Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 65
FRÉTTIR
Hannes Hlífar Stefánsson náði
allgóðum árangri á Evrópumeistara-
mótinu í Dreseden sem lauk í síðasta
mánuði. Hannes hlaut 6 ½ vinning
úr 11 skákum og tapað aðeins einni
skák. Mótið var geysilega sterkt.
Ekki hefur mikið borið á Hannesi
undanfarið en hann býr í Prag í
Tékklandi og unir hag sínum vel.
Hann varð Íslandsmeistari í áttunda
skipti sl. haust og Íslandsmeistari
með Helli á dögunum. Hann hefur
margoft sýnt að hann getur unnið
hvern sem er enda er ferill hans afar
glæsilegur. Einn af bestu skák-
mönnum þjóðarinnar og mikill orð-
hákur lét þau orð falla að helsti galli
Hannesar væri kannski sá hversu
kórréttur hann væri; hann fylgdi
tískunni fullmikið.
Miðað við þá ofgnótt upplýsinga
sem liggur fyrir í dag er kannski
ekki endilega best að þræða sömu
byrjanir og t.d. Anand sem í dag er
leiðandi meðal kóngspeðsmanna.
Eftirfarandi skák frá Dresden sýnir
að Hannes hefur býsna alhliða
skákstíl og er jafnvígur á kóng-
speðs- og drottningarpeðsbyrjanir.
Eftir hefðbundna byrjun kemur upp
geysilega flókið miðtafl þar sem
skiptamunarfórn Hannesar ræður
úrslitum:
EM í Dresden; 9. umferð:
Hannes Hlífar Stefánsson –
Roman Nechepurenko (Rússland)
Grunfelds vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3
O-O 5. Bg2 d5 6. cxd5 Rxd5 7. O-O
Rb6 8. Rc3 Rc6 9. e3 e5 10. d5 Re7
11. e4 Bg4 12. h3 Bxf3 13. Bxf3 c6
14. Bg2 cxd5 15. exd5 Rf5 16. Dd3
Hc8 17. Hd1 Rd6 18. Rb5 a6 19.
Rxd6 Dxd6 20. Db3 Hfe8 21. Bd2 e4
22. Bb4 Dd7 23. Bf1 Be5 24. a4 Df5
25. d6 Rd7 26. Hac1 Hxc1 27. Hxc1
Bd4 28. Dc2 Re5 29. Hd1 Rc6 30.
Bc3 Dc5 31. d7 Hd8
32. Hxd4 Rxd4 33. Dxe4 Re6 34.
Dxb7 Dd6 35. Dxa6 Dxd7 36. a5
Dc7 37. Dc4 Dxc4 38. Bxc4 Rc5 39.
Be5 Hc8 40. Bb5 Rb3 41. a6 Hc1+
42. Kg2 Ha1 43. Bc4 Rc5 44. b4 Ha4
45. Bb5 Hxa6 46. Bxa6 Rxa6 47.
Bd6
– og svartur gafst upp. Lokastað-
an er gott dæmi um yfirburði bisk-
ups yfir riddara í opnum stöðum.
Kasparov á lista 100 áhrifa-
mestu einstaklinga hjá Time
Hið virta tímarit birti á dögunum
lista yfir 100 áhrifamestu einstak-
linga heims um þessar mundir. Á
þessum lista er Garrí Kasparov „…
fyrir að leiða einmanalega baráttu
fyrir auknu lýðræði í Rússlandi“,
eins og það er orðað. Skilningur
Kasparovs á lýðræði virtist nokkuð
á reiki er hann stjórnaði GMA, sam-
tökum stórmeistara á sínum tíma og
frægt var þegar hann sagði sig úr
stjórn samtakanna á fundi í Murcia
á Spáni árið 1990 eftir að hafa orðið
undir í atkvæðagreiðslu um lítilfjör-
legt mál. Í viðtali við Time á dög-
unum gat hann þess að það hefði
ekki verið fyrr en árið 1996 sem
hann skildi hið raunverulega inntak
lýðræðis. Þó svo margir telji vafa-
samt að hann nái miklum árangri á
pólitíska sviðinu á næstum árum
liggur fyrir að stuðningsmönnum
hans er ekki vært í Rússlandi og
Kasparov fer varla út fyrir hússins
dyr í Moskvu nema í fylgd lífvarða.
