Morgunblaðið - 04.06.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.06.2007, Blaðsíða 23
Fréttir á SMS MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2007 23 ólíkindum er. Og þetta er gert án þess að reyna með nokkrum hætti að afsaka kerfið ómanneskjulega, hræsni valdhafanna og allan viðbjóðinn. Það sem heillaði Vík- verja mest var að að- ferð leikstjórans minnti mjög á Íslendingasög- urnar þar sem hlutirnir eru sjaldan útskýrðir í þaula heldur verður lesandinn að lesa milli línanna, túlka sjálfur. Fólk roðnar eða fölnar, stynur eða bara þegir á örlagastundu, okkar er að skilja hvað liggi að baki. Og Mühe er eins og nútímaleg útgáfa af þess- um söguhetjum, segir nánast aldrei neitt sjálfur sem geti gefið okkur skýra hugmynd um átökin í sál hans. En við sjáum á stífu göngulaginu, bældum hreyfingunum, að hann er ósáttur, tómt augnaráðið kemur stundum upp um orðlausa örvænt- inguna. Og einmanaleiki hans er nístandi, næstum áþreifanlegur. Hryllingurinn varð efni í klassískt listaverk. Víkverji vonar að sem flestir sjái Líf annarra og skilji þá hvernig ríkisvald þeirra sem segjast vilja vel getur orðið þegar það geng- ur berserksgang. Í endalausum flaumiaf heldur mis- jöfnum Hollywood- myndum kvikmynda- húsanna í Reykjavík bregður stöku sinnum fyrir snilldarverkum. Eitt þeirra er þýska myndin Líf annarra sem gerð er af manni með hið tígulega heiti Florian Henckel von Donnersmarck. Þar er sagt frá súrrealískri tilveru fólks í Austur- Þýsklandi fyrir hrunið 1989, heimi þar sem stjórnvöld óttuðust ekkert meira en sína eigin borgara. Hundruð þúsunda embættismanna og uppljóstrara höfðu vakandi auga á þeim sem tald- ir voru geta orðið til vandræða, hvorki meira né minna en þriðjungi þjóðarinnar í sæluríkinu. Athyglisverðasta persónan er kaf- teinn í öryggislögreglunni (Stasi), sem leikinn er af Ulrich Mühe. Sjaldan hefur Víkverji orðið vitni að jafn áhrifaríkum en um leið maka- laust hófstilltum leik. Samúðin var að sjálfsögðu með fórnarlömbum al- ræðisins en Mühe tekst að gæða persónu kafteinsins, gráu mús- arinnar sem „bara“ vinnur sína vinnu, svo mannlegri ásjónu að með           víkverji skrifar | vikverji@mbl.is við erum að láta upp í okkur. Lifr- arkæfa og steiktur fiskur er í sér- stöku uppáhaldi. Hann fær hins- vegar aldrei lauk því þá verður hann svo andfúll. Annars étur hann tvisvar á dag og er aðallega á þurr- fóðri og vatni ef undan eru skildar nammistundir, svona við og við. Hann þarf að fara út að labba nokkrum sinnum á dag og í bað tvisvar í mánuði eða oftar ef hann lendir í drullu. Honum finnst af- skaplega gott að naga hundabein og þarf þá að vera í friði við það og það styrkir og hreinsar tennurnar,“ segir Heiður um hundinn sinn sem nú er rétt eins og hálfs árs gamall. Ef unga parið bregður sér af bæ er fullt af fólki sem býður sig fram í pössunarhlutverkið. „Fyrstir koma, fyrstir fá,“ segir Heiður enda er Rómeó aufúsugestur orð- inn víða, afar vinsæll og veit af því, núna eftir að hann hefur fengið til- sögn í því hvað má og hvað ekki. „Hann týndist þó um miðjan vet- ur í snjó, frosti og svartamyrkri og hefði auðveldlega getað orðið úti. Ég hafði miklar áhyggjur af mínum litla vini og fór út í sjoppu þar sem ég skildi eftir skilaboð og síma- númer. Eftir þrjá tíma hringdi í mig maður sem hafði komið í um- rædda sjoppu og séð skilaboðin. Hann sagðist sitja uppi með ókunnan hund, sem hafði skriðið upp í sófa hjá þessu ókunnuga fólki, greinilega rammvilltur greyið.“ Reyndi að stela extra-tyggjói Rómeó hefur fengið býsna „ag- að“ uppeldi og er skammaður ef hann gerir eitthvað sem er fjöl- skyldunni á móti skapi. „Hingað til hefur hann látið skóna okkar í friði, en finnst algjört æði að tæta niður klósettrúllur. Hann hefur líka gert ítrekaðar tilraunir til að stela af mér extra-tyggjói úr peysuvasanum og þegar ég stóð hann að verki, varð hann svakalega skömmustu- legur. Á kvöldin finnst honum svo geggjað að kúra með okkur yfir sjónvarpinu og vill þá helst vera á bólakafi í sænginni.“ Morgunblaðið/ÞÖK Nammidagur Lifrakæra og steiktur fiskur er það besta sem hann fær. Nú er svo komið að mamma er algjörlega bráðnuð gagnvart Rómeó og hann hefur náð að heilla hana upp úr skónum, eins og okkur hin í fjölskyld- unni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.