Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 55

Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 55 ,,VIRÐULEGI forseti. Góðir Íslendingar. Sú rík- isstjórn sem tók við 28. september síðastliðinn hóf feril sinn eins og allar ríkisstjórnir á Íslandi und- anfarna áratugi með brýnum aðgerð- um í efnahags- og atvinnumálum, en e.t.v. brýnni nú en um langt skeið. Jafnframt því sem ég mun að sjálf- sögðu fjalla um stefnu ríkisstjórn- arinnar í mikilvægum málaflokkum mun ég lýsa fyrstu ráðstöfunum til endurreisnar atvinnulífinu.“ Þannig komst Steingrímur Her- mannsson þáverandi forsætisráðherra að orði árið 1988 í stefnuræðu sinni. Þetta var árið sem ég fékk kosningarétt. Hver man eftir þessu? Getur verið að 85.371 kjós- andi, sem bæst hefur við kjörskrá frá kosningunum 1987, muni ekki eftir því ástandi sem birtist í þessum orðum? Þeir voru allir 19 ára eða yngri á þeim tíma, en eru nú rúm 38% kjósenda. Nú er ekki beðið endurreisnar atvinnulífsins eða eftir brýnum efnahagsaðgerðum til að rétta við stöðu ríkissjóðs. Hér er ekki atvinnuleysi og staða rík- issjóðs hefur aldrei verið sterkari. Sagan kennir okk- ur hins vegar að þannig hefur það ekki alltaf verið. Aldrei er mikilvægara að rifja þetta upp en fyrir kosningar. Það er engin tilviljun hve jákvæð þróun hefur orð- ið í efnahags- og atvinnumálum undanfarin 16 ár. Það gerðist ekki óvænt að hér skapaðist gott atvinnu- ástand. Skattar lækkuðu ekki vegna skilyrða í nátt- úrunni og fjármálageirinn varð ekki til af sjálfu sér. Það kom enginn og greiddi niður skuldir ríkissjóðs fyrir okkur. Þetta er allt árangur stefnu sem mörkuð hefur verið af ríkisstjórnum með aðild Sjálfstæð- isflokksins frá árinu 1991. Það er líka mikilvægt að muna að þær umbætur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir hafa ver- ið umdeildar. Það á við um aðildina að Evrópska efnahagssvæðinu, einkavæðingu ríkisfyrirtækja, lækkun skatta á fyrirtæki og einstaklinga og breyt- ingar á lögum um háskóla til að hleypa að einka- framtakinu. Þessi og mörg önnur umdeild mál hafa nú fyrir löngu sannað gildi sitt. Hver talar annars fyrir stofnun ríkisbanka í dag? Hvar eru þeir sem vilja endurreisa Ríkisskip, stofna ríkissímafélag eða Áburðarverksmiðju ríkisins? Eru einhverjir að boða hækkun skatta aðrir en Vinstri-grænir? Allt þetta er mikilvægt að hafa í huga nú þegar kjósendur ákveða með atkvæði sínu hvaða áherslur skuli ráða við stjórn landsins á komandi árum. Fram- tíðin ræðst af þeirri stefnu sem við nú tökum. Við skulum halda áfram á sömu forsendum. Það mun skila ávinningi fyrir alla. Árið sem ég fékk kosningarétt Eftir Bjarna Benediktsson Höfundur er alþingismaður. ÉG HEF margoft spurt mig þessarar spurningar. Til margra ára hafa bæði ríki og sveitarfélög rætt um málefni aldraðra. Sér- staklega hefur þessi mál borið á góma skömmu fyrir kosn- ingar, bæði sveit- arstjórnar- og ekki síður alþingiskosn- ingar. Hefur verið staðið við öll þau loforð sem ausið er yfir eldri borgara fyrir hverjar kosn- ingar? Langt því frá. Stjórnvöld virðast hvorki átta sig á því hvaðan gamla fólkið kemur né heldur hvað skuli gera við það. Heppilegast er líklega að stinga vandamálinu bara undir stólinn. Ráðamenn þjóðarinnar átta sig ekki á þeirri augljósu staðreynd að þjóðin er að eldast. Þegar ég var yngri þótti það stórviðburður ef einhver náði 100 ára aldri. Und- anfarin ár má kalla það nánast dag- legan viðburð að fólk nái þeim áfanga og er þá jafnan við hesta- heilsu. Eldri borgarar þessa lands ólust upp við allt aðrar aðstæður en við sem yngri erum. Þeir máttu þræla og púla við erfiðar aðstæður, bæði til sjávar og sveita til að sjá sér og sínum farborða og búa í haginn fyr- ir komandi kynslóðir. Okkur. Hver er svo uppskeran fyrir allt þetta erfiði? Eldra fólki er skammt- aður skammarlega lítill lífeyrir. Það er komið aftur