Nigel Short kallaður
fyrir siðanefnd FIDE
Þó Florencio Campomanes hafi
verið afar umdeildur sem forseti
FIDE stóð hann vörð um ýmsar þær
hefðir sem FIDE gat talið sér til
tekna og varðaði þá einkum heims-
meistarakeppnina í skák með all-
flóknu en þó sanngjörnu fyrirkomu-
lagi. Nú er það óumdeilt að hnignun
FIDE hófst með skipsbroti heims-
meistaraeinvígjanna 1993 þegar
Kasparov og Nigel Short héldu boð-
að FIDE-einvígi sitt á vegum nýrra
samtaka atvinnumanna, PCA. Í árs-
lok ’93 stóð skákheimurinn skyndi-
lega uppi með tvo heimsmeistara –
og kannski þrjá því Bobby Fischer
titlaði sig heimsmeistara þegar hann
tefldi við Spasskí í Serbíu og Svart-
fjallalandi árið 1992. Einvígi Kasp-
arovs og Shorts í London ’93 fór
ágætlega fram en var engu að síður
mikill álitshnekkir fyrir skákhreyf-
inguna á alþjóðavísu og hefur Kasp-
arov viðurkennt einvígið sem mis-
tök. Hann stökk síðan á vagninn
aftur með Campo og félögum þegar
þing FIDE fór fram í Moskvu 1994.
Arftaki Campomanes í forseta-
stóli, Kirsan Ilumzinov hefur á sinni
tíð safnað í kringum sig hirð sem
varla myndi þrífast í öðrum alþjóða-
samtökum. Þar fer fremstur í flokki
Georgíumaðurinn Zurab Azmap-
arashvili. Zurab er reyndar frábær
skákmaður en dálítið bröndóttur og
langfrægastur fyrir að hafa tekið
þátt í frægu svindlmóti í Makedóníu,
tekið upp leik á Evrópumeistara-
mótinu í Tyrklandi fyrir fjórum ár-
um og skallað öryggisvörð á Ólymp-
íumótinu í Calvia 2004. Fyrir nokkru
samþykktu margar af fremstu skák-
konum heims yfirlýsingu sem bar
yfirskriftina: FIDE án Azmaparas-
hvili. Nigel Short gerði Zurab að
umtalsefni fyrir nokkrum misserum
en hefur nú verið kallaður fyrir sér-
skipaða siðanefnd FIDE vegna um-
mæla sinna. Mikil þörf hefur verið á
slíkri siðanefnd en svo undarlega vill
til að siðanefndin á nú að taka á um-
mælum Shorts um Azmaparashvili.
Enska skáksambandið hefir gefið út
stuðningsyfirlýsingu fyrir Short og
krefst jafnframt að Azmaparashvili
geri hreint fyrir sínum dyrum.
Af Hannesi Hlífari
SKÁK
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar
Öflugur Hannes Hlífar Stefánsson stóð sig vel í Dresden.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Vífil-
felli:
„Í Morgunblaðinu 10. maí 2007 er
eftirfarandi haft eftir Einari Oddi
Kristjánssyni alþingismanni á fram-
boðsfundi á Hvalfjarðarströnd:
„Kókið hefur hækkað helmingi
meira en mjólkin! Ég furða mig á að
menn skuli ekki taka eftir þessu....“
Vífilfell vill í tilefni þessara um-
mæla benda á meðfylgjandi vísitölu-
mælingu Hagstofu Íslands á neyslu-
verði fyrir mjólk annars vegar og
gosdrykki hins vegar frá 1993 til
2007. Fullyrðing um að kók hafi
„hækkað helmingi meira en mjólkin“
stenst augljóslega ekki. Þvert á móti
lækkaði verð á gosdrykkjum fyrr á
þessu ári við lækkun virðisauka-
skatts á matvælum að frumkvæði
ríkisstjórnarinnar.
