Morgunblaðið - 04.06.2007, Side 2
Nokkrum dögum síðar hafi komist á munnlegur
samningur sem Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti
með tölvupósti til Egils sem hann síðan staðfesti.
Dráttur hafi síðan orðið á að skrifað yrði undir
skriflega útgáfu af samningnum. Hafi Egill síðan
staðfest þennan skilning fyrirtækisins í símtali við
forstjóra þess hinn 22. maí.
Egill Helgason segir í tilkynningu til fjölmiðla
að samningur sinn við 365 ehf. hafi runnið út 31.
maí og ekki verið endurnýjaður. Ekki hafi verið
tilkynnt að hann hæfi störf hjá RÚV fyrr en eftir
að samningurinn við 365 rann út. „Ég skil ekki
þetta vesen og nenni eiginlega ekki að taka þátt í
því. Almennt fer líka best á því að menn vinni þar
sem þá langar,“ segir í tilkynningu Egils. 365 telur
hins vegar að samningur hafi verið kominn á og
Egill hafi rofið trúnaðarskyldu við vinnuveitanda.
Í HNOTSKURN
»365 telur að hinn19. apríl hafi kom-
ist á samningur milli
fyrirtækisins og Egils
Helgasonar.
»Egill sé því samn-ingsbundinn 365 í
tvö ár og hafi brotið
samninginn.
LÖGMAÐUR 365 ehf. hefur krafist þess að Egill
Helgason efni ráðningarsamning sinn við fyrir-
tækið. Egill hafnar því hins vegar að samningur
hafi komist á milli sín og fyrirtækisins.
Egill hefur það sem af er þessu ári verið samn-
ingsbundinn 365 og rann samningurinn út 31. maí
síðastliðinn, þ.e.a.s. á fimmtudaginn var. Tilkynnt
var á föstudaginn, 1. júní, að Egill hæfi störf hjá
RÚV. Hefur 365 ehf. nú krafist þess að Egill efni
tveggja ára ráðningarsamning sem fyrirtækið
heldur fram að hafi komist á milli Egils og 365 í
apríl og hafi átt að taka gildi í framhaldi af hinum
fyrri. Verði Egill ekki við því fyrir lok föstudagsins
8. júní muni fyrirtækið krefjast lögbanns á fyr-
irhuguð störf Egils hjá RÚV. Einnig sé áskilinn
réttur til skaðabóta vegna ólögmætrar uppsagnar
og ráðningar hjá RÚV.
Í bréfi lögmanns 365 til Egils, sem fyrirtækið lét
fjölmiðlum í té, kemur fram að viðræður milli Eg-
ils og 365 hafi hafist í lok mars og að 19. apríl hafi
aðilar náð saman um öll meginatriði nýs samnings.
Deila um hvort Egill hafi
verið búinn að semja við 365
Hóta lögbanni og skaðabótakröfu ef Egill Helgason efnir ekki samninginn
Egill Helgason
2 MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ORRI Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxa-
stofna (NASF), hefur skrifað undir sjö ára samning um
gagnkvæman kauprétt Íslendinga og Grænlendinga á
laxveiðikvótum í sjó í Norðvestur-Atlantshafi. Viðræður
stóðu yfir hér á landi mestalla síðustu viku, en að við-
ræðunum komu NASF, Atlantic Salmon Federation
(ASF) og samtök grænlenskra fiskimanna.
Orri segir samninginn tryggja það að enginn lax
verði veiddur í sjó á svæðinu næstu sjö árin en tilgangur
NASF með samningnum er að kaupa upp veiðiheimildir
og koma þannig í veg fyrir að þær verði nýttar. Verður
kaupverðinu varið til þróunarverkefna sem tengjast
sjávarútvegi á Grænlandi.
