Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 49
UMRÆÐAN
NÚ í aðdraganda kosninga heyr-
ist því stundum haldið fram að ekki
sé byggðastefna á Íslandi, eða þá að
ef hún sé fyrir hendi
þá sé hún í öllu falli
arfavitlaus, og mætti
þannig álykta að um
hana væri mikill
ágreiningur. En svo
er ekki þegar betur er
að gáð. Byggðastefna
stjórnvalda er sett
fram í formi þings-
ályktunar á Alþingi til
fjögurra ára í senn, nú
síðast fyrir um einu
ári fyrir árin 2006–
2009. Lögum sam-
kvæmt var hún lögð
fram af ráðherra
byggðamála. Við meðferð hennar í
þinginu komu fram ýmsar breyt-
ingatillögur af hálfu þingflokkanna,
og voru þær flestar teknar til greina.
Var þingsályktunartillagan svo sam-
þykkt samhljóða af öllum flokkum í
atkvæðagreiðslu í þinginu hinn 3.
júní 2006. Það er því ljóst að ekki er
mikill pólitískur ágreiningur um
málefnið. Byggðaáætlun er öllum
aðgengileg, m.a. á vef Byggðastofn-
unar. Meginmarkmið hennar er að
bæta búsetuskilyrði á landsbyggð-
inni og efla samkeppnishæfni lands-
ins alls í alþjóðlegu umhverfi. Eitt
meginhlutverk Byggðastofnunar er
að framfylgja byggðaáætlun í sam-
vinnu við þau ráðuneyti,
stofnanir og einkaaðila
sem við á hverju sinni,
og vinna að framkvæmd
þeirra verkefna sem í
henni eru skilgreind til
að ná markmiðum henn-
ar. Verkefnin lúta flest á
einn eða annan hátt að
eflingu innviða sam-
félagsins, framkvæmd
vaxtarsamninga, eflingu
menntunar með áherslu
á aðgengi að menntun
óháð búsetu, bættum
samgöngum, fjar-
skiptum, eflingu
tækniþróunar og nýsköpunar auk
þess sem margt fleira mætti nefna.
Meðal stærstu verkefna Byggða-
stofnunar nú er að annast fram-
kvæmd vaxtarsamninga, söfnun og
úrvinnsla tölfræðiupplýsinga um
byggðaþróun og athugun á stöðu
byggðarlaga sem búa við viðvarandi
fólksfækkun.
Einn mikilvægasti þátturinn í
starfi íslenskra stjórnvalda að
byggðaþróunarmálum er rekstur
kröftugs atvinnuþróunarstarfs á
landsbyggðinni. Byggðastofnun hef-
ur yfirumsjón með þessu starfi. Í
lögum um Byggðastofnun er kveðið
á um að stofnunin skipuleggi og
vinni að ráðgjöf við atvinnuvegi á
landsbyggðinni í samstarfi við at-
vinnuþróunarfélög, sveitarfélög og
aðra. Stofnunin skal gera samninga
við atvinnuþróunarfélög, stofnanir,
sveitarfélög, sjálfstætt starfandi
ráðgjafa eða aðra um að annast at-
vinnuráðgjöf á tilteknu sviði, at-
vinnugrein eða landsvæði. Í því
skyni hefur Byggðastofnun gert
samninga við átta atvinnuþróun-
arfélög sem öll tengjast landshluta-
samtökum sveitarfélaga þótt rekst-
ur þeirra og starfsemi sé
mismunandi. Atvinnuþróunarfélögin
veita ráðgjöf við stofnun og rekstur
fyrirtækja á starfssvæðinu, svo sem
markaðssókn, vöruþróun, fjár-
mögnun, kynningu, endurskipulagn-
ingu, erlend samskipti o.fl. Áhersla
skal að jafnaði lögð á nýstofnuð fyr-
irtæki, fyrirtæki í nýjum atvinnu-
greinum og fyrirtæki sem hafa af-
gerandi áhrif á atvinnulíf lítilla
byggðarlaga. Félögin veita upplýs-
ingar um mögulega fyrirgreiðslu og
aðstoð annarra aðila og leita sam-
starfs við stofnanir í stoðkerfi at-
vinnulífs, fyrirtæki og aðra aðila sem
vinna ráðgjafar- og leiðbeining-
arstarf í atvinnumálum. At-
vinnuþróunarfélögin vinna í sam-
starfi við sveitarfélög, opinbera aðila
og félagasamtök að eflingu búsetu-
þátta, sem m.a. snúa að samgöngum,
verslun og þjónustu, húsnæðis-
málum, félagslegu umhverfi, mennt-
unar- og menningarmálum. Í fjár-
veitingu til félaganna er einnig gert
ráð fyrir verkefnastyrkjum, og geta
atvinnuþróunarfélögin sótt um
stuðning við sérstök verkefni á sviði
atvinnu- og byggðaþróunar á starfs-
svæði sínu.
