Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 34
34 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsveit | Miklar fram-
kvæmdir hafa verið á undanförnu
á bænum Stórulaugum í Reykja-
dal, en stóra íbúðarhúsinu sem
byggt var 1949 hefur verið breytt
í ferðaþjónustuhús.
Með nýjum ábúendum koma
nýjar áherslur en það var haustið
2005 sem hjónin Elín Björk Ein-
arsdóttir og Sigurður Grétar
Marinósson keyptu jörðina, en
þau bjuggu áður fyrir sunnan þar
sem hún starfaði sem hárskeri en
hann sem sjómaður.
„Það hafði alltaf verið draumur
minn að flytja upp í sveit og við
vorum búin að leita lengi að jörð
sem hentaði fyrir okkur,“ segir
Elín Björk, en hún var með opið
hús um helgina þar sem hún og
Sigurður sýndu sveitungum sín-
um og öðrum Þingeyingum þær
miklu breytingar sem orðið hafa á
húsinu. „Ég vissi alltaf hvaða
jarðir voru til sölu og sá svo að
þessi jörð myndi vera mjög ákjós-
anlegur kostur fyrir það sem við
ætluðum að gera,“ segir hún og
segist vera mjög ánægð með það
sem þau eru að fást við.
Átján uppbúin rúm
Þegar þau fluttu fyrir rúmlega
einu og hálfu ári byrjuðu þau
strax að rífa innan úr bygging-
unni og tók það langan tíma því
húsið er stórt, eða 312 fermetrar.
Fyrst bjuggu þau í kjallaranum
en fluttu síðan í elsta íbúðarhúsið
á bænum sem var byggt 1897 og
þar búa þau nú og ætla að gera
það betur upp síðar. Þau töldu
eðlilegt að taka allt stóra húsið
undir ferðaþjónustuna og létu
teikna það upp með það í huga en
það var Bjarni Reykjalín arkitekt
sem það gerði. Nú eru þar átján
uppbúin rúm og geta þau tekið yf-
ir tuttugu manns í gistingu þar
sem einnig er boðið upp á barna-
rúm og dýnur ef með þarf. Sum
herbergin eru með sér snyrtingu
og sturtu og er mjög til þeirra
vandað þar sem þau eru flísalögð
upp undir loft og með sérstökum
handklæðaofnum. Þá eru her-
bergin öll mjög björt og vistleg
enda gluggar stórir og sér vítt yf-
ir. Húsgögn eru öll ný og vel
vönduð.
Ferðaþjónustan heillar
En hvers vegna völdu þau
ferðaþjónustu? Elín Björk segir
að það hafi auðvitað orðið að velta
því fyrir sér hvernig ætti að lifa á
jörðinni og þau hafi áttað sig á því
að það væri mjög dýrt að fara t.d.
út í mjólkurframleiðslu þar sem
kvótinn er mjög dýr og laga hefði
þurft fjósið mikið til að verða við
nútímakröfum. Ferðaþjónustan
heilli þau bæði því þau séu vel
staðsett og séu í góðri samvinnu
við Ferðaþjónustu bænda.
„Við erum mjög ánægð með
þessa ákvörðun og svo er hér
veðragott og rignir mun minna en
fyrir sunnan. Þá erum við með
hesta og byrjuð í ræktunarstarfi
og erum að breyta hálfu fjósinu í
gott hesthús. Nú eru hér fjórtán
hross og ferðamennirnir munu
hafa gaman af þeim eins og ég
t.d. sem hef alla ævi verið í hest-
um,“ segir Elín Björk og hlakkar
til sumarsins því bókanir eru
strax orðnar miklar í júlí og
ágúst.
Ferðaþjónusta á Stórulaugum
Ljsómynd/Atli Vigfússon
Býli Jörðin Stórulaugar hefur verið talin ein sú besta í sveitinni.
Í HNOTSKURN
»Stórulaugar er jörð sem errétt norðan við Laugaskóla
og henni fylgir gott heiðarland
og veiðihlunnindi í Reykja-
dalsá.
»Þar var áður bæði mjólk-urframleiðsla og sauð-
fjárrækt.
»Jarðarinnar er fyrst getið íReykdælu og var talin
besta jörð sveitarinnar og jafn-
framt sýslumannssetur.
Breytingar Hjónin Elín Björk Einarsdóttir og Sigurður Grétar
Marinósson keyptu jörðina, en þau bjuggu áður fyrir sunnan þar sem
hún starfaði sem hárskeri en hann sem sjómaður.
Mývatnssveit | Þorlákur landgræðslu-
maður í Garði er hér að fylla á raðsáning-
arvélina. Hann ætlar sér að koma fræi í
mold á akri Kára bónda í Garði. Akurinn
þessi er reyndar á Beitarhúsaási í landi
Arnvetninga en þar hefur Kári glímt við
náttúruöflin í nokkur sumur og lætur ekki
hlut sinn þó ekki hafi uppskeran alltaf ver-
ið merkileg.
Vorverkin eru
hafin í sveitinni
Ísafjörður | Keppendur og skipuleggendur
Óbeislaðrar fegurðar hafa afhendt fulltrú-
um Sólstafa ágóðann af Óbeislaðri fegurð.
Alls tókst að safna 497.000 krónum
„Upphaflega skrifuðum við töluna
500.000 á blað þannig að við komumst mjög
nálægt markmiðinu. Það er okkur mikill
heiður og ánægja að geta lagt Sólstöfum lið
því mikið starf er óunnið hjá þessum hetjum
sem standa að Sólstöfum. Við hefðum ekki
getað haldið þessa uppákomu án skilnings
og velvilja fyrirtækjanna hér á svæðinu,“
segir í frétt frá Óbeislaðri fegurð.
Hálf milljón
til Sólstafa
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að kindur
hjónanna Páls og Dóru á Mógili á
Svalbarðseyri séu ákaflega frjósam-
ar. Alls bera um 150 ær á bænum, í
fyrra voru 23 þeirra þrílembdar og
tvær fjórlembdar og hjónin segja að
útlit sé fyrir að niðurstaðan verði
svipuð að þessu sinni.
Rúmlega fjörutíu kindur hafa þeg-
ar borið á bænum í vor, nokkrar eru
þrílembdar og tvær hafa eignast
fjögur lömb. Önnur þeirra gerði það
líka í fyrra, ærin Brynhyrna, sem var
enn í húsi þegar blaðamaður kom í
heimsókn í gær, enda lömbin tiltölu-
lega ný fædd og býsna kalt í Eyja-
firðinum. Þrjú lamba Brynhyrnu eru
hjá henni en eitt var vanið undan
móðurinni.
Góður arður…
Þoka, hin fjórlembda ærin á bæn-
um það sem af er vori, er hins vegar
löngu komin út enda bar hún í mars.
Þoka er svört, einnig tvö lambanna
en hún bar einnig einu hvítu og einu
mórauðu. Lömb hennar eru orðin
stór og falleg og léku við hvern sinn
fingur í heimatúninu við Mógil í gær.
Þoka er átta ára og það er ekki of-
sögum sagt að hún hafi verið frjósöm
frá upphafi – hafi gefið eigendum
sýnum góðan arð, eins og það yrði
líklega orðað á mölinni. Hún hefur
nefnilega í þrígang verið þrílembd
en annars tvílembd, auk þess sem
lömb hennar eru fjögur í ár sem fyrr
segir.
Kindurnar á Mógili eru sæddar og
notast hefur verið við sæði úr hrút
undan annarri Þoku, á austan úr
Skaftafellssýslu. „Við eigum mikið
undan henni,“ sagði Dóra á Mógili í
gær. Hún sagði allt útlit fyrir að
lömbin yrðu álíka mörg nú og í fyrra-
vor. Þegar eru 10 þrílembdar í vor og
tvær fjórlembdar.
Gríðarleg frjósemi á Mógili
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Líflegt í fjárhúsinu Þrjú barnabörn Páls og Dóru á Mógili voru í heimsókn í gær og einn frændi; frá hægri Elfar,
Davíð, Árný og frændinn Tristan. Lengst til vinstri er Hulda, móðir Árnýjar. Þau eru með fjögur lömb Brynhyrnu.
Frjósöm Þoka með lömbin úti á túni; tvö svört, eitt hvítt og eitt mórautt.
Af 150 ám voru 23
þrílembdar í fyrra
Í HNOTSKURN
»Hjónin á Mógili eiga margtfé undan Þoku, þekktri
frjósemisá austan af landi.
»Um það bil 150 ær bera áMógili. Í fyrra voru 23
þeirra þrílembdar og tvær
fjórlembdar og hjónin segja að
útlit sé fyrir að niðurstaðan
verði svipuð að þessu sinni.
PÉTUR Örn Friðriksson opnar sýn-
inguna „Tékklisti“ „Lancering
onderzoek“ í Deiglunni í dag, laug-
ardag, kl. 15 á vegum Gilfélagsins.
Þetta er ellefta sýning Péturs Arn-
ar í framhaldssýningarferli sem
hófst fyrir 15 árum. Hann hefur
tekið þátt í rúmlega 100 sýningum
af ýmsum gerðum.
Fyrri nemendasýning Mynd-
listarskóla Arnar Inga verður í dag
og á morgun frá kl. 14 til 18 í Arn-
arauga við Óseyri.
Pétur Örn sýn-
ir í Deiglunni
ÁRLEG handverkssýning verður á
dvalarheimilinu Hlíð á morgun,
sunnudag kl. 14-17 og á mánudag-
inn kl. 13-16. Hægt verður að kaupa
veitingar af kaffihlaðborði á morg-
un. Fjölbreytt handverk verður til
sýnis, m.a. alls kyns útsaumur,
prjónles, mósaik og málning (tau og
silki). Rétt er að taka fram að kaffi-
hlaðborðið verður á öðrum stað en
verið hefur, því eldhúsið var flutt í
nýbygginguna þegar hún var tekin
í notkun í nóvember.
Handverks-
sýning á Hlíð
AKUREYRARAKADEMÍAN nálg-
ast nú eins árs aldurinn og fyrir
skemmstu fögnuðu félagar í
systurfélaginu, Reykjavík-
urakademíunni, 10 ára afmæli
þess. Af þessu tilefni verður opið
hús í gamla Húsmæðraskólanum
við Þingvallastræti frá klukkan
14-17 í dag, laugardag, þar sem
aðstaðan og starfsemin verður
kynnt.
Opið hús í
Akademíunni