Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 35
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Eyrarbakki | „Við hvetjum fólk til að taka til í
bílskúrum hjá sér og geymslum og koma
með munina markaðinn, það kostar ekkert að
vera með söluborð en Rauði krossinn verður
með söfnunarkassa á markaðnum og fólk
getur sett pening í þá,“ sagði Anna Árna-
dóttir sem ásamt nokkrum konum stendur
fyrir markaði 18.–20. maí að dönskum sið í
Ísfold, gamla frystihúsinu á Eyrarbakka.
Markaðurinn er hluti af viðburðadagskránni
Vorskipið kemur sem haldin þessa daga á
Eyrarbakka að frumkvæði einstaklinga.
Lífleg dagskrá á Vorskipinu
Óhætt er að segja að mikið verði um að
vera þessa daga 18.–20. maí. Jassband Suð-
urlands ásamt kvennakórnum Ljósbrá hefur
leikinn með fítonskrafti og síðan rekur hver
viðburðurinn annan alla helgina. Á laug-
ardeginum verða félagar úr Leikfélagi Sel-
foss á ferðinni í báðum þorpunum í hlut-
verkum bændafólks sem komið er í kaupstað.
Gestir og gangandi mega búast við að þurfa
svara ýmsum spurningum á dönsku, vísa til
vegar eða þiggja í nefið, auk þess sem kven-
félagskonur munu skarta sínu fegursta í ís-
lenskum búningum frá fyrri tíð.
Ljósmyndasýning frá konungskomunni
1907 verður opnuð í Húsinu á Eyrarbakka,
en þar verða einnig tónlistaratriði bæði á
laugardag og sunnudag. Í Óðinshúsi eru
stækkaðar ljósmyndir af fólki frá því um
aldamót, þar sem gestir geta stungið höfði í
gat og látið taka af sér ekta 19. aldar-
ljósmynd. Í Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri
opnar Elvar Guðni myndlistarsýningu sína,
auk þess sem fjöldi handverks- og listafólks
verður þar að störfum. Indversk krydd og
fleiri framandlegar vörur verða í Laujabúð á
Eyrarbakka. Rauða húsið á Eyrarbakka
verður með djassband á laugardagskvöldinu
auk þess sem þeir bjóða upp á hina hrika-
legu Drottningarhatta, rjómatertur af því
tagi sem hafa ekki sést á Íslandi síðan um
aldamótin 1900. Dagskrá hátíðarinnar Vor-
skipið kemur, með nánari upplýsingum um
alla atburði og tímasetningu, verður dreift í
næstu viku.
Gamli tíminn í hávegum
„Við viljum skapa þetta tækifæri fyrir þá
sem vilja bjóða til sölu gamalt dót í stað þess
að henda því og svo er þetta líka tækifæri
fyrir handverksfólk og þá sem vilja selja
heimagert, kökur, brauð eða sultur. Þetta
verður mjög skemmtilegt en gamli tíminn
verður í hávegum hafður þennan dag og
gestir munu mæta konum á peysufötum og
það veðra fornbílar á ferðinni á Bakkanum
þessa daga.
Með þessu erum við að minna á gamla
tímann þegar allt var nýtt og þá er stutt í að
minna á endurvinnslu og umhverfisvernd í
verki. Markaðurinn okkar verður í vinnslusal
frystihússins sem fær með þessu nýtt hlut-
verk sem tengist Eyrarbakka sem höfuðstað
verslunar. Við setjum markaðinn upp 17. maí
og opnum hann formlega 18. maí klukkan 20
með lúðrasveit og á laugardeginum og
sunnudeginum verður markaðurinn opinn frá
hádegi,“ sagði Anna Árnadóttir.
Hugmynd að dvalarheimili
Á Vorskipsmarkaðnum í frystihúsinu verða
einnig kynntar breytingar á húsinu sem Árni
Valdimarsson athafnaskáld hefur unnið að og
komið þar fyrir fjórum íbúðum í fyrsta
áfanga endurbyggingar hússins.
„Allar innréttingar og tæki í íbúðunum,
eru frá Fríform í Askalind 3 í Kópavogi, en
Fríform er aðalumboðsmaður Nettoline-
innréttinga og Elba-rafmagnstækja á Íslandi.
