Morgunblaðið - 04.06.2007, Blaðsíða 38
Afgangurinn er ámóta
ómerkileg samsuða
suðurríkjafyrirlitningar, hom-
mafóbíu, múslimabrand-
ara … 45
»
reykjavíkreykjavík
Hátíð hafsins hófst með hrollvekj-andi hávaða á laugardagsmorgunog fröken fluga, sem býr auðvitað ímiðbænum og rétt við höfnina,
hrökk í kút við þeytingu þokulúðranna; hélt í
svefnrofunum að skollin væri á heimsstyrjöld
og treysti því að Georg Lárusson stæði í
brúnni hjá Landhelgisgæslunni og verði land-
ið. Fluga tók síðan forvitin stefnuna á hafn-
arsvæðið og flögraði um á milli fiskikara og
skoðaði furðufiska, bæði af fiskistofnum sem
og karlmannsstofnum, en var ekkert voða
spennt fyrir hvalaskoðuninni enda ekki lys-
taukandi að skoða hvalakrúttin sem munu svo
enda lífdagana á útigrillinu hjá Sægreifanum.
En furðufiskarnir á höfninni voru bara hátíð
miðað við stórlaxana sem mættu í einkapartíið
á B5 í Bankastræti á laugardagskvöldið. Þeir
voru sko ekki allir roðlausir og beinlausir og
bar vel í veiði, sérstaklega fyrir flugukyns-
stelpur, því laxarnir gleypa allir glaðir flottar
flugur. Tilefnið var opnun á glæsiaðstöðu í
kjallaranum, sem áður hýsti peningageymslur
Verslunarbankans. Nú getum við kannski
loksins talað um „old money“ hér á eyju hinna
nýríku; peningailmurinn loðir jú enn við and-
rúmsloftið. Það sem kallast White Whiskey
Room þar, reyndar í rauðum litum og villta-
vesturs-stíl, er athvarf fyrir menn sem vilja
„spandera“ í ofurdýrar viskíflöskur og hitt
svæðið, eða svokallað B5 Lounge, er svona
„kúl design“ fyrir elegant dömur í spariskapi
sem vilja blæða í eðalkampavínsflöskur.
Hvorki Innlits-útlits-stílistinn Þórunn Högna-
dóttir né Ingi Þór Jakobsson í Exo misstu af
þessum viðburði og á staðnum voru líka Árni
Þór Vigfússon fjölmiðlungur og Habitathjónin
Ingibjörg Þorvaldsdóttir og Jón Arnór Guð-
brandsson. Söngkonan María Björk Sverr-
isdóttir trítlaði líka um svæðið.
Og áfram með þema hafsins; ljósmyndarinn
Páll Stefánsson skartaði einmitt sægrænum
jakka við opnun sýningar sinnar og Ragnars
Axelssonar á föstudagseftirmiðdaginn og
menningarmærin okkar, Svanhildur Konráðs-
dóttir, missti ekki af sýningunni. Flugufélagar
hittust á 101 hóteli til að snæða kvöldverð á
föstudagskvöldið en urðu fyrir vonbrigðum
með lapþunna humarsúpu, prýdda fátæklegu
sýnishorni af humri. Kokkarnir tóku greini-
lega hátíð hafsins ekki alvarlega. Meðal gesta í
borðsal voru Linda Eyjólfsdóttir, annar eig-
andi auglýsingastofunnar Korters, Guðný
Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri
Parlogis, og Þórdís Arnljótsdóttir fréttamað-
ur. Þar sem nú var fyrsti í reykingabanni
brugðum við dömurnar okkur út á stétt eftir
matinn til að kveikja í en vorum reknar burt af
starfsmanni hótelsins. Hrökkluðumst því
vandræðalegar upp götuna að Óperunni, hvar
loks fannst eitt eymingjalegt stubbahús undir
öskuna.
En enginn var rauði dregillinn …
| flugan@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hilmar Jónsson og Elín Ósk Óskarsdóttir.
Helga Ólafsdóttir og Margrét Steinarsdóttir .
Hermann Örn Sigurðsson, Guðný María
Waage og Kristján Sigurðsson.
Kristjana Guðný Eyjólfsdóttir,
Hildur Guðný Þórhallsdóttir og
Margrét Högna Ásgeirsdóttir .
Xu Wen og
Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Hulda Björk Garðarsdóttir, Ósk Magn-
úsdóttir og Sigríður Gylfadóttir.
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
og Birna Þórðardóttir.
Hilmir Snær Guðnason
og Vytautas Narbutas.
Grétar Reynisson og
Bryndís Petra Bragadóttir.
Hanna Birna Sigurbjarnardóttir, Halldór
Þorgeirsson og Guðný Halldórsdóttir.
Flugan
Prívatpartí nýríkra í
peningageymslunni
… hvar loks fannst eitt eymingja-
legt stubbahús undir öskuna …
Þórunn Sigurðardóttir og
Pierre Alain.
Vilborg Halldórsdóttir og
Lárus Ýmir Óskarsson.
Morgunblaðið/Sverrir
» Vytautas Narbutasopnaði myndlistarsýn-
ingu sína á Næsta bar.
» Cantare – söngvakeppnihinna mörgu tungumála var
haldin á Björtum dögum í
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
» Tilnefn-ingar til
Grímunnar –
íslensku leik-
listarverð-
launanna
2007 voru
gerðar op-
inberar í Ís-
lensku óp-
erunni.
Viðar Eggertsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Stefán Baldursson.