Samsvarandi samningur rann út á síðasta ári og hef-
ur verið unnið að gerð nýs samnings síðan þá. Kaup
veiðiheimildanna eru kostuð af NASF sem sækir fé til
styrktaraðila á borð við eigendur laxveiðiáa og um-
hverfisverndarsamtök.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Engar laxveiðar við Grænland í sjö ár
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„ÉG HELD að það sé mikilvægt að menn haldi
ró sinni,“ segir Árni Johnsen, alþingismaður
Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, um þá
stöðu sem komin er upp í Vestmannaeyjum í
kjölfar yfirtökutilboðs í Vinnslustöðina. „Í
fréttum að undanförnu hafa ákveðnir hlutir
verið blásnir upp þar sem getgátur hafa ráðið
meiru en rökin á bakvið.“
Árni segir kvótakerfið hafa bæði kosti og
galla og nauðsynlegt sé að endurskoða það sí-
fellt með tilliti til stöðugleika í kerfinu. Hann
telur jafnframt að það þurfi sífellt að huga að
stöðu atvinnu á allri landsbyggðinni og það sé
engin spurning að það halli á landsbyggðina í
þeim efnum því mesta þéttbýlið hrópi á ákveð-
inn forgang. Það sé nokkuð sem skoða þurfi
vel. Aðspurður hvort stjórnvöld þurfi að koma
að málinu eða hvort það snerti aðeins heima-
menn segir Árni ekkert hafa gerst til að raska
stöðu heimamanna. „Aðilar sem eru saman í
fyrirtæki eru að kanna möguleika á breyt-
ingum þar. Eftir því sem ég best veit eru allir
með það sama sjónarmið að tryggja rekstur
fyrirtækis í öflugustu verstöð Íslands í hundr-
að ár. Það er hvergi eins góð aðstaða til að
reka slíkt fyrirtæki.“ Árni segir að ekki megi
gleyma því að fjárfestingin og reynslan sem sé
fyrir hendi í þessum fyrirtækjum í Vest-
mannaeyjum sé afar mikils virði. Sökum stað-
setningar ættu Eyjar að hafa meira svigrúm
en aðrar verstöðvar til að borga hærri laun.
Þarf að skoða þetta vandlega
Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður Sam-
fylkingar, telur það sem hafi verið að gerast á
Flateyri og í Vestmannaeyjum að undanförnu
sýna að þegar lífsbjörgin er á markaði sé aldr-
ei hægt að segja til um hvar hún endar. Sú leið
sem stjórnvöld völdu að fara fyrir mörgum ár-
um hafi alltaf falið í sér þessa hættu. „Það er
hins vegar óviðunandi að heilu byggðarlögin
séu svipt lífsbjörginni í einhverju kapphlaupi
svo ég tel að menn hljóti að þurfa að skoða
vandlega hvaða möguleikar eru í þessari stöðu
og ég tala ekki um ef staðreyndin er sú að
stjórnun fiskveiða tryggir hvorki atvinnu né
verndun fiskistofnanna.“ Aðspurður hvort
stjórnvöld eigi að koma að málunum bendir
Lúðvík á að hingað til hafi ekkert gerst í Eyj-
um, einungis liggi fyrir tilboð um kaup. „Enn
sem komið er hefur ekkert tjón orðið þannig
að menn þurfa ekki að koma að þessu strax.
Þetta er bara spurning hvort þurfi að endur-
skoða stjórn fiskveiða. Í stjórnarsáttmálanum
er kveðið á um að skoða þessa þætti og ég held
að það þurfi að hraða þeirri skoðun.“
Að mati Guðna Ágústssonar, formanns
Framsóknarflokksins, er mjög mikilvægt að
fara yfir það sem er að gerast í byggðunum.
„Þetta er auðvitað gríðarlegt áfall að taka
megnið af atvinnunni og skilja byggðina eftir í
auðn. Ég held út frá þessum sjónarmiðum,
hvað varðar Vestmannaeyjar, Flateyri og Bol-
ungarvík og auðvitað fleiri staði, þá sé þetta
auðvitað mikið byggðarlegt vandamál á Íslandi
og ekki sanngjarnt.“ Guðni segir jafnframt að
stjórnvöld varði auðvitað um þessa stöðu.
„Stjórnvöld eru aldrei stikkfrí þegar stórir
hlutir gerast þannig að þau verða að vaka yfir
því.“ Guðni segir það ekki vera einkamál Vest-
mannaeyinga fari allt á versta veg. „Þetta er
alveg eins mál stjórnvalda að velta því fyrir sér
hvernig hægt sé að efla þessa byggð og hún
geti haldist uppi. Sennilega er þetta svo með
Vestmannaeyjar og marga þessa staði að þeir
hafa verið í gegnum áratugina gullkistur þjóð-
arinnar. Okkur varðar öll um hvað þar gerist
og hvernig þar fer.“
Ekki náðist í þingmennina Atla Gíslason og
Grétar Mar Jónsson vegna málsins.