Svo munum við einnig sýna danska fyr-
irmynd að dvalarheimili sem við viljum koma
fyrir hér við sjógarðinn. Það er önnur hugs-
un í þessari hugmynd sem byggist á því að
hver og einn er sjálfum sér ráðandi sem allra
lengst á lífsleiðinni og skammtar sér sína
þjónustu eftir því sem hann þarf,“ sagði Árni
sem hefur yfir að ráða lóðum í kringum
frystihúsið þar sem hann vill skapa hlýlega
aðstöðu fyrir þessi hús.
„Hugmyndin er að fólk geti valið um íbúð-
ir við sjóvarnargarðinn með útsýni út á hafið
og svo minna rými eftir því sem fólk vill. Það
á að vera úr sögunni á þessari öld að verið sé
að flytja fólk á kviktrjám milli landshluta
þegar það þarf á aukinni þjónustu að halda.
Við þurfum nýja hugsun í þessum málum.
Fólk þarf að geta verið með sitt hjá sér og
við viljum byggja upp afþreyingaraðstöðu í
þessu litla þorpi sem við ætlum að skapa hér
á þessu svæði í kringum hraðfrystihúsið,“
sagði Árni.
Hann sagði ekki komið nafn á þetta svæði
en nafnið Dagsbrún væri ofarlega í huga sem
nafn á svæðið sem hann vill byggja upp en
hús með því nafni stóð vestan við frystihúsið.
„Hvað er fegurra en Dagsbrún, hver veit
nema það verði nafnið sem svæðinu verður
gefið,“ sagði Árni Valdimarsson.
Markaður og dvalarheimili að
danskri fyrirmynd í hraðfrystihúsinu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðburðir Árni Valdimarsson og Anna Árnadóttir framan við hraðfrystihúsið á lóðinni þar
sem Dagsbrún stóð. Markaður að dönskum sið verður haldinn í vinnslusal frystihússins.
Í HNOTSKURN
»Ljósmyndasýning frá konungskom-unni 1907 verður opnuð í Húsinu á
Eyrarbakka, en þar verða einnig tónlist-
aratriði bæði á laugardag og sunnudag.
»Markaðurinn verður í vinnslusalfrystihússins sem fær með þessu
nýtt hlutverk sem tengist Eyrarbakka
sem höfuðstað verslunar.
»Hugmyndin er að fólk geti valið umíbúðir við sjóvarnargarðinn með út-
sýni út á hafið.
Gamli tíminn verður
ráðandi á Vorskips-
hátíðinni á Eyrar-
bakka 18.–20. maí
SUÐURNES
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Það var kominn tími til að
taka fyrir léttara efni og endurnýja verkefna-
valið. Það er líka gaman að geta tengt verk-
efnin við kórfélagana sjálfa. Keflavík er jú
frægust fyrir dægurflugurnar,“ sagði Guð-
laugur Viktorsson, stjórnandi Karlakórs
Keflavíkur, í samtali við Morgunblaðið en kór-
inn heldur á þriðjudag og miðvikudag tónleika
í Stapa. Þar verður Suðurnesjapopp og popp-
arar í aðalhlutverki. Hvorir tveggja tónleik-
arnir hefjast klukkan 20.
Þegar Guðlaugur Viktorsson tók við stjórn-
artaumunum í Karlakór Keflavíkur fyrir rúm-
lega tveimur árum var komin nokkur lægð í
kórinn, að sögn Guðjóns Sigurbjörnssonar,
formanns kórsins. „Við vissum að breytinga
væri þörf. Lítil endurnýjun hafði orðið í kórn-
um og félögum fækkaði,“ sagði Guðjón í sam-
tali við blaðamann. Hann sagði að Guðlaugur
hefði virkað eins og vítamínsprauta á kórinn,
sem teldi nú hátt í 50 söngmenn og margir af
þeim ungir. Sá yngsti er 22 ára og sá elsti 82
ára.
Suðurnesjapopparinn Magnús Kjartansson
skýtur inn í að þá fari þetta að hljóma. Eitt af
því sem Guðlaugur hefur lagt áherslu á í kór-
stjórninni er að auka fjölbreytnina í verkefna-
ekki fjörið þegar Suðurnesjapoppið fer að
hljóma á æfingunni og stjórnandinn tekst á
loft. Hann segist alveg geta hugsað sér klass-
íska messu með strákunum í karlakórnum
ásamt góðri hljómsveit. „Menn vilja ögrandi
verkefni.“ Undir það tekur tenórinn Guð-
mundur Björnsson sem segir gaman að fá að
spreyta sig á nýju verkefni sem þessu.
