Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 75
færir Stuðmönnum og Sálinni innilegar þakkir fyrir
frábæra tónleika í Cirkusbygningen á síðasta vetrardag.
Einnig færum við þeim Valgeiri Guðjónssyni, Björgvini
Halldórssyni og Eyjólfi Kristjánssyni sérstakar þakkir
fyrir þeirra framlag til tónleikanna.
Við þökkum öllum þeim 1.129 gestum sem sóttu
tónleikana fyrir frábærar viðtökur.
Ljósmyndir frá kvöldinu má skoða á heimasíðu okkar.
Starfsfólki Icelandair í Reykjavík og Kaupmannahöfn
þökkum við einstaklega gott samstarf.
Sjáumst á ný í Kaupmannahöfn 30. apríl 2008!
Egill, Björgvin og Valgeir í stuðiTroðfullur salur af prúðbúnum
tónleikagestum
Stuðmenn og Sálin í Kaupmannahöfn 18. apríl 2007
Hótelbókanir í Kaupmannahöfn
www.kaupmannahofn.dk
Bókið hótelin hjá okkur
Hagstæðasta verðið á bestu hótelum Kaupmannahafnar.
hotel@kaupmannahofn.dk - www.kaupmannahofn.dk
L
jó
s
m
.
S
ig
u
rj
ó
n
R
a
g
n
a
r
Nú að undanúrslitum loknummá spyrja hvað tekur viðþað sem eftir er dvalar-
innar í Helsinki. Keppendur yfir-
gefa svæðið ekki fyrr en á morg-
un, hvort sem þeir taka lagið í
kvöld eður ei. Hið sama gildir um
íslenska hópinn. Allt í einu er næg-
ur tími fyrir höndum, þétt skipulag
síðastliðinnar viku hefur runnið
sitt skeið. Eiríkur og félagar hafa
hingað til ekki náð að skoða borg-
ina. Dagarnir voru þó að mestu
óráðnir er blaðakona náði af þeim
tali.
Misjafnar undirtektir eru viðniðurstöðu fimmtudags-
kvöldsins meðal gesta og íbúa í
Helsinki. Allnokkrir segja nauð-
synlegt að hafa fleiri en eina und-
ankeppni að ári. Austur og vestur
segja sumir, aðrir telja keppnina
einfaldlega hafa verið of langa.
Vonbrigða hefur gætt í Finnlandi
með að Eiríkur kæmist ekki áfram
og enginn botnar í hvað varð An-
dorra að falli. Ánægja ríkir hins
vegar með aðstandendur keppn-
innar. Stoltir Finnar hafa ákveðið
að demba sér í Evróvisjóngleðina
af fullum krafti. Miðborg Helsinki
var í gær troðin af fólki, annað
eins mannhaf er sjaldséð hér um
slóðir. Aleksanterinkatu, sem er
eins konar Laugavegur Hels-
inkibúa, tengir tvö tónleikasvið
þar sem lands- og jafnvel heims-
þekktir hæfileikamenn á borð við
22 Pistepirkko og M.A. Numminen
troða upp.
Lífið heldur áfram og einnigEvróvisjón. Herlegheitin í
kvöld hefjast þar sem þau enduðu í
Aþenu, Lordi stígur á svið. Afar
spennandi verður einnig að sjá at-
riði sellótríósins Apocalyptica í
miðri útsendingunni. Söngva-
keppnin sjálf hefst svo á framlagi
Bosníu og Herzegóvínu. Falleg
kona í fallegum kjól syngur fallegt
lag sem hljómar eins og langur
millikafli. Svipað má segja um
Armeníu og Litháen, lögin sitja
ekki, jafnvel ekki í þeim sem hafa
kynnt sér málin og hlustað nokkr-
um sinnum. Tvö strákagengi eru í
keppninni. Hvítklæddir súkku-
laðidrengir frá Spáni stíga dans og
bak við stóra trommu á sviðinu
dansar hvítklædd stúlka með kjuða
í höndum. Um lettneska framlagið
mætti segja að Backstreet Boys
hafi vaxið úr grasi og byrjað að
syngja Andrea Bocelli með pípu-
hatt á höfði. Grikkir senda Tyrkj-
um keppinaut í danspoppi, en þeir
sem kjósa heldur sætar stelpur
með kisuaugu er bent á að fylgjast
með rússneska tríóinu Serebro.
Þær eiga reyndar hrós skilið fyrir
að vera ekki of léttklæddar, en
hárbeittir Finnarnir hafa gert gys
að fjölda hálfnaktra kvenkyns
keppenda.
Af þeim sem ekki tóku þátt íundankeppninni eru sér á báti
Írar með fullhæga þjóðlagatónlist,
Þjóðverjinn Roger Cicero í svings-
veiflu og Bretar sem eru í flug-
vélaleik. Finnar og Svíar eru held-
ur ekki með beinan keppinaut
hvað tónlistarstefnu varðar, helst
þá að þeir keppi hvorir við aðra.
Hanna Pakarinen er glæsileg á
sviðinu og þykir sýnt að finnsku
tæknimennirnir hafi vandað verk
sitt sérstaklega.
Halastjarna kvöldsins er þóóumdeilanlega hin silfur-
klædda Verka Serduchka. Úkra-
ínski klæðskiptingurinn dansar
kostulegan dans undir harmóníku-
leik og hvetur áhorfendur til að
dansa með. Verka syngur á þýsku,
ensku og úkraínsku, berandi
stjörnu á höfði og risastór sólgler-
augu. Umdeild í heimalandinu, en
hér í Helsinki; bætir, hressir og
kætir.
Helsinki,
tólf stig
Morgunblaðið/Eggert
Hressandi „Úkraínski klæðskiptingurinn dansar kostulegan dans undir harmóníkuleik og hvetur áhorfendur til að dansa með. “
FRÁ HELSINKI
Halldóra Þórsdóttir
halldt@mbl.is