Til fróðleiks – og í tilefni af því að
Einar Oddur tengist sjávarútvegi –
er þriðja línan höfð með á myndinni.
Sú sýnir hækkun fiskverðs sam-
kvæmt vísitölumælingu Hagstofunn-
ar á viðmiðunartímabilinu.“
Athugasemd frá Vífilfelli
KYNNING á 3ja ára námi í
náttúrulækningum, heilsumeist-
aranám, verður á Kaffi Hljóma-
lind, Laugavegi 21, sunnudaginn
13. maí kl. 17.
The School of Natural Medicine
á Íslandi (SNMI) býður uppá
einstaklega djúpt nám í almenn-
um náttúrulækningum sem færir
nemendum fjölbreytta færni til
að verða sannir meistarar í
náttúrulegri heilsu og heilun.
Heilsumeistaranám veitir þekk-
ingu í heilsuvernd sem er án inn-
gripa svo sem skurðaðgerða og
lyfja, sem styðst við faglega leið-
sögn, kennslu og náttúrulegar að-
ferðir og efni við uppbyggingu
heilsunnar Kennslan fer fram á
þremur árum með kennslulotum
vor og haust og heimanámi. Inni-
hald námsins byggist á þremur
menginþáttum sem eru Lit-
himnufræði (Master Iridology),
Grasalækningar (Master Herbal
Medicine) og Náttúrulækningar
(Master Naturopathy). Auk þess
eru í náminu aðrir námsþættir
s.s. svæðanudd, kjarnaolíur,
blómadropar, lækningafæði og
síðast en ekki síst að vinna að
eigin heilsuvernd, segir í frétta-
tilkynningu.
Námslotur eru viðamestar í
maí og september, þá mun dr.
Farida Sharan kenna samþætt-
ingu allra meginviðfangsefna
námsins. Námið er alþjóðlega við-
urkennt nám og nemendur fá
ND, Naturopath Diploma.
Nýtt nám í nátt-
úrulækningum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ástu R.
Jóhannesdóttur:
Vegna úttektar Samtaka um betri
byggð í Morgunblaðinu í gær þar
sem sagt er að ég telji að flugvöllur-
inn eigi að fara úr Vatnsmýrinni
2016 vil ég leiðrétta þá fullyrðingu.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að
flugvöllur eigi að vera í Reykjavík.
Finnist jafngott eða betra flugvallar-
stæði fyrir hann en nú er, væri í lagi
að flytja flugvöllinn í framtíðinni, en
ég hef ákveðnar efasemdir um að
betra stæði finnist í borginni. Aftur
á móti má auka byggð í Vatnsmýri
ef flugbrautum verður breytt eins
og hugmyndir hafa komið fram um.
Reykjavíkurflug-
völlur í Vatnsmýri
VORHÁTÍÐ, sem ber yfirskriftina
Laugarnes á ljúfum nótum, fer fram
á lóð Laugarneskirkju á morgun,
sunnudaginn 13. maí, á milli kl. 14
og 16.
Leikskólabörn úr leikskólunum
Hofi, Laugaborg og Lækjarborg
munu syngja. Auk þess mun Barna-
kór Laugarness syngja undir stjórn
Maríu Magnúsdóttur. Þorvaldur
Halldórsson tekur gamlar en sígild-
ar perlur, nemendur Laugarnes-
skóla sýna dans, fimleikadeild
Ármanns sýnir fimleika, Ármann/
Þróttur sýnir glímu og fleiri íþrótt-
ir. Sunnudagaskólaleiðtogar Laug-
arneskirkju verða með brúðuleikrit,
trúbadorinn Svavar Knútur syngur
og spilar, hljómsveitir og einleik-
arar úr Laugalækjarskóla og Laug-
arnesskóla troða upp. Þá verður
lögreglan á svæðinu til halds og
trausts ásamt hundinum Tinna.
