Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 36
daglegtlíf
Eftir að hafa hlustað á umræður og yfirheyrslur stjórnmála-
manna um skeið datt Kristjáni Bersa
Ólafssyni í hug vísa:
Í framboði eru mætir menn,
sem mörgu þurfa að svara.
Kosningarnar koma senn.
Hvernig skyldu þær fara?
Bjarna Jónssyni frá Gröf hefði staðið
á sama um úrslitin ef marka má vísu
sem hann orti á þingpöllum:
Ég þingmenn háa heyrði þar
halda ræður dagsins,
ég held þeir séu hornsteinar
í heimsku þjóðfélagsins.
Úrslitin ráðast á fleiri vígstöðvum
í dag, en þá verður leikin lokaumferð
ensku knattspyrnunnar. Baldur
Eiríksson botnaði lítið í þeim atgangi
og ef til vill á bragur hans líka við um
pólitíkina?
Ég stóð og horfði á knattspyrnuleik um stund,
köst og spyrnur og hlaup og víti og skalla.
Þar sá ég knöttinn skjótast sem hræddan
hund
sem hefði það eina takmark – að flýja alla.
Þegar honum var sparkað í eina átt
kom annar þegar og sendi hann strax til baka.
Menn þvældu og töfðu hver annan á allan hátt
og ei var mér ljóst hvað fyrir þeim myndi vaka.
Það kemur víst nokkuð niður á sama stað
hvort menn ná að skora ellegar sitja í tapi,
en hlaupa svona eins og hálfviti sitt á hvað
og hnjóta og meiðast – það er mér lítt að
skapi.
Ef mætti ég ráða ég hefði á annan hátt
og hlífði mönnum við óþarfa brölti og sparki
en léti þá spyrna alla í sömu átt
og engan vera að þvælast fyrir í marki.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORN
Pólitík og
fótbolti
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Ég horfði alltaf á sirkusinnsem var í sjónvarpinu ágamlárskvöld þegar ég var
lítil og mér fannst þetta heillandi.
Ég hélt að fólk fæddist bara inn í
svona sirkusfjölskyldur og þær ein-
ar gætu starfað í sirkus en ég
komst að öðru þegar ég fór sem
skiptinemi til Argentínu fyrir þrem-
ur árum,“ segir Elín Björk
Tryggvadóttir sem hellti sér óvænt
út í sirkuslistir lengst úti í heimi.
„Dóttir konunnar sem ég bjó hjá
þegar ég var í Argentínu æfði loft-
fimleika og ég fékk að fara með
henni í þennan skóla einu sinni og
mér fannst það rosagaman. Og það
varð úr að ég fékk að fara með
henni á hverjum degi í hálft ár og
lærði hinar ýmsu sirkuslistir. Ég
hafði ágætan líkamlegan grunn í
þetta því ég æfði ballett í tíu ár.
Maður verður að vera í ágætu formi
til að geta hangið í spotta og gert
kúnstir með efnisstranga. Þótt
þetta líti út fyrir að vera auðvelt
þarf maður að læra tæknina og
þetta tekur á. Maður klifrar ekkert
upp í sjö metra hæð og gerir þessa
hluti ef maður hefur ekki lík-
amlegan styrk, en það geta samt
allir lært þetta. Þetta þarf að líta
vel út og vera áhugavert fyrir
áhorfendur enda er þetta fyrst og
fremst sýningarlist. Svo æfði ég
líka parafimleika þar sem tveir æfa
saman, annar stendur kannski á
öxlum hins og fleira í þeim dúr.“
Helga gleypir eld
Elín Björk saknaði loftfimleik-
anna mikið eftir að hún kom heim
frá Argentínu og fór því ári seinna
á sirkusnámskeið í Englandi.
„Ég var alveg viðþolslaus og ég
smitaði vinkonu mína Helgu Guð-
rúnu Óskarsdóttur af þessum
áhuga og við stofnuðum saman sirk-
usfélagið Eldmóð. Hún skellti sér
út til Noregs í nám í sirkuslistum
og er orðin mjög góð í að gera
kúnstir með keilur, bolta og díabló,
kasta logandi keilum upp í loft og
grípa þær og hún lærði líka að
gleypa eld. Ég er búin að ná því að
halda þremur boltum á lofti í einu
og er alveg að ná því að vera með
fjóra,“ segir Elín Björk og hlær.
„Helga er á leiðinni heim núna í
maí eftir heilt ár í þessu námi og
við ætlum að vera með sirk-
usnámskeið fyrir börn og unglinga í
sumar hér heima á Íslandi. Við
verðum með barnanámskeið í Mos-
fellsbæ í samstarfi við bæinn þar og
það er fyrir krakka í fjórða til
sjötta bekk. Við verðum líka eitt-
hvað með litlu krílin sem eru á sum-
arnámskeiðum bæjarins og leyfum
þeim aðeins að kynnast sirk-
uslistum. En við ætlum líka að vera
með sirkusnámskeið fyrir unglinga
og höfum fengið sal í Garðabæ til
að sinna því. Eftir því sem krakk-
arnir eru eldri hafa þau auðvitað
meiri líkamlegan kraft til að gera til
dæmis loftfimleika en við ætlum
samt að leyfa þeim yngri að prófa
líka. En við verðum líka með alls
konar sirkusleiki og svo kennum við
þeim auðvitað fimleikakúnstir á
gólfi.“
Það er í nógu að snúast hjá Elínu
Björk þessa dagana, því auk þess
að vera að undirbúa sikusnám-
skeiðin er hún í prófum og mun út-
skrifast stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík núna í maí.
Hún segir framtíðina óráðna en
vissulega langar hana til að prófa
að starfa með sirkus úti í heimi.
„Ég er búin að finna einn mjög
spennandi sirkusskóla á Spáni sem
mig langar til að fara í. Það er
endalaust hægt að bæta við sig og
verða betri og læra nýja tækni og
nýjar kúnstir.“
Í sirkuslistum af lífi og sál
Á hvolfi Maður þarf að vera í ágætu formi til að geta gert kúnstir eins og þær sem hún Elín Björk sýnir hér. Morgunblaðið/ÞÖK
Boltakast Elín Björk leikur hér
með þrjá bolta í einu.
Sirkussjúkar Vinkonurnar Elín
Björk og Helga Guðrún hafa báðar
óbilandi áhuga á sirkus.
Skráning á unglinganámskeið:
www.circus.kalfur.com
Skráning á barnanámskeið í Mosó:
s: 566-6754
Það er óneitanlega fallegt út-
sýnið sem blasir við frá enda-
raðhúsi einu í Fellahvarfi í
Kópavogi. » 40
innlit
Augnförðunin á komandi sum-
armánuðum verður í anda
sjötta áratugarins en með nú-
tímalegum áherslum. » 38
tíska
|laugardagur|12. 5. 2007| mbl.is
Bolvíkingar eru í óðaönn að búa
sig undir sumarið og víða í
görðum bæjarins má sjá fólk
önnum kafið við vorvinnu. » 39
bæjarlífið