Morgunblaðið - 04.06.2007, Síða 21
fjármál fjölskyldunnar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2007 21
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
!!"! #$%&' () (
*+,&'
-.' /0 1(( 222"34,33"'
5
5
6
Nú þegar sumarið hellistyfir sprettur fólk framúr kofunum og fer aðdytta að umhverfinu,
bæði garðinum og hýbýlunum. Eitt
af því sem þarf að huga að er viðhald
heimilisins utanhúss. Reglulega þarf
að mála hús að utan því allt vill þetta
veðrast af íslensku rigningunni og
hraglandanum, bæði timburverk í
gluggum, þök og málning á veggj-
um. Og það skiptir ekki bara máli
fagurfræðilega séð að málningu á
húsum sé vel viðhaldið, það kemur
líka í veg fyrir varanlegar skemmd-
ir. Auk þess getur það rýrt verðgildi
eignarinnar ef ekki er hugað að
þessum málum.
En hvað kostar að mála og hvað
þarf að hafa í huga?
Þorsteinn Viðar Sigurðsson, for-
maður Málarameistarafélagsins,
segir að þegar um endurmálun sé að
ræða þá sé mjög æskilegt að byrja á
því að háþrýstiþvo húsið.
„Þetta er nauðsynlegra en það var
áður hér á höfuðborgarsvæðinu
vegna þess að það er svo mikil
mengun í borginni. Af þeim sökum
situr sót og annað í veggjunum sem
rýrir bindimöguleika á nýju máln-
ingunni. Til að ná gamalli lausri
málningu af þarf að hafa háþrýsti-
dælu þar sem þrýstingurinn á vatn-
inu er um tvö hundruð bör, en það er
hægt að leigja sér slík tæki í Húsa-
smiðjunni, Býkó og fleiri stöðum.
Það sem skiptir máli í þessum þvotti
er að fara vandlega yfir flötinn og
ekki skilja neitt eftir. Það er ekki
nóg að bleyta flötinn, heldur þarf að
fara reglubundið yfir þannig að hver
fersentimetri sé örugglega þveginn.
Gott er að miða við að vera með stút-
inn á dælunni um 20 sentimetra frá
veggnum þegar bununni er beint á
flötinn. Í allri undirbúningsvinnu
skiptir miklu máli að vanda sig. Það
þarf að passa vel að fara ekki með
dæluna á tréverk, eins og til dæmis
gluggana. Best er að sleppa því að
nota dæluna inn á gluggakantana
heldur aðeins út á brún. Eftir þvott-
inn kemur væntanlega í ljós að
málningin hefur flagnað af á ein-
hverjum svæðum og þar skín í beran
steininn. Eftir að steinninn er orðinn
þurr er gott að bletta þessi svæði
með terpentínuþynnanlegri akrýl-
málningu. Ágætt er að þynna þá
málningu með terpentínu um það bil
tíu prósent, þá smýgur hún vel inn í
steininn og nær að binda hann.“
Ef gera þarf við sprungur er hægt
að kaupa sementsviðgerðarefni í
Býkó, Húsasmiðjunni og öðrum
samsvarandi verslunum og þar er
hægt að fá ágætisleiðbeiningar um
meðferð þeirra.
„Eftir þessa meðferð eru málaðar
tvær umferðir af venjulegri útimáln-
ingu. Ég mæli með íslenskri úti-
málningu af því að hún er gerð fyrir
íslenska veðráttu og er mjög veðr-
unarþolin. “
Þegar kemur að tréverkinu í
gluggakörmunum er gott að byrja á
því að skafa burt alla lausa og gamla
málningu með karbídsköfu.
„Þá þarf að passa að fara ekki með
sköfuna út á glerið því hún getur
rispað það. Eins má ekki skafa kítti
meðfram rúðum í burtu því þá getur
allt farið að leka. Síðan er gott að
slípa yfir með sandpappír númer
100. Sama gildir um viðinn eins og
steininn, það þarf að grunna allan
beran við og til þess er ágætt að nota
viðarvörn sem er gegnsæ, hún
smýgur vel inn í viðinn. Að lokum er
svo farið með tvær umferðir með
þekjandi olíuviðarvörn, því mín
reynsla er sú að hún dugar best.“
Sem fagmaður mælir Þorsteinn
Viðar að sjálfsögðu með því að fólk
leiti til fagmanna með málning-
arvinnu og leggur mikla áherslu á að
ekki séu viðhöfð nótulaus viðskipti
og að fagmaðurinn sé með réttindi.
