Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 43
Samfylkingin á brýnt erindi íþessum kosningum. Húnhefur jafnaðarstefnuna aðleiðarljósi en grunngildi
hennar eiga víðtækan hljómgrunn í
okkar samfélagi. Þessi grunngildi
lúta að jöfnuði fólksins
og jöfnum tækifærum
þar sem allir geta
þroskað og notið hæfi-
leika sinna. Sterku ör-
yggisneti ef og þegar
út af bregður þannig
að enginn sé skilinn út
undan. Öflugu mennta-
og heilbrigðiskerfi þar
sem enginn kemur að
lokuðum dyrum. Jafn-
rétti kynjanna þar sem
enginn er látin gjalda
kynferðis, hvorki kon-
ur né karlar. Náttúru-
og umhverfisvernd þar
sem mikilvægum
framtíðarhagsmunum
er ekki fórnað með
skammsýnum ákvörð-
unum. Frjálsu mark-
aðskerfi í viðskiptum
þar sem hið opinbera
setur leikreglur og sér
til þess að samkeppni
þrífist og almanna-
hagsmuna sé gætt.
Opinberri stjórnsýslu
sem einkennist af
gagnsæi, stjórnfestu
og sanngirni. Op-
inberu stjórnkerfi þar
sem fagleg sjónarmið
og hæfni einstaklinga er í fyrirrúmi
en flokkspólitísk fyrirgreiðsla og
mannaráðningar heyra sögunni til.
Baráttuþrek og sigurvilji
Með þessar mikilvægu áherslur í
farteskinu hefur Samfylkingarfólk
um land allt tekið þátt í kosninga-
baráttu liðinna mánaða. Það hefur
verið ótrúlegt að fylgjast með sam-
stöðu og sigurvilja þess. Það hefur
jafnt og þétt sótt í sig veðrið, aukið
fylgi Samfylkingarinnar í öllum
kjördæmum, unnið öfluga málefna-
vinnu og hvarvetna komið fram með
sjálfstrausti og reisn.
Þessi barátta hefur enn og aftur
fært mér heim sanninn um mik-
ilvægt erindi flokksins til fólksins í
landinu. Þeim fjölmörgu Íslend-
ingum sem láta sér annt um jöfnuð,
velferð og réttlæti gefst nú tækifæri
til að styðja við þann flokk sem er
öflugasti valkosturinn við hægri
flokka í landinu. Þeir geta stutt
frjálslyndan jafnaðarflokk sem
stendur vörð um velferðarkerfið en
vill líka gera það öflugra og skilvirk-
ara, sem ber hag þeirra fyrir brjósti
sem minnst bera úr býtum, en sem
veit líka að gott og fjölbreytt at-
vinnulíf er forsenda samhjálpar og
jafnaðar. Þeir geta stutt flokk sem
vill að Ísland taki sér stöðu með vel-
ferðarsamfélögum Evrópu en ekki
öfgafullu markaðssamfélagi vest-
anhafs. Flokk sem vill að Íslend-
ingar verndi eigin náttúru og taki
jafnframt þátt í alþjóðlegri baráttu
gegn loftslagsbreytingum af manna-
völdum. Flokk sem vill bæta kjör
aldraðra og um leið greiða götu ungs
fólks með fjölbreyttum menntunar-
og starfsmöguleikum.
Breytinga er þörf
Á Íslandi hefur nú
öðlast kosningarétt
kynslóð sem aldrei hef-
ur kynnst öðrum vald-
höfum en þeim sem
mynda núverandi rík-
isstjórn. Sú staðreynd
ein ætti að ýta við
mörgum. En verra er
þó að á þessum langa
valdatíma hafa mik-
ilvægar stoðir velferð-
arkerfisins verið van-
ræktar, misskipting
auðs hefur aukist, hlut-
fallslegar skattaálögur
á láglaunafólk þyngst,
kynbundinn launa-
munur hefur ekkert
lagast, biðraðir sjúk-
linga og aldraðra
lengst. Þessi rík-
isstjórn hefur gengið
fram af fólki með
stuðningi við stríðs-
rekstur Bandaríkj-
anna í Írak, fram-
göngu sinni í
fjölmiðlamálinu og
átökum við öryrkja. Í
atvinnumálum hefur
verið einblínt um of á
stóriðju á kostnað ann-
arrar atvinnustarfsemi. Hér er
breytinga þörf og nú er tækifærið,
tími skoðanakannana liðinn, tími
kosninga kominn.