Annar meginþáttur í starfsemi
stofnunarinnar er svo fjármögn-
unarstarfsemi, einkum útlána-
starfsemi. Megintilgangur hennar er
að tryggja atvinnulífi á starfssvæði
stofnunarinnar aðgengi að lánsfé
óháð staðsetningu. Byggðastofnun
er hluti af stoðkerfi atvinnulífsins.
Henni er ætlað að vega upp skort á
aðgengi lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja að lánsfjármagni á grund-
velli byggða- og atvinnuþróun-
arsjónarmiða, og vinna að eflingu
byggðar og nýsköpun atvinnulífs á
landsbyggðinni. Hún er ekki í sam-
keppni við viðskiptabanka og spari-
sjóði, og raunar eru flest verkefni
sem stofnunin á aðild að á þessu
sviði í góðu samstarfi við þessa aðila.
Eðli máls samkvæmt er því rekstur
útlánastarfsemi hennar bundinn
meiri áhættu en annarra lánastofn-
ana.
Við lifum á tímum örra þjóðfélags-
breytinga og alþjóðavæðingar, og
þess sjást skýr merki í atvinnulífi á
landsbyggðinni. Störfum í frum-
vinnslugreinunum hefur fækkað
verulega og ekki sér fyrir endann á
þeirri þróun. Það á að vera meg-
inviðfangsefni okkar að takast á við
þessi verkefni á þeim forsendum að
breytingar og vaxandi alþjóðavæð-
ing séu ekki ógnun, heldur tækifæri.
Ef samfélagið hefur sameiginlega
sýn á framtíð sína, sýn sem byggist á
gagnkvæmu trausti og sterkum inn-
viðum, ásamt opinberri stefnumót-
um sem tryggir borgurum landsins
jafnræði óháð búsetu, þá þurfa íbúar
landsbyggðarinnar ekki að kvíða
óhjákvæmilegum breytingum í sam-
félagsgerðinni.
Er virk byggðastefna á Íslandi?
Aðalsteinn Þorsteinsson skrifar
um hlutverk Byggðastofnunar » Í aðdraganda kosn-inga heyrist stund-
um að mikill ágrein-
ingur sé um
byggðastefnu á Íslandi.
Svo er ekki þegar betur
er að gáð.
Aðalsteinn Þor-
steinsson
Höfundur er forstjóri
Byggðastofnunar.
Í apríl í fyrra var haldið líflegt
og skemmtilegt íbúaþing þar sem
íbúar Kópavogs tóku þátt í stefnu-
mótun bæjaryfirvalda í skipulags-
málum. Farið var í gegnum skipu-
lagshugmyndir bæjarins, hvað væri
vel heppnað og hverju
mætti breyta. Ein
meginniðurstaða
fundarins var skýr:
Bæjarbúar eru ein-
róma um að taka þarf
til hendinni í nið-
urníddu iðnaðarhverfi
vesturbæjar Kópa-
vogs.
Stefnumál allra
flokka
Fyrir síðustu bæj-
arstjórnarkosningar
var enduruppbygging
Kársness á stefnuskrá
allra framboðslist-
anna. Reyndar hefur
enduruppbyggingin
verið á stefnuskrá
sumra þeirra síðast-
liðin átta ár. Nú er
kjörið tækifæri fyrir
fulltrúa allra flokka
að leggja sitt af
mörkum og byggja
upp betra Kársnes.
Vilji íbúa er til staðar
og ef vandað er til verka mun nýr
hluti Kársness verða fallegur og
góður staður að búa á og hafa já-
kvæð áhrif á verðgildi nærliggjandi
fasteigna.
Blönduð byggð
Iðnaðarhúsabyggðin yst á Kárs-
nesi er að mestu úrelt og illa til
þess fallin að hýsa núverandi starf-
semi. Hættulegir húsgrunnar, tóm-
ar byggingar, bílflök og annað
brotajárn einkennir svæðið og
kemur í veg fyrir að íbúar á Kárs-
nesi geti notið þess að fara þar um.