Skátafélagið Skjöldungar verða
með hoppkastala og félagsmiðstöð
ÍTR í Þróttheimum mun stýra leikj-
um á lóðinni. Foreldrafélög Laug-
arnes- og Laugalækjarskóla selja
grillaðar pylsur, kaffi og jafnvel
eitthvað fleira nytsamlegt til fjár-
öflunar góðu málefni. Kynnir verð-
ur sr. Hildur Eir Bolladóttir settur
sóknarprestur við Laugarneskirkju.
Að vorhátíðinni koma allir skólar
og öll félög í Laugarneshverfi sem
bera hag barna og unglinga fyrir
brjósti. Öllum er velkomið að láta
sjá sig á svæðinu og njóta þess sem
fram fer í góðum og glöðum hópi og
vonandi í góðu veðri.
Laugarnes á
ljúfum nótum
FUGLAHUNDAHÁTÍÐ verður
haldin um helgina, en sunnudaginn
13. maí verða fuglahundar sýndir í
reiðhöll Sörla við Kaldárselsveg í
Hafnarfirði. Sýningin hefst kl. 11 og
er áætlað að henni ljúki um kl. 16.30.
Á sýningunni, sem er á vegum
Fuglahundadeildar Hundaræktar-
félags Íslands, verða sýndir stand-
andi fuglahundar sem tilheyra teg-
undahópi 7, en þær tegundir sem
sýndar verða eru: Breton, Enskur
seti, Gordon seti, Írskur seti, Point-
er, Vizsla, Vorsteh og Weimaraner.
Auk hunda úr þessum tegundahópi
verða Schnauzer-hundar sýndir í
sérstökum sýningahring. Alls taka
um 80 hundar þátt í sýningunni.
Eðli fuglahunda er afar forvitni-
legt og er árangur ræktunar í ár-
hundruð, segir í fréttatilkynningu.
Veiðar með fuglahundum voru fyrst
og fremst íþrótt aðalsmanna áður
fyrr. Náttúra þeirra hunda sem
þjálfaðir eru hér á landi er fyrst og
fremst sú að leita að rjúpum. Þeir
hlaupa skipulega yfir landið og nýta
vindinn sem ber með sér lykt af
bráðinni. Þegar hundurinn finnur
hana stansar hann, tekur „stand“ og
bíður eigandans. Þessir hundar nýt-
ast einnig vel við aðrar fuglaveiðar,
einkum til að sækja fellda bráð.
Á sýningunni á sunnudaginn er
fyrst og femst verið að dæma útlit,
byggingu og geðslag hundanna.
Veiðieiginleikarnir eru metnir á
veiðiprófum. Dómarar á sýningunni
koma frá Noregi en það eru hjónin
Vigdis og Per Nymark. Þau hafa
bæði dæmt hér á landi áður, bæði á
sýningum og í veiðiprófum. Þau
munu jafnframt dæma á veiði-
prófum á vegum Fuglahundadeildar
HRFÍ á föstudag og laugardag.
Fuglahundar Pointerinn Vatnsenda-Vera, sem hér er með Ásgeiri Heiðari
eiganda sínum og Cathy Delmar dómara frá Írlandi, var valin besti hvolp-
ur í yngri flokki á alþjóðlegri sýningu Hundaræktarfélags Íslands í mars
sl., en þessi mynd var tekin við það tækifæri. Vatnsenda-Vera verður sýnd
á fuglahundasýningunni á morgun, sunnudag.
Fuglahundasýning í reiðhöll Sörla