Við viljum samfélag jafnaðar,
velferðar og réttlætis
Í þessari kosningabaráttu hefur
það sýnt sig að Samfylkingin er og
verður mikilvægasti valkostur
þeirra sem finnst ekki sjálfgefið að
núverandi ríkisstjórnarflokkar ráði
mestu um framvindu íslensks sam-
félags. Ég er sannfærð um að þjóðin
finnur að nú þarf að rétta kúrsinn,
stýra þjóðarskútunni eftir þeim gild-
um sem flestir Íslendingar vilja taka
mið af, velferð, jöfnuði og réttlæti,
leiða til valda flokk sem einsetur sér
að bæta úr því sem aflaga hefur far-
ið en horfir líka til framtíðar um at-
vinnuuppbyggingu á Íslandi og
stöðu okkar í samfélagi þjóðanna.
Að lokum vil ég nota tækifærið og
þakka mótherjum okkar drengilega
baráttu, fjölmiðlum áhugaverða um-
fjöllun um kosningarnar og stuðn-
ingsfólki Samfylkingarinnar sam-
stöðu, dugnað og baráttugleði. Ég
hvet kjósendur til að leiða hugann að
grundvallargildum íslensks sam-
félags og veita Samfylkingunni
brautargengi í dag.
Kosið um framtíð
íslensks samfélags
Eftir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur
» Í dag verðurkosið um
vægi jafnaðar,
velferðar og
réttlætis í ís-
lensku sam-
félagi. Grunn-
gildi Samfylk-
ingarinnar;
frjálslynds jafn-
aðarflokks.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
ki felst í
eita
a álit á
éttinda-
félagið fær jafnan
sendar þingsályktun-
artillögur er varða
málefni kvenna og
jafnréttismál til um-
sagnar. Má þess geta í
því sambandi að
KRFÍ er þverpólitískt
félag þar sem í stjórn
félagsins sitja fulltrú-
ar frá öllum þeim
stjórnmálaflokkum
sem eiga sæti á Al-
þingi. Á þann hátt hef-
ur félagið tök á að láta
rödd sína heyrast þegar málefni
kvenna og jafnréttis eru tekin fyrir
á löggjafarþingi Íslendinga.
Fyrir utan ráðstefnu- og funda-
hald sem opið er öllum almenningi
vinnur stjórn KRFÍ að því að taka
fyrir einstök mál sem konur í þjóð-
félaginu bera upp á félagið. KRFÍ
vinnur einnig í nánu samstarfi við
ýmis samtök og félög er varða mál-
efni kvenna s.s. Mæðrastyrksnefnd,
Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöf-
ina, Kvenfélagasamband Íslands,
Femínistafélagið, Jafnréttisráð,
Mannréttindaskrifstofu Íslands o.fl.
Útgáfa tímaritsins 19. júní er
einnig á könnu félagsins og hefur
verið síðan 1949 þegar fyrsta eintak
blaðsins kom út. Tímaritið er því eitt
það langlífasta í sögu Íslands en
venja hefur verið fyrir því að fá rit-
stjóra og ritstjórn úr röðum fólks
sem annars kemur ekki með beinum
hætti að starfsemi félagsins. Með því
hefur skapast grundvöllur fyrir fjöl-
breytt og skemmtilegt efni um mál-
efni kvenna og jafnréttis líðandi
stundar.
Stjórn KRFÍ er kosin til tveggja
ára í senn. Eru þá kosnir formaður
og varaformaður, gjaldkeri og ritari
auk fjögurra meðstjórnenda. Skipa
þessir átta aðilar framkvæmda-
stjórn félagsins. Eins og fyrr segir
eiga stjórnmálaflokkarnir einnig
fulltrúa í stjórn félagsins, sem nú
skipa alls 12 konur. Í kjölfar alþing-
iskosninganna má ætla að ein-
hverjar breytingar verði á fulltrúum
flokkanna í stjórn félagsins.
Stjórn KRFÍ er því í stöðugri
endurnýjun sem má teljast jákvætt
því konur hafa vissulega mismun-
andi skoðanir á málefnum kvenna
og jafnréttisbaráttunni. Því fleiri
konur sem koma að starfsemi fé-
lagsins því betra! Karlar eru að
sjálfsögðu einnig velkomnir en hing-
að til hafa þó engir karlmenn setið í
stjórn Kvenréttindafélagsins. Karl-
kyns félagar eru þó nokkrir en
mættu gjarnan vera fleiri. Það er
forvitnilegt í kvennafélagi að heyra
raddir karlanna um málefni kvenna.