til fortíðar, rétt skrimtir og getur ekkert leyft sér. Öldruðum er komið fyrir á stofn- unum og öldrunarheimilum þar sem fer misvel um þá. Hjónum er stíað í sundur, ókunnugir settir saman í herbergi og svo mætti lengi telja. Er þetta virkilega það sem við viljum láta minnast okkar fyrir? Eru þetta þakkirnar fyrir það sem fólkið lagði á sig svo við gætum haft það gott? Nei. Eru þetta aðstæður sem við viljum búa við í ellinni? Það held ég ekki. Við ættum í raun að skammast okkar. Við ættum að setja málefni eldri borgara í forgang og hlúa þannig að þessu fólki, sem við eig- um svo mikið að þakka, að sómi verði að. Hættum að koma fram við eldri borgara eins og þurfalinga. Þeir eru og hafa alltof lengi verið afgangsstærð. Innan Íslandshreyf- ingarinnar er fólk sem vill breyt- ingar, eldri borgurum til hagsbóta. Eldri borg- arar eru af- gangsstærð Eftir Kristínu Á. Arnberg Þórðardóttur Höfundur er í 7. sæti Íslandshreyfingarinar í Suðurkjördæmi. SAMKVÆMT skoðanakönnunum síðustu daga eru verulegar og vax- andi líkur á vinstri stjórn eftir kosningar. Slík stjórn myndi kú- venda í efnahags- og hagstjórnarmálum, þjóðinni og þeim sem minnst mega sín, til ómetanlegs tjóns. Þeir sem efast um slíka kúvend- ingu, ættu að gera tvennt. Kynna sér efnahags- og hagstjórnarafrek íslenskra vinstri stjórna fram til 1991, og huga að málflutningi Sam- fylkingar og Vinstri grænna í þess- ari kosningabaráttu um efnahags- og atvinnumál og ráðstöfunar- tekjur. Vinstri efnahagsráðstafanir Í júní 1989 gat að líta frétt í Morgunblaðinu um dæmigerðar efnahagsráðstafanir þáverandi vinstri stjórnar. Þar segir um áform fjármálaráðherra: ,,Hann segist munu leggja fram tillögur um aukna skattheimtu, niðurskurð og auknar lántökur innanlands. Hins vegar verði að forðazt að taka er- lend lán til þess að rétta af hall- ann.“ En þeim var ekki alls varnað þessum stjórnarherrum því eitthvað varð að gera fyrir fólkið í landinu. Aftur að Morgunblaðsfrétt um efnahagsráðstafanir 1989: ,,mjólk- urverð lækkar strax í dag um fjórar krónur lítrinn, verð á blýlausu bensíni lækkar úr 52 krónum í 50 krónur lítrinn og loks verður sér- pakkað og brytjað lambakjöt boðið á sérstöku tilboðsverði sem verður 20% til 25% lægra en nú.“ Hér var það Steingrímur Sigfússon sem bauð upp á brytjað lambakjöt, enda landbúnaðarráðherra. En ólíkt hafast menn að því nú- verandi ríkisstjórn hefur tekist að lækka skatta, og á sama tíma að greiða skuldir ríkissjóðs og leggja meira til velferðar-, heilbrigðis-, og menntamála en nokkurn tíma fyrr. Hagvöxtur er ekki náttúrulögmál Málflutningur vinstri manna um efnahagsmál bendir til þess að þeir hafi ekkert lært og engu gleymt. Þegar Ingibjörg Sólrún var spurð að því hvernig hún ætlaði að fjár- magna 30 milljarða kosningaloforð Samfylkingarinnar, sagði hún að með aga í fjárlögum mætti hagræða í ríkisrekstrinum. Þegar spyrillinn efaðist um að þannig næði hún í 30 milljarða, bætti hún við: ,,Hún er mörg matarholan“ – og sagði svo: „Það gerist bara með hagvextinum. Ef þú tekur 3% hagvöxt á ári, er það að skila á ári hverju 9–10 millj- örðum á ári í ríkissjóð. Við hljótum öll að gera ráð fyrir því að það verði góður hagvöxtur á næstu árum.“ Hagvöxtur er hins vegar ekkert náttúrulögmál og allra síst hjá vinstri stjórn. Gaspur um velferð okkar allra Árni Páll Árnason, frambjóðandi Samfylkingarinnar, kallar 75% kaupmáttaraukningu frá 1994, ,,innistæðulaust kaupmáttargrobb“. Þegar Kolbrún Halldórsdóttir í Vinstri grænum var innt eftir kaup- máttaraukningunni í sjónvarpsþætti sagðist hún ekki telja það merkilegt þó einhverjir gætu nú keypt nokkr- um kartöflum meira í soðið en áður. Sama Kolbrún sagði í sama þætti að það hefði verið glapræði að einkavæða bankana á sínum tíma. Hún lætur sér í léttu rúmi liggja þó um þúsund ný störf hafi orðið til hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum á árinu 2006, þó fjölgun starfa í fjármálageiranum sé meira en tvö- falt hraðari en í öðrum atvinnu- greinum, og þó skattgreiðslur bank- anna til ríkisins hafa rúmlega 55-faldast frá 1993. Það ár fékk rík- issjóður um 200 milljónir króna í skattgreiðslur frá bönkunum en í fyrra námu þessar greiðslur 11,3 milljörðum króna. Mótsagnakennd atvinnustefna Þegar frambjóðendur Vinstri grænna og Íslandshreyfingarinnar í Suðurkjördæmi voru spurðir hvar þeir eygðu helst von um atvinnu- uppbyggingu þegar stóriðju sleppir, nefndu þeir Bláa lónið. Steingrímur Sigfússon svaraði svipaðri spurn- ingu með því að benda á fjölskyldu norður í Eyjafirði sem bruggaði bjór. Þessi tvö dæmi hafa vakið at- hygli í kosningabaráttunni því at- vinnumálin hafa ekki verið sterk- asta hlið þessara framboða. Gallinn við dæmin er hins vegar sá að hvor- ugur kosturinn væri fyrir hendi ef þessir aðilar hefðu ráðið ferðinni. Bláa lónið varð til við stór- iðjuframkvæmdir á Suðurnesjum og væri líklega í dag skilgreint sem umhverfisslys, en Steingrímur Sig- fússon barðist á sínum tíma hart gegn því að áfengur bjór væri leyfð- ur hér á landi. Árangur í efnahagsstjórn er forsenda framfara Undir forystu sjálfstæðismanna í ríkisstjórn hefur náðst meiri ár- angri í efnahagsmálum en nokkur önnur ríkisstjórn, fyrr eða síðar. Kaupmáttur hefur aukist um 75% á sl. tólf árum, meira en nokkurn tíma fyrr, kaupmáttur bótaþega Tryggingastofnunar hefur aukist enn meira á tímabilinu, atvinnuleysi er ekkert á Íslandi og hér ríkir meiri jöfnuður en í nokkru öðru Evrópuríki, greiðslubyrði sem hlut- fall af ráðstöfunartekjum hefur lækkað umtalsvert á síðustu tveim- ur árum, skattar hafa aldrei verið lækkaðir jafnmikið, ríkissjóður er rekinn með meiri afgangi á þessu kjörtímabili en dæmi eru um og er- lendar skuldir ríkissjóðs hafa verið greiddar upp. Stjórnmálamenn sem hafa slíkan árangur í flimtingum eru ekki lík- legir til að halda áfram á þessari framfarabraut. Þeir eru heldur ekki líklegir til að koma á umbótum í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu eða velferðarkerfinu því allar raun- verulegar framfarir byggjast á traustri efnahagsstjórn. Framfarir byggjast á traustri efnahagsstjórn Eftir Mörtu Guðjónsdóttur Höfundur er varaborgarfulltrúi og formaður Varðar, full- trúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík. ÉG er heimspekingur og ein af mínum lífsreglum hefur verið að ganga ekki í stjórnmálaflokk. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að póli- tík snúist um völd og að völd hafi til- hneigingu til að spilla þeim sem þau hafa. Þess vegna þarf að skipta reglu- lega um valdhafa. Ég hef einnig verið þeirrar skoðunar að heimspekingar eigi ekki að henda sér út í hringiðu stjórnmál- anna heldur að standa til hliðar við hana til þess að geta haft hæfilega fjarlægð á málin. Það er oft nauðsyn- legt að standa utan við hlutina til að geta metið sem flestar hliðar mála. Það er einmitt það sem heimspek- ingar gera, að velta hlutunum fyrir sér. Það getur líka verið liður í því að halda trúverðugleika sem sam- félags- og menningarrýnir að taka ekki afstöðu með tilteknum málstað, hagsmunum eða valdi. Með því að fara á lista Íslands- hreyfingarinnar í þessum alþing- iskosningum þverbrýt ég prinsipp mitt um að standa utan við flokkap- ólitík. Helsta ástæðan er sú að ég tel baráttuna um framtíð Íslands, sem er barátta um stóriðjustefnuna, vera miklu stærra og meira mál en ég og mitt starf. Framboð Íslandshreyfingarinnar er jafnframt rökrétt næsta skref í umhverfisbaráttu síðustu ára sem ég hef tekið þátt í. Þetta er barátta um umhverfi í víðum skilningi sem snýst ekki bara um verndun íslenskrar náttúru, heldur einnig um það sam- félagslega umhverfi sem verið er að byggja upp hér á landi. Ég hef ein- faldlega ekki trú á álverum sem ein- hvers konar