Slæmt ástand svæðisins hefur auk
þess verið segull á neikvæða sam-
félagshætti undanfarin misseri.
Ljóst er að taka þarf til hendinni
sem fyrst.
Svæðið yst á Kársnesi er ein-
staklega vel fallið til uppbyggingar
íbúðahverfis. Það er við rótgróna
byggð og fellur vel að núverandi
gatnakerfi. Töluverðs landhalla
nýtur við sem leyfir nýja byggð án
skerðingar á útsýni fyrir íbúa í
eldri húsum.
Undanfarin tvö ár hafa verið
unnar hugmyndir að blandaðri
byggð á svæðinu öllu. Áhersla er á
að hverfið fái á sig mynd erlendra
bryggjuhverfa en stuðst hefur verið
við nokkur best heppnuðu bryggju-
hverfi Norður-Evrópu.
Ekki þarf að færa alla
atvinnustarfsemi af
svæðinu því blönduð
byggð er skemmtileg
ef vandað er til verka.
Auk íbúða er gert ráð
fyrir listagalleríum,
kaffihúsum, veitinga-
húsum og annarri
menningarstarfsemi.
Umferðarmál unnin
í sátt
Við þéttingu byggð-
ar verður að taka tillit
til núverandi íbúa og
hverfisins í heild.
Skipulagsyfirvöld
verða að skoða há-
marksflutningsgetu
gatna í sátt og sam-
lyndi við þá íbúabyggð
sem fyrir er. Verk-
fræðistofur hafa unnið
að umferðarmálum fyr-
ir skipulagsyfirvöld
Kópavogsbæjar og
væntum við vel ígrund-
aðra lausna úr þeirri vinnu.
Glæsileg
sportbátahöfn
Við brotthvarf Atlantsskipa hafa
smábáta- og sportbátaeigendur
uppi áætlanir um að stækka legu-
höfn sína. Hugmyndir eru um að
byggja lágreista byggð í kringum
smábátahöfnina sem skapa mun
einstaka umgjörð um tóm-
stundaiðju sívaxandi hóps og stuðla
að fjölbreyttara mannlífi. Sambland
íbúðabyggðar og smábátahafnar er
hugmynd sem mörgum fellur vel í
geð og hefur notið vinsælda í ná-
grannalöndum okkar. Nú er tæki-
færi fyrir Kópavogsbæ að skipu-
leggja og byggja upp skemmtilegt
og metnaðarfullt íbúðahverfi sem
verður eftirsóknarvert til búsetu og
útivistar fyrir íbúa Kópavogs.
Betri byggð í vest-
urbæ Kópavogs
Guðni Bergsson vill
hreinsa til á Kársnesinu
Guðni Bergsson
»Nú er kjöriðtækifæri
fyrir fulltrúa
allra flokka að
leggja sitt af
mörkum og
byggja upp
betra Kársnes
Höfundur er lögfræðingur og stjórn-
armaður í Nesbryggju ehf.
Á ALÞJÓÐLEGUM baráttudegi
kvenna, 8. mars síðastliðinn, skrif-
aði landsnefnd UNI-
FEM á Íslandi undir
samstarfssamning við
utanríkisráðuneytið
og var þar með ára-
langt og farsælt sam-
starf formfest.
Í sameiningu eigum
við mikið starf fyrir
höndum, því enn hall-
ar á konur á flestum
sviðum þjóðlífsins og
út um allan heim, þó
ójöfnuðurinn birtist
vissulega í mismun-
andi myndum og í
mismiklum mæli. Á
meðan eitt helsta bar-
áttumál kvenna á Ís-
landi er kynbundið
launamisrétti styður
UNIFEM afganskar
konur í baráttu þeirra
fyrir því að fá að læra
að lesa og skrifa, en
þar í landi er ólæsi
meðal kvenna yfir 80
prósent. Alnæmi og
ofbeldi gegn konum
og stúlkum eru önnur
baráttumál sem UNI-
FEM leggur áherslu
á. Í sunnanverðri Afr-
íku eru konur 59 prósent þeirra
sem hafa smitast af alnæmisveir-
unni og alnæmissmit meðal kvenna
og stúlkna fer vaxandi um allan
heim. Ástæðurnar má rekja m.a.
til slæmra félagslegra aðstæðna
sem er afleiðing kynjamisréttis og
kynbundins ofbeldis. Ofbeldi gegn
konum og stúlkum er útbreiddasta
mannréttindabrot okkar tíma. Af-
leiðing þess teygir anga sína víða
og lætur nánast engan ósnortinn.