Það væri óskandi að karlarnir, sem
að öllu jöfnu stjórna landinu, fyr-
irtækjunum o.s.frv., hefðu sömu ósk-
ir, þ.e. að fá raddir kvenna með í
ákvarðanatökur er varða okkur öll,
karla og konur.
Í því ljósi má segja að þrátt fyrir
háan aldur KRFÍ er stefnan sú að
félagið eigi fullan rétt á sér – eða
þangað til fullu jafnrétti kynjanna er
náð.
»KvenréttindafélagÍslands varð 100 ára
á dögunum. Þrátt fyrir
mikinn árangur í jafn-
réttismálum á þessu
tímabili eru enn málefni
að berjast fyrir.
Halldóra Traustadóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Kvenréttindafélags Íslands.
abarátta
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
r stjórnmálaflokkanna öttu kappi í síðasta sinn
ar í þætti í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.
Næsta kjörtímabil erskammt undan. Sjálf-stæðisflokkur ogFramsóknarflokkur
vona að kjósendur glepjist enn á
ný til að rétta þeim
stjórnartaumana.
En hver eru helstu
verk þessara flokka í
ríkisstjórn? Svona
skömmu fyrir kosn-
ingar eiga flokkarnir
auðvitað ekki að setja
ljós sitt undir mæli-
ker, heldur hampa
helstu afrekum sínum.
En af einhverjum
ástæðum gera þeir
það ekki. Eða minnist
þess nokkur að hafa
heyrt frambjóðendur
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks
stæra sig af stuðningi
við innrásina í Írak
eða einkavinavæðingu
bankanna? Eru þeir
ekkert stoltir af nið-
urstöðu Hæstaréttar í
svokölluðum Ör-
yrkjadómi? Finnst
þeim ekki ástæða til
að hreykja sér af því hvað þeir
gerðu vel við lífeyrisþega, þ.e. þá
sem taka lífeyri sem fyrrverandi
alþingismenn og ráðherrar? Og
menn hljóta nú að hafa ástæðu til
að vera roggnir yfir hærri vöxt-
um en þekkjast annars staðar og
lengstu biðlistunum. Er það ekki
met sem ástæða er til að halda á
lofti?
Kjósendur, sem eru sammála
um að ofangreind verk stjórn-
arflokkanna séu þeim ekki til
framdráttar, eiga að láta af
stuðningi sínum við ríkisstjórn-
ina.
Kjósendur, sem vilja að ríki-
dæmi þjóðarinnar
sé nýtt þeim til
hagsbóta, sem
minnst bera úr být-
um, eiga að láta af
stuðningi sínum við
ríkisstjórnina.
Kjósendur, sem
vilja að þeir og börn
þeirra njóti náttúru
Íslands og þeirra
ótal tækifæra, sem
felast í enn óbeisl-
aðri orku landsins
til annars en stór-
iðju, eiga að láta af
stuðningi sínum við
ríkisstjórnina.
Ég hvet kjós-
endur til að hug-
leiða vel hvernig
þjóðfélag þeir vilja
á Íslandi.
Íslandshreyfingin
vill fjölbreytt
mennta- og atvinnu-
líf. Mikilvægasta
efnahagsmálið er að snúa af
braut gegndarlausrar stóriðju áð-
ur en það er of seint.
Við getum snúið af þessari
braut á næsta kjörtímabili. Við
megum ekki bíða lengur.
Veljum Íslandshreyfinguna.
Næsta kjörtímabil
Eftir Margréti Sverrisdóttur
Margrét Sverrisdóttir
Höfundur er varaformaður
Íslandshreyfingarinnar.
»Mikilvæg-asta efna-
hagsmálið er að
snúa af braut
gegndarlausrar
stóriðju áður en
það er of seint.
ag stefna í
ennandi
eru að
verjar
atuga
hafa breyt-
gn
nuna
ð breyt-
alli og að
framboð
öfum
yr í skoð-
rnu sem
grunn sem
meðal al-
lagt okkar
ir kjörorð-
með því
reitt okkur
ytingar
a valdatíð
isflokks er
nú mega
Hér hefur
nrétt-
ismálum, velferð-
arkerfið hefur
veikst og lands-
byggðin stendur
höllum fæti. Smán-
arblett eins og þann
að setja Ísland á
lista yfir stuðnings-
aðila Írakstríðsins
verður að þvo af.