Vortónleikarnir að þessu sinni verða tvenn-
ir og hvorir tveggja haldnir í Stapa. Þeir Suð-
urnesjapopparar sem syngja með kórnum eru
Rúnar Júlíusson, Jóhann Helgason og Magn-
ús Kjartansson, sem einnig stýrir hljómsveit-
inni með valinkunnu liði. Auk þeirra eiga
Gunnar Þórðarson, Þórir Baldursson og
Magnús Þór Sigmundsson lög á tónleikunum.
Guðlaugur segir tónleikana vonandi upphafið
að einhverju meira, sem hann vill þó ekki fara
mjög náið út í. „Mig langar að taka þetta upp í
hljóðveri og bæta þá við lagavalið. Það væri
gaman að fjölga lagahöfundum og fara með
þetta eitthvað lengra. Við sjáum hvað setur í
haust,“ sagði Guðlaugur leyndardómsfullur að
lokum.
kórshúsinu, þar sem boðið er upp á mat og
kráarstemningu, við góðar undirtektir.“ Þeir
félagar segjast einnig finna fyrir góðri stemn-
ingu gagnvart þessum tónleikum.
Langar að fara lengra í haust
Guðlaugur er sjálfur alæta á tónlist og nefn-
ir að átök við mismunandi efnisskrá auki getu
tónlistarfólks. Hann sveiflast á milli gregor-
ískrar miðaldatónlistar og poppsins með við-
komu á öllum skalanum. Það vantar heldur
valinu, en segir þó að ekki hafi verið sagt skil-
ið við karlakórahefðina. Þar sé samkeppnin
hins vegar mikil og menn því farnir að brydda
upp á nýjungum.
„Ég hef lengi stjórnað karlakórum og er
alltaf að reyna að finna upp á einhverju nýju.
Fyrir nokkrum árum kórraddsetti Óskar Ein-
arsson fyrir mig popplög með góðum árangri.
Núna fékk ég hins vegar Aðalheiði Þorsteins-
dóttur til að raddsetja flest laganna en auk
hennar raddsetti Þórir Baldursson Jarðarfar-
ardag og Stefán Gíslason Gamla bæinn, lag
Gunnars Þórðarsonar sem Karlakórinn Heim-
ir flutti með Hljómum fyrir nokkrum miss-
erum,“ sagði Guðlaugur.
Lagavalið er fjölbreytt en Guðlaugur valdi
lög sem hann sá að myndu ganga í kórradd-
setningu, enda hentaði ekki öll tónlist fyrir
þetta form. Þetta eru lög eins og Betri bílar í
flutningi Rúnars Júlíussonar. Ást, lag Magn-
úsar Þórs, Karen, Karen og fleiri lög Jóhanns
Helgasonar. Magnús Kjartansson benti á að
þetta væru ekkert annað en sönglög og væru
komin inn í efnisskrá kóra með sama hætti og
hefðbundin kórlög.
Guðjón formaður skýtur inn í umræðurnar
að þeirri nýbreytni sem kórinn hefur bryddað
upp á undanförnu hafi verið vel tekið. „Við
höfum tvisvar haldið stuðkvöld hérna í Karla-
Þroskandi að takast á við ólíkt efnisval
Karlakór Keflavík-
ur syngur Suður-
nesjapopp í Stapa
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Söngur Undirbúningur á lokasprettinum. Karlakór Keflavíkur hefur á undanförnum vikum
æft fyrir Suðurnesjapopptónleika. Guðlaugur Viktorsson stjórnar en þeir Rúnar Júlíusson og
Magnús Kjartansson verða meðal flytjenda, auk þess að vera höfundar laga.
Í HNOTSKURN
»Kórinn telur nú hátt í 50 söngmenn ogmargir af þeim ungir. Sá yngsti er 22
ára og sá elsti 82 ára.
»Eitt af því sem Guðlaugur hefur lagtáherslu á í kórstjórninni er að auka
fjölbreytnina í verkefnavalinu.
»Þeir Suðurnesjapopparar sem syngjameð kórnum eru Rúnar Júlíusson, Jó-
hann Helgason og Magnús Kjartansson.