Þingmenn í Suðurkjördæmi uggandi yfir
breytingum í vinnuaðstöðu á landsbyggðinni
„Gullkistur þjóðarinnar“ í hættu
Guðni
Ágústsson
Árni
Johnsen
Lúðvík
Bergvinsson
UNGA fólkið sem slasaðist í hörðum
árekstri austan við Selfoss á
fimmtudag er komið til meðvitundar
og er við ágæta heilsu, að sögn
læknis á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi.
Áreksturinn var gríðarharður og
gjöreyðilagðist bifreið þeirra við
hann. Konunni var um tíma haldið í
öndunarvél en ung dóttir þeirra sem
var í bílnum slasaðist ekki alvarlega.
Við ágæta
heilsu
ÞEIR hluthafar í Vinnslustöðinni í
Vestmannaeyjum, sem höfðu sam-
þykkt kauptilboð Eyjamanna í hluta-
bréf sín á genginu
4,6, geta nú breytt
þeirri ákvörðun
sinni. Send hafa
verið út bréf til
þeirra þess efnis
að þeir séu
óbundnir af þeirri
ákvörðun og gert
hvort sem þeir
vilja, haldið sig við
ákvörðunina,
haldið áfram að
eiga bréfin eða selt þau til Stillu, sem
hefur boðizt til að kaupa bréfin á
genginu 8,5.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
forstjóri VSV og forsvarsmaður
Eyjamanna í þessum málum, segir að
þeir hafi ekki talið annað fært en að
bjóða fólki upp á þennan kost. Það
kynni að vera að því hafi ekki verið
ljósir aðrir möguleikar í stöðunni en
að selja Eyjamönnum. Tilboð þetta
mun standa jafnlengi og tilboð Stillu,
fyrirtækis bræðranna Guðmundar og
Hjálmars Kristjánssona.
Þrátt fyrir þetta telur Sigurgeir
öruggt að Eyjamenn haldi yfirráðum
yfir fyrirtækinu og það verði áfram
rekið með sama hætti í Vestmanna-
eyjum. Hann gerir ekki ráð fyrir öðru
en að 67% hlutur Vestmannaeyinga í
fyrirtækinu verði áfram í eigu þeirra.
Baráttan um Vinnslustöðina virðist
þó enn munu halda áfram, að minnsta
kosti meðan tilboð Stillu er enn í gildi.
Hluthafar
geta skipt
um skoðun
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Ekki annað fært en
að bjóða þann kost
BIFHJÓLASLYS varð á Akureyri
kl. 12 á hádegi í gær. Keyrt var í veg
fyrir létt bifhjól á mótum Glerárgötu
og Grænugötu. Bílstjórinn sá ekki
bifhjólið er hann beygði inn á Glerár-
götu segir lögreglan á Akureyri.
Konan sem keyrði bifhjólið féll í
götuna og fékk slæmt höfuðhögg en
hjálmurinn þeyttist af henni. Hún
var flutt á Fjórðungssjúkrahús
Akureyrar og var með fullri meðvit-
und en hún er á sextugsaldri.
Keyrt í veg
fyrir bifhjól
♦♦♦
LÖGREGLAN á Akranesi fann í
gærkvöldi yfir 20 grömm af am-
fetamíni á ökumanni sem hún hafði
stöðvað á Akrafjallsvegi og þar að
auki gaf þvagsýni úr manninum
merki um að hann hefði neytt am-
fetamíns, kannabiss, metamfetam-
íns, ópíums og kókaíns. Blóðsýni
var tekið úr honum og fer það til
frekari rannsóknar.
Þetta var í annað skipti um
helgina sem lögreglan á Akranesi
stöðvaði mann sem ók undir áhrif-
um fíkniefna en sýni úr hinum fyrri
gaf til kynna neyslu á amfetamíni,
metamfetamíni og kókaíni.
Tveir dópaðir
undir stýri
♦♦♦