Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 78
78 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
ÍSLEN
SKT
TAL
It’s a Boy Girl Thing kl. 3 - 5.50 - 8 - 10.10
Spider Man 3 kl. 2.30 - 5.30 - 8.30 - 11.20 B.i. 10
Pathfinder kl. 8 B.i. 16
Inland Empier kl. 2.30 - 5.45 - 9 B.i. 16
The Hills Have Eyes 2 kl. 10.15 B.i. 18
Úti er Ævin... m/ísl. tali kl. 3 - 6
FYRSTA STÓRMYND
SUMARSINS
STURLAÐ STÓRVELDI
NÝJASTA ÞREKVIRKIÐ FRÁ MEISTARA DAVID LYNCH.
eeee
„Marglaga listaverk...
Laura Dern er mögnuð!“
K.H.H, FBL
eeee
„Knýjandi og
áhrifaríkt verk!”
H.J., MBL
eeee
L.I.B., TOPP5.IS
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
GOÐSÖGNIN UM ÍSLENSKU VÍKINGANA LIFIR GÓÐU
LÍFI Í ÞESSARI KYNGIMÖGNUÐU HASARMYND!
Í KJÖLFAR 300 KEMUR PATHFINDER
TVEIR HEIMAR
EITT STRÍÐ
LOKAORUSTAN
ER HAFIN!
Stranglega bönnuð
innan 18 ára!
eee
EMIPIRE
It’s a Boy Girl Thing kl. 4 - 8 - 10
Spider Man 3 kl. 2 - 5 - 8 - 10.40 B.i. 10 ára
Next kl. 6 B.i. 14 ára
Úti er Ævint... m/ísl.tali kl. 2 - 450 kr. B.i. 14 ára
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
It’s a Boy Girl Thing kl. 1.30 - 3.45 - 5.50 - 8 -10.10
Spider Man 3 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára
Spider Man 3 LÚXUS kl. 2 - 5 - 8 - 11
Next kl. 5.45 B.i. 14 ára
Pathfinder kl. 8 - 10.15 B.i. 16 ára
The Hills Have Eyes 2 kl. 10.30 B.i. 18 ára
Perfect Stranger kl. 5.30 - 8 B.i. 16 ára
TMNT kl. 1.30 - 3.30 B.i. 7 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 - 3.45
Þau skipta óvart um líkama og nota tækifærið
til að hefna sín á hvort öðru!
Frábær gamanmynd um strák og stelpu og stelpu og strák!
Með Samaire Armstrong úr O.C. og Kevin Zegers úr Dawn of the Dead
Hann reynir
að komast úr
nærbuxunum
hennar...
ekki í þær!
kevin zegres samaire armstong sharon osbpurne
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
20.000 MANNS
Á AÐEINS 8 DÖGUM!
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
ÞAÐ VAR mikil gleði í Hartwall-
höllinni í Helsinki og líka sorg og
beiskja. Þær þjóðir sem komust áfram
fögnuðu en margar þeirra sem sátu
eftir tóku ósigrinum illa og óíþrótta-
mannslega. Skemmtileg þversögn kom
í ljós í spjalli við danska söngvarann
Peter Andersen í Politiken í gær, þar
sem hann bar sig mannalega þrátt fyr-
ir ósigurinn. Í spjallinu ber meðal ann-
ars á góma að hugsanlega væri rétt að
skipta keppninni upp landfræðilega, en
síðan þegar hann er spurður að því
hvaða lög honum hugnist best nefnir
hann Úkraínu, Serbíu og Hvíta-
Rússland – allt Austurevrópulönd.
Sitthvað söngur og söngur
Metfjöldi landa tók þátt í und-
ankeppninni, 28 lönd alls, og komust
tíu áfram. Af þeim voru níu frá Austur-
Evrópu, en Tyrklandi verður seint tal-
ið til Austur Evrópu þó það sé vissu-
lega austan við Dóná. Ekki frekar en
Ísrael eða Malta.
Ekki verður annað sagt en að löndin
sem komust áfram hafi öll náð þangað
fyrir eigin verðleika, þ.e. ef keppnin
miðast á annað borð við að besta lagið
og það sem best er flutt komist í úrslit-
in.
Lag Dana var þannig til dæmis
skelfilega sungið, þó flutningurinn hafi
verið í lagi að öðru leyti. Aftur á móti
sýndi Eiríkur Hauksson og sannaði að
hann er rokksöngvari af guðs náð, en
flutningurinn óttalega hallærislegur
með fjóra gítar- og bassaleikara sem
hömuðust í takt – samhæft sund víkur
fyrir samhæfðum loftgítar þar sem all-
ir eru að pósa og enginn að spila.
Önnur lönd sem ekki komust áfram
voru lítið betri – sjá til að mynda
„Austanblokkarríkið“ Pólland sem
setti Evrópumet í smekkleysu. Hugs-
anlega felst þar skýring á því af hverju
þær tvær milljónir Pólverja sem flust
hafa til Englands greiddu sínum
mönnum ekki atkvæði.
Löndin sem komust á fram voru
annars Hvíta-Rússland, Makedónía,
Slóvenía, Ungverjaland, Georgía, Lett-
land, Serbía, Búlgaría, Tyrkland og
Moldóva. Þau eru eiginlega öll vel að
því komin að hafa komist áfram, sér-
staklega Búlgaría, Serbía og Hvíta-
Rússland, en flestir spá því líka að þau
séu líkleg til að lenda ofarlega í loka-
keppninni. Serbneska lagið nýtur þess
hugsanlega best að hafa fengið að
heyrast tvívegis, seinteknara lag til að
mynda en það búlgarska.
Mestar líkur á sigri Úkraínu
Í úrslitum hitta þessi lönd fyrir
Bosníu-Herzegóvínu, Spán, Írland,
Finnland, Litháen, Grikkland, Svíþjóð,
Frakkland, Rússland, Þýskaland,
Úkraína, Bretland, Rúmenía og Ar-
menía. Mjög er misjafnt hverju menn
spá um úrslitin, enda keppnin óvenju
fjölbreytt að þessu sinni, en þó óhætt
að spá því að Úkraína eigi eftir að
vekja verulega athygli sem dugað gæti
til sigurs. Serbía kemst eflaust langt á
söngkonunni og Hvíta-Rússland gæti
líka komist nálægt toppnum, en þó
varla á hann.
Á vefsetri helsta veðbankans á þessu
sviði eru líkurnar svo, fimm efstu:
Úkraína 5 á móti 2, Lettland 4 á móti 1,
Serbía 11 á móti 2, Hvíta-Rússland 11
á móti 2 og Svíþjóð 10 á móti 1. Á botn-
inum eru svo Frakkland með 66 á móti
1, Spánn og Armenía með 80 á móti 1,
Bosnía-Herzegóvína með 100 á móti 1
og Litháen með 150 á móti 1.Reuters
Allir að pósa –
enginn að spila
Partí Pólska
sveitin The
Jet Set setur
Evrópumet í
smekkleysu.