Stóriðjustefna rík-
isstjórnarinnar hef-
ur auk þess valdið
náttúruspjöllum
sem aldrei verða
tekin til baka og
reynst skuldsettum heimilum og
fyrirtækjum landsins þungur baggi.
Þá reikninga og marga fleiri verður
hægt að gera upp í dag.
Kosningar eiga að snúast um
raunveruleikann; um það sem hefur
verið gert og ekki gert, en ekki um
sýndarheim loforðanna. Allra síst er
það líðandi að flokkar sem haft hafa
12 eða 16 ár til að framkvæma hlut-
ina reyni nú að láta kosningarnar
snúast um kosningaloforð sem aldrei
verður staðið við en ekki um raun-
veruleikann eins og hann
blasir við almenningi.
Framsóknarflokkurinn
vill nú láta kjósa sig út á
loforð um úrbætur í geð-
heilbrigðismálum og
ókeypis tannvernd fyrir
börn en forðast umræður
um ófremdarástandið sem
ríkir og um stefnu flokks-
ins og athafnir undanfarin
ár. Sjálfstæðisflokkurinn
auglýsir sjálfan sig sem
táknmynd efnahagslegs
stöðugleika en sleppir því
að nefna að stýrivextir
hafa hækkað úr 5,3% í 14,25% á
kjörtímabilinu og að viðskiptahallinn
hefur aldrei verið meiri en á síðasta
ári. Allt er tekið að láni og almenn-
ingur líður fyrir. Þeir sem ekki vilja
frekari einkavæðingu í velferð-
arkerfinu, ekki vilja einkavæðingu
Landsvirkjunar, vilja að vatnið sé
áfram í eigu samfélagsins, þeir sem
vilja snúa af braut ójafnaðar og mis-
réttis í samfélaginu og hafna frekari
náttúruspjöllum í þágu stór-
iðjustefnunnar mega ekki láta tæki-
færið sér úr greipum ganga. Þetta
tækifæri verður að nýta.
Fyrir hönd Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs þakka ég
öllum sem lagt hafa hönd á plóg í
okkar baráttu. Ég er stoltur af því
að hún hefur verið málefnaleg og
uppbyggileg af okkar hálfu. Al-
menningur veit hvar við stöndum
því við höfum alla tíð talað skýrt um
okkar áherslur og biðjum nú um
styrk til að gera það áfram. Af við-
tökunum að dæma tekur stór hluti
þjóðarinnar undir sjónarmið okkar
og gerir kröfu um annars konar for-
gangsröðun í landsstjórninni. For-
gangsröðun í þágu umhverfis, kven-
frelsis, velferðar og friðar.
Kosningarnar í dag eru þær mik-
ilvægustu og mest spennandi um
margra ára skeið. Ég hvet kjós-
endur til að nýta sér atkvæðisrétt-
inn.
fússon
» Af viðtökunum aðdæma tekur stór
hluti þjóðarinnar undir
sjónarmið okkar og
gerir kröfu um annars
konar forgangsröðun í
landsstjórninni.
Steingrímur J.
Sigfússon
Höfundur er formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs.
m höndum saman
sum breytingar
fa verið
gvöxtur
mikill,
ðslan hef-
t og rík-
ur verið
meiri af-
u kjör-
æmi eru
da hafa
sjóðs ver-
um mörg
ljarða
ár. Allur
ngur hef-
fram-
er staðan
þjóðanna
aðað eftir
ti.
um stoltir
af verkum okkar en viljum jafnframt
gera enn betur. Við viljum árangur
áfram og stefnum ótrauðir að því
marki að Ísland verði fyrirmynd-
arsamfélag á öllum sviðum. Til að
svo megi verða þurfum við að fá
áframhaldandi umboð þjóðarinnar
til að vinna að metnaðarfullum verk-
um og auka lífsgæði þjóðarinnar enn
frekar.
Framsóknarflokkurinn biður þig
um stuðning í kosningunum. Stuðn-
ingur þinn skiptir öllu enda geta úr-
slitin ráðist á örfáum atkvæðum.
Sagan hefur sýnt okkur það.
» Við viljum áranguráfram og stefnum
ótrauðir að því marki
að Ísland verði fyrir-
myndarsamfélag á
öllum sviðum.
Höfundur er formaður
Framsóknarflokksins.
g-