15-18 alla daga nema
mánudaga.
Góðar minningar
Fótbolti Akranes - Fram
SAXÓFÓNLEIKARINN Sigurður
Flosason og píanóleikarinn Kjartan
Valdemarsson halda tónleika með
sönglögum eftir Franz Schubert í
eigin útsetningum í dag kl. 16 í
Laugarneskirkju.
Sönglög Schuberts og tveir djass-
tónlistarmenn eru kannski ekki
samsetning sem mörgum finnst aug-
ljós, að sögn Sigurðar og Kjartans.
Þegar betur er að gáð komi þó í ljós
að hin rómantísku lög Schuberts
innihaldi allt sem spunamaður getur
óskað sér í efnivið; þau séu hlaðin
tilfinningum, hádramatísk og stút-
full af áhugaverðum hljómrænum
ferlum. „Hér er þó síst af öllu mein-
ingin að „jazza“ Schubert með
swingi og gang-
andi bassa. Þvert
á móti er hug-
myndin að láta
lögin njóta sín,
oft í nær upp-
runalegu formi
og spinna út frá
þeim á sem fjöl-
breytilegastan
máta; stundum
byggt á stemmningu lagsins, stund-
um á titli og texta og stundum á
hljómagrind.“ Þetta er hvorki klass-
ík né djass, heldur tveir tónlist-
armenn með fjölbreyttan bakgrunn
að takast á við klassískan efnivið á
nýjan hátt.
Ástin á Franz
Franz Schubert
TILKYNNT hefur verið hvaða 26
listamenn hafa verið valdir til að
taka þátt í Carnegie Art Award
2008. Tveir íslenskir listamenn eru í
hópi listamannanna og eiga þar með
möguleika á að vinna ein af heimsins
stærstu listaverðlaunum, eina millj-
ón sænskra króna.
Í ár verður verðlaunaveiting og
opnun Carnegie Art Award í Finn-
land á Kiasma, nútímalistasafninu.
Á Carnegie Art Award 2008 stórsýn-
ingunni sýna 26 norrænir listamenn
sem hafa verið valdir úr hópi 143 til-
nefndra listamanna. Formaður dóm-
nefndar er Tuula Arkio, formaður
finnska listaráðsins. Aðrir dóm-
nefndarmenn eru María de Corral
frá Madrit, forstöðukona fyrir Fen-
eyjatvíæringinn, Lars Nittve for-
stöðumaður fyrir Moderna Museet í
Stokkhólmi og nýr dómnefnd-
armaður frá Íslandi, Gunnar J.
Árnason, listagagnrýnandi og lektor
við Listaháskóla Íslands.
Íslensku listamennirnir eru Þór-
dís Aðalsteinsdóttir, sem nú starfar í
New York og Þór Vigfússon.
Tilkynnt verður um vinningshafa
29. júní og 25. október 2007 verður
hátíðleg verðlaunaafhending í
tengslum við opnun sýningarinnar á
Kiasma í Helsinki. Farandsýningin
verður sett upp í átta borgum í sjö
löndum og verður í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni í júní 2008.
Þórdís og Þór
á Carnegie