heildarlausn á atvinnu- málum á landsbyggðinni. Mig óar við því að ef svo fer sem horfir og Alcoa eignast flest álverin og sé þar með kaupandi að stærstum hluta orkunn- ar sem hér á að framleiða. Ef álver verður reist á Húsavík verður Alcoa langstærsta fyrirtækið í landshlut- anum. Þetta er í takt við þá þróun að stórfyrirtæki séu í raun að verða hið ráðandi afl í heiminum sem stað- bundin pólitík má sín lítils gegn. Stóriðjustjórnin sem er hér við völd hefur verið fyrirgreiðsluaðili fyrir ál- fyrirtækin. Þess vegna þarf stjórn með aðrar áherslur því ábatinn af ál- framleiðslu, bæði peningalegur og samfélagslegur, er mun minni en margir telja. Sú staðreynd að konum hefur víða fjölgað á þjóðþingum undanfarin ár gæti verið ein vísbending um vald- skerðingu stjórnmála. Þegar konum fjölgar í einhverri starfstétt þá hefur það stundum haft í för með sér gild- islækkun þeirrar stéttar hvað ásýnd og áhrif varðar. Konum var sagt að mennta sig til að geta öðlast jafnrétti á við karla. Þær gerðu það og eru nú í meirihluta í flestum háskólagrein- um. Á sama tíma virðist sem ungir karlar sæki sér frekar menntun og starfsþjálfun í fjármálageiranum þar sem launahækkanir hafa verið hvað mestar á undanförnum árum. Einka- væðing bankanna virðist hafa verið karlavæðing þeirra, en fáar konur eða engar eru í hópi ofurlaunahaf- anna innan þeirra. Álverin reyna aft- ur á móti að státa sig af framsæknu jafnréttisstarfi með því að laða að og hafa sem flestar konur að störfum í kerskálunum. Sum þeirra fá jafn- réttisverðlaun fyrir vikið. Ber þetta tvennt vott um þróun í jafnréttisátt? Nei. Ég kæri mig ekki um þessa þróun og þess vegna gekk ég til liðs við Ís- landshreyfinguna. Það þarf að fella stóriðjustjórnina sem stendur fyrir gamaldags atvinnuuppbyggingu, orkusölu undir verði og nátt- úruspjöll. Al Gore segir að ef maður er ekki ánægður með hvað sé gert á þingi í umhverfismálum eigi maður að bjóða sig fram til þings. Ómar Ragn- arsson og fleira fólk innan Íslands- hreyfingarinnar stóð upp frá sínum verkefnum og hlýddi svona kalli. Ekki vegna þess að þau ásælist völd valdanna vegna, heldur vegna þess að þeim finnst þau hafa skyldum að gegna gagnvart Íslandi framtíð- arinnar sem þeim finnst meirihluti þingheims ekki taka nógu alvarlega. Um umhverfi og jafnrétti Eftir Sigríði Þorgeirsdóttur Höfundur er heimspekingur og skipar 3. sæti á lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík suður. LANDSMENN standa frammi fyrir óvenju skýrum og afdráttarlausum valkostum þegar þeir ganga til kosninga til Alþingis nú á laugardag. Fram- sóknarflokkurinn hefur átt aðild að ríkisstjórn í tólf ár, eða síðan 1995. Það er lengsta samfellda hagvaxtarskeið sögunnar hér á landi og þær framfarir sem orðið hafa hér á landi á aðeins örfáum ár- um eru í raun ævintýri líkastar. Það er væntanlega af þeim sökum sem sífellt stærri hópur landsmanna vill sjá Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn að lokn- um kosningum. Til þess að svo geti orðið þarf Framsókn- arflokkurinn auðvitað nauðsynlegt afl og lykill að því er öfl- ugt fylgi í kosningunum á laugardag. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur vakið athygli í kosningabaráttunni fyrir bjartsýna og einlæga framgöngu. Hann hefur ekki látið bugast þótt á móti hafi blásið og hann nýtur augsýnilega trausts fyrir margháttaða framgöngu á sínum starfsferli. Reykvíkingar eiga þess kost að tryggja Jóni Sigurðssyni öruggt þingsæti í kosningunum á laugardag og leggja um leið lóð á þær vogarskálar sem geta ráðið úrslitum um myndun ríkisstjórnar í landinu til næstu fjögurra ára. Ég heiti á borgarbúa að leggja góðum manni lið og minni á að hvert og eitt atkvæði getur í raun ráðið úrslitum. Vilt þú ráða úrslitum? Eftir Björn Inga Hrafnsson Höfundur er formaður borgarráðs. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.