„Þá ber sá sem framkvæmir verk-
ið fulla ábyrgð og einnig tryggir það
góð vinnubrögð. Fagmenn koma á
staðinn, mæla upp og gera fast til-
boð. Ekki er óalgengt að það sé á
bilinu 1.400-1.700 krónur á fermetra,
eftir því hversu mikið þarf að gera
við flötinn. Inn í þessu verði er und-
irvinna, allur efniskostnaður, vinna
og virðisaukaskattur.“
khk@mbl.is
Er kominn tími til að mála húsið?
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningsvinna Það skiptir miklu máli að öll undirbúningsvinna sé
vönduð, því þannig endist málningin betur.
Reglulega þarf að mála
hús að utan því allt vill
veðrast af íslensku rign-
ingunni og hraglandan-
um og málningin skiptir
ekki bara máli fagur-
fræðilega séð því hún
kemur líka í veg fyrir
varanlegar skemmdir.
En hvað, spyr Kristín
Heiða Kristinsdóttir,
kostar að mála og hvað
þarf að hafa í huga?
Háþrýstiþvottur
Til að hreinsa gamla og lausa máln-
ingu af veggjum þarf að leigja há-
þrýstidælu sem er 240-280 bör. Hjá
Býkó kostar fyrsti leigudagur slíkr-
ar dælu um 10.000 krónur, en fyrir
hvern aukadag er greitt um hálft
það verð. Nauðsynlegt er að vera
með trekvart tommu vatnslögn til að
geta notað þessar dælur.
Málning
Hjá Málningu hf. fengust þau svör
að yfirleitt væri gert ráð fyrir að
einn lítri af útimálningu næði að
þekja um það bil sjö til átta fer-
metra. Þar af leiðir að tíu lítrar af
málningu duga á ca 35 fermetra.
Í endurmálningu er venjan að bletta þurfi um 20% af veggjunum og síðan
eru málaðar tvær umferðir þar yfir með útimálningu. Efniskostnaður er þá
samtals um 500 krónur á fermetra.
Ef verið er að mála nýbyggingu þarf fyrst að sílanbaða múrinn með glæru
efni sem heitir Monasílan, til að loka litlum sprungum og koma í veg fyrir
að vatn komist inn í veggina. Síðan þarf að fara eina umferð með grunn-
málningu sem er terpentínuþynnanlegur grunnur og kallast steinakrýl.
Þar á eftir er farið eina umferð yfir með hefðbundinni útimálningu. Kostn-
aður við málun á nýbyggingu er um 810 krónur á hvern fermetra.
Pallaleiga
Ef hús er á tveimur eða fleiri hæðum þarf að leigja palla svo fólk nái alla
leið upp með rúllur og pensla.
Meðal annars er hægt að leigja slíka palla hjá Pallaleigunni Stoð og þeir sjá
einnig um að setja þá upp. Dagleigan er 1.420 krónur fyrir hjólapall sem
nær upp í 6 metra. Ef húsið er þriggja hæða þarf hærri hjólapall og þá er
dagleigan 1.900 krónur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Kostnaður og undirbúningur
Á vef Málarameistarafélagsins www.malarar.is er að finna þessi góðu ráð:
Gakktu ávallt úr skugga um að sá aðili sem þú skiptir við hafi tilskilin
réttindi. Spurðu hann um félagsskírteini.
Fáðu alltaf skriflegt tilboð í verkið áður en hafist er handa.
Það er góð regla að gera verksamning á milli verktaka og verkkaupa
þar sem fram koma helstu atriði varðandi verkið.
Mundu að þegar þú færð iðnaðarmann til að vinna við íbúðarhúsnæði
þitt áttu rétt á endurgreiðslu á 60% af virðisaukaskattinum af vinnunni.
Ýmis góð ráð sem vert er að gefa
gaum að áður en hafist er handa