Það hefur margsýnt sig að fjár-
festing í menntun, heilsu og rétt-
indum kvenna skilar sér margfalt.
Sérfræðingar halda því fram að
árangursríkasta leiðin til að taka á
helstu vandamálum þróunarlanda,
s.s. fátækt, útbreiðslu
alnæmis og óstöð-
ugleika, sé að efla og
styrkja stöðu kvenna.
Þeim beri að tryggja
sömu möguleika og
körlum hvað varðar
menntun, atvinnu-
tækifæri, eigna- og
erfðarétt og þátttöku í
ákvörðunartöku. UNI-
FEM veitir tækni-
legan stuðning og
leggur fé til verkefna
sem ætlað er að efla
mannréttindi kvenna,
þátttöku þeirra í
stjórnmálum og efna-
hagslegt öryggi. UNI-
FEM hefur einnig
það hlutverk að
tryggja að jafnrétt-
issjónarmið séu lögð
til grundvallar í allri
stefnumótun og starfi
Sameinuðu þjóðanna
(SÞ).
Þrátt fyrir fögur
fyrirheit alþjóða-
samfélagsins hefur
kynjajafnrétti ekki
fengið framgang inn-
an SÞ og í alþjóðlegri
þróunaraðstoð sem skyldi. Ef SÞ
stæðu við eigin markmið um jafn-
rétti og þróun væri UNIFEM ein
af öflugustu stofnunum innan sam-
takanna en því fer fjarri að svo sé.
Samtökin Association for Women’s
Rights in Development (Samtök
um réttindi kvenna í þróun-
araðstoð) gerðu rannsókn þar sem
þau skoðuðu opinber þróun-
arframlög fyrir árið 2003. Rann-
sóknin sýndi að af þeim 70 millj-
örðum bandaríkjadala sem fóru í
opinbera þróunarsamvinnu árið
2003 fór aðeins 0,5 prósent til þró-
unarverkefna sem höfðu kynjajafn-
rétti að meginmarkmiði. Þetta seg-
ir okkur að alþjóðleg
jafnréttisbarátta og starf UNI-
FEM á allt sitt undir þeim ríkjum
sem skilja nauðsyn kynjajafnréttis
og láta efndir fylgja orðum með
markvissum stuðningi.
Utanríkisráðherra Íslands, Val-
gerður Sverrisdóttir, hefur sýnt og
sannað að hún er tilbúin að beita
sér í jafnréttismálum á al-
þjóðavettvangi. Fjárframlög ís-
lenska ríkisins til UNIFEM hafa
verið stóraukin og í dag er Ísland
það aðildarríki SÞ sem gefur mest
til sjóðsins, miðað við höfðatölu.
Utanríkisráðherra hefur svo sann-
arlega verið ötul stuðningskona
UNIFEM og talað fyrir því á vett-
vangi SÞ að vægi sjóðsins verði
aukið innan samtakanna. Á síðustu
mánuðum hefur áherslum Íslensku
friðargæslunnar verið breytt og
hefur nú aðferðafræði UNIFEM
um kynjasjónarmið við friðarupp-
byggingu til hliðsjónar og fyrir
liggur að fjölga friðargæslustöðum
í UNIFEM-verkefnum úr einni í
þrjár.
Í fyrrgreindum samstarfssamn-
ingi skuldbinda landsnefnd UNI-
FEM á Íslandi og utanríkisráðu-
neytið sig, með markvissum hætti,
til að vinna saman að því að bæta
stöðu kvenna í heiminum og að út-
rýma ójöfnuði byggðum á kyn-
ferði.
Samstarfssamningur
UNIFEM Á Íslandi og
utanríkisráðuneytisins
Guðrún Margrét Guðmunds-
dóttir og Jónína Helga Þórólfs-
dóttir skrifa um UNIFEM
»Utanríkisráðherrahefur svo sann-
arlega verið ötul stuðn-
ingskona UNIFEM og
talað fyrir því á vett-
vangi SÞ að vægi sjóðs-
ins verði aukið innan
samtakanna
Guðrún Margrét
Guðmundsdóttir
Guðrún Margrét er formaður lands-
nefndar UNIFEM á Íslandi og Jón-
ína Helga er varaformaður lands-
nefndar UNIFEM á Íslandi.
Jónína Helga
Þórólfsdóttir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn